Morgunblaðið - 06.04.2000, Blaðsíða 3
2 B FIMMTUDAGUR 6. APRÍL 2000
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 6. APRÍL 2000 B 3
ÍÞRÓTTIR
ÍÞRÓTTIR
Rúnar Kristinsson á bekkinn?
ARNE Erlandsen, þjálfari norska knattspyrnuliðsins Lilleström, íhugar að setja besta mann Iiðs-
ins á síðasta tfmabili, Rúnar Kristinsson, út úr byrjunarliðinu þegar Lilleström tekur á móti Molde
í fyrstu umferð norsku úrvalsdeildarinnar um helgina.
Erlandsen segist ekki vera ánægður með frammistöðu Rúnars á undirbúningstímabilinu. „Á sín-
um bestu köflum hefúr hann verið frábær en þeir kaflar hafa verið alltof stuttii-. Þegar menn
standa sig ekki, er staða þeirra í liðinu í hættu,“ sagði Erlandsen við Verdens Gang í gær.
Tiger
Woods lík-
legastur
til afreka
MIKIÐ hefur verið rætt og ritað um það síðustu dagana og vikurn-
ar raunar hver hinna 95 kylfinga sem þátt taka f Masters sigri.
Sem fyrr eru margir tilnefndir sem sigurvegarar en aðeins einn
kallaður. Flestir virðast hallast að því að það verði Tiger Woods
sem klæðist græna jakkanum á sunnudaginn og geti hengt hann
upp við hliðina á þeim sem hann fékk 1997, en þá var piltur að-
eins tvítugur.
URSLIT
KNATTSPYRNA
Bandaríkin-Ísland 8:0
Davidson-leikvangurinn í Chariotte, vin-
áttulandsleikur í knattpspyrnu
kvenna, miðvikudaginn 5. apríl 2000.
Mörk Bandaríkjanna: Christie Welsh
(37., 43., 69.), Amy Wagner (53.),
Christie Pearce (55., 83.), Mia Ham (72.),
Kristine Lilly (77.).
Gult spjaid: Ekkert.
Rautt spjald: Ekkert.
Ddmari: Jon Wilson, Bandarikjunum.
Aðstoðardómarar: Alex AJmaguer og
John Frey, einnig frá Bandaríkjunum.
Áhorfendur: Á milli 500 og 600.
Bandaríkin: Hope Solo - Christie
Pearce, Nandi Pryce, Michelle French,
Danielle Slaton - Sara Whalen (Kristine
Lilly 71.), Nikki Serlenga, Aiy
Wagner, Jena Kluegel - Cindy Parlow
(Tiffeny Milbrett 31., Mia Ham
71.) Christie Welsh.
ísland: Þóra Helgadóttir - Guðiaug Jóns-
dóttir, Guðrún Gunnarsdóttir, Edda
Garðarsdóttir, fris Sæmundsdóttir, Erla
Hendriksdóttir (Ásdís Þorgilsdóttir
80.) - Ásthildur Helgadóttir, Margrét
Ólafsdóttir (Hrefna Jóhannesdóttir
87.), Katrín Jónsdóttir - Olga Færseth
(Ásgerður Ingibergsóttir 61.), Rakei
Ögmundsdóttir (Rakel Logadóttir 83.)
Meistaradeild Evrópu
Átta liða úrslit, fyrri leikir:
London, Englandi:
Chelsea-Barcelona ..............3:1
Gianfranco Zola 29., Tore Andre Fio 33.
37. - Luis Figo 64. 33.662
Valencia, Spáni:
Valencia-I.azio.................5:2
Miguel Angei Angulo 2., Gerard Lopez 3.
39. 81., Claudio Lopez 90. - Simone
Inzaghi 27. Marcelo Salas 86. 50.000.
England
Urvalsdeild:
Sheffield Wed.-Aston Villa .....0:1
Aian Thomson 89. 18.136.
1. deiid:
Manchester City-Bolton .........2:0
Skotland
Celtic-Motherwell...............4:0
KÖRFUKNATTLEIKUR
NBA-deiidin
Úrslit í fyrrinótt:
Washington-New Jersey........102:93
Toronto-Detroit .............88:104
Oriando-San Antonio..........107:97
Miami-Cleveland..............111:85
Charlotte-Boston ...........112:105
Milwaukee-Chicago ............92:73
Minnesota-Atlanta ............86:76
■ Eftir framlengingu.
