Morgunblaðið - 12.05.2000, Side 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
2000
IUorgunMðfrtö
■ FÖSTUDAGUR12. MAÍ
BLAD
Katrín skoraði
átta mörk
KATRÍN Jónsdóttir, leikmaður Kolbotn, vann
það afrek að skora átta mörk í 18:0-sigri gegn
Skjetten í fyrstu umferð norsku bikarkeppn-
innarí knattspymu kvenna. Kolbotn leikur í
úrvalsdeild og Skjetten í 1. deild og sagði
Katrín að yfirburðir síns liðs hefðu reynst
hálfótrúlegir. Katrín lék á miðjunni í fyrri
hálfleik en var færð í sóknina í þeim seinni.
Katrín skoraði mörk í öllum regnbogans lit-
um, þar af fjögur með skalla. Aldrei áður
hafði neinn leikmaður skorað jafnmörg mörk
fyrir Kolbotn í einum opinberum leik og því
eru mörkin átta hjá Katrrnu met hjá félaginu.
Katrín gerði níu mörk fyrir félagið í fyrra.
Kolbotn hefur leikið tvo leiki í úrvalsdeildinni,
tapaði fyrsta leiknum en vann þann síðari.
FLEST bendir til að Gústaf
Bjarnason, landsliðsmaður í
handknattleik, gangi til liðs við
þýska 1. deildarliðið Minden
fyrir næstu leiktíð.
Gústaf hefur leikið með Willstatt
undanfarin tvö keppnistímabil
en er ákveðinn í að fara frá félaginu
þegar samningur hans við liðið renn-
ur út í sumar. Gústaf var í Minden í
gær þegar Morgunblaðið náði tali af
honum en hann var þá nýbúinn að
ræða við forráðamenn félagsins.
„Ég tel mjög góðar líkur á því að
ég fari til Minden en væntanlega
verður gengið frá samningi i næstu
viku. Ég tel lið Minden vera mjög
góðan kost fyrir mig og ég lít á þetta
sem stórt skref upp á við enda liðið
geysilega gott,“ sagði Gústaf í sam-
tali við Morgunblaðið.
Gústaf er ætlað að fylla skarð
sænska landsliðsmannsins Martin
Frandesjö en hann er á leið til
Montpellier í Frakklandi.
Stjörnum prýtt lið
Lið Minden er stjömum prýtt og
er eitt sterkasta félagið í þýsku
deildinni en sem stendur er það í 7.
sætinu. Frægasti leikmaður félags-
ins er Spánverjinn Talant Dusjebaev
Eyjólfur með
Stjömuna
STJARNAN hefur gengið frá
ráðningu á Eyjólfi Bragasyni
í starf þjálfara karlaliðs fé-
lagsins fyrir næsta timabil -
Eyjólfur skrifað undir eins
árs samning. Hann þjálfaði
kveimalið Stjömunnar i vetur
en hefúr áður þjálfað karlalið
Stjömunnar auk þess sem
hann þjálfaði ÍR i nokkur ár.
sem oft hefur verið kjörinn besti
handboltamaður heims. Þá leika með
liðinu meðal annarra rússnesku
landsliðsmennirnir Alexander
Tutschkin og Dimitri Kouzelev,
Frank von Behren, sem er ein aðal-
skyttan í þýska landsliðinu í dag, og
júgóslavneski landsliðsmaðurinn
Mike Bezdicek. Þjálfari Minden er
Alexander Rimanov sem um árabil
var ein styrkasta stoðin í rússneska
landsliðinu. Hann skrifaði undir
samning við liðið á miðvikudaginn til
júní 2002.
Morgunblaðið/Sigmundur Ó. Steinarsson
Magnús Sigurðsson og Gústaf Bjarnason með fyrrverandi þjálfara Willstátt, Hrvoje Horvart.
Vill ekki leggja stein í götu Dormagen og Wuppertal
Samkomulag
er mögulegt
Þorbjöm Jensson, landsliðs-
þjálfari í handknattleik, seg-
ist ekki ætla að leggja stein í
götu Bayer Dormagen eða Wupp-
ertal - leggjast gegn því að liðin
geti notað íslenska leikmenn sína,
fari annaðhvort liðið í umspil um
sæti í 1. deild þýska handknatt-
leiksins. Það sé hins vegar sín
krafa að félögin hafi samband við
sig og að samkomulag verði gert
því það sé skýlaus réttur sinn að
krefjast þess að leikmennirnir
séu mættir á æfingu landsliðsins
22. maí. Dormagen hafi þegar
haft samband og líklega ekkert
því til fyrirstöðu að þeirra leik-
menn geti leikið með félögum sín-
um komi til þess að það þurfi að
taka þátt í þessum umræddum
leikjum. Hins vegar hafi ekkert
heyrst frá forráðamönnum
Wuppertal.
Umspilið í þýska handknatt-
leiknum verður 24. og 27. maí, en
landsliðið sem Þorbjörn valdi í
gær kemur saman til æfinga 22.
maí vegna leikja við Makedóníu í
undankeppni HM. í þessum hópi
eru tveir leikmenn Dormagen,
Daði Hafþórsson og Róbert Sig-
hvatsson, og einn frá Wuppertal,
Dagur Sigurðsson.
Alþjóðareglurnar eru skýrar,
að sögn Þorbjörns, landsliðið á
rétt á leikmönnunum 30 daga á
ári frá 1. júlí í fyrra til 30. júní í
ár. Sá kvóti er ekki fullnýttur.
„Það er ekki ætlun okkar hjá
HSÍ að hundsa óskir félaganna
þótt rétturinn sé okkar. Leik-
menn hafa líka ákveðnum skyld-
um að gegna gagnvart sínum fé-
lögum auk þess sem hugsanlegar
deilur HSÍ og félaganna myndu
bitna harðast á þriðja aðilanum,
það er leikmönnunum sjálfum.
Ég sé það alveg fyrir mér að ef
annað hvort félagið fari í umspil
24. og 27. þá geti ég alveg sæst á
að leikmennirnir leiki með sínum
liðum að því tilskildu að félögin
sjái til þess að greiða fyrir þá
fargjald til Tékklands, þar sem
við verðum í æfingabúðum, og að
leikmennirnir verði komnir til
þeirra daginn eftir síðari leikinn í
umspilinu, það er hinn 28. maí.
Þá væri málið leyst,“ sagði Þor-
björn.
Magnús
með til-
boðfrá
Göppingen
MAGNÚS Sigurðsson, hand-
knattleiksmaður, sem leikið hefur
með þýska úrvalsdeildarliðinu
Willstatt, hefur fengið tilboð frá
Göppingen.
Göppingen sem Rúnar Sig-
tryggsson leikur með, mælir Hild-
esheim í tveimur leikjum og sigur-
vegarinn í þeim viðureignum
leikur gegnWuppertal eða Dor-
magen um 1. deildarsæti.
„Ég á eftir að meta þetta tilboð
frekar en mér líst annars ágætlega
á félagið. Það er Ijóst að ég fer frá
Willstatt," sagði Magnús í samtali
við Morgunblaðið í gær.
Magnús sagði að Sljaman hefði
rætt við sig um að koma í liðið fyr-
ir næsta túnabili en hann lék með
Garðabæjarliðinu áður en hann fór
til Þýskalands. Hann sagði að hann
teldi mjög ólíklegt að hann kæmi
heim í sumar enda væri hann ekki
búinn að ljúka því námi í lytjafræði
sem hann leggur stund á.
Gústaf
á leið til
VIÐTAL VIÐ GOLFKENNARANN ARNAR MAI ÞYSKALANDI /C2, C3