Morgunblaðið - 11.04.2000, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 11.04.2000, Blaðsíða 7
6 B ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 2000 MORGUNBLAÐIÐ + MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 2000 B 7 X KNATTSPYRNA KNATTSPYRNA Farið í bíó ÍSLENSKA landsliðið hélt í bíó á föstudagskvöldið til þess að brjóta aðeins upp undir- búninginn fyrir síðari leikinn og komast um leið út af hótel- inu um tíma. Farið var á myndina Erin Brock með Jul- iu Roberts í aðalhlutverki í gríðarlega stóru kvikmynda- húsi í verslunarmiðstöð í út- hverfi Charlotte. Og þótt nokkrum hafi fundist myndin vera í það langdregnasta virt- ist hún fara vel í liðið þegar öllu var á botninn hvolft. Gáfu eiginhandaráritanir EFTIR síðari landsleikinn gekk mikið á meðal ungra stuðningsmanna bandaríska landsliðsins er þeir kepptust við að fá leikmenn liðsins til að skrifa á flest lauslegt. Edda Garðarsdóttir og Þóra Helgadóttir voru ekki seinar á sér að fara upp í áhorfend- astúkuna og dreifa aðeins at- hyglinni með því að bjóða eig- inhandaráritanir sínar og voru þær vel þegnar. Foreldrar Rakelar komu FORELDRAR Rakelar Ög- mundsdóttur, Ögmundur Karvelsson og Sigurlína Káradóttir, komu frá Atlanta til þess að styðja við bakið á dóttur sinni og íslenska landsliðinu í siðari Ieiknum. Svo var einnig um nokkra Is- lendinga sem búa í nágrenni Charlotte. Þeir voru reyndar innan við tíu talsins en settu skemmtilegan svip á leikinn með hvatningu um leið og ís- lenska fánanum var haldið ákaft á lofti. Þóra „frysti“ bandaríska liðið ÞÓRA Helgadóttir, mark- vörður íslands, fær mikið lof í Charlotte Observer á sunnu- daginn er blaðið fjallar um leikinn. Segir það í fyrirsögn að markvörður íslenska liðs- ins hafí fryst bandaríska liðið og sýnt hreint fram- úrskarandi markvörslu. Þá fara April Heinrichs, lands- liðsþjálfari Bandaríkjanna, og framhetjinn Tiffeny Mil- brett fögrum orðum um frammistöðu Þóru. Blaðið segir ennfremur að hlutskipti Milbrett nú hafi verið ólíkt því sem var fyrir réttu ári þegar hún skoraði fjögur mörk og lagði upp tvö í 9:0- stórsigri Bandaríkjanna á Japan á sama velli. Charlotte Observer fer einnig lofsamlegum orðum um íslenska liðið í heild, segir það hafa leikið af skynsemi og ákveðni og lagt ríka áherslu á vörn, þar sem m.a. hafi mátt sjá átta menn um tíma f og við vítateig þess. Gríðarlegir skrækir GRÍÐ ARLEGIR skrækir kváðu við frá fjölda ungra stúlkna, sem voru á meðal áhorfenda, í hvert sinn sem bandaríska landsliðið nálgað- ist vítateiginn og gerði sig líklegt til þess að ógna ís- lenska markinu. Oft og tfðum voru skrækimir slíkir að það minnti fremur á upptökur af bitlahljómleikum á sjöunda áratugnum en knattspymu- leik. Rakel komin heim RAKEL Ögmundsdóttir, leik- maður fslenska landsliðsins, kom heim með íslenska hópn- um frá Charlotte á inánu- dagsmorguninn. Rakel, sem býr í Atlanta í Georgíuríki, er flutt heim að sinni þvf hún ætlar að leika með Breiða- bliki á komandi leiktfð Ifkt og í fyrra. Hún heldur aftur utan í haust. Hetjur gegn heims meisturum ÍSLENSKA kvennalandsliðið í knattspyrnu sýndi einstakan hetju- skap er það gerði markalaust jafntef li við heimsmeistara Banda- ríkjanna í Charlotte í N-Karólínu á laugardagskvöldið. Ekki einatt sýndu leikmenn liðsins hetjuskap heldur stórkostlegt keppnisskap því þeim lánaðist að breyta