Phoenix-LA Lakers.............83:84
Dallas-Sacramento.......... 105:102
Seattle-Denver...............106:93
LA Clippers-Utah.............93:103
Vancouver-Houston ..........102:100
HANDKNATTLEIKUR
2. deild karla:
Breiðablik-Selfoss............28:24
Þýskaland
Kiel-Dormagen.................27:20
■ Róbert Sighvatsson og Daði Hafþórs-
son gerðu þrjú hvor.
Snóker
Kristján Helgason tapaði fyrir Mark
Williams 3:5 í 32 manna úrslitum opna,
skoska meistaramótsins í snóker í gær-
kvöld og er úr leik í keppninni.
IKVOLD
HANDKNATTLEIKUR
Urslit kvenna, þriðji leikur:
Vestma.: ÍBV - Grótta/KR.20.15
■ Staðan er ÍBV - Grótta/KR 2:0. Úrslit
geta ráðist í kvöld.
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrslit kvenna, þriðji leikur:
KR-hús: KR - Keflavík.............20
■ Staðan er jöfn 1:1.
BLAK
Undanúrslit karla:
Akureyri:. KA-ÍS..................19
Undanúrslit kvenna:
Víkin: Víkingur b - Þróttur R.....20
KNATTSPYRNA
Reykjavíkurmút:
Laugardalur: Víkingur - KR.....20.30
Deildarbikarkeppni:
Kópavogur: Breiðablik - HK........18
Reykjaneshöil: UMFA - Grindavík...20
Tiger hefur leikið af ótrúlegu ör-
yggi að undanfömu og hefur
sigrað eða lent í öðru sæti í tíu af
síðustu ellefu mótum sem hann hef-
ur tekið þátt í á bandarísku PGA-
mótaröðinni. Hann er langefstur að
stigum á nýútgefnum heimslista en
David Duval er þar í öðru sæti og
Colin Montgomerie í þriðja. Að
venju er keppendalistinn þéttskip-
aður bestu kylfingum heims og
nægir þar að nefna menn eins og
David Duval, Greg Norman, Phil
Mickelson, Colin Montgomerie, Lee
Westwood og Sergio Garcia.
Hal Sutton, sem vann Tiger í móti
nýverið og er í fimmta sæti á heims-
listanum er einnig meðal keppenda
og hann segir að Tiger sé frábær
kylfingur sem erfitt verði að sigra.
„Sá sem ætlar sér sigur verður að
leika betur en Tiger og það er eng-
inn hægðarleikur því hann stendur
svo sannarlega undir nafni sem
kylfingur,“ segir Sutton, sem hefur
aldrei komist áfram eftir að kepp-
endum er fækkað, en hann hefur
tekið þátt í níu Masters mótum.
„Hann hefur sigrað á um 18 mót-
um á þeim stutta tíma sem hann
hefur verið atvinnumaður. Það er
svipað og Greg Norman og Curtis
Strange hafa gert samtals öll þau ár
sem þeir hafa verið að. Áður en Tig-
er byrjaði að leika á mótaröðinni
voru menn að vinna til skiptis, nú
vinnur hann,“ sagði Sutton, sem
sjálfur hefur sigrað á 11 atvinnu-
mannamótum.
Lee Westwood reynir að sjá
björtu hliðarnar á yfirburðum Tig-
ers. „Það er langt síðan nokkur hef-
ur verið svo ráðandi í golfinu, en
það fær okkur hina til að æfa betur
og leggja okkur enn betur fram,“
segir Westwood.
■ SEVE Ballesteros á lægsta skor
á 72 holum á Masters mótinu á
Augusta vellinum, en Spánverjinn
lék á275 höggum árið 1980.
■ LANDI hans, Jose Maria Olaz-
abal á lægsta meðalskor allra kylf-
inga sem leikið hafa 25-49 hringi á
Masters, en meðalskor hans er
71,61 höggáhring.
■ TVEIR kylfingar eiga lægsta
skor á einum hring á Masters, þeir
Nick Price (1986) og Greg Norman
tíu árum síðar en báðir léku þeir
hringinn á 63 höggum.
■ GARY Player er elsti kylfingur-
inn til að klæðast græna jakkanum,
en hann var 42 ára þegar hann sigr-
aði 1978.
■ BALLESTEROS er hins vegar sá
yngsti sem klæðst hefur græna
jakkanum, en hann var aðeins 23
ára þegar hann sigraði 1980.
