Morgunblaðið - 10.08.2000, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 10.08.2000, Blaðsíða 4
4 B FIMMTUDAGUR 10. ÁGÚST 2000 VIÐSKIPTI MORGUNBLAÐIÐ S' ÉRSTAÐA þessarar veflausnar felst í því að neytendum er gert kleift að skipuleggja, bóka og kaupa flókna ferð með einföldum hætti heima í stofu. Destal skapar sameiginlegan vettvang fyrir markaðssetningu, skipulagningu og sölu svæðisbundinnar ferðaþjónustu á Netinu hvort sem um er að ræða ákveðin svæði eða heil lönd. Verða markaðssvæði og lönd mark- aðssett á vefsíðum sem bera heiti svæðisins og síðan endinguna Total.com. ísland verður fyrsta landið þar sem þessi nýja veflausn verður tekin í notkun, með vefslóðinni Ice- landTotal.com. Á vefsíðunni verða allar al- mennar upplýsingar um land og þjóð, ásamt ítarlegum upplýsingum um þá ferðaþjónustu sem er í boði ásamt möguleikum til að bóka og ganga frá greiðslu. Ráðgert er að Iceland- Total.com taki til starfa á Netinu með haust- inu. Ekkert því tii fyrirstöðu að Flugleiðir eigi minnihluta Sigurður Helgason, forstjóri Flugleiða, segir að opnun nýja vefsvæðisins sé í sam- ræmi við stefnu félagsins en greint var frá því á síðasta ári að Flugleiðir stefndu að því að innan tveggja ára yrðu 50% af farmiðasölu fé- lagsins í gegnum netið. Segir Sigurður stefna í að það gangi eftir. „Flugleiðir eiga enn sem komið er allt hlutafé í Destalen markmiðið er að selja aðilum sem tengjast ferðaþjónustu hlut í félaginu. Auk þess verður fagfjárfestum gefinn kostur á að koma að fjármögnun fé- lagsins. Ekkert er því til fyrirstöðu að Flug- leiðir verði með minnihlutaeign í nýja félaginu þegar því vex fiskur um hrygg.“ Sigurður segir að það séu tvenns konar verkefni sem Destal sé ætlað að sinna. Annars vegar að selja ísland erlendis og hins vegar að selja kerfið til annarra landa. „Lítil markaðssvæði, sem svipar til íslands, þurfa á heildstæðum lausnum að halda líkt og við til þess að hverfa ekki í ferðamögu- leikafrumskóginum. Þrátt fyrir að fyrst um sinn sé um íslands- vef að ræða þá er hægt að selja kerfið sem slíkt til annarra svæða.“ Samkeppnisaðilum boðið að vera með Kolbeinn Arinbjamarson, sem gegnt hefur starfi forstöðu- manns markaðssetningar hjá Flugleiðum, hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Destal. Að hans sögn eru Flugleiðir með nánast öll stig ferðaþjónustunn- ar innan húss, bæði markaðs- setninguna erlendis, flugið og því sem gerist á jörðu niðri. „Með því að fara þessa leið, þ.e. að opna vef sem þennan og bjóða öðrum ferðaþjónustuaðilum á Islandi að taka þátt, þá erum við að reyna að auka möguleika ferðaþjónustunnar með þvi að bjóða henni aðgang að þeirri miklu markaðs- og söluþekkingu sem Flugleiðir hafa erlendis. Þetta samstarf þýðir fleiri val- kosti fyrir erlenda ferðamenn á leið til Islands, þannig að fólk getur á einum stað valið úr gisti- möguleikum bílaleigum og flugi. Á það jafnt við samkeppnisaðila okkar sem og aðra. Tilgangurinn er að gera Island að enn áhugaverðari kosti fyrir ferðamenn með því að gera þeim auð- veldara um vik að afla sér upplýsinga um land og þjóð.“ Litlir staðir verða undir i baráttunni Steinn Logi Björnsson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Flugleiða, segir að þró- unin sé sú að ferðaheildsalar erlendis eru allt- af að verða stærri og stærri sem þýði einfald- lega það að þeir einbeita sér að stóru stöðunum og litlir staðir eins og ísland verði því miður að einhverju leyti undir í baráttunni um að hljóta náð fyrir augum ferðalanga. Ekki síst vegna þess að mikið skorti oft upp á að viðkomandi ferðaheildsalar hafi þekkingu og vilja til þess að koma landinu á framfæri við viðskiptavini sína. „Okkar svar er að gera hlutina sjálfir á Netinu og sleppa þannig við töluvert af milliliðum. Að stytta boðleiðir milli ferðaþjónustuaðilans og ferðamannsins getur lækkað heildarverð ferðarinnar umtalsvert en kostnaður við þessar dreifileiðir getur numið allt að 30-40%.