Morgunblaðið - 09.08.2000, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 09.08.2000, Blaðsíða 3
2 C MIÐVIKUDAGUR 9. ÁGÚST 2000 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. ÁGÚST 2000 C 3 ÚRSLIT KNATTSPYRNA ÍÞRÓTTIR KNATTSPYRNA ÍA - Gent 0:3 Laugardalsvöllur, 1. umferð í Evrópu- keppni félagaliða, fyrri leikur, þriðjudaginn 8. ágúst 2000. Aðstæður: Andvari, þurrt framan af leik en úði seinni hlutann. Völlurinn góður. Markskot: f A 7, Gent 18 Hornspymur: IA 3, Gent 7 Rangstaða: f A 5, Gent 2. Mörk Gent: Gunther Schepens (34.), Mort- en Pedersen (79.), Aldo Olcese (90.). Gult spjald: Ólafur Þór Gunnarsson, ÍA, 61. fyrir brot. Rautt spjald: Engin. Dómari: Drago Kos írá Slóveníu, stóð sig mjögvel. Aðstoðardómarar: Landar hans Andrej Kokolj og Matjaz Bohinc. Ahorfendur: 1.226. ÍA: Ólafur Þór Gunnarsson - Sturlaugur Haraidsson, Gunnlaugur Jónsson, Sigurð- ur Jónsson, Kári Steinn Reynisson - Bald- ur Aðalsteinsson (Guðjón Sveinsson 63.), Jóhannes Harðarson, Alexander Högnason (Pálmi Haraldsson 17.), Haraldur Hinriks- son - Grétar Steinsson, Uni Arge (Hálfdán Gíslason 81.). Gent: Frederic Herpoel - Anders Christen- sen, Geri Cipi, Emil Sterbal, Vita! Bork- elmans - Jacky Peeters, Eric Joly (Saso Gajver 82.), Martinus Laamers - Alexan- dros Kaklamanos (Morten Pedersen 74.), Gunther Schepens, Aldo Olcese. Frakkland Rennes - Paris SG................1:1 Lens - En Avant Guingamp.........3:2 Metz - AJ Auxerre................1:2 Troyes - Toulouse................1:1 Strasbourg - Lille...............0:4 Bastia - Bordeaux................2:0 Mónakó - Nantes..................2:5 St Etienne - Marseille...........3:0 Sedan 1 Olympique Lyon...........1:1 Skotland St Johnstone - Hearts............2:2 Aberdeen - St Mirren.............2:1 Celtic - Motherwell..............1:0 Dundee - Dunfermline.............3:0 Hibemian - Dundee United.........3:0 Kilmarnock - Rangers2:4 Danmörk AaB Álaborg - Silkeborg...........1:2 AB Kaupm.höfn - Haderslev.........4:0 OB Odense - AGF Aarhus...........4:0 FC Copenhagen 1 Lyngby...........1:2 FC Midtjylland - Brondby.........2:2 Herfolge - Viborg................1:5 Svíþjóð Gais - Hácken....................1:1 Hammarby - Frölunda..............3:0 Sundsvall - Trelleborg...........4:2 Norrköping- Elfsborg.............0:1 Örebro - Örgryte.................1:3 Helsingborg-Halmstad.............1:0 Noregur Bodö-Glimt - Stabaek.............3:3 Bryne - Haugesund.................1:0 Odd Grenland - Molde..............3:0 Rosenborg - Viking...............1:2 Tromso - Brann Bergen............4:1 Valerenga - Moss..................2:2 Evrópukeppnin Undankeppni meistaradeildar, 3. umferð: Zimbru Chisinau - Sparta Prag....0:1 Josef Obajdin 61. Upptýsingar (síma 580 2525 Toxtavarp IÚ 110-113 RÚV281, 283 og 284 VINNINGSTÖLUR LAUGARDAGINN Einíaldur vinningur i næstu viku tm Jókertölur vikunuar 0 9 4 2 5 Tívolítölur vikunnar 024988 028318 034392 538736 Fyrsta ferð farin 27.07.2000 6/8)19) I 30)39)4J) | BÓNUSTÖLUR Alltaf á i miðvikudögum Bröndby - Hamburger................0:2 - Sergej