Morgunblaðið - 06.02.2000, Síða 4

Morgunblaðið - 06.02.2000, Síða 4
4 C SUNNUDAGUR 6. FEBRÚAR 2000 MORGUNBLAÐIÐ FERÐALOG BESTU OG VERSTU BORGIR HEIMS Fjórar borgir- Vancouver, Zurich, Vín og Bern - hafa upp á að bjóöa mestu lífsgæöi af öllum borgum heimsins samkvæmt niðurstöðum úr athugun sem birtar voru í London fyrir skömmu. Aðrar borgir sem eru með- al tíu efstu eru Sydney, Genf, Auck- land, Kaupmannahöfn, Helsinki og Amsterdam. Athugunin náði til 218 borga ogtekiö vartillittil 39 þátta sem hafa áhrif á lífsgæði, svo sem umhverfisþætti, pólitík, efnahags- mál, öryggi íbúa, heilbrigðismál, menntun, samgöngur ogfleira. New York borg í Bandaríkjunum var notuð til viðmiðunar og var henni gef- in einkunnin 100. Borgirnarfjórar sem deildu efsta sætinu fengu 106 í einkunn en hins vegarfengu borgim- ar sem voru í fjórum neðstu sætun- um einkunn á bilinu 23-33. Lökustu k einkunnina fékk Brazzaville í Kongó en Bagdad var í þriðja neðsta sæti ogtekið varfram að glæpatíðni, samgöngumál og menntamál væru þeir þættir sem gerðu gæfumuninn. GRIKKLAND NÝRSUMAR- DVALARSTAÐUR Ferðaskrifstofan Úrval-Útsýn býðurí ár nýjan sólarstað á eyjunni Krít f Miðjarðarhafi í beinu leiguflugi. Boðið verður upp ágistingu á hótelum ogí íbúðum ítveimur sólarstrandar- bæjum á Krít, í Chania, sem er önnur stærsta borgin á Krít og fyrrverandi höf- uðstaðureyjar- innar, með 52.000 íbúa. Hinn bærinn er Rethymnon, sem er miðja vegu milli Chania og Heraklion, höfuðborgar Krítar. Feröirnar verða í boði frá 17. apríl til 11. september. Einnig verður hægt að kaupa ein- göngu flugfarið en það mun kosta 39.900 kr. og verður í boöi frá og með 22. maí og út september. BELGÍA OG HOLLAND EVRÓPUKEPPNIN í KNATTSPYRNU Ervrópukeppnin í knattspyrnu veröur haldin í Belgíu og Hollandi næsta sumar. Ferðamálafrömuöirí löndun- um vonast eftir því að mótið verði til þess að laða að feröamenn og fá þá til að heimsækja staði sem ekki hafa reynst aðdráttarafl fyrirferða- fólktil þessa. Opnunarleikurinn verð- ur f Brussel hinn 10. júní og þar verð- ur einnig leikinn einn af undanúrslitaleikjunum. Úrslitaleikur- inn verður leikinn í Rotterdam í Holl- andi, 2.júlíen aðrirleikirverða leikn- iríbelgísku borgunum Charleroi og Liege og hol- lensku bæjun- um Eindhoven og Arnhem. Búist ervið 600.000 fót- boltaáhuga- mönnumtil landannaítil- efni mótsins og vonast Belgar og Hollendingar eftirað hluti þeirra eigi eftir að heimsækja löndin aftur í komandi framtíð. í tilefni knattspymuveislunnar er jafnframt fyrirhugað að bjóða upp á fjölda uppákoma og skemmtiatriða, feróamönnum og fótboltaáhuga- mönnum til frekari dægrastyttingar. Royal Clipper verður stærsta segl- skipí heimi. FRAKKLAND STÆRSTA SEGLSKIP HEIMS Verið er að leggja lokahönd á smíði stærsta seglskips í heimi, Royal Clipper, sem notað verðurtil skemmtisiglinga á Miðjarðarhafinu í sumar og er gert út frá Cannes. Segl- in verða reist í febrúar og upp úr þvf mun skipiö sigla á milli ýmissa hafna í Evrópu áður en því verður beint til Cannes. Næsta vetur mun skipiö sigla um Ka- ríbahafiö og eiga heimahöfn í Barba- dos. Seglskipið er endurgerö fyrsta fimm mastra seglskips veraldar, Preussen, sem ríkti yfir heimshöfun- um á árunum 1902-1010. Kostnað- urinn við smíöi Royal Clipper nam 55 milljónum dala, eða um 4 milljörðum íslenskra króna. Skipið mun geta borið 228 farþega og eru káeturnar 96 talsins. Þar af eru fjórtán svítur ogtværlúxussvfturen kostnaðurinn við smfði lúxussvítanna var 36 mil- Ijónir króna hvor. BANDARÍKIN LESTARFERÐIR RAIL America Tours bjóða skipulagð- ar lestarferöir um áhugaverða staði víðs vegar um Bandaríkin undir hand- leiöslu leiðsögumanna. I boði ertólf daga ferð sem nefnd hefur verið „Miklugljúfur Norður-Ameríku“ og er þá fariö frá Chicago til Albuquerque. „Landshorna á milli“ erfjórtán daga ferð þvert yfir Bandaríkin, og sex daga „Cajun“-ferö frá New Orleans til Baton Rouge. Rail Travel Center býður einnig fjölda lestarferða og má finna nánari upp- lýsingar um þær á slóðinni www.railt- vl.com. American