Morgunblaðið - 17.03.2000, Side 1
Ás&MeldB':
Islenskar húð-
snyrtivörur,
Bláa lúnið og
lýsið allra
meina bót?
VIÐ VORUM BÆÐI „NÖRPAR“/2 ■ KOKI HOLF OG GOLF/3 ■ HJALP-
ARHELLUR HEIMILANNA/4 ■ GEÐRÆKT/6 ■ DRYKKJUSKAPUR
UNGLINGA/7 ■ FJÖLSKYLPUR LANGVEIKRA BARNA/8 ■
Fegurð
lands og
SURVE'flNG
THE SCEHE ,vr riiE
GLUE LAGOON
Myndskreyting
íVogue
KM
FEGURÐ íslenskra kvenna og
karla er hrósað í hástert í nýjasta
hefti bandaríska Vogue. Líka
himinblámanum, fjöllunum,
hrauninu, vatninu tæra, Bláa lón-
inu og laugunum. Island er sagt
heilsuparadís þar sem helsta af-
þreying landans er að synda í
frábærum útisundlaugum, flat-
maga í heitum pottum og
svamla í Bláa lóninu. Af öllu má
ráða að almenningur sé sér afar
meðvitandi um heilsurækt og af-
burða vel með á nótunum um
hvers kyns tískustrauma.
„Heitasti" áfangastaðurinn
með fegurð í fyrirrúmi - morandi í
„forsíðustúlkum“ og háþróuðum
heilsulindum,“ segir Vogue. Og
áfram: „Reykjavík hefur getið
sér orð fyrir fegurð __________
og sem partíborg."
Vitnað er í Tonight
Show þar sem Jerry
Seinfeld kallar landið
„Vetrar-Ibiza“ en hann
kvaðst hafa millilent hér
til að kynnast innfæddum. Lauk
hann lofsorði á þá og Bláa lónið og
taldi trúlegt að vatnið væri lykillinn
að líkamsfegurð eyjarskeggja. .
Vatn til heilsubótar og fegrunar
Umfjöllunin snýst einkum um
kristaltært vatnið, sem íslendingar
hafa gnótt af, til drykkjar og baða.
Steinefnin eru sögð lengja líf fólks og
The
Watasfia SinS S®g«iie wKfc'qírk
a JSZiZ? lhe wti m nHvJSS** "WNt
1 ifc. UP ot the worlrl
kjji Njio
ísland heilsu-
paradís, að
mati banda-
ríska Vogue
auka því fegurð. Ungu athafnakon-
umar tvær sem Vogue ræddi við
sögðust iðka sund og væri slíkt bæði
afslappandi og gott fyrir húðina. Þau
orð mæltu þær þar sem þær gæddu
sér á espressó-kaffí á Rex, nýtísku-
_________ legu veitingahúsi hönn-
uðu af Sir Terence Conr-
an. Þá kvaðst söngkonan
Móa, sem tímaritið lýsir
sem forkunnarfagurri,
fara daglega í sund og
“““““ endrum og sinnum í Bláa
lónið. Hún viðurkennir að hún tekur
inn þorskalýsi, líkt og aðrir íslend-
ingar, en landinn er sagður lítt flíka
slíkum venjum af hræðslu við að vera
álitinn gamaldags.
„Vatnið í Bláa lóninu hefur alltaf
verið frábært en þar til nýverið voru
húsakynnin álíka aðlaðandi og bún-
ingsklefarnir á ströndinni í Jersey.
Eftir endurbætur upp á 7 milljónir
Bandarílgadala gegnir nú öðru máli,“
segir Vogue og rómar arkitektúrinn
sem og lónið sjálft. Lýst er hvernig
gestir lónsins maka kísilleðju á andlit
og líkama um leið og þeir slappa af í
upplýstu blágrænu þörungavatninu.
Sund og þorskalýsi
Hérvirðastblaðamenn Vogue hafa
verið á liðnu hausti þegar margt var
um útlendinga vegna allmargi-a
hljómsveita sem tróðu upp í flugskýl-
inu á Reykjavíkurflugvelli og viðam-
ikillar tískusýningar í tjaldi. Þeir fóm
út á lífíð og vom öldungis hlessa á hve
allt þetta íslenska, unga og fagra fólk
gat haldið lengi út að skemmta sér.
Utskýringar „Vilhjálmsdóttur" fyrir-
sætuumboðsmanns em lokaorðin í
greininni: „Við skemmtum okkur að-
eins í tvær nætur af sjö í vikunni.
Hina dagana fömm við í útisundlaug-
arnar og tökum inn þorskalýsi.11
Heilsudýnur Svefnherbergishúsgögn Járngaflar
Heilsukoddar Hlffðardýnur Rúmteppasett Hágæða
bómuUarlök Sængur Sœngurver Lampar Speglar
TI1Wm Einmestselda
llLDU heilsudýna ó landinu
Queen 69,900.-
King 89,900.-
®m Queen 89,900.-
® King 119,900.-
Verð miðast við dýnu án ramma
Chiropractic eru einu heilsudýnurnar sem eru þróaðar
og viðurkenndar af amerísku og kanadísku kíró-
praktorasamtökunum. Yfir 32 þúsund kirópraktorar
mæla því með Chiwpractic þar á meðal þeir íslensku.
Listhúsinu Laugardai, sími 581 2233 • Dalsbraut 1, Akureyri, sími 461 1150 * www.svefnogheilsa.is