■ ÞAÐ verða 35 erlendir kylfingar
sem taka þátt í Masters að þessu
sinni og hafa aldrei verið fleiri.
■ ÞEGAR mótið var fyrst haldið,
árið 1934, voru erlendir keppendur
fjórir.
■ MÓTIÐ er nú haldið í 64. sinn en
ekld var keppt árin 1943, 1944 og
1945 vegna heimsstyrjaldarinnar
síðari.
■ BERNHARD Langer frá Þýska-
landi á metið hvað varðar að kom-
ast áfram, eða í gegnum niður-
skurð, á Augusta vellinum. Hann
hefur komist áfram í 16 ár í röð.
■ JACK Nicklaus hefur oftast sigr-
að á Masters, eða sex sinnum.
Fyrst vann hann árið 1963, síðan
1965 og 66,1972, 75 og síðan ellefu
árum síðar eða árið 1986. Næstur
er Amold Palmer sem sigraði fjór-
um sinnum, árið 1958,60,62 og 64.
■ FIMM erlendir kylfingar hafa
sigrað tvívegis eða oftar á Masters.
Þetta eru Gary Player (1961, 74 og
78) og Nick Faldo (1989, 90 og 96)
sem báðir hafa sigrað þrívegis,
Severino Ballesteros (1980 og 83)
Bemhard Langer (1985 og 93) og
ose Maria Olazaball (1994 og 99),
sem allir hafa sigrað í tvígang.
■ GREGNorman hefur oftast kom-
ist næst því að sigra, hann hefur
þrisvar verið í öðru sæti.
Reuters
Jose Maria Olazabal, meistarinn frá því í fyrra, slær upp úr glompu á Augusta veliinum,
KNATTSPYRNA
Einstefna í
60 mínútur
BANDARÍKIN unnu stórsigur á íslendingum í fyrri vináttulands-
leik þjóðanna á Davidson-leikvellinum í Charlotte, 8:0. Það var
aðeins fyrsta hálftíma leiksins sem íslensku stúlkurnar höfðu
þrek og burði til þess að halda í við heimsmeistarana. Eftir það
skildi leiðir, heimamenn skoruðu tvö mörk á síðustu átta mínút-
um fyrri hálfleik og voru 2:0 yfir í hálfleik. í síðari hálfleik kom
getumunur liðanna í Ijós í bland við þrekleysi og undir lokin
áhugaleysi íslensku leikmannanna sem voru skrefinu á eftir svo
ekki sé fastara að orði kveðið.
ívar
Benediktsson
skrífar
frá Charíotte
April Heinrichs, landsliðsþjálfari
Bandaríkjanna, stillti blöndu af
yngri og eldri leikmönnum upp í
byrjun leiks í gær.
Þrír leikmenn úr
heimsmeistaraliðinu
í fyrra byrjuðu leik-
inn en stjörnur á
borð við Miu Ham,
Tiffeny Milbrett og Kristine Lilly
mátt sætta sig við að sitja á bekknum
í upphafi, en þær komu meira rið
sögu er á leið. Heimamenn léku 4-4-2
frá upphafi en það er það leikkerfi
sem Heinrichs landsliðsþjálfari tók
upp eftir að hún tók rið stjórn þess í
upphafí árs. ísland stillti upp 5-3-2 og
Þóru Helgadóttur í markinu.
Upphafið var ekki slæmt, vömin
hélt vel og sóknarlotur bandaríska
liðsins voru ekki ýkja skeinuhættar
framan af. íslensku stúlkumar höfðu
allskostar rið gestgjöfum sínum og
tókst Guðlaugu Jónsdóttur að kom-
ast í gegnum vöm Bandaríkjanna en
markverðinum Hope Solo tókst að
hh’ða knöttinn á elleftu stundu. Þá
átti Katrín Jónsdóttir hörkuskot af
25 metra sem fór rétt yfir á 16. mín-
útu og aðeins þremur mínútum síðar
vantaði herslumuninn að Rakel næði
að stýra knettinum í markið eftir
hornspymu Erlu Hendriksdóttur.
Bandarísku stúlkurnar reyndu að
byggja upp sóknir en gekk illa og
helst náðu þær að skapa usla eftir
homspyrnu. En svo tók að fjara und-
an leik íslenska liðsins. Tiffeny
Milbrett var skipt inn á á 31. mínútu
og hleypti hann verulegum krafti í
sóknir bandaríska liðsins með hraða
sínum. Um leið jókst sóknarþunginn
og Þóra þurfti í trigang að taka á
honum stóra sínum til að verja mark-
ið.
