Morgunblaðið - 11.04.2000, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 11.04.2000, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 2000 B 3 ÍÞRÓTTIR Albert hættur hjá Grindavík ALBERT Sævarsson, markvörð- ur Grindvíkinga í úrvalsdeildinni í knattspyrnu, er hættur með fé- laginu og leikur ekki með því í sumar. Þetta lá endanlega fyrir í gær og Grindvíkingar hófu þá þegar leit að eftirmanni hans. Albert er 26 ára og hefur leikið 85 leiki í röð með Grindavík í úr- valsdeildinni, ekki misst úr leik síðan hann spilaði þann fyrsta ár- ið 1995, og er annar leikjahæsti maður félagsins í efstu deild. „Þetta er því miður niðurstað- an en Albert setti upp launa- kröfur sem við töldum ekki raunhæfar. Við erum þar með í erfiðri stöðu og erum farnir að leita að markvörðum erlendis. Við ræddum við Ólaf Gottskálks- son hjá Hibernian er það er afar ólíklegt að hann komi heim í sumar, þannig að við reiknum með því að fá til okkar erlendan markmann," sagði Jónas Þór- hallsson, formaður knattspyrnu- deildar Grindavíkur, við Morg- unblaðið í gærkvöld. Morgunblaðið/Ásdís Erla Þorsteinsdóttir og Anna María Sveinsdóttir hlaupa hér fagnandi með íslandsbikarinn í KR-húsinu í gærkvöldi Keflvíkingar með meistaravöm „VORNIN vinnur titla - við unnum á okkar vörn,“ sagði Anna Ma- ría Sveinsdóttir fyrirliði Keflavíkur, sem lagði KR, 57:43, íVest- urbænum í gærkvöldi og tryggði sér íslandsmeistaratitill í fimmta leik liðanna. Keflavík vann þriðja leikinn í Vesturbænum, KR sneri dæminu við og vann fjórða með 16 stiga mun í Keflavík á laugardaginn, 68:42. Enn snerist taflið við í gærkvöldi - ekki síst vegna þess að gestirnir frá Suðurnesjum gerbreyttu um vörn. Við breyttum að vísu í vörn sem við höfum ekki leikið á móti þeim í vetur og það kom þeim í opna skjöldu. Við vorum Stefán að auki miklu betri Stefánsson enda buið að tygSa 1 skrifar okkur að við værum bestar og myndum vinna og við trúðum því statt og stöð- ugt,“ sagði Anna María. Óhætt er að segja að svæðisvörn Keflavíkurs- túlkna hafí sett Vesturbæinga nokk- uð útaf laginu og það var ekki fyrr en um miðjan fyrri hálfleik að KR- stúlkur náðu áttum. Þá spýttu þær líka í lófana og hófu að saxa á for- ystuna uns hún varð fjögur stig í leikhléi. í upphafi síðari hálfleiks virtist sem KR-ingar væru að ná yfirhönd- inni eftir þriggja stiga körfu svo að- eins munaði einu stigi. Það gekk hinsvegar ekki eftir því hittnin var afleit enda fór allt í sama farið og Keflavík náði öruggri forystu á ný. Búin að gleyma hvað þetta er gaman „Ég var mjög stressuð og það var erfitt að koma inn í þetta aftur enda var ég ekki í sem bestu leikformi því leiktímabilinu hjá mér lauk í febr- úar,“ sagði Erla Reynisdóttir, sem gekk til liðs við Keflavík í úrslitun- um. Hún er að læra tölvunarfræði í Bandaríkjunum og á tvö ár eftir. „Ég veit ekki hvað verður því ég var búin að gleyma hvað er gaman að vera með.“ Áttum ekki von á svæðisvörn þeirra Þær komu betur stemmdar til leiks og spiluðu geysigóða svæðis- Þannig vörðu þeir Laugardagur: Reynir Þór Reynisson, KA: 25/1 (þar af 16 til mótherja). 6 (4) langskot, 9 (5) gegnumbrot, 5(4) horn, 4 (3) lína, 1 víti. Sebastian Alexandersson, Fram: 11/1 (þar af 3 til mótherja). 3 langskot, 2 (1) gegnumbrot, 2 (1) hraðaupphlaup, 3 (1) horn, 1 víti. Magnús Erlendsson, Fram: 4 (þar af 3 til mótherja). 3 (2) lang- skot, 1 (1) gegnumbrot. Mánudagur: Sebastian Alexandersson, Fram: 19/1 (þar af 9 til mótherja). 12 (5) langskot, 2 (2) eftir gegn- umbrot, 3 (2) úr hraðaupphlaupi, 1 úr horni, 1 víti. Reynir Þór Reynisson, KA: 4/1 (þar af 2/1 til mótherja). 2 úr homi, 1 (1) af línu, 1 (1) víti. Hörður Flóki Ólafsson, KA: 5 (þar af 2 til mótherja). 4 (1) lang- skot, 1 (1) úr horni. vörn, sem við áttum ekki von á - þó vissum við samt að þær kæmu brjál- aðar til þessa úrslitaleiks," sagði Óskar Kristjánsson þjálfari KR eftir leikinn. „Við lögðum upp með að spila ákveðin áform en það gekk ekki eftir svo að stemmningin var með þeim og við náðum aldrei að komast fyrir það. Það gerði svo gæfumuninn þegar þær tóku átta sóknarfráköst í fyrri hálfleik. Þegar við svo vorum að ná þeim vantaði herslumuninn og það datt ekkert ofan í hjá okkur, til dæmis í vítunum, sem skrifast á reynsluleysi. Ég vil svo óska Keflavíkurstúlkum til hamingju, þær eru með betra lið. Við urðum að vísu fyrir áföllum með leikmannahópinn í vetur á meðan þær bættu við en það breytir litlu og úrslit sem þessi snúast um dagsform. Þurftum að hafa of mikið fyrir stigunum „Þær voru ákveðnari í lokin og langaði meira tii að sigra en við þurftum að hafa mikið fyrir hverri körfu auk þess að svæðisvörn þeirra kom okkur mjög á óvart,“ sagði Kri- stín Jónsdóttir í KR. „Við hefðum getað náð þeim um tíma en þá fór ekkert ofan í körfuna og við náðum ekki nógu vel að halda áfram eftir það.