Morgunblaðið - 20.07.2000, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 20. JÚLÍ 2000 B 3
VIÐSKIPTI
Stjórnendur fiármálafyrirtækja um fjárfestingu Landsbankans
Hefur engin áhrif á
mögulega sameiningu
Landsbanki íslands í Austurstræti.
STEFÁN Pálsson, bankastjóri
Búnaðarbankans, segist telja að
kaup Landsbanka íslands á breska
fjárfestingarbankanum The Herita-
ble and General hafi engin áhrif á
mögulega sameiningu íslenskra
banka. „Kaupin styrkja Lands-
bankann að mínu mati. En ég býst
við því að nú í sumar muni ríkis-
sjóður, aðaleigandi bankanna,
kanna alla möguleika til hlítar.“
Stefán segir að fjárfesting
Landsbankans sé sterkur leikur hjá
bankanum. Það sé nauðsynlegt fyr-
ir íslenska banka að hafa möguleika
á því að byggja upp viðskiptastarf-
semi erlendis í gegnum banka þar.
„Þetta er svipað því sem við höfum
verið að gera í samstarfi við erlenda
banka í Lúxemborg. Landsbankinn
fer þarna aðeins aðra leið og kaupir
banka,“ segir Stefán.
Brýnt að rikið komi
fram með tillögur
Bjarni Ármannsson, forstjóri ís-
landsbanka-FBA, segist ekki sjá
fyrir sér að viðskipti Landsbankans
í Bretlandi muni breyta neinu hvað
hugsanlega sameiningu íslensku
viðskiptabankanna áhrærir. „Ríkis-
sjóður, sem meirihlutaeigandi í
bönkunum tveimur, hlýtur að fara
að koma fram með tillögur og hug-
myndir að því hvernig standa eigi
að einkavæðingu bankanna, sem er
brýnt að gera. Til að mynda kalla
nýlegar sviptingar á gjaldeyris-
markaðinum á að ríkisstjórnin
hraði einkavæðingu, ekki hve síst í
fjármálageiranum."
Bjami segist óska Landsbankan-
um til hamingju með kaupin og
bendir á að markaðurinn hafi metið
þau jákvætt. „Landsbankinn fylgir
þama í kjölfar okkar og annarra í
útrásinni og það er jákvætt."
Aðspurður kveðst Bjarni fagna
því að erlent fjármálafyrirtæki
skuli koma að íslenska markaðin-
um, en það hljóti að auka dýpt hans
og trúverðugleika og sýna að verð-
lagning á honum sé eðlileg og í takti
við væntingar erlendra sérfræðinga
í þessu tilfelli.
Frekari tenging fyrirsjáanleg
Guðmundur Hauksson, spari-
sjóðsstjóri SPRON, kveðst álíta að
kaupin og samstarf við erlenda
banka séu í takt við eðlilega þróun á
íslenska fjármagnsmarkaðinum.
„Þetta er greinilega liður í því að
Landsbankinn er að styrkja stöðu
sína á erlendri grundu.“
Hann segir erfitt að spá fyrir um
hvaða áhrif kaupin hafi á endur-
skipulagningu í bankakerfinu.
„Þetta hlýtur allt að tengjast opnun
fjármagnsmarkaðarins í heild, bæði
á íslandi og erlendis. Það er engin
spurning í mínum huga að frekari
tenging íslenskra banka við erlenda
mun eiga sér stað. Ég tel að það sé
mun heppilegra en mikil samþjöpp-
un banka hér heima.“
Sameiningarumræðan
á villigötum
Sigurður Einarsson, forstjóri
Kaupþings, segir að fljótt á litið
virðist Landsbankinn hafa fjárfest
skynsamlega. „Ég held að þetta
geri Landsbankann betur í stakk
búinn til að lifa sjálfstæðu lífi og til
að hagræða innan bankans. Hann
heldur þarna áfram að vera öflugur
banki innanlands en verður jafn-
framt með starfsemi á alþjóðlegum
fjármálamörkuðum. Ég sé ekki að
kaupin hafi nein önnur bein áhrif.
Sjálfur hef ég alltaf verið þeirrar
skoðunar að sú umræða sem farið
hefur fram um sameiningarmál ís-
lensku bankanna hafi verið á villi-
götum. Það er nauðsynlegt fyrir ís-
lenska banka sem vilja vaxa og
dafna að hasla sér völl með ein-
hverju móti erlendis, eins og er að
gerast núna,“ segir Sigurður.
Hvað eignaraðild First Union að
Landsbankanum varðar segist hann
fagna öllum nýjum þátttakendum á
íslenskum hlutabréfamarkaði.
Mitsubishi
afturkallar
500.000 bíla
Tdkýd. AFP.
JAPANSKI bflaframleið-
andinn Mitsubishi hefur
ákveðið að biðjast afsökun-
ar á því að hafa stungið
undir stól um 500.000 kvört-
unura frá viðskiptavinum en
kvartanirnar komu í Ijós við
rannsókn fulltrúa frá jap-
anska samgönguráðuneyt-
inu. Mitsubishi ætlar að aft-
urkalla til sín 514.000
bifreiðar og Hirotoshi
Suzuki, aðalframkvæmda-
stjóri Mitsubishi, baðst
formlega afsökunar á blaða-
mannafundi á þriðjudaginn.
Hann bætti því við að Mitsu-
bishi myndi verja um 46
milljónum dala eða jafnvirði
3,6 milljarða íslenskra
króna í að bæta mönnum
skaðann. Suzuki sagði að
afturkalla þyrfti 514.000
bfla auk þess sem gera
þyrfti við 178.000 bfla til
viðbótar. Um 150.000 af hin-
um gölluðu bflum voru
Lancer Sedan sem fram-
Leiddir voru á tímabilinu
1995 og þangað til í mars í
fyrra.
Mitsubishi er fjórði
stærsti bflaframleiðandinn í
Japan og þykir þetta atvik
koma illa við Daimler-
Chrysler, sem nýverið
keypti 34% í Mitsubishi.
Gengi bréfa í Mitsubishi
féllu um 13% þegar fréttin
spurðist út.
Ef þú átt
hlutabréf í Landsbankanum...
...skaltu lesa áfram
Mánudaginn 30. október 2000, veröa hlutabréf Landsbanka
íslands hf. skráö rafrænt hjá Veröbréfaskráningu íslands hf.
Þann dag verða viðskipti meö hlutabréf Landsbankans
stöövuö.
Hér með eru hlutabréf Landsbanka íslands hf. innkölluö í
samræmi viö ákvæöi laga um rafræna eignaskráningu
veröbréfa. Nánar tilgreint verða öll hlutabréf Landsbankans
tekin til rafrænnar skráningar og eru þau auðkennd
meö raönúmerum nr. 1-7 og 100-11991.
Þjónustuver S60 6000
Þann 17. mars s. I. fengu hluthafar yfirlit yfir hlutafjáreign
sína og gefst kostur á að koma á framfæri athugasemdum
viö hlutaskrá Landsbankans aö Laugavegi 77, 155 Reykjavík
eöa í síma 560 6861 og 560 6862. Jafnframt skulu
þeirsem eiga takmörkuð réttindi í hlutabréfum Landsbankans
koma rétti sínum á framfæri viö sinn viðskiptabanka, sparisjóö
eöa verðbréfafyrirtæki sem gert hefur aöildarsamning viö
Verðbréfaskráningu íslands hf.
Hluthafar Landsbanka íslands hf. munu í lok september fá
bréf frá bankanum þar sem þetta verður nánar kynnt.
Landsbankinn
Bctfi banki
Opið fió 3 íit 19