Morgunblaðið - 10.08.2000, Qupperneq 1
Hentar nýjum Upplýsingahrað- Umhverfis-
fyrirtækjum f j . : brautin ferðamáti stjórnun í rekstri
f ramtíðarinnar
Kaupréttarsamningar j Auknar kröfur gerðar til
æ vinsælli/5 Flugleiðir stofna veffyrirtækið Destal/4 umhverfismála/6
ERLENT
STAFRÆN
BÓKAÚTGÁFA Á
NETINU
INNLENT
GÓÐ AFKOMA
HJÁ BURNHAM
INTERNATIONAL
Á ÍSLANDI
2J
Umskipti hjá Tækni-
vali
Viðskiptablað
Morgunblaðsins
Sérblað um viðskipti/atvinnulíf
* Fimmtudagur 10. ágúst 2000
DOLLAR
Ul--------T--------1---i----1-----—I
12.7 19.7 26.7 2.8 9.8
EVRA
71,00.--------1--------i--------i--------.
12.7 19.7 26.7 2.8 9.8
Allianz ísland hf. og ísvá hf. undirrita samning; um náið samstarf
# Veruleg umskipti urðu á rekstri Tækni-
vals áfyrra helmingi ársins. Hagnaðurmóð-
urfélagsins fyrir fjármagnsliði nam tæpum
86 milljónum króna en á sama tíma í fyrra
var 141 milljónar krónu tap af rekstrinum
og hefur afkoma Tæknivals fyrirfjár-
magnsliði batnaö um 227 milljónir króna
milli tfmabila. Afkoman nú er besta afkoma
félagsins frá stofnun þess./2
Hagnaður Skýrr
nær fjórfaldast
# Hagnaður Skýrr hf. fyrir tímabilið 1. jan-
úartil 30. júní 2000 nam 117 millj. kr. eftir
skatta, en á síöasta ári var hagnaðurinn 31
millj. kr. fyrir sama tímabil. Hagnaöurinn er
nálægt því að fjórfaldast milli ára. Rekstrar-
tekjurtímabilsins námu alls 814 millj. kr.,
samanboriö við 623 millj. kr. á síöasta ári
og vaxa því um 31% milli ára. /2
GENGISSKRÁNING j hr. 09.08.2000
Kr. Kr. Kr.
Dollari 80,33000 80,11000 80,55000
Sterlpund. 120.54000 120,22000 120,86000
Kan. dollari 53,93000 53,76000 54,10000
Dönsk kr. 9.66100 9.63400 9.68800
Norsk kr. 8,92000 8,89400 8,94600
Sænsk kr. 8,66900 8,64300 8,69500
Finn. mark 12,12470 12,08710 12,16230
Fr. franki 10,99000 10,95590 11,02410
Belg. franki 1,78710 1,78160 1,79260
Sv. franki 46,64000 46.51000 46,77000
Holl. gyllini 32,71300 32,61150 32,81450
Þýskt mark 36,85900 36,74460 36,97340
ít. líra 0,03723 0,03711 0,03735
Austurr. sch. 5,23900 5.22270 5,25530
Port. escudo 0,35960 0,35850 0,36070
Sd. Deseti 0.43330 0.43200 0.43460
JaD-jen 0,74400 0,74160 0,74640
írskt Dund 91,53540 91,25130 91.81950
SDR (Sérst.) 105,02000 104,70000 105,34000
Evra 72,09000 71,87000 72.31000
Grísk drakma 0,21380 0,21310 0,21450
Sjðlfvirkur símsvari gengisskráningar er 562 3270
Barnatrygging, nýjung
á tryggingamarkaði
Morgunblaðið /Amaldur
Jón Sigfússon og Árni Gunnar Vigfússon takast í hendur eftir
undirritun samnings milli Allianz ísland hf. og Isvár hf. í gær
um náið samstarf félaganna á sviði vátryggingamiðlunar.
HÓPUR fjárfesta með þá Hrein
Loftsson og Arna Gunnar Vigfús-
son í broddi fylkingar hefur keypt
meirihluta hlutafjár í Allianz sölu-
umboði og mun fyrirtækið eftir-
leiðis bera heitið Allianz ísland
hf.-söluumboð. Samhliða þessum
breytingum hefur verið undirrit-
aður samningur á milli Allianz ís-
land hf. og Isvá hf. um náið sam-
starf á sviði vátryggingamiðlunar.
