Morgunblaðið - 11.04.2000, Page 1
-
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
IHffgtmfclftbifr
B
2000
U ÞRIÐJUDAGUR11. APRIL
BLAÐ
Tvöfalt
hjá Flökk-
urum og
Lærling-
um
LÆRLINGAR lögðu KR-inga í
æsispennandi úrslitaleik í bikar-
keppninni í heilu - 2322:2291,
þannig að munurinn var aðeins
31 pinni. Lærlingar, sem fögn-
uðu einnig sigri á íslandsmótinu
á dögunum eftir æsispennandi
keppni við KR, voru sterkari á
lokasprettinum á laugardaginn
og gerðu út um Ieikinn með
mörgum góðum fellum. Rétt fyr-
ir leikslok voru KR-ingar með
70 pinna forskot og stefndi allt í
sigur þeirra, en Lærlingar létu
ekki slá sig út af laginu - það
var Björn Birkgirsson sem rak
smiðshöggið á sigur þeirra.
Flakkarar, sem urðu einnig Is-
landsmeistarar kvenna, unnu
Tryggðatröllin úr ÍR í úrslita-
leik bikarkeppninnar, 2105:
1929. Leikirnir fóru fram í
Keilu í Mjódd.
Glæsimark
Jóhannesar
JÓHANNES Karl Guðjónsson
skoraði glæsilegt mark fyrir MW,
sem vann Twente 2:1 á útivelli í
hollensku úrvalsdeildinni í knatt-
spyrnu á sunnudaginn. Hann tók
aukaspyrnu 35 metra frá marki
heimaliðsins og skoraði með
hörkuskoti. Markið kom á upphafs-
sekúndum síðari hálfleiks, Twente
jafnaði rétt á eftir en sigurmark
MW kom um miðjan síðari hálf-
leik.
Wim Koevermans, þjálfari MW,
sagði að mark Jóhannesar hefði
fyllt liðið sjálfstrausti. Jóhannes
lék allan leikinn og fékk gula
spjaldið á lokamínútu fyrri hálf-
leiks. Þetta var fimmta mark hans
á tímabilinu og hann er annar
markahæsti leikmaður MW í úr-
valsdeildinni.
MW er í harðri baráttu um að
halda sér uppi en tvö neðstu liðin
falla. Liðið er í þriðja neðsta sæti
þegar sjö leikir eru eftir. Hafni lið-
ið þar þegar deildakeppninni lýkur
þarf það að leika aukaleiki við lið
úr 1. deildinni um laust sæti.
Morgunblaðið/Jim Smart
íslands- og bikarmeistarar í keilu. Flakkarar í efri röð frá vinstri: Sólveig Guðmundsdóttir. Theó-
dóra Ólafsdóttir, Elín Óskarsdóttir og Guðný Helga Hauksdóttir. Lærlingar I neðri röð: Bjöm Birg-
isdóttir, Freyr Bragason, Björgvin Harðarson og (var G. Jónasson.
Ólafur Örn Bjarnason gerði fjögurra ára samning við Grindavík
Mein moguleik-
ar en í Malmö
Grindvíkingar gengu um helgina
frá kaupum á fyrrverandi leik-
manni sínum, Ólafi Erni Bjamasyni,
frá sænska knattspyrnufélaginu
Malmö. Hann skrifaði undir fjög-
urra ára samning við Grindvíkmga,
kom til landsins í gærkvöld og hélt í
morgun með liðinu til Cadiz á Spáni
þar sem það dvelur í æfingabúðum
næstu vikuna.
Jónas Þórhallsson, formaður
knattspyrnudeildar Grindavíkur,
var í Malmö um helgina og gekk frá
samningnum ásamt tveimur fulltrú-
um nýja hlutafélagsins, GK 99, þeim
Pétri Pálssyni og Eiríki Tómassyni.
Ólafur Örn, sem verður 25 ára í maí
og hefur leikið þrjá landsleiki, átti
eftir tvö ár af samningi sínum við
Malmö, sem fékk hann frá Grinda-
vík fyrir tveimur árum. Svíarnir
skulduðu Grindavík hluta af kaup-
verðinu frá þeim tíma og lækkaði
það greiðslu Grindvíkinga fyrir leik-
manninn.
„Það verður mikill styrkur að fá
Ólaf aftur í okkar leikmannahóp.
Hann telur sig eiga meiri möguleika
á að halda áfram í atvinnumennsku
með því að spila með okkur, en með
því að leika í sænsku 1. deildinni.
Hasse Borg, þjálfari Malmö, sagði
að sér væri ekki Ijúft að sleppa Ólafi
sem hefði leikið stórt hlutverk í hans
framtíðaráætlunum," sagði Jónas
Þórhallsson við Morgunblaðið.
Grindvíkingar gengu í leiðinni frá
5 ára rammasamningi við Malmö um
samstarf á milli félaganna varðandi
leikmenn og þjálfun. Óli Stefán Fló-
ventsson, leikmaður Grindavíkur,
dvaldi við æfingar hjá Malmö í síð-
ustu viku og áframhald verður á
slíku.
Grindvíkingar styrkjast enn frek-
ar í næstu viku þegar þeir fá Zoran
Djurie, varnarmann frá Júgóslavíu,
til liðs við sig. Djuric lék á þriðja
hundrað leiki með Partizan Belgrad
en hefur síðan leikið í Tyrklandi og
síðast í Mexíkó.
HETJUR GEGN HEIMSMEISTURUM / B6, B7
VINTERSPORT
VINTEI
VINTEI
VINTEI
Adidas Assaito
St. 401/2-46’. '2. kr. 5.490,
Nike Ultraccef R9. gervigras
St. 39-46 kr. 4.990,-
Diadora Bomber
St. 42-46 kr. 3.690,
Bíldshöfda 20 • 110 Reykjavík
► 510 8020 • www.intersport.is
j
-