Barbarez 83., Mehdi Mahdavikia 85. Sturm Graz - Feyenoord............2:1 Markus Schopp 22., víti, 90., víti - Igor Komeev 7. Rautt spjald: Julio Ricardo Cmz (Feyenoord) 90. Besiktas - L. Moskva...............3:0 Nihat Kahveci 11., Pascal Nouma 80., Mir- oslav Karahan 89. I.Bratislava - Lyon................1:2 Peter Nemeth 75. - Sonny Anderson 50., Christophe Delmotte 89. Rautt spjald: Florent Laville (Olympique Lyon) 90. UEFA-keppnin, undankeppni: Kepez Ganja - Antalyaspor..........0:2 - Sabakheddin Khinali 37., Meodrag Anj- elovic 52. Rautt spjald: Gusein Magomedov (Kepez Ganja) 18. Intertoto-keppnin: AJ Auxerre - Stuttgart.............0:2 - Pablo Thiam 18.Krassimir Balakov 70., víti. Olomouc - Udinese..................2:2 Josef Mucha 12., Michal Kovar 24., víti - Johan Walem 42, Roberto Sosa 65. Rautt spjald: Valerio Bertotto (Udinese) 23. Celta Vigo - Z. Pótursborg........2:1 Valery Karpin 21., Juanfran 90. - Alexi Ig- onin 2. IKVOLP KNATTSPYRNA Landssímadeild karla (efsta deild karla) Fylkisvöllur: Fylkir - Fram............19 Grindavík: Grindavík - Leiftur.........19 KR-völlur: KR - Breiðablik.............19 Stjömuvöllur: Stjaman - Keflavík.......19 1. deild karla: Hlíðarendi: Valur - Skallagrímur.......19 Kaplakriki: FH - Tindastóll............19 ■ HARALDUR Ingólfsson kom ekki við sögu í sigurleik Elfsborgar gegn Norrköping í sænsku úrvals- deildinni í knattspyrnu. Þórður Þórðarson var einnig á varamanna- bekknum í liði Norrköping. Hlut- skipti Sigurbjarnar Hreiðarssonar var það sama og hinna Islending- ana þegar lið hans Trelleborg tap- aði á útivelli gegn Sundsvall. ■ ÓLAFUR Krístjánsson var ekki í liði AGP frá Árósum er tapaði 4:0 fyrir OB í dönsku úrvalsdeildinni á sunnudag. mLAURENT Blanc mun leika kveðjuleik með franska landsliðinu gegn heimsúrvali í Marseille síðar í þessum mánuði. Blanc er 34 ára og hafði hann lýst því yfir íyrir Evrópumót landsliða í sumar að hann ætlaði að leggja skóna á hill- una að því loknu. Kveðjuleikurinn verður 96. landsleikur Blancs og sagðist hann í samtalið við L’Eq- uipe hlakka til: „Þetta verður vina- leg kvöldstund," sagði Blanc. ■ RICARDO Sa Pinto er á leið frá Real Sociedad á Spáni og heim til Sporting í Lissabon eftir að hafa verið í þrjú ár í herbúðum spænska félagsins. Reiknað er með að Sport- ing verði að greiða um 180 milljónir króna fyrir Pinto. ■ JUNLNHO hefur verið lánaður frá Atletico Madrid til Vasco da Gama í Brasiliu, þaðan sem kapp- inn er. Um leið gerði Juninho lengri samning við Madrídaliðið, til ársins 2003. Juninho var á síðustu leiktíða frá spænska félaginu til Middlesbrough hvaðan hann kom eftir eins ár veru árið 1997. ■ SAMKVÆMT fréttum frá Frakklandi er líklegt að tæpur helmingur keppenda í hinni forn- frægu hjólreiðakeppni Tour de France hafi notað ólögleg lyf fyrir eða meðan á keppninni stóð. Að sögn talsmanna þeirra sem tóku lyfjaprófin hafa fundist leifar af ólöglegum lyfjum í um 45% af þvagsýnum keppenda. ■ REGGIE Miller, leikmaður Ind- iana Pacers í NBA-körfuboltanum, hefur gert samning við félagið. Miller, sem verður 