Morgunblaðið - 02.02.2000, Side 2
2 C MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
ÚRSLIT
ÍÞRÓTTIR
Knattspyma
Afríkukeppni landsliða
1. riðill:
Ghana - Fílabeinsströndin............0:2
Kamerún - Togo.......................1:0
Staðan
Kamerún....................3 1 1 1 4:2 4
Ghana......................3 1 1 1 3:3 4
Fflabeinss.................3 1 1 1 3:4 4
Togo .....................3 1 1 1 2:3 4
■Kamerún og Ghana eru komin í 8-liða
úrslit.
2. riðill:
Alsír - Gabon........................3:1
S.Afríka .................2 2 0 0 4:1 6
Alsír ....................2 1 1 0 3:1 4
RD Kongó...................2 0 1 1 0:1 1
Gabon......................2 0 0 2 2:6 0
■Suður-Afríka er komin í 8-liða úrslit.
3. riðill:
Egyptaland - Senegal.................1:0
Zambía - Burkina Faso ...............1:1
Egyptaland - Burkina Faso............4:2
Zambía - Senegal ....................2:2
Staðan:
Egyptaland.................3 3 0 0 7:2 9
Senegal....................3 1 1 1 4:3 4
Zambía.....................3 0 2 1 3:5 2
Burkina P1.................3 0 1 2 4:8 1
■Egyptaland og Senegal eru komin í 8-liða
úrslit.
4. riðill:
Nígería - Kongó......................0:0
Túnis - Marokkó......................0:0
Staðan:
Nígería....................2 1 1 0 4:2 4
Marokkó....................2 1 1 0 1:0 4
Kongó......................2 0 1 1 0:1 1
Túnis......................2 0 1 1 2:4 1
Holland
Urvalsdeildin:
MW Maastricht - Roda.................0:0
■Jóhannes Karl Guðjónsson lék allan
leikinn með MW.
Frakkland
Auxerre - Bordeaux...................1:0
Mónakó - Paris SG....................1:0
■ David Trezeguet skoraði sigurmark
Mónakó sem er komið með yfirburðastoðu,
hefur 52 stig en Auxerre er með 42 stig í
öðru sæti.
Spánn
Bikarkeppnin, 3. umferð, siðari leikir:
Celta Vigo - Espanyol ..............0:1
(Espanyol áfram, 3:1 samanlagt)
Villarreal - Compostela ............3:0
(Jafnt, 3:3. Compostela áfram eftir
vítaspyrnukeppni)
England
2. deild:
Chesterfield - Gillingham...........0:0
Oxford - Preston...................0:4
Scunthorpe - Wrexham ...............0:2
3. dcild:
Mansfield - Brighton ...............1:0
Vináttuleikur
Celtic - Bayern Miinchen...........1:2
Burchill 67. - Elber 13., Fink 44.
Körfuknattleikur
NBA-deildin
Leikir í fyrrinótt:
Miami - Detroit..................104:82
Minnesota - Sacramento ..........105:90
Orlando - Phoenix...............113:117
Denver - Philadelphia.............83:80
Vancouver - Milwaukee.............87:92
Kraftfyftingar
íslandsmótið í bekkpressu fdr fram í
htísakynnum Kraftvóla hf. 29. janúar.
FLOKKUR 67,5 kg
Halldór Júlíusson................50
FLOKKUR 75 kg
Karl Sædal......................140
Þór Þráinsson...................120
Leifur Leifsson.................120
FLOKKUR 82,5 kg
Domenico Alex Gala ...........162,5
Vilhjálmur Páll Bjarnason.......140
FLOKKUR 90 kg
Jimmy R. Routhley ..............175
Axel Heiðar Guðmundsson ........170
Freyr Bragason................162,5
Sofanías Eggertsson ............140
Magnús Guðjónsson...............105
FLOKKUR 100 kg
Björgúlfur Stefánsson...........220
Davíð Örn Auðbergsson...........145
FLOKKUR 110 kg
Jón Bjöm Bjömsson.............182,5
Flosi Jónsson ..................180
Bjarki Þór Sigurðsson ........177,5
Bragi Páll Bragason.............176
Þorbjörn Þorbjömsson ...........170
FLOKKUR 125 kg
Auðunn Jónsson..................240
Ingvar Ingvarsson...............190
Eiríkur Einarsson ..............150
FLOKKUR +125 kg
Jón B. Reynisson................255
Hjalti Ámason.................237,5
Magnús Ver Magnússon ...........235
Grétar Hrafnsson................175
KVENNAFLOKKAR:
FLOKKUR 56 kg
Sif Garðarsdóttir..............57,5
FLOKKUR 60 kg
Jóhanna Eiríksdóttir...........72,5
í KVÖLD
Handknattleikur
1. deild kvenna:
Austurberg: ÍR - Valur..............20
Ásgarður: Stjarnan - Haukar ........20
Framhús: Fram - UMFA ...............20
Seltjarnarnes: Grótta/KR - FH.......20
Víkin: Víkingur - ÍBV ..............20
1. deild karla:
Vestm.eyjar: ÍBV - FH ..............20
Jóhanna
tvíbætti
íslands-
metið
JÓHANNA Eiríksdóttir gerði sér
lítið fyrir og' tvíbætti Islands-
metið í bekkpressu á meistara-
mótinu um sl. helgf. Jóhanna
lyfti fyrst 65 kg, sfðan 68,5 kg,
sem er Islandsmet. Hún gafst
ekki upp, lét setja 72,5 kg á
slána og lyfti henni, en mistókst
síðan í aukatilraun við 75 kg.
