Morgunblaðið - 10.08.2000, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ
______________________________FIMMTUDAGUR 10. ÁGÚST 2000 B 7
VIÐSKIPTI
Nýir
starfsmenn
Íslandssíma
• Ari Jóhannsson
hefurverið ráðinnyf-
irmaðuralþjóða-
samskipta hjá
Íslandssíma. Ari hef-
urvíðtæka menntun
og reynslu á þvl sviði
sem hann starfará.
Hann lauk BA gráðu í alþjóða-
stjórnmálum og MA gráðu í alþjóöa-
samskiptum frá Kent State
University, Ohio, Bandaríkjunum árið
1991. Ari starfaði síðan hjá Lands-
síma íslands frá 1993 til 1999, síð-
ast sem forstöðumaður al-
• Einar Birkir Ein-
arsson hefurverið
ráðinn aðstoðar-
maöur framkvæmda-
stjóra Íslandssíma.
Einarlauk M.Sc.
prófi í rafmagnsverk-
fræði frá DTUI
Kaupmannahöfn 1996, og B.Sc. frá
AarhusTeknikum, 1992. Hann starf-
aði sem gæðastjóri hjá Element hf á
árunum 1996 til 1998 og hjá Skýrr
hf sem þjónustustjóri yfirtölvurekstr-
arþjónustu. Auk þess að vera að-
stoðarmaðurframkvæmdastjóra sér
Einar Birkir um innri skipulagsmál,
starfsmannamál og rekstrarmál.
• Gerður Gunnars-
dóttirhefurhafið
störfá innheimtu-
sviöi Íslandssíma.
Gerður lærði fram-
reiðslu í Perlunni og
starfaði hjá ýmsum
fyrirtækjum á því
sviði allttil ársins 1996 að hún réðst
til starfa hjá Nýherja. Þar starfaöi
hún við símavörslu, verkstæöismót-
töku og innheimtu.
• Halldór A. Hali-
dórsson hefurveriö
ráðinn viðskiptastjóri
hjá Íslandssíma.
Halldórstundaöi
nám á viðskipta-
þraut Fjölbrautaskól-
ansvið Ármúlavetur-
inn 1985 til 1986. Árið 1987 til
1988 var hann verslunarstjóri hjá
Hljómbæ. Eftir þaö var hann um tíu
ára skeið sölumaöur og síöar sölu-
stjóri hjá Magnúsi Kjaran. Halldór var
síðastframkvæmdastjóri hjá Parketi
og gólfi og íslenskum haröviði eöa
allt þartil hann réð sigtil starfa hjá
Íslandssíma.
• Helgi Hinriksson
hefur verið ráðinn til
starfa hjáíslands-
síma til að sjá um
viðhald og rekstur
upplýsingakerfa.
Helgi hefur starfaö
undanfarin 6 ársem
atvinnukafari en hefur nú lokið námi
af tölvufræóiþraut frá lönskólanum í
Reykjavík. Helgi hefureinnig lagtfyrir
sig söng, hefur lokiö 4 stigum í Söng-
skólanum í Reykjavík og hefur m.a.
verið í kór íslensku óperunnar og ver-
ið í nokkrum óperuuppfærslum.
• Hörður M.
Harðarson hefur ver-
ið ráðinn til Islands-
símatil að sjá um
reksturog viðhald
upplýsingakerfa.
Hann erútskrifaöur
aftölvufræðibraut
Iðnskólans í Reykjavík árið 1998.
Hörður starfaði á upplýsinga- og
tæknisviði Sjúkrahúss Reykjavíkur
áður en hann hóf störf hjá íslands-
síma.
• Jón J. Steingríms- son erframkvæmda- stjóri sölusviðs Umí -A
Islandssíma. Jón er
IHfc l a£ rekstrarfræðingur frá
I ÁJ Samvinnuháskólan- Wf&r k.
um á Bifröst. Hann
var rekstrarstjóri hjá
Sveini bakara árin 1992 til 1993. Þá
starfaði hann að vörustjórnun hjá
Tæknivali til ársins 1995 þegar hann
tók við stöðu framkvæmdastjóra BT.