Orient Express er sömuleiðis með ýmsarferðir á boð- stólum og er slóóin www.tra- velpower.com/aoe í þó gömlu, góðu daqa... Aukið frelsi flugfarþega Mönnum hefur orðið tíðrætt um flugfargjaldafrumskóginn. A undanförnum árum hefur reglum og skilyrðum fækkað, farþeg- um til hagsbóta. Oft sér maður ekki spaugilegu hliðina á hlutunum fyrr en eftir á. Inger Anna Aikman brosti þegar hún rakst á brandara þar sem þeirri spurningu var varpaö fram hvaða skilyrði flugfélög myndu setja ef ætlunin væri að kaupa málningu hjá þeim. Málningarkaup ■ málningarvöruverslun Viðskiptavinur: Góðan daginn. Hvað kostar málningin hjá þér? Afgreiðsíumaður: Við erum með tvo flokka af plastmálningu. á 820 krónur og 1.050 krónur. Viðskiptavinur: Ég ætla að fá fimm lítra af þessari venjulegu. Afgreiösiumaður. . Það gera 4.100 krónur. Málningarkaup hjá flugféiagi Viðskiptavinur. Hvað kostar málningin hjá þér? Afgreiðslumaður: Það fer eftir ýmsu. Það eru ótal atriði sem hafa áhrif á verðið. Viðskiptavinur: Heldurðu að þú getirgefiö mér meðalverð? Afgreiðslumaður: Það er nú snúið. Lægsta verðið er 700 krónur á lítra en svo erum við með 150 mismun- andi verð alveg upp 114.000 krónur á lítra. Viðskiptavinur. Og hver er munur- inn á þessum málningartegundum? Afgreiðsiumaður: Það er enginn munur. Þetta er allt sama málningin. Viðskiptavinur. Ég ætla að fá fimm lítra af 700 króna málningunni. Afgreiðslumaður. Ja, fyrst verð ég að spyrja þig nokkurra spuminga. Hvenær ætlarðu aö nota þessa málningu, til dæmis? Viðskiptavinur: Eh, ég á frí á morg- un og ætli ég drífi ekki í að mála þá. Afgreiðslumaöur. Ja, því miður er málningin fyrir morgundaginn á 14.000 krónur lítrinn. Viðskiptavinur. Hvenær yrði ég að mála til að fá 700 króna málningu? Afgreiðslumaður Eftir þijár vikur. Og þú yrðir að lofa því að þú myndir byrja að mála á föstudegi. Viðskiptavinur: Þú ert að grínast! Afgreiðslumaður: Því miður, við grínumst ekki hér. Svo yrði ég að at- huga hvort ég á einhverja 700 króna málningu áður en ég get selt þér hana. Viðskiptavinur: Hvað meinaröu? Þú ert með næga málningu. Afgreiðslumaður:Jé,iá, en þótt þú sjáir hana - þá þýðir það ekki endi- lega að hún sé til. Við seljum bara ákveðinn lítrafjölda á ákveðnu verði um hverja helgi. Og núna var verðiö að hækka í 920 krónur á Iftrann. Viðskiptavinur Hækk- aöi verðið meðan töluö- um saman? Afgreiöslumaður: Já, við breytum verði og reglum oft á dag og þar sem þú ert ekki kominn með málninguna f hendur ákváðum við að breyta reglunum og hækka verð- ið í leiðinni. Svo ef þú vilt ekki lenda í þessu aftur þá myndi ég flýta mér að kaupa þá málningu sem þarf. Hvað þarftu marga lítra? Viðskiptavinur: Ég er ekki alveg viss. Senni- lega fimm lítra. Ætli ég kaupi ekki sex lítra bara svona til að vera viss. Afgreiöslumaður: Neeeeiii, þú mátt það ekki. Sko, ef þú kaupir málninguna en notar hana ekki þá er hægt að sekta þig og jafnvel gera upptæka þá málningu sem þú hefur ekki notað. Viðskiptavinur. En hvað varðar 5rkkur um hvort ég nota málninguna? Ég er búinn að borga ykkur fyrir hana! Afgreiðslumaður: Það þjónar eng- um tilgangi að æsa sig. Viöskiptavinur: Þetta er bilun! Ég geri ráð fyrir að það myndi eitthvað hræðilegt gerast ef það kæmu óvænt gestir og ég gæti ekki málað Afgreiðslumaður: Já, ég er hrædd- urum það. Viðskiptavinur: Fyrirgefðu, nú er mér nóg boöið. Ég fer annaö og kaupi mína málningu. Afgreiðsiumaður: Það þýðir ekk- ert. Við erum nefnilega allir með sömu reglurnar. Kynntu þér nýja og spennandi möguleika í utanlandsferðum um miðjan feb. 7ERRA NOVA áður Ferðamiðstöð Austurlands varstofnað 1978 og erí dag ein afstærri ferðaskgfstofum landsins. Fyrirtækið er ísamvinnu við öfluga aðila í Evrópu sem eru flugfélögin LTU í Þýskalandi, Corsair í Frakklandi og ferðaþjónustufyrirtækið Nouvelles Frontieres í Frakklandi, á Ítalíu og Spáni. NÝR STOR BÆKUNGUR UM MHUAN FEB. Stangarhyl 3A -110 Reykjavík Sími: 587 1919 & 567 8545 Fax: 587003& www.terranova.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.