Morgunblaðið - 10.05.2000, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ
netifl
MIÐVIKUDAGUR 10. MAÍ 2000 E 5
I e i k i r
[INGVI MATTHÍAS ÁRNASON ingvipenguin@ice.is]
EA Sports,
sem hefur lengi
veriö ráðandi á
á einn við
Michael Jordan
íþróttaleikjamarkaöinum, g af pýlega
út nvian NBA-leik sem nefnist NBA Live
2000. Leikurinn þarfnast minnst 166 Mhz
tölvu meö 16 MB innra minni, fjögurra hraöa
geisladrifi og 205 MB á hÖrÖUm dÍSkÍ.
BA LIVE 2000
hefurallttil aö
bera sem körfu-
boltaáhuga-
menn láta sig
dreyma um.
Hægterað
fínstilla hvert
einasta atriði í leiknum og jafnvel er
hægt að keppa einn á einn við
kónginn sjálfan Michael Jordan,
sem hingað til hefur ekki viljað vera
ítölvuleikjum. Þetta er sá fyrsti sem
hann samþykkir að vera í frá því að
hann hætti t íþróttinni.
Hægt er að velja um æfingaleiki,
sýningarleiki, tímaþil, úrslit, fyrir-
tækjadeildir, þriggjastigakeppni og
einn á einn. Hægt er að ráða al-
gjörlega hvar leikimir eiga sér staö,
allt frá litlum útivelli í fátækrahverfi í
Bandaríkjunum til stærstu íþrótta-
halla heimsins. Átta spilendurgeta
spilaö f einu yfir Netið eða í gegnum
samtengdartölvur.
Fyrir utan Kareem Adbul Jabbar er
hægt að velja hvem einasta leik-
mann sem hefur orðiö frægur síö-
ustu fimmtíu árin eða svo. Einniger
hægt að spila deildarleiki sem áttu
sér stað fyrir svo löngu að ekki einn
einasti svartur leikmaður sést og
þeir einu sem eru að spila em ósam-
hæfðir asnalegir hvítingjar í stuttum
stuttbuxum og geta ekki troðið.
Grafíkin í leiknum erfrábærog
hefur annað eins líklega ekki sést í
körfuboltaleik. Myndbönd leiksins
og kynningamar á leikmönnum lið-
anna í byrjun hvers leiks em ótrú-
lega vel gerð og hefur EA Sports
náð persónueinkennum hvers ein-
asta leikmanns svo vel aö auðvelt
er að ímynda sér að spilendur séu
að horfa á alvöru sjónvarp. Þrívídd-
arkort er þó algjört skilyröi til að fá
sem mest út úr leiknum og enginn
skyldi búast við að verða agndofa
þegar hann keyrir leikinn á tölvu
sem uppfylliraðeins lágmarkskröf-
umar.
Stjórn leiksins er frábær en tölu-
vertflókin. Þaðtekurspilendurlík-
lega þó nokkum tíma aö muna alla
takkana í leiknum, en þeireru um
sextán oggegna mismunandi hlut-
verkum eftir því hvort spilandinn erí
sókn eða vörn. Ráölegt er að spila
leikinn með PC-stýripinna.
NBA Live 2000 er leikur sem eng-
inn með körfuboltaáhuga á að láta
framhjá sérfara. Þaö eina sem
greinarhöfundurgatfundiðtil að
kvarta yfir var að klappstýrumar
vantar. Frábær leikur sem allir ættu
að prófa.
r m
pisastonn
tómatanog
Ed,SÖGUHETJA H|0| j||l
leiksins,erhús- pj Pif ;
plánetu. íeinu af
verkefnum sínum L.n|' ; I H tfV
missir hann sér- J J B m mj
stakan hreinsilög, •■■
eða „tonic", á
jörðina sem veldur því að öll líf-
form hennarbreytastgífurlega.
Þegar Ed reynir að ná aftur í
þvottaefniö sem olli þessum
ósköpum ráðast á hann risa-
stórirtómatar, ristað brauð og
allskonarfurðuhlutirundir
stjórn hins illa Grögh. Spilend-
ur verða að stýra Ed í gegnum
allskonar þrautir og halda hon-
um lifandi nógu lengi til að
bjargajörðinni.
Mörgu er líkt með Ed í Tonic
Trouble og Rayman í sam-
nefndum leik, í raun gætu þeir
allt eins verið bræður. Öll
hönnun borða, stjórnarog
myndavélar gerir þó að verkum
að Ed er eins og fjarlægur
frændi með erfðagalla í sam-
anburði við Rayman og ótrú-
legt er að leikirnir séu báöir
byggðir á næstum nákvæm-
lega sömu vél.
