Morgunblaðið - 02.02.2000, Síða 4
KNATTSPYRNA
Morgunblaðið/Kristinn
Atli Eðvaldsson, landsliðsþjálfari í knattspyrnu, er hér í fararbroddi á æfingu á La Manga ásamt Ríkharði Daðasyni.
Heine
Brandt
bjartsýnn
HEINE Brandt, landsliðs-
þjálfari Þýskalands í hand-
knattleik, reynir að blása
lífí í glæður landsliðsins
eftir ófarirnar í Króatíu og
segir að þessi lélegasti
árangur þýsks landsliðs á
stórmóti hafí verið einstök
óheppni sem ekki muni
endurtaka sig. Hann er
hinn bjartsýnasti á getuna
fyrir Olympíuleikana í
Sydney í haust. Þá er hon-
um jafnframt létt að hafa
fengið Pólveija sem mót-
herja fyrir HM í Frakk-
landi í janúar 2001.
Pólverjar voru einmitt
mótherjar Þjóðveija fyrir
EM í Rróatíu - þar sem
Þjóðveijar unnu tvo létta
sigra, og telja sig örugga
nú að komast til Frakk-
lands.
Hermann
nærfýrri
hálfleiknum
HERMANN Heiðarsson þarf að
fljúga til Englands klukkan fjögur í
dag að staðartíma og nær því varla
nema fyrri hálfleiknum á móti Finn-
um.
Leikurinn hefst klukkan 12.30 og
fyrri hálfeikurinn ætti að vera búinn
um klukkan 13.15 og síðan þarf hann
að skipta um föt og koma sér út á
flugvöll, en þangað er ríflega kiukku-
stundar akstur. Þangað þarf hann að
vera kominn í síðasta lagi klukku-
stund fyrir flug, eða klukkan þrjú, og
þá veitir honum ekkert af þessum
tíma.
„Kom mér
ekki á óvart“
Ríkharður farinn að
—wwnmiMi—ii—nw——i—Mi—ihí —Bnri~—nirnniiirTiTTTwrr i imn r «i« iimi ii.im
huga að efri árum
„ÉG er alveg hættur að hugsa um þetta HSV-mál enda hættu for-
ráðamenn félagsins við að kaupa mig þegar þeir komust að því
að ég gæti ekki rétt alveg úr öðrum fætinum. Ég fór til læknis
norska landsliðsins fyrir tveimur vikum, en hann er sérfræðingur
í svona meiðslum, og hann sagði að þetta myndi ekkert há mér,“
sagði Ríkharður Daðason, leikmaður með Viking í Noregi, en
þýska liðið Hamburger Sportverein ætlaði að kaupa hann á dög-
unum en ekkert varð af því eftir læknisskoðun.
Birkir Kristinsson hefur verið að-
almarkvörður íslenska lands-
liðsins í knattspyrnu síðustu ár, en
hann segir það ekki hafa komið sér
á óvart að vera ekki í byrjunarliðinu
á móti Norðmönnum. „Ég átti von á
öllu í þeim málum. Það er nýr þjálf-
ari og væntanlega nýjar áherslur
með honum. Atli vill trúlega sjá sem
flesta leikmenn og hrista síðan sam-
an góðan hóp. Arni [Gautur Arason
markvörður] hefur verið að leika vel
og það var sérstaklega gaman fyrir
hann að vera í markinu á móti Nor-
egi, því han þekkir svo marga leik-
menn sem leika með norska liðinu.
Þetta var bara mjög jákvætt," sagði
Birkir Kristinsson í spjalli við
Morgunblaðið.
„Eg veit í raun ekki mikið um
Finna en þó fylgdist ég vel með
þeim í síðustu keppni því varamark-
vörður þeirra lék með mér hjá Bol-
ton og því reyndi ég að fylgjast dá-
lítið með þeim. Finnar eru sterkir
og það er ekkert gefíð í þeim mál-
um,“ sagði Birkir.
Hann sagði aðstæðurnar vera frá-
bærar. „Þetta er auðvitað algjör
draumur; veðrið, vellirnir og allur
aðbúnaður getur ekki verið betri.
Við erum í íbúðum og það er góð til-
breyting frá því að vera á hóteli.
