Morgunblaðið - 22.03.2000, Side 4
íttámR
SKIÐI/HEIMSBIKARKEPPNIN
Kristinn Björnsson ánægður með veturinn, segist aldrei hafa verið betri
Finnst þetta orðið
nokkuð afslappað
Kristinn Björnsson keyrir hér á fullri ferð í heimsbikarkeppninni í svigi.
IHaukur Bjarnason, þjálfari
Kristins: „Hefði náð að bæta sig
á þeim sviðum þar sem hann
hefði verið hvað slakastur“
KRISTINN Björnsson skíða-
maðurfrá Ólafsfirði varð um
helgina í 16. sæti í svigi á loka-
móti heimsbikarkeppninnar.
Kristinn átti stórgóða síðari
ferð og var með fjórða besta
tímann í henni en fyrri ferðin
vár ekki nægilega góð þannig
að hann endaði í 16. sæti. Eftir
mót vetrarins er Kristinn í 22.
sæti á heimslistanum í svigi,
með 123 stig, og í því 56. á
heimslistanum yfir alpagreinar.
Það er meira en að segja það að
taka þátt í heimsbikarmótunum.
Kristinn hefur l'arið í gegnum FIS-
mótaraðir, Evrópu-
mótaraðir og er nú
SkúlaUnnar kominn í 22. sætið í
Sveinsson heimsbikarkeppn-
inni en þúsundir
skíðamanna keppi reglulega á áður-
nefndum mótum með þann draum að
komast á heimsbikannótin. í mótið
um helgina var boðið 26 keppendum,
þeim sem voru í efstu sætum heims-
bikarsins í svigi og Kristinn var
þeirra á meðai.
Kappinn er nú kominn heim til sín í
Noregi en kemur hingað til lands á
morgun og tekur þátt í FlS-mótum á
Akureyri/Dalvík/Olafsfirði um helg-
ina og í næstu viku og verður einnig
meðal keppenda á Skíðamóti Islands
í Reykjavík um mánaðamótin.
_ Sem mark um hvernig hlutirnir
liáfa breyst með góðum árangri
Kristins þá hafa um 20 erlendir kepp-
endur boðað komu sína á FIS- mótin
og koma margir þeirra hingað til að
freista þess að fá FlS-stig vegna
þátttöku Kristins, en í eina tíð var það
svo að hingað voru fengnir erlendir
keppendur til að íslensku keppend-
urnir gætu fengið stig.
Kristinn sagðist í samtali við
Morgunblaðið vera þokkalega
ánægður með 16. sætið í Bormio á
Italíu á sunnudaginn, en hann náði
fjórða besta tímanum í seinni umferð-
inni. „Eg klúðraði þessu í fyrri ferð-
inni, hún var ekki nógu góð hjá mér.
Síðari ferðin var fín, en það var mjög
heitt þannig að brautin grófst mikið
~og það voru langir grafningar þannig
að maður varð að fara nokkuð langa
leið í fyrri ferðinni. Brautin var líka
löng og fremur ílöt,“ sagði Rristinn.
Haukur Bjarnason, þjálfari Kiist-
ins, sagðist sérstaklega ánægður með
að Kristinn hefði náð að bæta sig á
þeim sviðum þar sem hann hefði verið
hvað slakastur. „Hann hefur alltaf
verið sterkur í miklum halla og harð-
fenni en slakari á flatanum og sér-
staklega ef færið er mjúkt. Þetta hef-
ur lagast hjá honum eins og kom í ljós
um helgina og eins skiptir lengd milli
ptvrta hann minna máli en áðm-.
Það má segja að alhliða sé hann
orðinn sterkari en áður.“
Kristinn tekur undir þetta. „Mér
finnst árangurinn hjá mér í ár á ýms-
an hátt betri en í hitteðfyrra þó svo ég
hafi verið í sextánda sæti þá. Þá
komst ég tvisvar í annað sætið og
fékk öll mín stig fyrir það, núna hefur
mér gengið betur að skila mér niður
og lauk sex af ellefu mótum.“
Erinú virðist manni algengt að síð-
ari ferðin sé miklu hetri hjá þér en sú
fyrri. Veistu hvers vegna þetta er?