Síðasta og besta færi í í slands kom
á 34. mínútu er Rakel slapp inn fyrir
vöm Bandaríkjanna, komst inn fyrir
ritateig með tvo vamarmenn á eftir
sér, markvörðurinn kom út á móti en
Rakel skaut yfir hana og í átt að auðu
markinu. Boltinn skoppaði rétt fram-
hjá og ekkert varð úr. Þetta var hins
vegar klárlega besta færi leiksins.
Eftir þetta tóku Bandarfkamenn
völdin, skomðu íyrsta mark sitt á 37.
mínútu og annað á 43. í síðari hálf-
leik átti Olga Færseth eitt skot á
markið fljótlega eftir að hálfleikurinn
hófst. Eftir það ógnaði ísland ekki
marki Bandaríkjanna. Hinum megin
var veisla og það nýttu heimamenn
sér óspart, skomðu sex sinnum og
vom sum markanna ákaflega ódýr.
Lengri, þrengri og
erfiðari en áður
BANDARÍSKA meistaramótið í golfi hefst í dag á Augusta National
golfvellinum í Georgíu. Þetta er fyrsta mótið af þeim fjórum stóru
sem haldin eru ár hvert. Mót þetta er það eina af risamótunum fjór-
um sem alltaf er leikið á sama velli, en engu að síður eru alltaf gerð-
ar nokkrar breytingar á honum mijli ára þannig að kylfingarnir ganga
ekki að neinu vísu í þeim efnum. A því verður engin breyting í ár.
jótshaldarar hafa þrengt flestar
brautirnar frá því í fyrra og
röffið, sem hefur alltaf verið slegið vel
niður þar til í fyrra, er þykkara núna
og erfiðara auk þess sem önnur og
sautjánda brautin hafa verið lengdar
um rúma 20 metra hvor um sig.
Staðsetning holna á flötum hefur oft
verið þannig að verulega reynir á
hæfni kylfinga við að leika inn að
þeim. Og ekki skánar það því eftir
mótið í fyrra voru nokkrar flatir tekn-
ar ærlega í gegn og gefur það enn
frekari möguleika á „svínslegri" stað-
setningu. I þessu sambandi má nefna
brautir 10, 12 og 16.
Búið er að koma fyrir nokkrum há-
um pálmatrjárm, ekki einungis fyrir
augað heldur er þeim plantað þannig
að þau gera allan leik erfiðari. Þannig
var mikill hóll í hægri kanti 15. braut-
ar fjarlægður og sett tré þar. Þau
munu væntanlega vera í leik fyrir
kylfinga á 17. braut og gera upp-
hafshöggin þar mun erfiðari. Sömu
sögu er að segja af 14. brautinni, þar
eru ný tré sem geta þvælst fyrir
mönnum í upphafshögginu. Annars
hefur Augusta verið þekktur fyrir
breiðar og góðar brautir og nákvæmni
í upphafshöggum er nokkuð sem kylf-
ingar hafa ekki þurft að hafa miklar
áhyggjur af fyrr en síðari ár.
„Þetta eru góðar breytingar," sagði
Nick Faldo eftir að hann hafði leikið
æfingahring á mánudaginn. „Það er
allt í lagi með röffið, svo fremi að mað-
ur hitti miðja brautina í upphafshögg-
inu,“ bætti hann við.
Fleiri kylfingar tóku í sama streng,
þeirra á meðal Lee Westwood, sem
varð í sjötta sæti í fyrra. „Breyting-
arnar eru af hinu góða og krefjast
meiri nákvæmni af teigunum," og
bætti rið að röffið væri alveg eins og
það ætti að vera. „Það er nákvæmlega
nógu mikið gras til að það lendi á milli
kylfuhaussins og boltans og því verða
innáhöggin miklu erfiðari enda eru
flatirnar harðar og erfiðar. En þetta
er jafn erfitt fyrir okkur alla,“ bætti
hann rið.
Raymond Floyd, sem sigraði 1976,
sagðist hafa tekið eftir því að braut-
irnar væru þrengri en venjulega og
röffið sagði hann „lymskulega“ slegið.
„Mér líkar betur rið völlinn eins og
hann var í gamla daga, eins og hönn-
uðurinn rildi hafa hann. Við verðum
samt að laga okkur að þessum breyt-
ingum,“ sagði Floyd sem keppir á
Masters í 36. sinn.
