Morgunblaðið - 26.04.2000, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKLTnAaiTR 9fi APRÍT.9ní¥l C íl
KAPPAKSTUR
David Coulthard vel fagnað eftir sigur í breska kappakstrinum á Silverstone
Gleymdu
erfidleikum
og vosbúð
VIÐ frábæran sigur Skotans Davids Coulthard í breska kapp-
akstrinum á Silverstone á sunnudag gleymdu 130.000 áhorfend-
ur öllum erfiðleikum sem þeir höfðu lent í við að koma sér á
mótsstað, en aurbleyta lokaði bílastæðum að hluta svo meirihluti
mótsgesta gekk ailt að 12-15 kílómetra til að komast á brautina
eftir að hafa beðið allt að 5 klukkutíma í umferðarteppu. Þeir
sem borgað höfðu fúlgur fjár fyrir að fljúga inn á völlinn í þyrlum
komust þangað ekki klukkutímum saman vegna þoku.
Eftir nær látlausa rigningu um
tveggja vikna skeið hófst
kappaksturinn þó í sólskini. Var
það aðstandendum mótsins og
Formúlu-1 mikill léttir sakir harðr-
ar gagnrýni á að flytja breska
kappaksturinn frá sínum hefð-
bundna tíma í júlí fram í apríl þeg-
ar allra veðra er von í Englandi.
Coulthard náði afbragðs við-
bragði og ók lengi í þriðja sæti í
þéttri sex bíla halarófu, en eftir að
Heinz-Harald Frentzen á Jordan-
bíl tók fyrra bensín- og dekkja-
stopp sitt eftir þriðjung hringjanna
hóf Skotinn að ógna Rubens Barr-
ichello hjá Ferrari sem verið hafði
í forystu allan tímann. A 31. hring
sýndi hann dirfsku, sem sjaldséð
er í Formúlu-1, og skaust fram úr
Brasilíumanninum utanvert á Kap-
ellubeygju. Slíkur akstur getur
reynst afdrifaríkur því viss hætta
er á að vaxandi miðflóttaafl við
hröðun í beygju sópi bílnum út úr
henni.
Coulthard kom á mark 1,4 sek-
úndum á undan félaga sínum hjá
McLaren, Mika Hakkinen, en áköf
sókn þess síðarnefnda undir lokin
magnaði spennu á áhorfendabekkj-
um þar sem flestir voru á bandi
Coulthards og voru farnir að óttast
um sigur hans.
I ljós kom að Skotinn hafði þurft
að spara bílinn á síðustu flmm
hringjunum þar sem einhver
draugur virtist í gírkassanum.
Kvaðst hann um tíma hafa óttast
að missa gírana og þurfa að hætta.
„Ég var byrjaður að búa mig undir
að gráta í bílnum," sagði hann á
blaðamannafundi að kappakstri
loknum.
Var þetta annar sigur Coult-
hards í Silverstone í röð og er
hann nú í öðru sæti í stigakeppni
bílsmiða með 14 stig, á eftir Micha-
el Schumacher sem hefur 34 en
rétt á undan Hákkinen, sem hefur
hlotið 12 stig. Og þar sem McLar-
en átti tvo fyrstu bíla á mark og
hlaut 16 stig en Ferrari aðeins 4
minnkaði bilið milli liðanna í stiga-
keppni bílsmiða úr 29 stigum í 17,
en staðan er 43-26 fyrir Ferrari.
Schumacher kom á mark í þriðja
sæti en hann klúðraði ræsingunni
með þeirri afleiðingu að hann féll á
tveimur fyrstu beygjum brautar-
innar úr fimmta sæti í það áttunda
og getur e.t.v. þakkað sæti sitt því
að hluta að Williams-liðið lét báða
ökuþóra sína taka tvö bensín- og
David Coulthard fagnar sigrinum á Silverstone.
Reuters
dekkjastopp en Schumacher tók
aðeins eitt.
Einn af hápunktum annars
nokkuð fjörugs og skemmtilegs
kappaksturs var góð barátta
breska nýliðans Jensons Buttons
sem vann Schumacher í ræsing-
unni og hékk rúma tuttugu hringi í
Mika Hákkinen í fimmta sæti.
Heilmikill lærdómur fyrir hinn
tvítuga ökuþór sem ugglaust er
upprennandi stjarna en hann varð
á endanum í sjötta sæti og vann
fyrstu raunverulegu stigin sín í
Formúlu-1.
Maestro
ÞITT FE
HVAR SEM
ÞÚ ERT
Búrefnisvörur
Karin Herzog
Vita-A-Kombi
Sparisjóður Hafnarfjarðar óskar Haukum
til hamingju með titilinn