„Ég virðist eiga við einhvern draug
að stríða á þessu sviði. Ég held ég
verði of spenntur og ætli mér of mik-
ið. Ef það gerist verður maður of stíf-
ur og mýktin hverfur og það gengur
ekki,“ segir Kristinn og Haukur er
þessu sammála. „Hann er orðinn
miklu öruggari og jafnari en áður og
komst í vetur í síðari ferð í níu af ell-
efu ntótum. En það vantar enn topp-
sætin. í byrjun vetrar var mjög mikil-
vægt að fá stig og því mikilvægt fyrir
hann að vera í réttum takti. Það tókst
hjá honum þannig að hann skilaði sér
ágætlega niður og það er jú forsenda
þess að fá stig. En það er rétt, til að
komast alveg á toppinn þarf að bæta
fyrri ferðina og halda því besta sem
hann hefur verið að gera í síðari ferð-
unum í vetur.
Við erum ekki búnir að skoða þetta
mjög vísindalega ennþá en það verð-
ur gert núna eftir að keppni lýkur og
þá verða lagðar línurnai' fyrh' næsta
keppnistímabil. Ég held það sé ekki
mjög mikið mál að laga þetta og verð-
um við ekki að reikna með að við ger-
um það?“ sagði Haukur.
í fyrra var Kristinn í 41. sæti í svig-
inu og því 99. í heildarstigakeppninni
í alpagreinum þannig að hann er mun
ofar eftir þetta tímabil.
Þjálfarinn sagðist mjög ánægður
með veturinn, sérstaklega þegar haft
er í huga að þeir hafi átt við ákveðinn
draug að stríða frá síðasta tímabili og
síðari hluta tímabilsins þar á undan.
„Ég er mjög ánægður með hvernig
Kristinn náði að vinna sig út úr
meiðslum og veikindum í vetur. Það
er alltaf erfitt að eiga við bólgur í
hnjám og hann fór fremur illa út úr
flensunni sem hann fékk um miðjan
vetur, ennisholur stífluðust og hann
átti erfitt um andardrátt vegna þess
um tíma.“
Aftui' að lokamótinu. Þar nær
Kristinn frábærum árangri í síðari
ferðinni, en fyrri ferðin var slök.
Sérðu ífljótu bragði hvað veldur?
„Ég held hann hafi bara viljað of
mikið og við það hafi myndast allt of
mikil spenna. Honum hafði gengið
mjög vel alla vikuna á undan og í upp-
hitun fyrir fyrri ferðina var hann
mjög sterkur. Síðan virðist eins og
hann spennist of mikið og það hefur í
raun stundum virst eins og það sé
ástæðan fyrir slakari fyrri ferð en
efni standa til. Við sjáum síðan þegar
hann hefur skilað sér niður í fyi-ri ferð
að þá hefur hann fjórum sinnum í vet-
ur verið mjög framarlega í síðari
ferðinni, einu sinni var hann með
langbesta tímann og um helgina var
hann með fjórða besta tímann."
Strax eftir Landsmótið fer Krist-
inn til Noregs þar sem hann tekur
þátt í nokkrum mótum og fer síðan í
aðgerð vegna ennisholanna og hvílir
hnéð í einhvern tíma. „Ætli ég verði
ekki að hvíla í einhverjar vikur, tvær
til þrjár, en síðan verður farið á fullt
um leið og hægt er,“ segir Ki-istinn.
Haukur tekur fram að hann verði að
prófa ný skíði og annað sem fylgir því
að vera í heimsbikarnum.
Báðir vonast þeii' til að svipað snið
verði á samvinnunni við Svía og var í
vetur. „Við erum mjög ánægðir með
hvernig hún gekk fyrir sig og vonandi
verður samvinnan áfram með svip-
uðu sniði,“ segir Kristinn.
Telur þú þig betii skíðamann núna
en í fyrra og áiið þar áður?
„Já, því er fljótsvarað. Það hefur
verið meiri stöðugleiki í þessu hjá
mér í vetur og reynslan held ég gagn-
ist manni vel í framtíðinni. Það er dá-
lítið mikið mál að koma nýr inn í
heimsbikarinn, sérstaklega vegna
þess að maður er í rauninni einn.