38 ára í lok samningstímans, mun fá tæpa 2,8 milljarða króna fyrir næstu þrjú ár- in. Miller hefur leikið með Pacers frá árinu 1987 og verið einn besti leikmaður liðsins. Tryggvi skor- aði tvö mörk Tryggvi Guðmundsson, landsliðsmaður í knatt- spymu, skoraði tvö fyrstu mörk Tromsö í 4:1 sigri á Brann um helgina og að auki lagði Tryggvi upp þriðja mark leiks- ins. Tryggvi fékk 7 í einkunn hjá Verdens Gang og er annar markahæsti leikmaður norsku úrvalsdeildarinnar, með 12 mörk. Tryggvi hefur gefið átta stoðsendingar í leikjum sumar- sins og er efstur á þeim lista og séu mörk og stoðsendingar lögð saman er Tryggvi þar einnig efstur á blaði. Lið Tromsö hef- ur leikið vel að undanfömu eftir frekar slaka byrjun og er komið í annað sætið á eftir Rosenborg sem tapaði nokkuð óvænt á heimavelli sínum fyrirViking frá Stafangri, 2:1. Ríkharður Daðason lék vel í liði Viking og fékk 6 í einkunn og Auðun Helgason lék að venju sem hægri bakvörður í vörn Viking og fékk Auðun 5 í einkunn. Árni Gautur Arason stóð í marki meistaranna frá Þrándheimi og er Árni Gautur í þriðja sæti lista Verdens Gang með 5,5 að meðaltali í leikjum sumarsins. Pétur Marteinsson var í byrj- unarliði Stabæk og fékk aðeins 3 í einkunn en Marel J. Bald- vinsson kom ekki við sögu hjá Stabæk að þessu sinni. Leik Lilleström var frestað vegna veikinda í herbúðum Start. Líklegt að Tromsö reyni að freista Tryggva Tryggvi Guðmundsson hefur lýst því yfir að hann muni reyna að komast að hjá öðru félagi í haust og líklegt er að Tromsö reyni að freista Tryggva með nýju tilboði. Takist samningar á milli aðila verður um tölu- verða launahækkun að ræða hjá Tryggva en samkvæmt fréttum frá Noregi fær hann tæpar 5,5 milljónir í laun á ári hjá félaginu. Morgunblaðið/Júlíus Sigurður Jónsson, besti maður Skagamanna, skallar hér að marki eftir hornspyrnu og Uni Arge er við öllu búinn. Til varnar eru Belgamir, frá hægri til vinstri, Borkelmans, Kakiamanos og Peeters. Belgamir miklu SKAGAMENN eiga erfitt verk fyrir höndum eftir tvær vikur ætli þeir sér áfram í Evrópukeppni félagsliða en liðið tapaði 3:0 fyrir belgíska liðinu KAA Gent á Laugardalsvelli í gærkvöldi. Sigur Belganna hefði allt eins getað orðið stærri því þeir voru mun betri og hafa örugglega ekki miklar áhyggjur af síðari leiknum. Skúli Unnar Sveinsson skrifar elgamir komu ákveðnir til leiks og voru greinOega staðráðnir í að sækja, þeir stjómuðu gangi mála frá fyrstu mínútu til þeirrar síðustu með ör- fáum undantekningum þegar Skagamenn létu boltann ganga manna á milli og gáfu sér tíma til að sækja með öðram hætti en langspymum yfir miðjumenn- ina enda vora sóknarmennina oft ansi einmana í baráttunni við hávaxna og ör- ugga miðverði Gent. Það er langt síðan sá er þetta ritar hef- ur séð íslenskt lið leika eins illa á heima- velli í Evrópukeppni. í raun má segja að leikurinn hafi verið afskaplega slakur af hálfu Skagamanna, ekki aðeins í þær 90 mínútur sem leikurinn stóð, heldur var umgjörð hans óvenju léleg og talsvert langt frá því sem var á áram áður þegar Evrópuleikur þótti merkilegur. Skagamenn