Morgunblaðið - 06.05.2000, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 06.05.2000, Qupperneq 3
h MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. MAÍ 2000 B 3 KNATTSPYRNA .. x x -* Enska Ijónið á mbl.is Fylgstu daglega með öflugustu m úrvalsdeild í heimi á mbl.is Hmbl.is ^ALLTAf= e/TTH\SA0 NÝT7 1Hj |1||§I g ]inn Ijónviljugi frambærileg félög væru tilbúin að hreppa hnossið. Ferguson fær því, ef að líkum lætur, að brjóta heilann í sumar. Ótvíræðir yfirburðir ÍiSSpS 9ht Yorke, Jaap Stam, David Beckham og Teddy Sheringham fagna enn einum meistaratitlinum. Reuters Yfirburðir United í vetur hafa ver- ið ógurlegir. Liðið hafði svo gott sem tryggt sér meistaratitilinn snemma í febrúar, án þess þó að sýna sínar sterkustu hliðar, um það eru menn sammála. Það er ekki fyrr en á síð- ustu vikum að liðið hefur leikið við hvurn sinn fingur. Það segir þó meira um hin liðin í deildinni en meistarana sjálfa. Leeds United var í hlutverki hér- ans lengi vel, hélt uppi hraðanum. Þegar á reyndi hafði lið Dave O’Leai-ys hvorki úthald né mannafla til að elta meistarana uppi. Þess tími er einfaldlega ekki kominn. Arsenal, sem veitt hefur United verðuga keppni undanfarin tvö ár, hefur verið brokkgengt á leiktíðinni og ekki sýnt klærnar fyrr en á allra síðustu vikum, þegar það var um seinan. Meiðslum lykilmanna hefur verið kennt um. Eitthvert andleysi var aukinheldur að hrjá Arsenal- menn fram eftir vetri. Liverpool getur vel við sinn hlut unað, þrátt fyrir þrálátan hiksta í síðustu leikjum. Liðið er loksins komið á beinu brautina aftur, eftir mörg mögur ár, og í aðstöðu til að tryggja sér sæti í meistaradeildinni næsta haust. Spennandi verður að fylgjast með Rauða hernum á næstu einu til tveimur árum. Fimmta liðið í toppbaráttunni, Chelsea, sparaði kraftana fyrir meistaradeildina, þar sem fram- ganga þessa fullorðna flokks var til fyrirmyndar. Fyrir vikið heltist liðið úr lestinni fyrir jól heimafyrir. Það getur þó yljað sér við 5:0 sigurinn á United síðastliðið haust. Fyrir utan þetta misjafna gengi keppinautanna eru margir á því að sólbaðsdvölin á Sambaströnd í jan- úar hafi komið meisturunum til góða. Að vísu var gengi liðsins fyrir neðan allar hellur í heimsmeistara- mótinu svokallaða en úr varð fyrir bragðið dágott miðsvetrarfrí meðan Arsenal, Liverpool, Leeds og allir byrsta sig og berja sér á brjóst, svo bjargarlitlir menn blotna á lærum. í seinni tíð hefur kappinn líka sýnt dómgæslu mikinn áhuga, sem kemur sér illa þegar hann er sjálfur í hópi leikmanna. Stundum hefur Ferguson brugðið á það ráð að kippa kauða hreinlega út- af til kælingar. Þetta vanda- mál er hins vegar óverulegt, þegar upp er staðið, af hefur ekki hlotist umtalsverður skaði. Keppnisskap er sannra kappa siður. Kom frá Cobh Ramblers Reuters a manna maki, segja menn stundum um Roy Keane fyrirliða. leikið sem aldrei áður. Var þó enginn meðalmaður fyrir. Vel má skilja hvers vegna félagið lagði sig í líma við að halda honum. Keane er mikill kappi. Fer fyrir liði sínu með góðu fordæmi og hvetur menn til dáða, með góðu eða illu. Hann er holdgervingur baráttu og sigurvilja enda lærisonur tveggja svipmestu og sigursælustu knatt- spyrnustjóra sinnar kynslóðar, Bri- ans Clough og Alex Fergusons. „Ég hef verið svo lánsamur að leika undir stjórn tveggja merkra knattspyrnu- stjóra," segir hann. „Ég stend í þakk- arskuld við Brian Clough fyrir að gefa mér svo snemma tækifæri hjá Nottingham Forest. En það er Alex Ferguson sem hefur haft mest áhrif á feril minn, innan vallar sem utan.