Björgúlfur Stefánsson varð
sigurvegari í 100 kg flokki.
Hann byrjaði á að lyfta 205 kg,
lyfti svo 220,5 kg og bætti þar
með íslandsmet Jóns Gunnars-
sonar um hálft kfló. í þriðju til-
raun reyndi Björgúlfur svo við
225 kg og fór með þá þyngd
langleiðina upp.
Auðunn Jónsson hefur undan-
farin ár setið eftir í bekkpress-
unni en verið að bæta sig í hin-
um greinum kraftlyftinga. Hann
var mættur tii Ieiks í 125 kg
flokki til að bæta þar úr og byij-
aði á að lyfta 220 kg og svo 240
kg. Auðunn reyndi síðan við Is-
landsmet, 252,5 kg, en mistókst.
Hann sigraði þó örugglega í
flokknum. Annar varð Ingvar
Ingvarsson, lyfti mest 190 kg.
Auðunn Jónsson náði ekki að setja íslandsmet í bekkpressu.
KNATTSPYRNA
Þaðer
ímörg
hom
aðlíta
Skúli Urtnar
Sveinsson
skrifar
frá Spáni
Það er í mörg hom að líta þegar
búa þarf landslið út til eins og
Norðurlandamótið knattspyrnu,
ekki síst þegar það
fer fram fjarri
heimahögum. Gríð-
arlega mikill farang-
ur fylgir hverju Uði
og t.d. höfðu Norðmennirnir það
þannig að þeir sendu vöruflutninga-
bíl frá Ósló til Kaupmannahafnar í
síðustu viku og þaðan til La Manga.
Fór hann með með búninga liðanna,
auglýsingaskilti og annað þannig að
ferðalag landsliðanna varð þægi-
legra fyrir vikið.
Til að gefa dæmi um hvað fylgir ís-
lenska landsliðinu í La Manga þá
segir Sveinbjöm Sveinbjörnsson,
liðsstjóri þess, að hann sé með um
150 galla fyrir leikmennina. Hér er
átt við keppnisbúningana, utanyfír-
galla, æfingapeysur og buxur og þar
sem tvær æfingar era á dag þarf
tvöfalt sett af þessu. Þá er einnig um
að ræða sérstök íþróttaföt sem leik-
menn eru í þegar þeir eru inni á hót-
eli og svo framvegis. Þetta þarf síðan
allt að þvo jöfnum höndum.
Sveinbjörn gerir raunar meira en
að hugsa um búningana og það em
ólíklegustu verkefni sem hann fær
upp í hendurnar. Á seinni æfingunni
á sunnudag var hann til dæmis í
splunkunýjum fótboltaskóm sem
hann var að ganga til fyrir Pétur
Hafliða Marteinsson.
Þetta er fyrsta ferð Sveinbjörns
sem liðsstjóra með A-landsliði karla
en hann kom til starfa með því er Atli
Eðvaldsson tók við þjálfun landsliðs-
ins af Guðjóni Þórðarsyni fyrir nokk-
ur. Áður hefur Sveinbjörn unnið með
Atla hjá Fylki, 21 árs landsliðinu og
KR.
Morgunblaðið/Kristinn
Sveinbjörn Sveinbjörnsson liðsstjóri hugar að búningum landsliðsins á milli æfinga.