vörðust vel en lengstum var afskaplega lítið að gerast hjá liðinu þegar framar kom á völlinn. Menn voru nokkram sinnum klaufar að láta Belgana veiða sig í rangstöðugildra og í tvígang í fyrri hálfleik var aðstoðardómarinn einnig veiddur í þá gildra. Alexander Högnason fór meiddur af leikvelli á 17. mínútu og var það slæmt því hann býr yfir mikilli reynslu. Þegar leikið hafði verið í tæpa hálfa klukkustund áttu Belgar fínt skot sem Ólafur Gunnarsson markvörður varði vel í hom. Á 34. mínútu kom fyrsta markið. Gunther Schepens gaf fallega sendingu af miðsvæðinu út á hægri kantinn þar sem Jacky Peeters tók við honum, lék upp kantinn og gaf fyrir markið. Boltinn fór yfir alla vamarmenn IA og Schepens var mættur vinstra megin í teignum og skoraði með viðstöðulausu skoti. Belgar fengu tvö færi á síðustu mínút- um fyrri hálfleiks, en þau nýttust ekki. Síðari hálfleikinn hóf Uni Arge með skoti sem var varið og eftir stundarfjórð- ung fengu gestirnir vítaspymu er Grikk- inn Kaklamanos var felldur. Eric Yoly tók spymuna en skaut í stöngina. Eftir þetta sóttu Skagamenn heldur í sig veðrið en gekk erfiðlega að skapa sér hættuleg markfæri. Gestimir fengu hins vegar upplagt tækifæri til að auka for- ystuna á 75. mínútu en Ólafur markvörð- ur varði enn og aftur vel. Fimm mínútum síðar kom hann hins betri vegar engum vömum við er Daninn Morten Pedersen, sem kom inn á sem varamaður fimm mínútum áður, skoraði með viðstöðulausu skoti úr vítateignum eftir góða sendingu landa síns Anders Christensens. Þriðja markið gerði Aldo Olcese á síð- ustu mínútu leiksins en áður hafði hann skotið yfir úr dauðafæri. Belgarnir voru miklu meira með boltann og léku vel, hlupu mikið án þess að vera með knött- inn og nýttu auð svæði vallarins skemmtilega undir öraggri stjóm Erics Jolys. Hjá LA bar Sigurður Jónsson af og er trúlega eini maður liðsins sem kæmist í lið Gent miðað við hvernig liðin léku í gær. Gunnlaugur Jónsson átti einnig ágætan leik eins og Jóhannes Harðarson og Ólafur markvörður. Grétar Steinsson var frískur og alltaf að reyna að skapa eitthvað. Guðjón Sveinsson kom spræk- ur inn um miðjan síðari hálfleikinn. ■ CHELSEA fékk rúmar 476 millj- ónir króna frá tryggingunum þegar ferill ítalska leikmannsins Pierluigi Casiraghi var dæmdur á enda á dögunum. Casiraghi meiddist á hné gegn Liverpool í sínum 10. leik fyrir félagið fyrir 20 mánuðum. Síðan þá hefur hinn 31 árs gamli leikmaður farið í 10 uppskurði sem hafa ekki borið árangur. Chelsea þarf þar með ekki lengur að borga honum tæpar fjórar milljónii’ króna í vikukaup. MRICHARD Wríght, markvörður enska úrvalsdeildarliðsins Ipswich, hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við félagið. Hann hafði vakið áhuga nokkurra liða, þ.