“ Þjálfarinn uppi í stúku Athygli vakti að Kristinn Einars- son, sem þjálfað hefur Kefla- víkurstúlkur í vetur, stýrði ekki liði sínu og í hans stað var kominn Sig- urður Ingimundarson en hann þjálf- aði liðið áður og leiddi oft til sigurs. Ástæðan var sú að Kristinn var rek- inn af velli í síðasta leik og varð að taka út leikbann í gærkvöldi. „Ég var frekar rólegur, við Sig- urður ræddum saman fyrir leikinn og fórum yfir hugmyndir og ég lét hann um þennan leik,“ sagði Krist- inn, sem sat á meðal áhorfenda í gærkvöldi og tók út leikbannið. „Þetta var skemmtilegur leikur að horfa á og sannarlega öðruvísi að sitja meðal áhorfenda en ég treysti Sigurði vel, hann þekkir þessa leik- menn eftir að hafa þjálfað þá áður. Það komu upp hugmyndir um að hafa símasamband en mér fannst það tómt rugl. Mestu skipti að stelpurnar komu gríðarlega vel stemmdar til leiks og það var vörnin sem skóp sigurinn." Islendingar lögðu Tyrki LEIKMENN íslenska íshokkflandsliðsins byrjuðu heimsmeist- arakeppnina, 4. deild, vel í Skautahöllinni í Laugardal í gær- kvöldi. Þar lögðu þeir Tyrki örugglega að velli, 10:0, með mörk- um frá Jónasi Breka Magnússyni 3, Elvari Jónsteinssyni 2, Sigurði Einari Sveinbjörnssyni 2, Sigurði Sigurðarssyni, Ingvari Jónssyni og James Stevane. Frank- furt vill fáDag ÞÝSKA handknattlciksliöið Frankfurt vill fá landsliðs- manninn Dag Sigurðsson í sínar raðir og er tiibúið að bjóða honum ijögurra ára samning. Þegar Wuppertal frétti af áhuga Frankfurt, !þar sem Stephan Schöne, fyrrverandi þjálfari Wupp- ertal, er orðinn fram- kvæmdastjóri, vildi það gera allt til að halda Degi. Bob Hanning, sem þjálfar Solingen, er talinn líkleg- astur til að verða næsti þjálfari Wuppertal. Ólafur Páll til Vals jr Olafur Páll Snorrason, knatt- spyrnumaðurinn efnilegi hjá Bolton í Englandi, hefur verið lánað- ur til Valsmanna og leikur hann með þeim í 1. deildinni í sumar. Ólafur Páll verður 18 ára í sumar en hann hefur verið í röðum Bolton undanfarin tvö ár og leikið þar með unglingaliðinu og varaliðinu. Hann á að baki 31 leik með yngri landsliðum íslands og hefur gert í þeim 8 mörk. Ólafur Páll er uppalinn Fjölnismað- ur en gekk til liðs við Val fyrir tveim- ur árum, 16 ára gamall, og lék þá með þeim 2 leiki í úrvalsdeildinni áð- ur en hann hélt til Bolton. Hann kom til landsins í gær og fór með Vals- mönnum í æfingabúðir á Spáni í morgun. „Ólafur ætti að koma okkur að góðum notum í sumar og fá aukna reynslu fyrir baráttuna með Bolton á næstu árum. Þetta er fyrsta skrefið í samstarfi Vals og Bolton en félögin eiga eftir að vinna mikið saman, m.a. í leikmannaskiptum og þjálfun yngri leikmanna. Guðni Bergsson, Vals- maður og leikmaður Bolton, kom að málinu með jákvæðum hætti en for- ráðamenn félaganna hafa komist að samkomulagi um samstarf," sagði Grímur Sæmundsen, formaður knattspyrnudeildar Vals, við Morg- unblaðið í gær. Færeysku landsliðsmennirnir Henning Jarnskor og Pól Thor- steinsson eru einnig alkomnir til Vals og fóru með liðinu til Spánar i morgun. Siö LEIKMENN Manchester United fögnuðu sigri í 22. leik sínum í ensku úrvalsdeildinni, þegar þeir lögðu Middlesbrough í gærkvöldi, 4:3. Heimamenn voru á undan til að skora - Andy Campbell á 19. mín. Það var svo ekki fyrr en í byrjun seinni hálfleiksins að Ryan Giggs jafnaði, síðan skoraði Andy Cole og Paul Scholes með þrumuskoti af 23 m færi, 1:3. Paul Ince svaraði fyrir heimamenn, en Quinton Fortune skoraði síðan fyrir gestina áður en Brasilíumaðurinn Juninho átti síð- asta orð leiksins, 3:4. „Við þurftum að hafa fyrir þessum sigri. Leikmenn mínír fóru í seinni hálfleikinn með réttu hugarfari," sagði Alex Ferguson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.