hugarfari sínu algjörlega frá útreiðinni sl. miðvikudag. Hamskiptin voru algjör og það var nánast ekki hægt að trúa því í leikslok að þarna færi af leikvelli, með sigurbros á vör, sama lið og lét sundurspila sig nokkrum dögum fyrr. Að ná jafntefli gegn þrautþjálfuðum heimsmeisturum Bandaríkjanna á þeirra heimavelli er afrek sem sýnir svo ekki verður um villst að leggi leik- menn sig fram og einbeiti sér að því sem að knattspyrnunni snýr innan vallar eru þeim allir vegir færir. Leikmenn stóðu við stóru orð- in, þeir ætluðu að gera betur, laga það sem miður fór og láta heims- meistarana f inna til tevatnsins. Allt gekk eftir og í leikslok voru það hnípnar bandarískar „stjörnur“ sem gengu af leikvelli. Ivar Benediktsson skrifar frá Charlotte andarísku stjömunum lánaðist ekki að skína að þessu sinni og sumum þeirra þótti berin vera súr- ari en öðrum, er þar átt við hetju liðsins, Miu Ham, sem gerð hefur verið nánast að goði í bandarísku íþróttalífi. Þrá hennar eftir athygli og aðdáun var með öðrum formerkj- um í leikslok, þá var þrá hennar að vera látin í friði. En slíkt er ekki auð- velt í henni Ameríku þegar alið hef- ur verið á öðru. Ellefu íslenskar knattspyrnukonur sem áttu að vera auðveld bráð, sýndu mátt sinn og megin, og drógu skugga sinn fyrir birtu „stjörnunnar" sem ekki fékk að skína á svölu en stjörnubjörtu kvöldi í Charlotte. Jafnteflið var sigur liðsheildar ís- lenska liðsins, lagt var upp með ákveðið leikskipulag sem gekk full- komlega upp. Agi og vinnusemi voru orðin sem Guðmundur Hreiðarsson, aðstoðarlandsliðsþjálfari, brýndi sitt lið með fyrir leikinn. Það skal fús- lega viðurkennt að íslenska liðið átti undir högg að sækja nær allan leik- inn, en með skynsemi, vinnusemi og aga þá steig það vart feilspor. Leikurinn minnti mjög á leiki ís- lenska karlaliðsins á útivöllum á undanfömum misserum, s.s. í Kæn- ugarði og í Moskvu. Islenska liðið lék agaðan leik, flanaði ekki að neinu, hver leikmaður hafði skýrt hlutverk og vissi nákvæmlega hvað gera skyldi og hvað bæri að forðast. Þegar tækifæri gafst til var sótt, en sem fyrr án þess að láta kappið hlaupa með sig í gönur. Og það verð- ur að segjast alveg eins og er, eftir að hafa orðið vitni að hinu þveröfuga sl. miðvikudag var ótrúlegt að verða vitni að þeim framförum sem liðið tók á öllum sviðum.Leikurinn fór ró- lega af stað og fyrstu 20 mínúturnar var mikil stöðubarátta. Bandaríkja- menn komu nokkuð á óvart með því að stilla upp leikkerfinu 3-4-3 en ekki 4-4-2 eins og það hefur tamið sér undanfama mánuði. Líkt og í fyrri leiknum stillti ísland upp í 5- 3-2. Breyting Bandaríkjamanna virtist ekki hrífa, en þeir héldu henni til streytu lengst af fyrri hálfleiks. Fyrsta ógnun að marki kom úr skyndisókn íslands þar sem Rakel Ögmundsdóttir var nærri því að prjóna sig í gegn en vantaði herslu- muninn upp á. Bandaríska liðinu gekk illa hinum megin að brjóta ís- lensku vömina á bak aftur. Spurn- ingin var sú hversu lengi hún héldi gegn áköfum og lipurlegum sóknar- leik heimamanna þar sem hin fljóta Tiffeny Milbrett var skeinuhættust. Shannon MacMillan kom hins vegar við sögu í tveimur fyrstu fær- um bandaríska liðsins. Fyrst varði Þóra Helgadóttir glæsilega hættu- lega fyrirgjöf hennar á 21. mínútu og örfáum andartökum síðar var MacMillan aftur á ferð með fyrirgjöf sem Þóra réð ekki við en Guðlaugu