á m. Celtic, en ákvað að vera um kyrrt hjá Ipswich, sem vann sér sæti í úr- valsdeildinni á síðustu leiktíð. Wright er aðeins 21 árs gamall og lék sinn fyrsta A-landsleik á árinu fyrir England. ■ ROBBIE Fowler, leikmaður Liverpool, meiddist enn einu sinni á ökkla þegar liðið lék gegn írska lið- inu Glentoran á æfingamóti í Belfast á dögunum. Hann var búinn að skora eitt af mörkum Liverpool í 4:0-sigri þegar hann var borinn af velli og flaug hann í morgun aftur til Liverpool þar sem hann fer í sjúkra- meðferð. Enn er óvíst hversu alvar- leg meiðslin era en Fowler hefur verið afar óheppinn með meiðsli síð- ustu tvö ár. ■ FORRÁÐAMENN enska úrvals- deildarliðsins Tottenham Hotspur hafa ákveðið að endurgreiða þeim handhöfúm ársmiða að heimaleikj- um félagsins sem eru óánægðir með að félagið skyldi hafa selt Frakkann vinsæla David Ginola. Sölunni var mótmælt á heimasíðu félagins af ársmiðahöfum og sögðust margir ekki hafa keypt miða hefðu þeir vit- að að Ginola yrði ekki í herbúðum Tottenham í vetur. ■ ALEN Boksic, sem leikið hefur með ítalska liðinu Lazio að undan- fömu, er á leið til enska úrvalsdeild- arliðsins Middlesbrough. Félögin hafa komist að samkomulagi um kaupverð sem mun vera 2,5 milljónir punda, eða um 300 milljónir króna. Boksic, sem er 30 ára, hefur þegar staðist læknisskoðun og er nú ein- ungis beðið eftir atvinnuleyfi fyrir hann. Allt of fáir náðu toppleik „ÉG átti ekki von á að leikurinn skyldi fara svona því ég vonaði að allir leikmenn okkar du ná toppleik, sem er alger nauðsyn til að ná hagstæðum úrslitum gegn liði sem er í næsta gæðaflokki fyrir ofan okkur,“ sagði Sigurður Jónsson, leikmaður ÍA, eftir leikinn við Gent í gærkvöldi, en hann var bestur Skagamanna og átti í fullu tré við Belgana. Þar kom leikreynslan sér vel. „Það voru of margir leik- menn hjá okkur, sem náðu ekki toppleik - það gæti verið reynslu- leysi eða að of mikil virðing var borin fyrir mótherjunum og þess vegna sigruðu þeir réttmætt." Sigurður vildi vinda sér beint í bikarkeppnina. „Leikurinn í Belgíu eftir tvær vikur verður erf- ^iður því þetta voru Stefán vel sPilandi leik' Stefánsson menn- sem nÝttu skrifar færin sín vel. Við verðum hins vegar að gleyma þessum leik sem allra fyrst og einbeita okkur að bikar- leiknum í næstu viku. Það er mik- ilvægasti leikur okkar í sumar því deildarkeppnin hefur ekki gengið upp og gott fyrir liðið eftir framm- istöðuna hér í kvöld.“ Gömul meiðsli tóku sig upp hjá varnarjaxlinum Alexander Högna- syni og varð hann að fara út af áð- ur en stundarfjórðungur var lið- inn. „Það er alltaf leiðinlegt að fá ekki að taka þátt í svona leikjum," sagði Alexander eftir leikinn. „Við áttum von á sterku liði enda ætl- uðum við að vera skynsamir og loka svæðum en þegar hitt liðið svo kemst yfir er ekki hægt að liggja í skotgröfunum á heimavelli heldur verður að sækja og það gekk ekki. Það mátti sjá, eins og svo oft hjá íslenskum liðum þegar þau þurfa að sækja framar á völl- inn og svæðin fyrir aftan vörnina opnast hve kaldur raunveruleikinn blasir við manni enda réðum við illa við það. Nú verðum við að líta fram á veg og hugsa um bikar- keppnina, sem er okkar helsti vettvangur til afreka í dag.