Borð leiksins eru flest afar
stór og öll þannig upp byggð aö
þegar Ed hefur lært nýja hæfi-
leika seinna í leiknum þarf
hann að koma aftur og finna
hluti sem hann komst ekki að
áður. Boröin eru flest ágæt-
lega flott en frekar asnalega gerð.
Ed hefur eitt vopn í byrjun leiks-
ins fýrir utan hnefana sem stjórnað
erafósýnilegum upphandleggjum.
Vopnið er blástursrör sem skýtur
litlum ön/um en er einnig hægt að
nota sem lykil til að opna hurðireða
stjóma rafdrifnum hlutum.
Myndavél leiksinserhræðileg;
hún festist bak við veggi, veldur því
aö Ed dettur niður af klettum þegar
hún snýr sér allt í einu við og rekur
stundum bara stjómlaust í burtu
þegar spilandinn er að reyna að
horfa á eitthvað mikilvægt; ótrúleg-
ur hönnunargalli sem gerir leikinn
stundum svo pirrandi að ekki er
hægt að spilahann.
Stjóm leiksins er ekki vel
gerð heldur. Ed hreyfir sig
eins og lappimar á honum
séu segull og afgangurinn af
heiminum sé úr járni, hann er
afar seinn að öllu og oftast
eru óvinir sem ná að koma
spilendum á óvart löngu bún-
ir að drepa mann þegar mað-
ur nær loksins að snúa sér
við, taka upp blástursrörið og
miða því. Ed hoppareins og
hann hafi verið að stíga á
heitan sand. Afar erfitt er því
að stýra Ed í loftinu og stund-
um ógjömingur.
Tonic Trouble hefði getað
orðið frábær leikur og jafnvel
betri en Rayman 2 með dá-
lítilli vinnu. Ubi Softflýtti
leiknum talsvert, sérstaklega
til að gera auglýsendum
leiksins, Nestle, til geðs.
Nestle kemuroftvið sögu í
leiknumi oggerir Ed að „Sup-
er Ed". Á endanum varö út-
koman annars flokks borða-
leikur, sem hentar aðeins
þeim sem hafa afar mikla
þolinmæði og mikla ást á
leikjum af þessu tagi.
Ubi Soft, semfrægasterfyrirleikinn Rayman og Rayrpafl 2,
hefur nú gefió út nýjan borðaleik Leikurinn nefnistTOHÍC TrOÚbl©
og átti víst upprunalega að vera SýnÍngarfOrrÍtfyrir Rayman 2.
Netið bannað í Bunma
Herforingjastjórn í Asíuríkinu Myanmar, áður Burma, vill ekki leyfa al-
^Vmenningi aðgang að Netinu. Lög voru sett í landinu árið 1996 um að
þeir sem ættu mótald til þess að komast á Netið yrðu dæmdir í sjö
\\ til 15 ára fangelsi. Að sögn Associated Press-fréttastofunnarer ólík-
legt að lögunum verði breytt á næstu árum. Notkun á tölvupósti er heimiluö
í landinu en aðeins nokkur hundruð útlendingar og útvalinn hópur við-
skipta- og stjórnmálamanna hefur aðgang að honum. Fjarskiptastofnun
landsins hefur heimilaö aukna notkun á tölvupósti, um sex hundruö not-
endur á næstunni, en um 48 milljónir búa í landinu. Tölvunotkun í Burma er
að sama skapi fábreytt en talið er aö um 50 þúsund tölvur séu í landinu.
Lucas lætun undan þpýstingi
George Lucas, höf-
undur Star Wars-
l/Tv kvikmyndaseríunnar,
■ hefur látið undan að-
dáendum myndanna og ákveðið
að gefa fyrsta hlutann út á
DVD-formi. Hann þráaðist lengi
við og taldi ekki tímabært að
gefa neitt út á DVD fyrr en hann
hefði lokið við næstu tvær
myndir, en þá yrðu myndirnar
samtals sex. Þeir sem eiga við-
skipti vlð þrjár stærstu DVD-
síðurnar á Netinu mótmæltu há-
stöfum og hrintu af stað her-
ferð til þess að fá sínu fram-
gengt. Yfir 30 þúsund undfr-
skriftlr bárust og yfir 100 síður
tóku þátt í átaki um að fá
myndirnar á DVD-formi. Herferð-
in bar ioks árangur er Lucas til-
kynnti óvænt á útvarpsstöðinni
KROQ í Los Angeles að hann
hefði látið undan og að hann
væri að láta vinna að DVD-
útgáfu af Star Wars: Episode I.
Raclet tjaldvagnar
Sportbúð Títan - Seljavegi 2-101 Reykjavík
Netfang: titan@isa.is - Vefsíða: www.isa.is/titan
Maestro
ÞITT FÉ
HVAR SEM
ÞÚ ERT