Jónsdóttur lánaðist að bjarga á æv- intýralegan hátt. Reyndar mátti engu mun að Guðlaug spyrnti í eigið mark er hún hreinsaði frá markinu því skot hennar fór í slá og út á völl. Eftir þetta tók við 15 mínútna kaflí þar sem íslenska liðið átti verulega undir högg að sækja og bandaríska liðið fékk ekki færri en fimm dauða- færi þar sem sóknarmenn vom einir gegn markverði eftir leiftrandi skemmtilegan samleik. Þóra fór hamförum En dauðafærin strönduðu öll á Þóru Helgadóttur markverði sem bókstaflega fór hamförum í markinu með stórbrotinni markvörslu. Heldur datt botninn úr leik heims- meistaranna síðustu tíu mínútur fyrri hálfleiks og var engu líkara en leikmenn hefðu misst móðinn. Hann kom á ný í síðari hálfleik eftir að April Heinrichs, landsliðsþjálfari, hafði lesið þeim pistilinn. í klefanum við hliðina hvatti Guðmundur sitt lið til dáða á jákvæðum nótum. Sóknarþungi Bandaríkjamanna jókst á ný við upphaf síðari hálfleiks en hvorki gekk né rak að reka smiðs- höggið á sóknirnar, annað hvort lok- uðu einbeittir íslenskir leikmenn sóknarleiðunum eða þá að Þóra hélt uppteknum hætti í markinu. Alls áttu bandarísku stúlkurnar 20 skot að marki í leiknum og af þeim hittu 11 markið og þá var Þóra hindrunin sem ekki tókst að brjóta á bak aftur. Heimamenn fengu einnig 11 horn- spyrnur, engin þeirra bar ávöxt. íslenska liðið átti eitt og eitt skyndihlaup og næst því að skora var Rakel Ögmundsdóttir strax á upphafsmínútum síðari hálfleiks er hún braust ásamt Ásgerði Ingibergsdóttur upp hægri kant- inn, en skot Rak- elar úr hægri hluta vítateigsins fór rétt framhjá stönginni utan- verðri. Eins voru Rakel ogÁsthild- ur Helgadóttir aðeins hárs- breidd frá því að leika í gegnum vörn Bandaríkj- anna snemma í síðari hálfleik, en skynsamur varn- armaður varð á vegi þeirra og sló vopnin úr hönd- um þeirra á el- leftu stundu við vítateigslínu. Líkt og í fyrri hálfleik dró heldur úr bitinu í sóknarleik bandaríska liðsins er á leið og síðustu 10 mínút- urnar virtist það ætla að sætta sig við orðinn hlut. Lengi er þó von á einu og þegar örfáar sekúndur voru eftir fékk Brandi Chastain dauða- færi hægra megin í vítateignum eftir aukaspyrnu frá vinstri. Þóra varði skotinu veginn með því að kasta sér á knöttinn út við stöng. Þóra spyrnti knettinum frá markinu og þar með var leikurinn úti. Þótt ekki verði hjá því komist að taka sérstaklega út frábæran leik Þóru í markinu þá skal það skýrt tekið fram að með því er alls ekki verið að varpa skugga á frammistöðu annarra leikmanna ís- lenska liðsins. Allt íslenska liðið stóð sig einstaklega vel og á heiður skil- inn fyrir hetjulega framgöngu og ótrúlega hugarfarsbreytingu til leiksins á aðeins örfáum dögum. Ur- slitin eru frábær en þau mega hins vegar ekki glepja sýn til framtíðar. Engar skiptingar GUÐMUNDUR Hreiðarsson gerði enga skiptingu á ís- lenska liðinu á meðan sfðari leikurinn stóð yfír, byijunar- liðið lék frá upphafi til enda. Bandaríkjamenn gerðu eina breytingu á sinni sveit, Christine Welsh skipti út af á 69. múiútu fyrir Danielle Sla- ton og var Welsh allt annað en ánægð með hlutskipti sitt, en ætlaði sér mikið i leiknum eftir að hafa skorað þrennu í fyrri Ieik þjóðanna á mið- vikudaginn. Bandarísku stúlkurnar áttu erfitt uppdráttar í viðureigninni við þær íslensku. höggi við hina þekktu Miu Hamm. Ljósmynd/Todd Sumlin Hér á íris