“ Næsti leikur við ÍA verður ekki vandamái „Við spiluðum vel en mér fannst hitt liðið ekki gott og næstu leikir á eftir verða erfiðari,“ sagði Al- exandros Kaklamanons, leikmaður númer 10 hjá Gent, sem gerði varnarmönnum Skagamanna marga skráveifuna. „Þetta var góður dagur hjá okkur með 3:0 sigri en við megum ekki gleyma okkur og missa einbeitinguna, heldur hugsa um næstu leiki á eft- ir þessum við ÍA. Við vissum lítið um IA fyrir leikinn en urðum að taka leikinn alvarlega - það gerð- um við og unnum en ég held að næsti leikur við ÍA verði ekki mik- ið vandamál fyrir okkur.“ Katrín með tvömörk KATRÍN Jónsdóttir gerði tvö mörk fyrir Kolbotn er liðið sigraði Larvik 7:2 á útivelli í gærkvöldi. Leikurinn var í átta liða úrslitum norsku bikar- keppninnar og er Kolbotn þar með komið í undanúrslit keppninnar ásamt Trondheim Örn, Ásker og Björnar og verður dregið í dag. Katrín lék vel í gærkvöldi og fór fyrir liði sínu enda var hún fyrirliði í leiknum. Helgi skor- aði í tvígang HELGI Sigurðsson skoraði tvö mörk er lið hans, Panathinaikos, vann Ethnikos, 3:0, í fyrstu umferð grísku bikarkeppninnar um helgina. Helgi skoraði annað og þriðja mark liðsins, hvort í sínum hálfleiknum. Fyrra mark Helga var einkar glæsilega gert með bakfallsspyrnu eftir að Helgi fékk sendingu af stuttu færi frá samherja að lokinni hornspyrnu. Leikmenn Panathinaikos þóttu ekki leika vel í leiknum en Helgi fékk þó hól fyrir sína frammistöðu. ísland í þriðja sæti á NM í körfuknattleik Norðurlandamóti karlalandsliða í körfuknattleik lauk á laug- ardag í Keflavík og sigruðu Svíar í öllum leikjum sínum og lið Finna varð í öðru sæti. íslenska A-liðið varð í þriðja sæti þrátt fyrir óvænt tap gegn B-liði Islands á fimmtu- dag. Á föstudag vann A-lið Islands lið Dana með 80 stigum gegn 70 og stig íslands skoruðu: Baldur Ól- afsson 21, Herbert Arnarsson 14, Logi Gunnarsson 11, Jón Arnar Ingvarsson 10, Jón Arnór Stefáns- son 9, Friðrik Stefánsson 6, Gunn- ar Einarsson 4, Birgir Örn Birgis- son 3, Fannar Ólafsson 2. íslenska liðið mætti Finnum í lokaleik mótsins og sigruðu Finnar með 75 stigum gegn 70. Stig íslands skor- uðu: Herbert Arnarsson 13, Jakob Örn Sigurðarson 9, Fannar Ólafs- son 9, Jón Arnór Stefánsson 8, Baldur Ólafsson 7, Logi Gunnars- son 6, Jón Arnar Ingvarsson 5, Friðrik Stefánsson 5, Gunnar Ein- arssson 4, Falur Harðarson 4. „El- ítuhópur KKÍ“ lék á mótinu sem gestalið og kom á óvart með því að leggja A-lið íslands að velli og á laugardag voru Norðmenn lagðir með eins stigs mun en lokatölur leiksins urðu 96-95 og stig íslands skoruðu: Ingvar Guðjónsson 21, Jón N. Hafsteinsson 17, Magnús Þ. Guðjónsson 15, Hlynur Bær- ingsson 15, Steinar Kaldal 12, Óð- inn Ásgeirsson 8, Helgi M. Magn- ússon 5, Sigurjón Ö. Lárusson 4. Lokastaða NM í körfuknattleik var því þannig að Svíar urðu meistarar, Finnar í öðru sæti, A- lið íslands í því þriðja með tvo sigra og þrjú töp, Danir urðu núm- er fjögur með sama árangur og ís- lendingar og í fimmta sæti varð B- lið íslands einnig með tvo sigra og þrjú töp, Norðmenn ráku lestina en liðið vann ekki leik á mótinu. Svíar velja sterkt lið gegn íslandi Ellefu sextán leikmönnum í leik- mannahópi Svía fyrir leik þeirra gegn íslendingum á Laugar- dalsvelli 16. ágúst leika utan Svíþjóð- ar en leikurinn er