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 2000 C 3
ÍÞRÓTTIR
Morgunblaðið/Golli
Slasaðist
íhvfld
ERIK Hoftun, landsliðsmaður Norð-
manna í knattspyrnu, hefur verið
sendur heim frá La Manga. Hann
meiddist á óvenjulegan hátt, á meðan
hann lá fyrir og hvfldi sig á herbergi
sínu. Hoftun reis upp við dogg, en
fékk um leið á sig slæman hnykk og
var ekki leikfær gegn íslandi á mánu-
dag af þeirn sökum. Nils Johan Semb
landsliðsþjálfari taldi ekki frekari
not fyrir Hoftun á mótinu og sendi
hann heim með næstu flugvél.
Stormur haml-
aði för Völu
STORMVIÐRI á Eyrarsundi kom í veg
fyrir að Vala Flosadóttir stangar-
stökkvari keppti á alþjóðlegu móti í
Vínarborg í gær, en henni hafði fyrir
nokkru verið boðið til mótsins. Reynd-
ar lægði storminn er leið á daginn en
þá komust stangir hennar ekki með
þeirri ferð sem bauðst og því ákvað
hún að sleppa förinni, að sögn Vésteins
Hafsteinssonar, verkefnisstjóra Fijáls-
íþróttasambandsins. Ekki þjónaði
neinum tilgangi að fara til móts án
stanganna.
Vala keppir á þremur sterkum al-
þjóðlegum mótum í Frakklandi og Sví-
þjóð á næstunni.
Þrír ættliðir í
íslensku
landsliði
ÞEGAR Þórhallur Hinriksson úr KR
lék sinn fyrsta A-landsleik gegn Norð-
mönnum á La Manga í fyrradag varð
hann þriðji ættliðurinn til að leika með
íslenska knattspyrnulandsliðinu. Afi
hans, Þórhallur Einarsson, lék fyrsta
landsleik Islands, gegn Dönum árið
1946, og faðir hans, Hinrik Þórhalls-
son, lék tvo landsleiki, árin 1976 og
1980.
KNATTSPYRNA
Aukin samkeppni
hjá Guðmundi í
Geel í Belgíu
MIKLAR breytingar hafa orðið í herbúðum belgíska liðsins
KFC Verbroedering Geel, sem Guðmundur Benediktsson leik-
ur með. Þjálfari liðsins var látinn víkja í síðustu viku og for-
ráðamenn liðsins eru sagðir hafa komið á samstarfi við ung-
verska liðið MTK Búdapest sem felur í sér að fjöldi ungverskra
leikmanna er á leið tii Geel.
Guðmundur Benediktsson sagði í
samtali við Morgunblaðið að
einn ungverskur leikmaður hefði ver-
ið hja* félaginu en fjórir til viðbótar
væra komnir til Geel og hefðu þeir
leikið með liðinu í 3:0-sigurleik gegn
Lokeren um síðustu helgi. Þá væri
von á fjórum Ungveijum til liðsins
næstu tveimur mánuðum. Hann sagði
að nokkrir leikmenn liðsins hefðu
þurft að víkja fyrir ungversku leik-
mönnunum og væru látnir æfa með
b-liði Geel. Hann sagðist ekkert
hafa rætt við forráðamenn félags-
ins um framtíð sína hjá félaginu, en
hann væri að koma sér í leikform
eftir að hafa legið í flensu í hálfan
mánuð og ekki leikið með liðinu að
undanförnu. „Ég hef ekkert rætt
við þá en ætla að einbeita mér að
því að koma mér í form. Það er
mikil óánægja meðal leikmanna
liðsins með stöðu mála enda gert
ráð fyrir að einhverjir verði látnir
hliðra til fyrir Ungverjunum. Ég
ætla að sjá til en ef ég næ ekki að
festa mig í sessi í liðinu ætla ég að
skoða mín mál.“ Guðmundur, sem
var leigður frá KR fram í vor, sagði
að margt væri skrafað um innan fé-
lagsins um samskipti þess við ung-
verska liðið og að því væri jafnvel
haldið fram að MTK Búdapest
hefði keypt meirihluta í Geel en því
hefði forseti belgíska liðsins neitað.
Hins vegar hefði það vakið athygli
að ungverskir forráðamenn MTK
hefðu sést á öllum leikjum Geel að
undanförnu. Geel er í næstneðsta
sæti í 18 liða 1. deild.