“ Fyrst var það iðnbyltingin nú er það Netið Að sögn Kolbeins er mai'kaðsþjónusta og sala á ferðum að breytast mjög mikið, meðal annars með tilkomu Netsins. „Á sínum tíma hafði iðnbyltingin mikil áhrif á ferðaþjónustu og gerði ferðalög miklu auðveldari. Rafræn dreifing, til dæmis á farmiðum, hófst fyrir nokkrum áratugum og auðveldaði öll ferðalög Upplýsinga- hraðbrautin ferðamáti framtíðarinnar Flugleiðir hafa kynnt stofnun sérstaks fyrirtækis um nýja veflausn fyrir ferðaþjónustuna. Nýja fyrirtækið hefur hlotið nafnið Destal, sem er stytting úr heiti vef- lausnarinnar „Destination Portala. Starfsmenn Flug- leiða hafa unnið að þessu verkefni síðastliðin 2 ár í sam- vinnu við innlenda og erlenda sérfræðinga. Guðrún Hálfdánardóttir hitti forsvarsmenn verkefnisins að máli sem sögðu henni frá óteljandi möguleikum á að kynna land og þjóð fyrir áhugasömum ferðalöngum. Morgunblaðið/Kristinn Steinn Logi Björnsson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Flugleiða, Sigurður Helgason, forsijóri Flugleiða, og Kolbeinn Arinbjamarson, framkvæmdastjóri Destal, hafa allir komið að undirbúningi að stofnun veffyrirtækisins Destal. til muna en nú erum við að sjá aðra byltingu í ferðaþjónustu með Netinu, en það er upp- lýsingabyltingin sem Netið hefur hrundið af stað. Samkvæmt þeim rannsóknum og spám sem við höfum kynnt okkur þá kemur það í ljós að notendur Netsins telja líklegast að þeir eigi eftir að kaupa ferðaþjónustu á Netinu fremur en annað. í þessu sambandi má nefna könnun sem Jupiter Communications gerði meðal neytenda í ríkjum Evrópusambandsins um verslun á Netinu. Þar kom í ljós að í öllum löndum nema Spáni var ferðaþjónusta í fyrsta sæti hvað varðar viðskipti á Netinu." Sigurður bendir á að tveir af stærstu sölu- aðilum Flugleiða í Bandaríkjunum, Priceline,- com og Expedia.com, selji einvörðungu í gegnum Netið og að aukingin hjá þeim er um 3-400% á milli ára. „Það er því ljóst að það er mjög mikilvægt fyrir okkur að taka þátt í þessari þróun í stað þess að reyna að hefta hana. Með því væri verið að fórna meiri hags- munum fyrir minni." Hlutur hópferða fer minnkandi Að sögn Steins Loga eru ferðamenn í mörg- um tilvikum komnir fram úr ferðasöluaðilum á upplýsingatæknihraðbrautinni. Vel yfir 50% af þeim Bandaríkjamönnum sem koma á veg- um Flugleiða til landsins hafa leitað upplýs- inga á vef Flugleiða á Netinu um land og þjóð. Á þeim markaðssvæðum Flugleiða þar sem netnotkun er mest eru 12-14% af farmiðasölu félagsins í gegnum Netið. „Við teljum og sjá- um það nú þegar að aukningin er í einstakl- ingsferðum á kostnað hópferða. Fólk vill í auknum mæli ráða ferðinni sjálft og skipu- leggja ferðina í samræmi við áhugamál hvers og eins. Því hefur orðið talsverð söluaukning hjá bílaleigum og fleiri farþegar koma utan hefðbundins háannatíma. Þjóðverjarnir eru enn mjög mikið í pakkaferðum en samt sem áður hefur dregið þar úr en Þjóðverjar eru að meðaltali tvær vikur á íslandi á meðan Bandaríkjamenn dvelja í þrjár til fjórar næt- ur. Með aukningu í styttri ferðum hefur aukn- ingin orðið mest á suður- og suðvesturhorninu en við sjáum fyrir okkur að það eigi eftir að breytast með aukinni leigu á bílum. Því um leið og menn ráða ferðinni sjálfir opnast möguleikinn á að heimsækja staði sem eru ut- an suðvesturhornsins," segir Steinn Logi. Mikill áhugi á þátttöku hjá ferdaþjónustuaðilum Að sögn Sigurðar gerðu Flugleiðir skoðana- könnun meðal 900 aðila sem tengjast ferða- þjónustu á einn eða annan hátt þar sem spurt var hvort viðkomandi hefði áhuga á að skrá þjónustu sína á IcelandTotal.com. Menn voru mjög jákvæðir á nýjungina og sendu um 650 aðilar jákvæð svör um þátttöku. Kolbeinn segir að mikilvægt sé að erlendir ferðamenn geti nálgast upplýsingar á einum og sama staðnum því í dag séu sennilega yfir tvöhundruð vefsvæði sem tengjast ferða- möguleikum á Islandi á einn eða annan hátt. Gjörsamlega vonlaust sé fyrir neytandann að finna það sem hann leitar að í þeim frumskógi og því er brýn þörf á því að bjóða upp á heild- stæðan ferðavef þar sem neytandinn fær það sem hann vill og þarf á að halda. „Ekki bara upplýsingar um hótel, bílaleigur og flug held- ur líka afþreyingarmöguleika