Reuters
Tveir gamlir og reyndir; Greg Norman púttar á þriðju flöt og Jack
Nicklaus fylgist með. Nicklaus hefur sigrað manna oftast á Master-
mótinu en Norman hefur oftast lent í öðru sætí.
Morgunblaðið/Kristinn
Guðlaug Jónsdóttir á ferðinni með knöttinn.
Níu úr HM-
liðinu með
NÍU leikmenn sem skipuðu sigur-
lið Bandaríkjana á HM í fyrra
voru í átján manna hópnum sem
lék við ísland á Davidson College-
leikvanginum í gær. Þetta eru
Christine Pearce, Brandi Chasta-
in, Sara Whalen, Mia Hamm, July
Foundy Cindy Parlow, Kristine
Lilly, Tiffeny Milbrett og Kate
Sobrero.
í blöðum í Charlotte er nær því
ekkert minnst á leikinn í gær, en
talsverðu púðri eytt í kynningu á
síðari leiknum enda er hann fyrir
opnum tjöldum. f viðtali við iands-
liðsþjálfara Bandaríkjanna, April
Heinrichs, í Charlotte Observer í
gær tekur hún það fram að fyrri
leikurinn við ísland sé æfingaleik-
ur fyrir luktum dyrum, enda valdi
hiín átján leikmenn til þess að
taka þátt í honum.
Vinsældir
Dagblaðið The Charlotte Ob-
server hefur fjallað nokkuð um
leikinn á laugardaginn - en eink-
um beint sjónum að þeim leik-
mönnum bandaríska liðsins sem
ættaðir ei*u úr borginni. I greinum
sínum um bandaríska liðið er því
mjög haldið á loft að það sé vin-
sælasta kvennalið jarðarinnar,
hvorki meira né minna.
■■ mm ■■ ■ ■
Morkin
voru
hræðileg
„ÞESSI leikur rennir ennfrekar
stoðum undir það sem ég hef
áður sagt að líkamlega eru ís-
lensku leikmennirnir ekki til-
búnir í leik sem þennan,“ sagði
Logi Ólafsson landsliðsþjálfari
eftir 8:0 tap fyrir Bandaríkj-
unum í gær.
tr
Ameðan krafturinn og úthaldið
var fyrir hendi áttum rið í fullu
tré rið andstæðinginn og fengum
gott færi til að skora í stöðunni 0:0.
Eftir um það ril hálftíma skildi leið-
ir liðanna. Þar kom fernt til að mínu
mati. í fyrsta lagi var það úthalds-
leysi, í öðru lagi kom viljaleysi og
uppgjöf, leikmenn hættu að beijast
og voru kraftlitlir. Síðan kom skort-
ur á leikæfíngu og loks vil ég nefna
verulegan getumun sem á liðunum
er, það er ekki hægt að loka augum
fyrir honum, hann er allnokkur.
Þessi leikur felur í sér skýr skilaboð
til leikmanna íslenska liðsins.
Leikmenn verða að búa sig undir
leiki sem þess og hafa úthald. Það
er hægt að búa til stemmningu fyrir
leikjum sem þessum og það gerðum
rið. En þegar leikmenn hætta að
gera það sem þeir eiga að gera þá
er voðinn ris. Það var til dæmis lagt
upp fyrir leikinn að rið sendum ekki
inn á miðjuna, það gekk vel framan
af en síðan fór það að gerast og þ'á
skapaðist sú staða sem bandaríska
liðið rildi fá upp. Þær „rændu“ af
okkur boltanum og fóru auðveldlega
upp, gerðu fjögur mörk með þeim
hætti auk þess sem þær fengu alveg
frían sjó fyrir innan vörnina."
Sum mörkin voru nú afar slysa-
leg, ekki satt?
„Þau voru ekki slysaleg, það þarf
bara að leita lengi að orði til þess að
útskýra sum mörkin fyrir fólki, þau
voru einfaldlega hræðileg.“
FELAGSLIF
Herrakvöld FH
Herrakvöld FH verður haldið í Hraun-
holti iöstudaginn 7. apríl. Húsið opnar
k!.19:30 en veislustjóri er Halldór Einars-
son. Ræðumaður verður Geir Haarde, fjár-
málaráðherra og Jóhannes Kristjánsson
flyturgamanmál.