Sæmundsdóttir í Ljósmynd/Todd Sumlin Rakel Ögmundsdóttir (4) og Lorrie Fair berjast um knöttinn. Draumi líkast Eg vissi það allan tímann að æðri máttar- völd myndu verða okkur hliðholl og gæta þess að ekki yrði skorað hjá okkur,“ sagði Rakel Ögmundsdóttir, framherji íslenska liðs- ins glaðbeitt í leikslok. Rakel er 23 ára og hef- ur búið í Bandaríkjunum alla ævi; um þessar mundir í Atlanta í Georgíuríki hjá foreldrum sínum. Hún segir úrslitin vera draumi líkust og að það hafi verið einstakt að fá tækifæri til að leika við bandaríska landsliðið. „Fyrir leikinn sagði ég við stelpurnar að Guð væri með okkur og þær tóku orð mín mátulega alvarlega, en nú eftir leikinn er kom- ið í ljós að svo er og líklega eiga einhverjar þeirra eftir að taka upp biblíuna og lesa hana,“ bætti Rakel við með glitrandi glaðværð. „Eg veit satt að segja ekki hvað var að okk- ur í fyrri leiknum, við vorum algjörlega á hæl- unum og ekkert að berjast. Nú var allt annað uppi á teningnum. Við létum finna fyrir okkur og vorum virkilega ákveðnar í að berjast um allan völl og gefa bandaríska liðinu aldrei nein grið og það tókst. Guðmundur sagði mér fyrfr leikinn að vera frammi, en mér fannst það svolítið erfitt, mig langaði alltaf að fara aftar og aðstoða í vörn- inni. Það er ekki hægt að ná ánægjulegri úr- slitum en þessum, við vorum að leika við besta knattspyrnulið heims í kvennaflokki. Leikur- inn er tvímælalaust hápunktur ársins hjá mér, ég verð með hann á vörunum næstu vikurnar. Þetta er frábært," sagði Rakel en hún er væntanleg heim til íslands í vor til þess að leika með Breiðabliki líkt og á sl. keppnis- tímabili. Ljósmynd/Todd Sumlin Katrfn Jónsdóttir í baráttu við Brandi Chastain. Guðmundur Hreiðarsson eftir leikinn í Charlotte Nú hélt leik- skipulagið „ÚRSLITIN eru stórkostleg og stúlkurnar stóðu sig frábærlega, þær fóru í einu og öllu eftir því sem fyrir þær var lagt,“ sagði Guðmundur Hreiðarsson, aðstoðarlandsliðsþjálfari kvenna, sem stýrði landsliðinu í jafnteflisleiknum við Bandaríkin í fjarveru Loga Ólafssonar landsliðsþjálfara. „Logi, ég og stúlkurnar fór- um vandlega yfir fyrri leikinn og okkur fannst tapið vera alltof stórt og mörg markanna í ódýrara lagi. Þá hélt nú leikskipulagið allvel, þá var það fremur skortur á einbeitingu sem varð okkur að falli. Nú var lagt upp með sömu leikað- ferð, en nú hafði gefist tími til þess að kortleggja leik andstæðing- anna. Það þýddi að það var hægt að leggja hernaðaráætlun fýrir stúlk- urnar sem þær fylgdu í einu og öllu. Einnig voru þær rólegar, skynsa- mar, þær „pressuðu" andstæðing- inn, þær bökkuðu aftur og lokuðu svæðum. Ef eitthvað brást þá var að baki vörninni frábær markvörður sem varði einstaklega vel og ég trúi ekki öðru en hún hafi gripið athygli einhverra útsendara háskólaliða með frammistöðu sinni." Guðmundur sagði að ekki væri hægt að fara fram á meira af ís- lenska liðinu að þessu sinni. „Þær voru frábærar fyrir framan rúmlega tíu þúsund áhorfendur, þær geta sannarlega verið stoltar af framm- istöðu sinni. Með þessum eldmóði sem brann í bijósti leikmanna sýndu þær að það er framtíð í þeim, en að sjálfsögðu verða þær að hafa trú á sér og því sem verið er að gera hverju sinni til þess að árangur náist.