Morgunblaðið - 10.08.2000, Page 8

Morgunblaðið - 10.08.2000, Page 8
Viðskiptablað Morgunblaðsins Fimmtudagur 10. ÁGÚST 2000 BÓK TölvuMyndir í samstarf við EXPER Friðrik Sigurðsson, forstjóri TölvuMynda, og Gunn- ar Peroni, framkvæmdastjóri EXPER Group. • TölvuMyndir skrif- uöu undir víðtækan samstarfssamning við alþjóðlega fyrir- tækið EXPER Group um þróun og sölu á hugbúnaðarlausnum fyrir heilbrigðisgeir- ann. Verða lausnir TölvuMynda markaðs- settarog seldaríöll- um löndum Evrópu. Með samningnum hefja fyrirtækin harða markaössókn inn á heilbrigðismarkaðinn í Evrópu. Samningur- inn sem undirritaöur var snýr að þróun og sölu á hugbúnaöar- lausninni Theriak, sem TölvuMyndir hafa þróað fyrirsjúkra- húsapótek. Tölvu- Myndir munu þróa Theriak áfram og mun EXPER koma inn í það þróunarstarf. EXPER, sem hefur yfir að ráða söluneti í Evrópu, mun sjá um sölu og_ þjónustu á Theriak. í gegnum samstarfið við EXPER Group hafa TölvuMyndir aðgang að söluskrifstofum í Noregi, á Englandi, í Hollandi, Frakklandi, Þýskalandi, á Spáni ogítalíu. TölvuMyndir munu eftir sem áður halda áfram upp- byggingu á söluneti í Skandinavíu, þar sem þegar hafa verið und- irritaðir samningar um sölu á Theriak. TölvuMyndir hafa starfað á heilbrigðis- sviði í nokkur ár hér- lendis og þróað kerfi fýriröll stærstu sjúkrahús landsins. Theriak er stærsta verkefni TölvuMynda á þvt sviði en það er kerfi fyrir sjúkrahúsa- pótek og sjúkrahús sem gerir læknum meðal annars kleift að gefa lyfjafýrirmæli við rúm sjúklings í gegnum þráðlausan búnað. Íslandssími semur við Global One • Íslandssími og al- þjóðlega fjarskiptafyr- irtækið Global One hafa gert með sér samning um sam- tengingu fjarskipta- neta fyrirtækjanna. Íslandssími getur þannig boðið íslensk- um fyrirtækjum með starfsemi erlendis upp á alla þá þjón- ustu sem lýrirtækið starfrækir hér á landi, þar með taliö sam- tengingu útibúa við höfuðstöövar, vinnu- hlið fýrir starfsmenn, staðarnetstengingar og samtengingu sím- stöðva. Samningurinn kveöur á um að Íslandssími tengir net Global One við fjarskiptastöðvar sín- ar í New York og London. Global One, sem er í eigu France Telecom, starfrækir ATM fjarskiptakerfi. Kerfið nær til meira en 850 borga í yfir 40 löndum og getur flutt ólfk gögn, eins og tal, tölvugögn og margmiðlunarefni, með miklu öryggi um einkanet (VPN). og sérlausnum tengd- um Netinu sem vef- deild Ax hefur hannað. Ráðstefnan, sem haldin vará Netinu, var á vegum banda- ríska tímaritsins Manufacturing Syst- ems. Henni var stjórn- að af ritstjóra tímarits- ins en þátttakendur aukX18voru Dam- gaardASogAMR Research. Upplýsingakerfi X18 á ráðstefnu • Damgaard AS, framleiðandi Dam- gaard Axapta- viðskiptahugbúnaðar, valdi innleiðingu Ax Hugbúnaöarhúss hjá X18 til aötaka þáttí ráðstefnu um sam- ræmingu við- skiptakerfa og Nets- insíBandaríkjunum. Markmið ráðstefnunn- arvaraðfjalla um mik- ilvægi netvæddra við- skiptakerfa og möguleikana sem í þeim felast. Kynning X18 byggðist á innleið- ingu Ax á Damgaard Axapta i-viðskiptakerfi ÁRMÚLA 7 • 108 REYKJAVlK • SÍMI 550 9000 • www.strengur.ls FÓLK/Brynja Guðmundsdóttir Sjúk í bækur