Morgunblaðið - 26.04.2000, Side 1
■
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
pHtröíimMíiMfo
c
2000
m MIÐVIKUDAGUR 26. APRIL
BLAÐ
Sigurður
Gunnarsson
þjálfar HK
SIGURÐUR Gunnarsson hef-
ur tekið við þjálfun hand-
knattleiksliðs HK í Kópavogi.
Sigurður, sem tekur við af
Sigurði Sveinssyni, gerði
þriggja ára samning við
Kópavogsliðið. Sigurður
Gunnarsson þjálfaði áður
Víking, ÍBV, Hauka og Bodö í
Noregi. Rögnvaldur Guð-
mundsson, formaður hand-
knattleiksdeildar HK, sagðist
ánægður með ráðningu Sig-
urðar Gunnarssonar enda
hefði hann víðtæka þekkingu
og reynslu sem þjálfari.
Rögnvaldur sagðist gera ráð
fyrir að allir leikmenn yrðu
áfram næsta vetur og stefnt
yrði að því að styrkja liðið en
að Alexander Arnarson væri
að öllum líkindum á leið til
Regensburg í Þýskalandi. Fé-
lögin hafa náð samkomulagi
sín á milli um tveggja ára
Ieigu en þýska liðið hefur enn
ekki gert samkomulag við Al-
exander.
Kvatt með
langþráð-
um sigri
HAUKAR voru krýndir Islands-
meistarar í handknattleik karla að
kvöldi annars dags páska er liðið
lagði Fram, 24:23, í fjórðu viðureign
liðanna um íslandsmeistaratitilinn.
Var þetta þriðji sigur Hauka í úrslita-
rimmunni. Þar með var 57 ára bið fé-
lagsins eftir sigri í 1. deild karla á
enda og fögnuðu leikmenn og stuðn-
ingsmenn ákaft að leikslokum. Þetta
var um leið kveðjuleikur Guðmundai’
Karlssonar, þjálfara Hauka, undan-
farin tvö ár. Hann hafði því ekki síst
ríka ástæðu til að gleðjast er hann
hampaði íslandsbikarnum í leikslok.
Morgunblaðið/Jim Smart
Sterkur Júgóslavi í Stjömuna
NÝLIÐAR Stjörnunnar úr
Garðabæ hafa fengið mikinn
liðsstyrk fyrir keppnina í úr-
valsdeildinni í sumar en í fyrra-
dag kom til þeirra júgóslavnesk-
ur varnarmaður, Vladimir
Sandulovic, frá úrvalsdeildarlið-
inu OFK Belgrad. Stjörnumenn
hafa fengið hann lánaðan út
timabilið. Sandulovic er 24 ára
og uppalinn hjá Rauðu stjörn-
unni, sterkasta félagsliði Júgó-
slavíu.
Hann lék með yngri landslið-
um Iandsins, síðast með Ólymp-
iulandsliðinu. Goran Kristófer
Micic, þjálfari Stjörnunnar,
sagði við Morgunblaðið að í sín-
um huga væri enginn vafi á því
að þetta væri sterkasti leikmað-
ur sem hingað hefði komið frá
Júgóslavíu og hann ætti mögu-
leika á að fara næsta vetur til
liða í Vestur-Evrópu fyrir
hundruð milljóna króna.
„Það er ljóst af fyrstu æfing-
unum að við höfum þarna krækt
í mjög sterkan leikmann, sem
Goran fékk í gegnum sín pers-
ónulegu sambönd. Þar með er
okkar hópur fullskipaður fyrir
sumarið og við bíðum spenntir
eftir því að deildin hefjist,"
sagði Sigmundur Hermundsson,
formaður knattspyrnudeildar
Stjörnunnar, við Morgunblaðið.
SIGURÐUR JÓNSSON Á LEIÐ TIL ÍSLANDS / B7
INTER'