Jón hóf störf hjá Íslandssíma fýrr á
þessu ári.
• Jóna Bjarnadóttir
hefur hafið störf sem
vefhönnuöur innan
upplýsingatækni-
deildaríslandssfma.
Hún útskrifaðist sem
kerfisfræðingurfrá
Nordjysk Erhvervs-
akademi í Álaborg í apríl sl. Jóna sér
um rekstur og viðhald á vefjum Is-
landssíma, auk þess sem hún tekur
þáttíforritunarverkefnum innan
deildarinnar.
• Jón Ævar Pálma-
son hefurverið ráö-
inn sem sérfræðing-
urfjarskiptamála.
Jón Ævar út-
skrifaðist með C.Sc.
gráðu f rafmagns-
verkfræði frá
Háskóla íslands á þessu ári. Hann
starfaði átölvudeild Ríkisspítalanna
sumariö 1999 og sem stundakenn-
ari við Háskóla íslands á vormisseri
2000.
• Kristján Schram
hefurverið ráðinn
markaósstjóri ís-
landssfma. Kristján
hefurundanfarin ár
unnið við auglýsinga-
og markaðsstörf í
Bandaríkjunum og
fengist þar við stefnumótun fýrir fyrir-
tæki. Fyrst vann hann hjá auglýsing-
astofunni Carmichael Lynch í Minn-
eapolis, fyrir viðskiptavini eins og
Volvo, Gatewaytölvur, Polaris vél-
sleóa og Ferðamálaráð Minnesota.
Síðustu 2 ár hefur Kristján unnið hjá
einni stærstu auglýsingastofu
heims, DBB, í Chicago. Þarvann
hann fýrir eitt af stærstu símafyrir-
tækum Bandaríkjanna, US West/
Qwest. Kristján er með BA og MA
gráðu f fjölmiðla- og menningarfræö-
um frá University of Minnesota og
University of Leicester.
• Leifur A. Haralds-
son hefurverið ráð-
inn netumsjónar-
maðurhjá Islands-
sfma. Leifur lauk
stúdentsprófi frá
Verslunarskóla ís-
landsognemurvið-
skiptafræði við HÍ. Hann vann áður
sem rafvirki hjá Örgjafanum og síð-
ast sem ráðgjafi á sviði veflausna
hjá hugbúnaöardeild Nýherja.
• Lilja Dröfn Páls-
dóttir starfar sem
gjaldkeri hjá íslands-
síma. Lilja sérum
greiðslu reikninga og
almenn skrifstofu-
störf. Hún stundar
nám samhliða starfi
í öldungadeild Menntaskólans við
Hamrahlíð. Lilja vann áður hjá
Rolf Johansen & Company, fyrst
við sölustörf en síöan við skrif-
stofustörf.
• Pétur Pétursson
hefurverið ráðinn
upplýsinga-og
kynningarstjóri
Íslandssíma. Pétur
lauk BA prófi í
stjórnmájasögu frá
Háskólalslandsárið
1992. Hann hefur víðtæka reynslu á
sviði fjölmiöla og hefur m.a. starfað
á fréttastofum og ritstjórnum Rfkisút-
varpsins, DV og Stöðvar 2 og Bylgj-
unnar auk þess að skrifa greinar í
þlöð ogtímarit.
Sl. ár hefur Pétur starfað hjá GSP
almannatengslum sem ráðgjafi í al-
mannatengslum fýrirýmis fyrirtæki
og stofnanir. Pétur mun annast sam-
skipti við fjölmiöla, fjárfesta og sam-
starfsfyrirtæki Íslandssíma.
• Sigurbjörn Eiríks-
son hefurverið ráð-
inn verkefnisstjóri
uppsetninga hjá ísl-
andssíma. Sigur-
björn ersímsmíöa-
meistari að mennt.