liður í Norður- landamótinu. Henrik Larsson og Johan Mjallby, sem leika með Celtic, gætu bæst við hópinn ef Tommy Söderberg, landsliðsþjálfari Svía, fær leyfi frá skoska félaginu en það á að leika á sama tíma í skosku úrvals- deildinni. Hópurinn er annars þannig skip- aður: Markverðir:Magnus Hedman (Coventry City), Magnus Kihlstedt (Brann). Varnarmenn:Patrik Amd- ersson (Bayern Múnchen), Joakim Björklund (Valencia), Teddy Lucie (AIK Stokkhólmi), Olof Mellberg (Racing Santander), Roland Nilsson (Helsingborg). Miðjumenn: Niklas Alexandersson (Everton), Daniél Andersson (Bari), Anders Svensson (Elfsborg), Hákan Mild (IFK Gauta- borg), Fredrik Ljungberg (Arsenal), Magnus Svensson (Bröndby). Sókn- armenn:Marcus Allbáck (Orgryte), Kennet Andersson (Fenerbache), Yskel Osmanovski (Bari). Evrópumet í stangarstökki ANZHELA Balakhonova, Úkraínu, bætti eigið Evrópumet í stangarstökki kvenna um einn sentímetra á alþjóðlegu frjáls- íþróttamóti í Linz í gærkvöldi. Balakhonova stökk 4,56 metra og átti í framhaldinu góðar tilraunir við heimsmet, 4,64. Lán- aðist henni ekki að lyfta sér yfir þá hæð að þessu sinni en sýndi að Evrópumeistarinn er til alls Iíklegur þegar að Ólynip- fuleikunum í Sydney kemur í næsta mánuði. Þess má geta ís- lands- og Norðurlandamet Völu Flosadóttur, ÍR, er 4,36 metr- ar. Hún var ekki með i keppninni í Linz. Balakhonova sýndi mikið öryggi í keppninni í Linz, stökk 4,30,4,50 og 4,56 í fyrstu tilraun. I öðru sæti varð Daniela Bartova, Tékklandi, stökk 4,45 metra og Rússinn Svetlana Feofanova hlaut þriðja sætið, stökk 5 sentímetrum lægra en Bartova. VP. mót USVS Hið árlega VP. mót sem haldið er í Vík í Mýrdal, verður laugardaginn 12. ágúst næstkomandi og hefst kl. 12.30. Keppt er á iitlum völlum, 12 manna lið þar sem 7 spila inn á. Skráningargjald kr. 15.000. Skráning í símum 487 1381 og 863 8562, Árni. Skráningu lýkur 11. ágúst kl. 17.00. t;---------------1 I FYp§TA SINN * /AISLANDI FRAMTIÐARSTJORNUR „RISING STARS" Körfuboltaskóli Jim Dooley og Péturs Guömundssonar fyrir stróka og stelpur 9-16 óra Goðsögn meðal þeirra sem til þekkja. Pétur Gu&mundsson; eini íslenski leikmaðurinn sem leikið hefur í NBA. Kennsla í 3 klst. daglega, mánudag til föstudags 14-18 ógúst í íþrótta- húsinu Grafarvogi kl. 9-12 og í Smáranum, Kópavogi kl. 16-19. -Verðkr. 10.000 - Afsláttur fyrir lið laarsláttui 5 daga tækniþjálfun þar sem farið er í öll helstu undirstöðuatriði 1 körfubolta td. fótavinnu, fráköst, skot, boltameðferð / knatttækni, grunn- tækni o.fl. í markvissri stöðvaþjálfun undir stjórn frábærra þjálfara. Þessi einstaki körfuboltaskóli er samstarfsverkefni körfuknattleiksdeilda Vals / Fjölnis og Breiðabliks, "Rising Stars", Péturs Guðmundssonar og IT ferða. Stjórnendur: Jim Dooley; stjórnandi „Rising Stars,, körfuboltabúðanna í Bandaríkjunum og fyrrum þjálfari IR. - Systkinaafsláttur Skráning og allar upplýsingar: ÍT ferðir, sími 588 9900, fax 588 9901, e-mail: ittravel@toto.is íþróttamiðstöðin I Laugardal, 104 Reykjavik ít FERÐIR travel

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.