“ Setti það ekkert strik í reikning- inn að bandaríska liðið byrjaði á að leika 3-4-3 en ekki 4-4-2? „Ég átt alveg eins von á því að það byrjaði eins og það gerði. Það sem við lögðum upp með var það að Rakel Ögmundsdóttir yrði mjög framarlega á vellinum til þess að setja pressu á þriggja manna vörn- ina. Meðan svo var gátu bandarísku stúlkurnar ekki leikið á milli eins og þær vildu helst, þær þorðu heldur ekki að koma upp og tvöfalda á köntunum. Og það var einmitt það sem við vildum koma í veg fyrir, það gekk eftir. Þá hélt miðjan vel hjá okkur, einkum vegna þess að það var aldrei farið út í neinn eltingaleik eins og síðast. í hópnum eru sextán leikmenn og hann stóð fyrir sínu í þessum leik og sýndi svo ekki verður um villst að hann getur með sameiginlegu átaki brett upp ermar og bætt það sem miður fór áður,“ sagði Guðmundur Hreiðarsson. Uppskeran ekkí sú sem til var sáð „Mitt lið lék alls ekki síður en á miðvikudaginn," sagði April Hein- richs, landsliðsþjálfari Bandaríkj- anna, eftir jafnteflið, en virtist eigi að síður ekki vera bergnumin né eins brött á brá og brún og þá. „Það lék hugmyndaríkan, hraðan og skemmtilegan leik. En eftir að hafa verið í hringiðu knattspymunnar í mörg ár er mér það ljóst að maður uppsker ekki alltaf eins og maður sáir til. Það sannaðist á okkur að þessu sinni.“ Heinrichs bar lof á skipulagðan og góðan varnarleik íslenska liðsins sem hún sagði hafa verið til fyrir- myndar. Um ástæður þess að hún breytti um leikskipulag frá fyrri leiknum sagði hún að það væri hennar vilji að bandaríska landsliðið gæti leikið báðar leikaðferðirnar og því hefði verið ákveðið að breyta til um stund. „Mér fannst 3-4-3 leikað- ferðin ganga afar vel.“ Gaman að lifa „NÚ er gaman að lifa, mér líðúr bara eins og ég hafi orðið heims- meistari,“ sagði Katrín Jónsdóttir er hún gekk af leikvelli. „Með þessa frammistöðu er ég ánægð, eftir að hafa tapað 8:0, að koma svona hressilega til baka og gera jafntefli. Það erekki úrfjölmenn- um hópi leikmanna að ráða heima sem býryfir mikill tækni en á móti kemur að við erum sterkar, við getum verið í góðri æfingu auk þess sem skipulagður leikur á vel við okkur. Katrín sagði að það hafisannast í leiknum - með mikill baráttu frá fyrstu mínútu til hinnarsíðustu. „Og leikurinn tók svo sannarlega á, ég held að síðustu mínúturnar hafi ég bara verið í vörninni, ekki haft kraft til þess að fara í sóknina," bætti Katrín við og hló innilega.„Nú verður gaman að koma til félaganna í Kolbotn í Noregi. Þar höfðu með- herjar mínir ekki mikla trú á því að við riðum feitum hesti fráferðinni," sagði Katrín en fjórir til fimm sam- herja hennar hjá norskaúrvalsdeild- arliðinu eiga sæti í norska landslið- inu. Katrín heldur strax í vikunni til Noregs til þess að leggja síðustu hönd á undirbúning deildarkeppn- innar sem hefst 29. apríl. „Við leik- um sjö leiki á fyrsta mánuðinum, þannig að það verður í mörg horn að líta. Ástæða þess að svo ákaft er leikið er sú að norska kvennalandsl- iðið tekur þátt í Ólympíuleikunum og meðan þefr standa yffr verður hlé í deildinni.