Hann starfaði hjá
Landssíma islands frá 1986, allt þar
til hann hóf störf hjá Íslandssíma.
Hann starfaöi við uppsetningarog
viðhald á grunnneti Landssíma ís-
lands. Einnig vann hann við Ijósleiö-
aratengingarfrá 1995.
• Sigurbjörn Óskar
Guðmundsson hefur
verið ráöinn rekstrar-
umsjónarmaðurls-
landssíma. Sigur-
þjörn útskrifaðist úr
rafeindavirkjun frá
Iðnskólanum í
Reykjavík á þessu ári og laukjafn-
framt sveinsprófi. Hann vann hjá
Radíóbæ við viðgeröir á heimili-
stækjum frá maí 1999 og kláraöi
starfssamning þar í desember sama
ár. Sigurbjörn hefur unnið sem aö-
stoðarmaður við rekstur símkerfa frá
júní sl. hjá Íslandssíma.
• Sigurbrandur
Dagbjartsson hefur
veriö ráðinn stjórn-
andi gagnafiutninga
hjá Íslandssíma. Sig-
urbrandurlaukprófií
kerfisfræði frá TVÍ.
Hann starfaöi hjá
tölvudeild Borgarverkfræóings árin
1990 til 1998. Frá þeim tíma, allt
þartil hann réð sigtil starfa hjá ís-
landssíma, kenndi hann kerfisfræði
við Rafiðnaðarskólann og var kerfis-
stjóri hjá Viðskipta- og tölvuskólan-
um.
• Sigurdur Stefán
Jörundsson hefur
tekið við starfi verk-
efnisstjóra raflagna
hjá íslandssfma.
Sigurðurermeistari í
rafvirkjun og bifvéla-
virkjun og hefur
sveinspróf í rafveituvirkjun. Hann
hefur starfað við alla almenna raf-
virkjun, t.d. húsalagnir, tölvu- og
brunakerfi, uppsetningu á loðnu-
bræðslu og skjámyndakerfum til
vöktunarog stjórnunar. Siguröur
hefurvíðtæka reynslu af störfum við
rafdreifikerfi hjá Rarik, alltfrá 66kV
að smáspennukerfum, t.d.
fjargæslukerfum og við virkjanir og
varaaflsvélarfyrirveitukerfi. Hann
hefur ennfremur starfað við upp-
setningu á örbylgjukerfum fyrir
Skýrr, Gagnaveituna og uppsetningu
á minilinkum fyrir Islandssíma og
fleiri aðila.
• Snorri Pétur Egg-
ertsson er sér-
fræðinguríeftir-
litskerfum og hefur
verið ráöinn til Is-
landssíma. Snorri
Pétur lauk stúd-
entsprófi og burt-
fararprófi í rafvirkjun frá Fjölbrauta-
skólanum í Breiöholti 1993 og
Cand.Sc. gráðu í rafmagns-ogtölvu-
verkfræði frá HÍ á þessu ári og fjall-
aði lokaverkefni hans um milli-
keyrslu á símalínum m.t.t.
háhraðaflarskipta. Hann hefurm.a.
unnið sem verkefnisstjóri hjá Lands-
símanum, hjá verkfræðistofunni Raf-
hönnun ogviö rafvirkjun með námi,
ásamt margvíslegri verktakavinnu,
s.s. þangskurði á Breiöafiröi og
tölvuvinnslu. Snorri Pétur sér m.a.
um rekstur eftirlitskerfis og jarð-
stöðvar Íslandssíma.
• Þröstur Víðisson
hefurverið ráðinn
þjónustustjóri upp-
setninga hjálslands-
síma. Þrösturhefur
starfað á sviði fjar-
skipta og orkuveitu I
um 25 ár. Hann er
símsmíðameistari frá Póst- og síma-
skólanum og hefur lengst af unniö
hjá Landssfma íslands sem sím-
smiður, flokksstjóri og símaverk-
stjóri. Þrösturvannfnokkurárhjá
RARIK á Suðurlandi sem Ifnumaður
og stjórnaði í tvö ár eigin fyrirtæki,
Síma- ogtölvulögnum h.f.