Fyrsta skrefið í því samstarfi er
nýjung á íslenskum vátrygginga-
markaði, svokölluð barnatrygg-
ing Allianz, sem bæði félögin
munu selja. Þessi trygging er tví-
þætt, annars vegar slysatrygging
og hins vegar samningsbundinn
sparnaður til 55 ára. ísland er
fyrsta landið utan Þýskalands þar
sem Allianz býður þessa trygg-
ingu.
Barnatrygging með
ýmsa möguleika
„Barnatrygging Mianz er í
raun tvíþætt," segir Árni Gunnar
Vigfússon, framkvæmdastjóri
Mianz ísland hf. „í fyrsta lagi er
slysatrygging fyrir böm með
mjög háum bótum en við bjóðum
tryggingar frá fæðingu til 20 ára
aldurs. Eftir það er iðgjaldið end-
urgreitt með vöxtum og því er
hinn þáttur tryggingarinnar
spamaðurinn sem safnast hefur
upp á tryggingatímanum. Þetta
getur Mianz Island boðið upp á
vegna þess að félagið er söluum-
boð og í raun hluti af Mianz í
Þýskalandi, en þar er fyrirtækinu
skylt að fylgja mjögstrangri fjár-
festingarstefnu.“ Ámi Gunnar
segir að iðgjaldið sé greitt í ís-
lenskum krónum, sem félagið yf-
irfæri yfir í evrur, og þegar ið-
gjaldið verður endurgreitt fylgi
endurgreiðslan gengi evrunnar
auk að minnsta kosti 3,5% vaxta.
Að sögn Árna Gunnars býður
barnatryggingin upp á ýmsa
möguleika svo sem eins og að nýta
endurgreiðslu iðgjaldsins til íbúð-
arkaupa eða láta höfuðstólinn
sitja áfram inni í félaginu og taka
lífeyri út t.d. við 55 ára aldur.
„Með þessu eram við að setja
Mianz, sem er stærsta trygg-
ingafélag í heimi, á þann stall sem
það á rétt á hér á landi,“ segir
Árni Gunnar.
Jón Sigfússon, framkvæmda-
stjóri ísvá, segir að ísvá selji
hvers kyns tryggingavörur, leiti
að því besta sem völ er á og selji
það, en félagið eigi engar slíkar
vörur sjálft og megi það ekki sam-
kvæmt lögum um tryggingamiðl-
un. „Isvá er langstærsta trygg-
ingamiðlunin hér á landi og
leggur höfuðáherslu á persónu-
tryggingar, tryggingar sem
snúast um líf og heilsu. Mianz
valdi Isvá vegna þessa til að ann-
ast sölu á tryggingum félagsins."
Allianz hefur starfað hér á landi
frá árinu 1994. Starfsmenn fyrir-
tækisins verða 6 talsins. Fyrri
eigendur Allianz munu áfram eiga
rúmlega 13% hlut í félaginu.
Hreinn Loftsson er formaður
stjómar félagsins. Aðrir í stjórn
eru Atli Eðvaldsson, varaformað-
ur, Arnór Heiðar Amórsson, Ás-
geir Sigurvinsson og Þórður
Bogason.
Isvá hf. varð til fyrir réttu ári
við sameiningu Fjárvemdar og
íslensku vátryggingamiðlunar-
innar. Starfsmenn Isvá em 39
talsins að meðtöldum söluverk-
tökum. Jón Sigfússon er fram-
kvæmdastjóri félagsins auk Vald-
emars Johnsen og formaður
stjórnar er Jón Kristinn
Snæhólm.
fslenski lífeyrissjóðurinn er traustur lifeyrissjóður í vðrslu Landsbréfa hf. Meö aðild að (slenska
Iffeyrissjóðnum tryggir þú þér fjölbreytta þjónustu og góða ávöxtun lífeyris. Hafðu samband við
sérfræðinga Landsbréfa í lífeyrismálum eða ráðgjafa í næsta Landsbanka.
www.landsbref.is
ÍSLENSkl Í.ÍKt-YRlSS.fÓÐURtNN
Landsbanki íslands
þú eftir að ganga frá lífeyrisrnálum þínti