Morgunblaðið/Amaldur Brynja Guðmunds- dóttir hóf störf sem framkvæmda- stjóri stjórnunardeildar Skýrr hf. um síðustu mán- aðamót og var spurð að því hvað fælist í hinu nýja starfi. „I grófum dráttum má segja að stjórnunardeildin sjái um fjármálin og allt sem þeim tengist, bókhald- ið, launadeildina og öll innri málefni fyrirtækisins, svo sem mötuneytið, rekst- ur fasteignarinnar, út- keyrsluna og öll innri mál- efni fyrirtækisins. Þar með talin er hluthafaskráin en við stefnum að því að fara út í rafræna skráningu fljótlega. Aðrar deildir ein- beita sér að viðskiptavin- um Skýrr, en Skýrr er sá við- skiptavinur sem við einbeitum okkur að, þ.e. aðrar deildir fyrir- tækisins." En þegar þú ert ekki í vinn- unni, hvað gerirðu þá? „Eg hef unnið svo mikið und- anfarin ár að það hefur ekki gef- ist mikill tími til þess að stunda einhver áhugamál. Eg hef mik- inn áhuga á íþróttum án þess að ég hafi mikinn tíma til að stunda þær sjálf. Ég horfi á þær í sjónvarpinu, m.a. Formúluna, góða boxbardaga, körfubolta og fótbolta. Sjálf er ég alltaf á leið- inni í líkamsrækt, en það hefur gengið illa að finna tíma fyrir hana. En áhuginn á íþróttum er sem sagt mikill, enda strákarnir mínir báðir í fótbolta og kærast- inn í körfuboltanum og svo var ég sjálf í fótbolta með Haukum í nokkur ár.“ Hvað með annað, til dæmis ferðalög? „Ég hef mikinn áhuga á ferða- lögum bæði innan lands og utan, en kemst frekar lítið. Ég hef til dæmis mjög gaman af útivist og labbaði Laugaveginn í fyrra og fannst mjög gaman. Svo er ég sjúk í bækur, en hef lítinn tíma til að lesa þær sem ég kaupi. Ég ætla bara að lesa þær í ellinni." Hvað lestu helst? „Ég er eiginlega alæta, það ► Brynja Guðmundsdóttir er fædd árið 1967 á Akureyri. Hún flutti þaðan á öðru aldursári og sótti barnaskóla í Breiðholtinu fyrstu tvö árin en flutti svo út á Alftanes og útskrifaðist með stúdentspróf frá Fjölbrautaskóla Garðabæjar árið 1986. Hún lauk viðskiptafræði af endur- skoðunarsviði árið 1991, eftir að hafa tekið sér ársfrí til barn- eigna og kennslu á Vopnafirði. Að loknu námi fór hún með syni sína tvo, sem nú eru ti'u og tólf ára, til Blönduóss þar sem henni hafði boðist starf skrif- stofustjóra og aðalbókara. Hún hefur einnig starfað sem aðal- bókari á Stöð 2 og forstöðumað- ur upplýsingasviðs hjá Lýsi, en áður en hún hóf störf hjá Skýrr var hún forstöðumaður hag- deildar hjá Landssímanum. Brynja er í sambúð með Halldóri Kristmannssyni, framkvæmda- stjóra Sushi-verksmiðjunnar á ísafirði. skiptir engu máli hvað það er. Bæði fræðibækur og skáldsögur, innlendar og erlendar. Ég á erf- itt með að neita mér um góða bók, en er að reyna að hætta þessu, því þetta er dýrt áhuga- mál.