• .
Nýtt starfsfólk
hjá Mönnum
ogmúsum
• Baldur Eiríksson
hefurtekiðtil starfa
sem forritari hjá
Mönnum og músum.
Hann er rafmagns-
tæknifræðingur
B.Sc.E.E. frá Tækni-
skólanum f Árósum.
Hann starfaði í tvö ár hjá RadioHost
A/S í Danmörku og í eitt ár hjá
Systematic Software Engineering
A/S í Danmörku. Hann hafði starfaö
sem forritari í eitt ár hjá Kögun hf.
áður en hann réð sig til Manna og
músa. Baldur er giftur Höllu Þor-
valdsdóttur sálfræðingi og eiga þau
eina dóttur.
• Chris Buxton hef-
urveriö ráðinn til að
sinnatækniaðstoð
viö erlenda vió-
skiptavini Manna og
músa. Einnig starfar
hann við vefforritun
og hönnun viðmóts-
forrita hjá fyrirtækinu. Chris hefur að
baki 5 ára háskólanám og hefur
starfað sjálfstætt frá 1995 við vef-
oggagnagrunnsforritun ásamt því að
kenna HTML-forritun í þrjú ár við
Kala-stofnunina f Berkeley, Kaliforn-
fu í Bandaríkjunum. Einnig starfaði
hann í eitt ár sem sérfræöingur í
upplýsingatækni við Lindsay-náttúru-
gripasafnið í Walnut Creek, Kaliforn-
íu í Bandaríkjunum. Chris er stað-
setturí Bandaríkjunum.
• Eydís Oisen hefur
hafiðstörfísölu- og
markaðsdeild
Manna ogmúsa og
uppbyggingu á vax-
andi neti alþjóðlegra
endurseljenda. Eydís
hefur BS-gráðu í al-
þjóðahagfræði og meistaragráðu í al-
þjóðastjórnmálum og hagfræði frá
háskólum í Bandaríkjunum. Eydfs
hefur búið og starfað undanfarin tólf
áríBandaríkjunum ogstarfaði m.a.
hjá Rrst Union National Bank í 5 ár
sem viöskiptafulltrúi fyrir Norður-
Evrópu. Eydís ergift Michael Sean
Maravich lögfræðingi og eiga þau tvö
börn.
• Gudbjörg Margrét
Björnsdóttir hefur
veriö ráðin til Manna
ogmúsa til að sinna
námskeíðahaldi,
námsefnisgerð, not-
endaþjónustu o.fl.
varðandi Stundvísi.
Hún lauk BA-prófi í íslensku og
kennsluréttindum frá Háskóla ís-
lands árið 1998 og er aö Ijúka M.
Paed. í íslensku við HÍ. Einnig stund-
aði hún nám í námskrárgerð við End-
urmenntunarstofnun HÍ. Áður en
Guóbjörg hóf störf hjá Mönnum og
músum kenndi hún íslensku við
Borgarholtsskóla í 2 ár. Guðbjörg er f
sambúð með Ágústi Andra Eiríkssyni
og eiga þau einn son.
• Kristján Þór
Kristjánsson hefur
tekiðtil starfasem
forritari í Stundvísi.
Kristján hefur B.Ed.-
gráðu frá KHÍ og út-
skrifaðist sem kerfis-
fræðingurfrá Edb-
skóla Árósa. Hann var kennari í Vest-
mannaeyjum árin 1991-1992 og
vann sem kerfisfræöingur hjá Reikni-
stofnun HÍ1996-1999. Kristján erf
sambúð með Helgu Loftsdóttur
kennara og eiga þau þrjú börn.
• Signe Viðarsdótt-
ir hefur hafið störf
sem fjármálastjóri
hjá Mönnum og mús-
um. Signe útskrifað-
ist sem iönrekstrar-
fræðingurfrá Há-
skólanum á Akureyri
árið 1992. Hún starfaöi áður hjá Söl-
umiöstöð hraöfrystjhúsanna. Signe
er gift Heiðari Inga Ágústssyni
innkaupastjóra og eiga þau þrjár
dætur.
