Morgunblaðið - 04.02.2000, Page 4

Morgunblaðið - 04.02.2000, Page 4
KNATTSPYRNA/NORÐURLANDAMÓTIÐ Á SPÁNI Morgunblaðið/Kristinn Færeyingar á Norðurlandamóti á La Manga á Spáni - Uni Arge, sem er kominn í herbúðir ÍA, eftir að hafa leikið með Leiftri tvö keppn- istímabil, Allan Mörköre, ÍBV, Jens Martin Knudsen, þjálfari og leikmaður Leifturs á Ólafsfirði, og fremst á mynd er Sámal Joenssen, sem leikur með Leiftri. Jens Martin Knudsen, þjálfari og markvörður Leifturs Komið að því að vinna íslendinga - FÆREYINGAR eru ákveðnari en nokkru sinni fyrr að leggja nú loksins íslendinga í landsleik í knattspyrnu. Þjóðirnar mætast á Norðurlandamótinu í knattspyrnu á La Manga á Spáni í dag og hefst leikurinn klukkan 14 að staðartíma. Þjóðirnar hafa leikið fjölmarga landsleiki en Færeyingum hefur aldrei tekist að sigra. ú er komið að því. Við vinnum okkar fyrsta leik á móti ís- lendingum," sagði Jens Martin Knudsen mark- vörður, sem leikur með Ayr United í Skotlandi en kemur heim til íslands 1. mars þar sem hann við að þjálfa Leifturs- Skúli Unnar Sveinsson skrifar frá Spáni ' tekur til menn. Fjórir faereyskir landsliðsmenn leika á íslandi, auk Jens Martins eru það þeir Uni Arge, sem leikur með Skagamönnum, Sámal Joen- sen, sem leikur með Leiftri, og All- an Mörköre, sem leikur með Vest- manneyingum. Allir voru þeir sammála um að leikurinn við ís- lendinga væri mikilvægur því aldrei hefði tekist að leggja þá að velli. „Það væri sérstaklega gaman fyrir okkur sem spilum á Islandi að vinna, það væri ekki leiðinlegt að geta notað það á íslensku strákana og minna þá á hvernig leikurinn á La Manga fór,“ sagði Jens Martin þegar Morgunblaðið fylgdist með æfingu hjá þeim í gær. Færeyingar og Islendingar hafa leikið fimm landsleiki síðan Færey- ingar gengu í FIFA árið 1988 og hafa íslendingar sigrað í þeim öll- um, 1:0 í síðustu tveimur leikjum og þykir frændum vorum orðið nóg um. „Ég hef leikið fjóra landsleiki á móti Islendingum og það er alveg nóg að hafa tapað þeim öllum. ís- land vann Finna í gær og það var síðasti sigur þeirra á þessu móti,“ sagði Jens Martin, sem sagði að hann hefði alltaf tapað með einu marki fyrir Islendingum og að hann og aðrir leikmenn Færeyja hefðu fullan hug á að breyta því. Hann sagði að allir leikmenn Færeyja væru heilir og tilbúnir í slaginn. „Nei, þetta verður ekki slagur en við erum stórir og sterkir strákar sem höfum kannski ekki eins góða knattmeðferð og Spán- verjar til dæmis, en við bætum það upp með baráttu. Það er mikill hugur í okkur öllum að vinna nú loksins ísland. Það verður hörku- leikur á morgun og það er alveg ljóst að þar verður ekkert gefið eft- ir. Það hefur oft verið sagt um Is- lendinga að þeir leiki með hjartanu og leiki nokkuð fast, það hentar okkur ágætlega þar sem við erum líka sterkir líkamlega,“ sagði markvörðurinn. Hann sagði að allir Færeying- arnir sem léku á íslandi kynnu vel við sig þar og að hann hlakkaði mikið til að koma til Ólafsfjarðar 1. mars. „Ég hef aldrei þjálfað áður og þetta er þvi spennandi verkefni fyrir mig. Það er frábært að vera hérna, aðstæður alveg eins og þær gerast bestar og grasvellirnir góð- ir. Þótt spilað sé á grasi í Skotlandi eru vellirnir þar ekki upp á marga fiska miðað við hvernig þeir eru hér,“ sagði Jens Martin. Allardyce lofar Eið SAM Allardyce, knatt- spyrnustjóri Bolton, segir Eið Smára Guðjohnsen sýna félagi sínu mikla tryggð með því að óska eft- ir því við Knattspyrnu- samband íslands að fá að sleppa við landsleik Islands og Finnlands í fyn-adag. Bolton á erfiðan leik við Blackburn á heimavelli á laugardaginn og þarf nauðsynlega á stigi eða stigum að halda. „Frá mínum bæjardyr- um séð er framkoma Eiðs til fyrirmyndar," sagði All- ardyce í gær. Nokkur óvissa ríkir um hvort Guðni Bergsson geti leikið í vörn Bolton á laugardag- inn. Hann er meiddur í baki og hefur ekki æft sl. tvo daga af þeim sökum. Mun Allardyce ekki vera of bjartsýnn á að Guðni leik. Allani Simonsen um íslendinga Það eru allir leikir sem við leikum erfiðir, enda eru Færeyjar ekki ofarlega á lista í alþjóðlegri knatt- spymu og því veit ég að leikurinn við Island verður erfiður. Hann er reyndar mjög mikilvægur í augum minna manna, svipað og landsleikir við Svía eru mjög mikilvægir í aug- um okkar Dana. Þetta er nú bara svona, það er einhver rígur þarna á milli þó svo rígurinn milli íslendinga og Færeyinga sé ekki eins hatramm- ur og milli okkar og Svía,“ sagði hann um leikinn við íslendinga. Simonsen sagði Ijóst að sínir menn vildu mjög gjarnan sigra Islendinga. „En ég reikna með að íslendingar vilji líka vinna Færeyinga þannig að ég á von á hörkuskemmtilegum leik. Færeyingar hafa aldrei unnið ísland og strákarnir munu því leggja sig alla fram um að sigra.“ Allan Simonsen var á sínum tíma einn allra skemmtilegasti leikmaður Dana og hann lék 56 landsleiki og gerði 21 mark í þeim. Hann man enn eftir fyrsta landsleiknum. „Fyrsti landsleikurin minn var 1972 í Reykjavík og þá var ég 19 ára,“ segir hann og það er greinilegt að hann man vel eftir honum. En telur Dan- inn smái en knái að leikurinn við Færeyinga verði harður? „Nei, hann þarf ekki að vera það. Ég veit að margir segja að íslend- ingar leiki fast en ég er ekki alveg sammála því. íslendingar leika af festu og af skynsemi og það er það sem gildir í alþjóðlegri nútímaknatt- spyrnu. Það sem ég hef séð til ís- lendinga þá leika þeir af festu en ekki gróft og þar er mikill munur á.“ Simonsen segist í sjöunda himni með að fá tækifæri til að koma með lið sitt á mót sem þetta. „Aðstæður geta ekki verið betri og fyrir okkur - og ykkur örugglega líka - er þetta einstakt tækifæri til að koma saman og spila fótbolta við bestu aðstæður. Við höfum alltaf farið á einhver svona hraðmót, en það er miklu skemmtilegra að vera með í svona móti og ég tala nú ekki um vegna þess að aðstæður gerast ekki betri.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.