“ INNHERJI SKRIFAR... • Það hefurverið ríkjandi skoöun, að mikil hagræðing hafi oröið í rekstri íslenzkra fyrirtækja á þess- um áratug. Til sögunnar hafi komið nýir og hæfir stjórnendur, sem hafi beitt nútímalegum vinnubrögðum við reksturfyrirtækja ognáð mikl- um árangri. Til marks um það sé mikill hagnaðurfyrirtækjanna á undanförnum árum og hátt mat hlutabréfamarkaðarins á einstök- um fyrirtækjum. Þetta er hin al- menna skoðun og ríkjandi viðhorf. En þeir eru til, sem sjá framvindu viðskiptalífsins á íslandi meö öör- um augum. Þeirra viðhorf ereitt- hvað á þessa leið: Það er rétt að íslenzk fyrirtæki hafa sýnt mikinn hagnað á nokkrum undanförnum árum en á hverju hef- ur sá hagnaöur byggzt? Hann er ekki til kominn vegna þess, að regluleg starfsemi fýrirtækjanna hafi skilaö svo miklu heldur vegna hins, aðfjármagnsliðirí rekstri fyrir- tækjanna hafa verið hagstæðir. Sem dæmi er nefnt aö það var ekki flutningastarfsemi Eimskips, sem skilaði mestum hagnaði á fyrstu sex mánuðum ársins heldur söluhagnaður af hlutabréfum f eigu Burðaráss, sem voru seld í júní- mánuði, sem tryggði sómasamlegt milliuppgjör. Það hafi ekki veriö hagnaður af flugstarfsemi Flugleiða, sem hafi tryggt fyrirtækinu hagnað á undan- förnum árum, þegarhann hefurá annaö borð veriö til staðar, heldur söluhagnaður af flugvélum eða hót- elum. Mikill hagnaðurtryggingafélag- anna á undanförnum árum hafi ekki komiö til vegna tryggingastarfsemi heldurfjármálastarfsemi. Hagnað- ur bankanna á síðustu árum sé ekki til kominn nema að litlu leyti af regiulegri starfsemi bankanna held- uraf annars konarviðskiptum, sem ekki sé hægt að byggja á til fram- búðar. Og þannig megi lengi telja. HVAÐ GERIST, EF...? • Þeir sem halda þessu sjónarmiði á lofti spyrja hvað gerist, ef og þeg- arfjármagnsliöirí rekstri fyrirtækj- anna verða ekki jafn hagstæðir og þeir hafa verið á liðnum árum. Raunar má sjá þess merki nú þegar í milliuppgjörum, að aukinn fjár- magnskostnaður og óhagstæð gengisþróun er byrjuð að setja mark sitt á reikninga fyrirtækja. Þessum röksemdum hefurverið svarað á þann veg á undanförnum árum, að fjármálastarfsemi sé eðli- iegur hluti af rekstri tryggingafyrir- tækja um allan heim, að kaup og sala flugvéla sé í raun hluti af rekstri flugfélaga um allan heim og svo mætti lengi telja. Það eru sjálf- sagt einhver rök fyrir þessu. En þau breyta ekki því, að þegar fjármagnsliðirnirí uppgjörum fyrir- tækjanna breytasttil hins verra kemur beturí ijós, hverju grunn- starfsemin skilar. Og ef í Ijós kemur að grunnstarfsemi stórra og öflugra fyrirtækja skilar ótrúlega litlu er ekki óeðlilegt að menn spyrji hvort reksturfyrirtækjanna sé eins góður og af er látið og þá jafnframt hvort stjórnendur þeirra séu jafn miklir af- burðamenn á þessu sviði og sagt hefurverið. TENGING VIÐ NORÐURLÖND • Það er áhugavert umhugsunar- efni hvaða áhriftenging Verðbréfa- þings við kauphallir á öðrum Norð- urlöndum hafi á verð hlutabréfa í íslenzkum fýrirtækjum. Nú er það að vfsu svo, að íslendingargeta stundað kauphallarviöskipti með beinum hætti víða um heim. En samanburðurinn erekki jafn skýrog augljós og þegar Verðbréfaþing hef- urtengzt erlendum kauphöllum. Er hugsanlegt að eftirspurn eftir hluta- bréfum í Tslenzkum fýrirtækjum muni stórminnka? Er hugsanlegt að mun minni eftirspurn leiði til veru- lega lækkandi verðs á íslenzkum hlutabréfum? Er hugsanlegt að ein- hverfyrirtæki, sem nú eru skráð á Veröbréfaþingi detti einfaldlega út? Engu veröur spáð um þetta en það er ekki langur tími þangaö til þetta kemurí Ijós.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.