Þetta er mun minna mál fyrir Austur-
ínkismenn og Norðmenn, sem eru
með fjöldann allan af keppendum á
mótaröðinni. Núna finnst mér þetta
orðið nokkuð afslappað og þessi mót
eru orðin venjuleg mót fyrir mér en
ekki einhver stórmót eins og þau voiu
í huga manns þegar ég var að byrja í
heimsbikarnum," segir Kiistinn.
faém
FOLK
■ JOHN Cnrew, sóknarmaðurinn
efnilegi hjá Rosenborg, gæti orðið
dýrasti knattspyrnumaður Noregs
innan skamms. Valencia á Spáni er
sagt tilbúið til að greiða 800 milljón-
ir króna fyrir þennan 21 árs gamla
leikmann en að undanfömu hafa
verið taldar mestar líkur á að hann
færi til Dortmund í Þýskalandi.
Valencia fær tvo milljarða króna
frá Lazio fyrir Claudio Lopez, sem
fer til ítalska liðsins í sumar.
MRUNE Lange, félagi Tryggva
Guðmundssonar hjá Tromsö, er lík-
legur arftaki Carews hjá Rosen-
borg en norsku meistararnir hafa
átt viðræður við hann að undan-
fornu.
■ ALONZO Mouming hafði betur í
risaslagnum við Shaquille O’Neal
þegar Miami tók á móti LA Lakers í
NBA-deiIdinni í fyntnótt. Mourn-
ing skoraði 33 stig og tók 13 fráköst
en Shaq skoraði 28 stig og tók 12
fráköst. Shaq hafði hinsvegar sterk-
ari samherja því Glen Rice skoraði
28 stig fyrir Lakers og Kobe Bryant
23, og hð þeirra vann góðan útisig-
ur, 100:89.
■ JALEN Rose, bakvörður Indiana,
var valinn leikmaður vikunnar í
NBA-deildinni. Hann kórónaði góða
viku með því að skora 35 stig gegn
Houston en Indiana er nú efst í
miðriðli deildarinnar.
■ GILLES Grimandi, vamarmaður
Arsenal, fékk sitt annað rauða
spjald á tímabilinu þegar lið hans
vann Tottenham á sunnudag. Grim-
andi er spjaldglaðasti leikmaður úr-
valsdeildarinnar í vetur en hann
hefur að auki fengið gula spjaldið 12
sinnum. Lee Bowyer hjá Leeds hef-
ur reyndar fengið 15 gul spjöld en
ekkert rautt.
■ THEODOROS Zagorakis, gríski
miðjumaðurinn hjá Leicester, snýr
aftur til heimalandsins í vor og
gengur til liðs við AEK.
■ GORDON Strachan hefur sam-
þykkt að skrifa undir nýjan fimm
ára samning sem knattspyrnustjóri
Coventry.
■ PETER Ridsdale, stjómarfor-
maður Leeds, segir að ummæli Alex
Fergusons, knattspymustjóra
Manchester United, um að David
O’Leary, stjóri Leeds, væri best til
þess fallinn að taka við af sér, hafi
einungis verið látin falla til að slá
Leeds út af laginu í baráttunni um
meistaratitilinn. Ridsdale segir að
Ferguson sé sérfræðingur í svona
sálarstríði og leiki þennan leik ár
eftir ár.
■ FREDERIC Kanoute, franskur
sóknannaður, hefur verið lánaður
frá Lyon til West Ham út tímabilið.
Kanoute er 22 ára og ef West Ham
vill kaupa hann í vor er verð hans
metið á um 350 milljónir króna.
■ JAN Wouters var i gær rekinn úr
starfi sem þjálfari hollenska knatt-
spyrnufélagsins Ajax. Liðið er í
fimmta sæti hollensku úrvalsdeild-
arinnar, 15 stigum á eftir toppliðinu,
PSV. Hans Westerhof, þjálfari
unglingaliðs félagsins, stjórnar lið-
inu út tímabilið.
■ BAYERN Munchen ætlar að nota
síðasta leikinn í riðlakeppni Meist-
aradeildar Evrópu, til að gefa fasta-
mönnum sínum frí. Níu af fasta-
mönnum liðsins fóru ekki til Kiev,
eru heima og fá frí frá æfingum og
keppni.
■ ÞESSI ákvörðun staðfestir það
sem margir hafa haldið fram, að
leikirnir í meistaradeildinni séu of
margir á stuttum tíma. Bayem er
þegar komið áfram í keppninni,
þannig að þýðing leiksins í Kiev er
lítil.
■ MARGAR sjónvarpsstöðvai', sem
hafa greitt mikla peninga fyrir að
sýna frá leikjum í meistaradeildinni,
eru ekki ánægðar með þessa þróun.