KÖRFUKNATTLEIKUR/NBA-DEILDIN
Hardaway kom,
sá og sigraði
PENNY Hardaway hlaut óblíðar
móttökur í fyrstu heimsókn
sinni til Orlando eftir að hann
yfirgaf körfuknattleikslið
heimamanna í NBA-deildinni.
Eigi að síður gerði hann 21 stig
fyrir lið sitt, Phoenix Suns,
sem fór með sigur af hólmi,
117:113.
etta er aðeins hluti leiksins. Ég
gat lítið gert við þessu og ein-
beitti mér því að því að hjálpa liði
mínu við að knýja fram sigur,“ sagði
Hardaway um framkomu áhorfenda,
sem bauluðu á leikmanninn í hvert
sinn sem hann snerti boltann.
Orlando var fyrsta liðið í NBA-
deildinni, sem Hardaway lék með.
Hann gekk til liðs við Phoenix síðast-
liðið sumar vegna leikmannaskipta
Orlando og Phoenix.
Hardaway er nýbyrjaður að leika
á ný með liði sínu, en hann missti af
21 leik vegna meiðsla, reif vöðva í
hægri fæti.
„Mér féll þetta þungt í fyrstu, en
þannig era kaupin á eyrinni. Ég
lærði margt þegar ég lék hér, sér-
staklega fékk ég ýmis holl ráð til að
bregðast rétt við mótlæti. Ég beitti
þessum ráðum núna,“ sagði Har-
daway.
Clifford Robinson gerði 28 stig
fyrir Phoenix og leikstjómandinn
snjalli Jason Kidd skoraði tuttugu
stig auk þess að gefa fjórtán stoð-
sendingar.
Darrell Armstrong var atkvæða-
mestur leikmanna Orlando, skoraði
26 stig og gaf 11 stoðsendingar.
Heimamenn lentu 25 stigum undir,
en klóruðu í bakkann áður en Phoen-
ix-liðið greiddi Flórídabúunum rot-
höggið.
„Það er ávallt sætt að vinna sigur
á gömlu liði sínu, sérstaklega í fyrsta
sinn sem maður mætir því,“ sagði
Hardaway.
Ásamt Shaquille O’Neal leiddi
hann Orlando Magic til úrslitaleikja
NBA-deildarinnar árið 1995, en þar
biðu þeir félagar skipbrot gegn Hou-
ston Rockets og töpuðu öllum fjórum
leikjum sínum við Texasbúana.
Stjóm Orlando og stuðningsmenn
liðsins voru hins vegar ekki ánægðir
með yfii’lýsingar Hardaways þess
efnis að væntingar, sem gerðar voru
til hans er O’Neal yfirgaf liðið, væru
ósanngjamar.
Hardaway gagnrýndi einnig
háttalag eiganda Orlando-liðsins,
Rick DeVos, sem hann sagði hafa
vanmetið sig og að lokum neytt sig til
að yfirgefa félagið.
I stað þess að eiga á hættu að
missa Hardaway úr borginni samn-
ingslausan, skipti Orlando honum til
Phoenix fyrir Pat Garrity, Danny
Manning og tvo valrétti í fyrstu um-
ferð háskólavalsins.
Skiptin voru hluti af uppstokkun
Orlando, sem m.a. var til þess fallin
að auka rými undir launaþaki liðsins.
Svo gæti farið að félagið fengi tíu
hagstæða valrétti í háskólavalinu
næsta sumar og einnig er mögulegt
að staða liðsins verði nógu sterk til
að semja við einn eða tvo sterka leik-
menn með lausa samninga.
Þessa uppstokkun gagnrýndi
Hardaway og hefur viðhorf hans
vakið hörð viðbrögð hjá mörgum
stuðningsmönnum Orlando Magic,
sem m.a. sýndu það með fjandskap
sínum í fyrrinótt.
■ ARNAR Gunnlaugsson skoraði
fyrir varalið Leicester, sem gerði
2:2 jafntefli við Chelsea í fyrrakvöld.
■ LEICESTER mætir Aston Villa í
seinni leik liðanna í undanúrslitum
deildabikarsins í kvöld. Vonir Am-
ars um að vera í byrjunarliðinu hafa
glæðst aðeins þar sem Tony Cottee,
sem átti að spila á ný eftir mánaðar-
hlé, er með heiftarlega sýkingu í
auga og verður tæpast leikfær.