“ Það sem menn finna Keane helst til foráttu er skapið. Hann á það til að Clough gróf Keane hinn unga upp í heimalandi hans, Irlandi. Var hann þá í röð- um Cobh Ramblers. Hlaut pilturinn strax sína eldskírn og varð á skömmum tíma umtalaðasta og eftirsóttasta eign Nottingham Forest. Þegar skógarmenn féllu með skelli vorið 1993 hófst líka æsi- legur slagur um krafta hans. United hreppti hnossið, borgaði 3,75 milljón- ir punda, sem var metfé í þá daga. Keane small snemma inn í liðið sem landaði hverjum titlinum af öðrum og þegar sjálfskipaður hershöfðingi, Paul Ince, gekk á dyr, sumarið 1995, tók Keane upp merki hans, sem kjöl- festa og drifkraftur á miðjunni. Þegar hinn óborganlegi Eric Cantona dró sig í hlé, tveimur árum síðar, tók hann síðan við fyrirliðabandinu. Keane leiddi United til hinnar ótrú- legu þrennu í fyrra og mun, ef að lík- um lætur, fagna fleiri sætum sigrum áður en yfir lýkur. Og þegar Roy Keane leggur skóna á hilluna mun nafn hans lifa áfram, í sögubókum. Hann er án efa einn af dáðustu drengjum Manchester United, fyrr og síðar. Mesti munur frá upphafi? MANCHESTER United hefur þegar sett stigamet í 38 leikja úrvals- deild, hlotið 85 stig og á enn tvo leiki eftir. Stigametið í úrvalsdeild- inni, 92 stig, sem félagið á sjálft frá árinu 1994, er aftur á mdti ekki í hættu. Þá voru leiknir 42 leikir. Besti árangur félagsins í 38 leikja deild fram til þessa var 82 stig árið 1996. Annað met gæti fallið. Stigamunur á efsta og næstefsta liði. Metið í úrvalsdeildinni á United, vann deildina með tíu stiga mun 1993. Metið í efstu deild á hins vegar Everton, sem sigraði í gömlu fyrstu deildinni með þrettán stiga mun 1985. United hefur nú sextán stiga forskot á Arsenal, sem á einn leik til góða. hinir óðu aurinn í frostinu heima fýr- ir. Unitedmenn eru vissulega vanir að toppa á vormánuðum en aldrei sem nú. Þar hefur sólbaðið sitt að segja. Ekki svo að skilja að United hefði að öðrum kosti ekki farið með sigur af hólmi. Það hefði liðið gert. Bara ekki með eins miklum yfirburðum og raun bervitni. Sex meistaratitla hefur Man- chester United nú unnið á átta árum, aðeins tvö önnur félög hafa komist að meðan úrvalsdeildin hefur verið við lýði, Blackburn Rovers 1995 og Arsenal 1998. Gæti hugsast að Eng- lendingar séu að sigla inn í sama „ófremdarástand" og Skotar, þar sem Glasgow Rangers hefur hampað titlinum ellefu sinnum á tólf árum? Á að vera á toppnum Eðlilegt er að menn velti þessu fyrir sér. United er klárlega með besta liðið, breiðasta leikmannahóp- inn, klókasta knattspyrnustjórann, stærsta leikvanginn, flesta stuðn- ingsmenn og mesta fjánnagnið - risafyrirtæki á alþjóðamælikvarða. Það malar gull. Um það bera „kaup- in“ á van Nistelrooy vitni, ekkert annað félag á Englandi hefði getað lagt nítján milljónir sterlingspunda út fyrir mann sem að mörgu leyti er enn óskrifað blað. Miðað við stærð og styrk á United að vera á toppn- um. Hættan á einokun er því óneit- anlega fyrir hendi, þótt stuðnings- menn United skynji ástandið auðvitað ekki sem hættu. Margt veltur á Ferguson. Hann er leikhússtjórinn í Leikhúsi draum- anna og maðurinn sem leysir hann af hólmi, þegar þar að kemur, mun standa andspænis þrítugum hamri. Grunnurinn verður auðvitað á sínum stað en kænska Fergusons er ekki mörgum í blóð borin. Annars er vont að horfa fram í tímann í þessu efni. Veldi Liverpool á áttunda og níunda áratugnum var ekki árennilegt en allt í einu riðaði það til falls. Rétt sísona. Nú, tíu ár- um síðar, er skútan loksins að kom- ast á réttan kjöl aftur. Ekki sér mað- ur United þó sökkva svo djúpt, þó óhjákvæmilega komi að því, fyrr eða síðar, að Rauðu djöflunum verði velt úr sessi sem besta liði enskrar knatt- spyrnu. Að minnsta kosti um stund- arsakir. UM HELGINA GLÍMA Islandsglíman verður í íþróttahúsinu í Grafarvogi kl. 14.15. ÍSHOKKÍ Úrslitaleikur íslandsmótsins. Sunmidagur: Laugardalur: SR-SA.................19 KNATTSPYRNA Laugardagur: Deildarbikarkeppni kvenna Ásvellir: FH-KR....................10 Ásvellir: Breiðablik - Þór/KA......14 Ásvellir: KRV-ÍA...................16 Stjömuvöllur: Stjaman - ÍBV........14 Sunnudagur: Deildarbikarkeppni karla, undanúrslit: Reykjanesh.: Grindavik - Leiftur...14 Mánudagur: Laugardaiur: Valur - Fylkir........20 Boccia Norðurlandamót fatlaðra í boccia verður haldið um helgina í íþróttahúsinu við Sunnubraut í Keflavík. Mótsetning verður kl. 10 í dag. FELAGSLIF Lokahóf HSÍ Lokahóf Handknattleikssambands íslands fer fram í Broadway í kvöld. Húsð opnað kl. 18, borðhald kl. 19.40. r

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.