Það er allt til alls hjá okkur, mynd-
bandstæki á hverri íbúð og svo get-
ur maður eldað sér eitthvað ef áhugi
er fyrir því. Þetta er frábær til-
breyting frá hótelum.
Það versta við þetta er að þurfa
svo að fara heim og reyna að æfa á
mölinni í kuldanum, það verður erf-
itt,“ sagði Birkir, sem verður í
marki Islands í leiknum við Finna í
dag.
Ríkharður sagðist halda að rekja
mætti þessi meiðsli sín til þess
er hann meiddist á liðþófa árið 1991
og er síðan meiddur
■■■■■■I sumarið á eftir og þá
Skúli Unnar kom í Ijós skemmd í
s^e'PSf°n brjóski í hnénu og eru
Spáni m meiðsli hans rakin til
þessa tímabils.
Þetta háir mér ekkert, en þegar
mikið álag er þá finn ég að ég þreyt-
ist aðeins í hnénu og þetta er aumt
svæði þannig að ég þarf að hugsa um
þetta. Ég get ekki rétt alveg úr
hnénu en það háir mér ekkert inni á
vellinum og það er alveg ljóst að ég
hefði ekki getað spilað alla þessa
leiki ef það hefði háð mér. Ég væri
löngu hættur ef ég íyndi stöðugt til í
hnénu.“
Samningur Ríkharðs við Viking
rennur út í haust. „Forráðamenn
liðsins hafa rætt við mig og vilja að
ég gefi þeim svar síðar í mánuðinum
varðandi áframhaldandi samning.
Við komum hingað til La Manga aft-
ur í lok febrúar og þá vilja þeir fá
svar enda þurfa þeir að skipuleggja
næsta tímabil hjá sér. Ég er ekki
búinn að gera endanlega upp við mig
hvað ég geri, en það kitlar óneitan-
lega að fara eitthvert annað og reyna
fyrir sér þar. Mér líkar mjög vel í
Noregi og ég færi ekki eitthvað bara
til að fara. Það er engin ástæða til að
breyta til breytinganna vegna.
Svo þegar maður er að komast á
efri ár í þessu þá fer maður að hugsa
öðruvísi, ef maður sér fram á að
hækka verulega í launum og geti
tryggt sig fjárhagslega. Maður er
aðeins farinn að hugsa svona enda
ekki svo ýkja mörg ár eftir af knatt-
spyrnuferlinum hjá mér,“ segir Rík-
harður sem verður 28 ára á þessu ári.
En eruð þið ekki á svo góðum
launum að þið séuð búnir að tryggja
ykkur fjái-hagslega fyrir ellina ?
„Jú, launin eru að vísu ágæt í
þessu og hafa hækkað verlega síð-
ustu árin, en það er mikill munur á
laununum í Skandinavíu og Englandi
og á meginlandinu. Þegar maður er
búinn að fá smjörþefinn af þeim
launum sem ég get fengið þá hugsar
maður sig tvisvar um áður en sagt er
nei við samningi á þessum stöðurn,"
sagði Ríkharður.
Veit lítið um íslenska liðið
ANTTI Muurinen, landsliðsþjálf-
ari Finna, segist vita afskaplega
lítið um fslenska landsliðið og þvi
sé ekki um neitt annað að ræða
en leika þá knattspymu sem þeir
séu vanir og sjá til hvað það dugi.
Heyrst hafði að Finnar ætluðu að
fá Jari Litmanen, leikmann
Barcelona, til liðs við sig en
þjálfarinn neitaði því, sagðist
ætla að ljúka mótinu með þeim
mönnum sem hann hefði valið í
upphafí.
„Ég ætla ekki að gera neinar
breytingar á leikmannahópnum.
Ég er með 19 leikmenn hérna,
einn er í banni á móti íslending-
um og annar er veikur þannig að
ég hef úr 17 manna hópiað vclja
og það verður að duga. Ég veit
afskaplega lftið um fslenska iiðið,
annað en að leikmenn þess gefast
aldrei upp og ég veit þetta verð-
ur erfíður Ieikur fyrir okkur. Ég
veit líka að margir fslenskir leik-
menn leika í Skandinavíu og að
íslensk knattspyma er á hraðri
leið upp á við,“ sagði Muurinen.