■ KRISTJÁN Sigurðsson kom inn á
sem varamaður um miðjan síðari
hálfleik hjá varaliði Stoke, sem
gerði 1:1 jafntefli við Port Vale í
fyrrakvöld. Kristján er bróðir Lár-
usar Orra Sigurðssonar, sem eitt
sinn lék með Stoke en er nú í her-
búðum WBA.
■ GIANLUCA Vialli, knattspyrnu-
stjóri Chelsea, verður í leikmanna-
hópi liðsins sem tekur þátt í Meist-
aradeild Evrópu þegar hún hefst að
nýju. Vialli lék síðast með Chelsea
gegn Derby í maí sl. Hann getur þó
ekki verið í leikmannahópi Chelsea í
fyrsta leik keppninnar að loknu hléi
því hann á eftir að taka út leikbann í
framhaldi af brottrekstri af vara-
mannabekknum í leik í keppninni
fyrirvetrarleyfi.
■ HERBERT Amarson skoraði 12
stig fyrir Donar Groningen sem
tapaði fyrir Image Center Werk-
endan 64:63 í úrslitakeppni sex
efstu liða í 1. deildinni í Hollandi.
■ GUÐJÓN Þórðarson knatt-
spymustjóri Stoke bar Mick
Fletcher, dómara í leik Stoke og
Bumley um síðustu helgi, ekki vel
söguna og taldi að sitt lið hefði átt að
fá tvær vítaspymur í lok leiksins.
Hann sagði að enska knattspymu-
sambandið ætti að gefa meiri gaum
að dómurum sem dæmdu í deildinni.
■ BENGT Johansson, þjálfari
sænska landsliðsins í handknattleik,
átti fullt í fangi með að taka við ham-
ingjuóskum, svara símtölum og lesa
heillaskeyti í kjölfar þess að lands-
liðklvarði Evróputitilinn í Krúatiu.
■ SÍMINN hjá Bengt byrjaði að
hringja strax klukkan sex um morg-
uninn daginn eftir úrslitaleikinn og
hann var enn að taka við hamingju-
óskum er hann kom til Haimstad í
Svíþjóð 18 tímum síðar. Göran
Persson, forsætisráðherra, og Ul-
rica Messing, íþróttamálaráðheraa,
voru meðal þeiraa sem óskuðu
þjálfaranum til hamingju.
■ DANNY Wilson knattspyrnu-
stjóri Sheff. Wed. hefur verið valinn
knattspymustjóri janúar í úrvals-
deildinni í Englandi. Undir hans
stjórn náði liðið að komast af botni
deildarinnar með því að vinna Tott-
enham, Bradford, gera jafntefli við
Arsenal og vinna Woives í bikar-
keppninni.
■ GUUS Hiddink hefur verið ráðinn
þjálfari hjá Reai Betis á Spáni.
Hann tekur við starfi Carlos Grig-
uol, sem var rekinn. Hiddink var áð-
ur landsliðsþjálfari Hollands og um
tíma þjálfari hjá Real Madrid en var
vikið úr starfi.
■ FRANCK Leboeuf, franski vam-
armaðurinn hjá Chelsea, hefur ver-
ið úrskurðaður í tveggja leikja bann
af enska knattspymusambandinu.
Leboeuf steig á Harry Kewell, leik-
mann Leeds, eftir að hafa brotið á
honum öðru sinni í leik liðanna fyrir
skömmu og fengið að líta rauða
spjaldið.
■ LEBOEUF, sem viðurkenndi brot
sitt þegar hann var kallaður fyrir
aganefndina, missir af bikarleik
Chelsea gegn Gillingham 19. febr-
úar og af deildaleik gegn Watford
26. febrúar.
■ HÉÐINN Gilsson er meiddur á
hásin og gat ekki leikið með Dor-
niagen á æfingamóti í handknatt-
leik í Toulouse í Frakklandi um síð-
ustu helgi. Dormagen tapaði fyrir
frönsku liðunum Istres og Toulouse
en vann landslið Alsír, 21:20, í fram-
lengdum leik um 5. sætið.
AP
Karl Malone, framherji Utah Jazz í NBA-deildinni, skorar körfu
án þess að Terrell Brandon, leikmaður Minnesota, komi nokkr-
um vömum við f leik liðanna aðfaranótt sunnudags. Með þess-
ari körfu komst Malone yfir þrjátíu þúsund stig á ferli sínum.
Fram að því höfðu aðeins þeir Wilt Chamberlain og Kareem
Abdul-Jabbar rofið múrinn.