Reiði út
í Sony
vegna Play-
Station 2
JAPANSKA fyrirtækið Sony hefur
verið gagnrýnt fyrir áætlanir þess
um að verðleggja nýju PlayStation
2-leikjatölvuna allt að 50% hærra í
Evrópu en í Bandaríkjunum en fyr-
irhugað er að salan hefjist vestan-
hafs í október en í nóvember í
Evrópu. Á fréttavef BBC kemur
fram að PlayStation 2 kostar 240
sterlingspund í Japan, eða um 29
þúsund íslenskra króna. Verðið í
Bandaríkjunum verður 199 sterl-
ingspund, um 24 þúsund íslenskra
króna, en í Þýskalandi, Frakklandi
og Bretlandi á bilinu 269 til 299
sterlingspund, eða um 32 til 36 þús-
und íslenskra króna.
Yfir 2 milljónir eintaka
seldar i Japan
Skýringar Sony á verðmun á
PlayStation 2, í Bandaríkjunum
annars vegar og Evrópu hins vegar,
eru þær að söluskattar séu hærri í
Evrópu en í Bandaríkjunum og hið
sama eigi við um húsnæðis- og
flutningskostnað. Neytendasamtök
í Bretlandi segja hins vegar að
verðið þar í landi hafi verið hækkað
þegar Sony hafi gert sér grein fyrir
því að eftirspurn þar myndi verða
mikil og að væntanlegir notendur
myndu verða reiðubúnir til að
greiða það verð sem fyrirhugað sé
að setja upp. Talsmaður breskra
neytendasamtaka segir vissulega
rétt að söluskattur sé hærri í Bret-
landi en í Bandaríkjunum en sá
munur skýri ekki 100 sterlings-
punda mun í verði.
Yfir 2 milljónir eintaka af
PlayStation 2-leikjatölvunni hafa
selst í Japan. Sony-fyrirtækið von-
ast til að endurtaka góða sölu á upp-
runalegu PlayStation-leikjatölvunni
í Bretlandi en 5,6 milljónir eintaka
af henni hafa selst þar frá því sala á
henni hófst árið 1995. Áætlanir
Sony gera ráð fyrir að selja 10 millj-
ónir PlayStation 2-leikjatölva á
þessu fjárhagsári og þar á meðal 3
milljónir tölva í Evrópu.
------------------
Aukin sam-
keppni í
háhraðateng-
ingum
SAMKEPPNI í háhraðanettenging-
um á Bretlandi fer vaxandi að því er
fram kemur á vef BBC- frétta-
stofunnar. Svokölluð Blue-
yonder-þjónusta Telewest mun
lækka úr 50 sterlingspundum, eða
rúmlega 6.000 krónum, í 33 sterl-
ingspund, eða tæplega 4.000 krónur,
en verðið á ADSL-háhraðatenging-
unni hjá British Telecom er 40 sterl-
ingspund á mánuði, eða tæpar 5.000
krónur.
Mörg netþjónustufyrirtæki hafa
boðið ódýra eða ókeypis netteng-
ingu, en hafa ekki getað staðið við
skuldbindingar sínar við viðskipta-
vini.
Akvörðun Telewest um verðlækk-
un kemur í framhaldi af fallandi
hlutabréfaverði félagsins og erfið-
leikum sem það hefur lent í vegna
fastverðssamninga við tölvunotend-
ur, en félagið hefur aðeins gert 1.000
slíka samninga.
Samkvæmt könnun eftirlitsaðila
markaðarins, Oftel, eru neytendur
aðeins reiðubúnir til að greiða 13
sterlingspund, eða tæpar 1.600 krón-
ur á mánuði.
■
L
ál-kopar-messing
Ssindri ]
W Borgartúni 31 • s. 575 0000 • www.sindri.is