“ Katrín segir að helst megi þann lærdóm draga af þessari ferð að ís- lenskar knattspyrnukonur verði að leggja harðar að sér við æfingar, æfa oftar og meira og þá upp á eigin spýtur ef þær yilji ná betri árangri í íþrótt sinni. „Ég er þar ekki undan- skilin þótt ég sé eflaust í hópi þeirra sem eru í hvað bestri æfingu af hópnum. Ég veit að ég á mikið inni. Það er svo mikill munur á betri liðunum og þeim lakari í deildar- keppninni á Islandi og því fá margir leikmenn ekki mikið úr mörgum leikjum. Því verður að leita leiða til að jafna keppnina þannig að við fá- um fleiri jafna og spennandi leiki. En það er hins vegar alveg ljóst að leikmenn verða að leggja harðar að sér við æfingar og líta á knatt- spyrnu sem heilsársíþrótt. Það er nauðsynlegt að leikmenn hafi meiri metnað til að halda sér í góðri æfingu, það er alveg lykilatriði til þess að hægt sé að ná fram góð- um úrslitum í leikjum, eins og okkur tókst að þessu sinni þótt við færum frekar áfram á viljanum en á út- haldinu núna. Logi Ólafsson hefur hvatt okkur mjög til þess að leggja harðar að okkur og nú fer ég til Noregs með þá ætlun að æfa ennþá meira og bet- ur og ég veit að svo er farið um fleiri leikmenn í hópnum,“ sagði Katrín Jónsdóttir. Okkur eru allir vegir færir „VIÐ vorum allar ákveðnar í að gera betur og læra af því sem miður fór í fyrri leiknum, þá brast okkur allt þrek eftir hálftíma leik,“ sagði Ásthildur Helgadóttir, fyrirliði ís- lenska landsliðsins, er hún gekk af leikvelli eftir jafnteflið við heims- meistara Bandaríkjanna. „Nú ætl- uðum við að vera skipulagðar og spara orkuna og það tókst svo ljóm- andi vel að við náðum þeim úrslitum sem stefnt var að. Það hefði meira að segja verið hægt með smáheppni að skora eitt mark. Ég efast um annað en að við getum verið ánægð með þessi úrslit. Þóra náði einnig að rífa sig upp eins og aðrir í liðinu. Hún varði frá- bærlega og það hefur örugglega hjálpað henni mikið hversu góð og öguð vörnin var, það hjálpar alltaf að leika á bak við agaða vörn,“ sagði Ásthildur ennfremur. Ásthildur sagði að allt annað hug- arfar hefði verið fyrir hendi hjá lið- inu auk þess sem skipulagður leikur hafi verið lykilatriði. „Ég er minna þreytt nú en eftir fyrri hálfleikinn á miðvikudag. Eftir hörmulega frammistöðu í fyrri leiknum þá sýndum við nú að það er mikill metnaður og „karakter“ í liðinu. Um leið veita þessi úrslit okkur auki,ð sjálfstraust fyrir leikinn við ítah'u í vor í undankeppni EM.“ Ásthildur sagði að hægt væri að draga þann lærdóm af þessum tveimur leikjum við Bandaríkin að ef leikmenn sneru bökum saman og einbeittu sér að því að berjast og hafa fyrir hlutunum væri þeim allir vegir færir. Og með bros á vor sagði Ásthildur: „Það var svo gaman þeg- ar dómarinn flautaði af, því er ekki að neita að það var kominn skrekk- ur í mig undir lokin.“ Gaman að liggja á boltanum „Ég er algjörlega búin að vera, en úrslitin eru stórkostleg," sagði Þóra Helgadóttir, sem varði sem berserk- ur í marki íslands, þar á meðal nokkurn ijölda dauðafæra. Þóra sagði það hafa verið mjög erfitt að halda einbeitingu allan leikinn. „Fyrst og fremst er ég ánægð með liðsheildina hjá okkur, vörnin var frábær. Við lékum eins og lagt var fyrir okkur, af skynsemi og varkárni með það að leiðarljósi að „sprengja" okkur ekki. Eftir þennan leik höfum við sannað fyrir okkur að við getum sitt af hverju tagi.“ Um síðustu markvörsluna í leikn- um, þegar Þóra varði skot alveg ík' við stöng, sagði hún: „Ég hafði auj£, á boltanum allan tímann, það hjálp- aði mér til þess að verja skot. Það var svo sannarlega gaman að liggja á boltanum, en að sama skapi hefði verið hræðilegt að fá á sig mark á þeirri stundu eftir það sem á undan var gengið." >

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.