í nágrenni gisti- staða og eins verður kort af íslandi þar sem viðskiptavinurinn getur auðveldlega reiknað út allar fjarlægðir á milli staða. Landmat sér um gerð kortsins en það er mjög notenda- vænt. Á því verða skráðir þeir ferðaþjónustu- aðilar sem starfa á viðkomandi landssvæðum ásamt bensínstöðvum, matsölustöðum og svo mætti lengi telja." Ferðalagið skipulagt frá grunni hjá Destal Að sögn Kolbeins verður fylgst náið með því að þeir sem skrá sig og sína þjónustu á vefsvæðinu séu ábyrgir aðilar. Setja verði skilyrði fyrir skráningu til þess að tryggja það að óprúttnir aðilar hlunnfari ekki væntanlega viðskiptavini. Atvik sem slík geti eyðilagt ára- langt uppbyggingarstarf fyrir öllum öðrum sem bjóða upp á þjónustu á vefsvæðinu. Eins verður sett upp samskiptarás á Vefnum þar sem menn geta skipst á skoðunum um landið og þá möguleika sem það býður upp á. Sigurður segir að unnið sé að því að setja upplýsingar af ýmsum toga um Island inn á vefinn auk þess sem mikill áhugi sé á því að bjóða upp á fréttir á vefnum. Jafnvel að neyt- endur geti keypt íslenskar vörur, s.s. bækur og kort, á honum. „Þú átt að geta gert allt sem tengist Islandsferðinni þinni á Icelan- dTotal.com áður en þú leggur af stað og farið áhyggjulaus í fríið. Ekki með áhyggjur af því að fá gistingu og að þér hafi yfirsést einhverj- ir skemmtilegri möguleikar. Við höfum unnið að þessu í tvö ár og erum nú loks að sjá fyrir endann á undirbúningsvinnunni þi'átt fyrir að ekki sé komin dagsetning á hvenær vefurinn verður opnaður en það verður einhvern tíma á haustdögum." Sterk staóa Flugleióa á vefnum kemur sér vel Steinn Logi bætir við að Ice- landTotal.com byggi á einu sterkasta vörumerki sem ís- lenskt fyrirtæki á erlendis, þ.e. vörumerki Flugleiða, auk þess sem vefur Flugleiða sé eflaust sá mest sótti erlendis frá. „Reynd- ar sýna kannanir það að vefur okkar er mjög vel sóttur af öll- um þeim sem koma hingað. Til þess að koma IcelandTotal.com enn frekar á framfæri þá mun- um við nýta okkur reynslu og þekkmgu okkar samstarfsfólks erlendis til að kynna þessa nýj- ung. En Flugleiðir fara ekki var- hluta af því púðri sem eytt hefur verið í að kynna Netið fyrir al- menningi undanfarin ár þannig að við stöndum mjög vel að vígi að hafa netvæðst mjög fljótt. Enda hefur félagið verið fengið til þess að kynna ferðamögu- leika á Netinu á ferðakaupstefn- um og ráðstefnum. Við höfum alltaf sagt að það þýði ekki að berjast á móti þróuninni þrátt fyrir að hún eigi jafnvel eftir að hafa neikvæð áhrif á afkomu ein- hverra dótturfyrirtækja Flug- leiða en á móti kemur jákvæð á önnur,“ segir Steinn Logi. Að sögn Kolbeins verður vakt allan sólar- hringinn á vefnum m.a. til þess að svara í síma ef viðskiptavinir vefjarins lenda í vandræðum. Verður sú þjónusta á þeim tungumálum sem í boði eru á vefnum, það er ensku til að byrja með en þýsku og íslensku fljótlega þar á eftir. Starfsmenn Destal verða 8 talsins í byrjun en hluti af starfsemi s.s. þróun og þjónusta hjá verktökum en um níu undirverktakar hafa komið að undirbúningnum. „IcelandTotal.com er eflaust stærsta vefhugbúnaðarverkefni sem íslenskt fyrirtæki hefur lagt í og það hef- ur vakið mikla athygli hjá þeim sem þar hafa komið að. Fyrirtækið verður ekki staðsett innan dyra hjá Flugleiðum heldur verður það með starf- semi í Armúlanum Við leggjum áherslu á að þetta sé ekki bara Flugleiðavefur þrátt fyrir að undirbúningurinn hafi verið hjá okkur heldur almennur vefur um alla þá möguleika sem ísland hefur upp á að bjóða fyrir ferða- menn sem leggja leið sína til íslands nú eða Islendinga sem eru á ferð og flugi um eigið land,“ segir Kolbeinn. Að sögn Steins Loga verður síðar boðið upp á þann möguleika að flytja upplýsingar af vefnum yfir í Palm Pilot-vasatölvur og hugs- anlega WAP-síma. „Eins er alltaf fyrir hendi sá möguleiki að fá send skilaboð í GSM-síma um tilboð þannig að möguleikarnir eru óþrjót- andi á upplýsingahraðbrautinni - ferðamáta framtíðarinnar,“ segir Steinn Logi að lokum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.