Morgunblaðið - 14.09.2000, Síða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
2000
■ FIMMTUDAGUR14. SEPTEMBER
BLAÐ
Gísli missti
af eigin veislu
GÍSLI Sigurðsson, þjálfari Jóns Arnars Magn-
ússonar, varð 41 árs 9. september, en hann
gat ekki verið viðstaddur veglega afmælis-
veislu sér tii heiðurs sem haldin var í æfinga-
búðunum í Wollongong, suður af Sydney þar
sem hann var upptekin á fundi í Sydney. Það
kom þó ekki í veg fyrir að íslenski hópurinn
héldi upp á daginn og starfsmenn á hóteiinu
sem hópurinn býr á sló upp í þrjár tertur sem
þeir gáfu Gísla í afmælisgjöf. Tveimur dögum
eftir afmælis var „annar í afmæli" haidin og
þá gat Gísli verið viðstaddur. A miðvikudag-
inn þegar Morgunblaðið var í heimsókn í
Wollongong var enn nokkuð eftir af tertunum
og í ljós kom að það hafði alveg farist fyrir
að kveikja á kertunum. Rétt er að geta þess
að terturnar voru hreinasta hnossgæti.
Martha Ernstsdóttir undirbýr sig
fyrir maraþonhlaup á ÓL í Sydney
Sefurís
efnistjal
í 4.100
metrah
MARHTA Ernstsdóttir, mara-
þonhlaupari úr ÍR, hefur und-
anfarnar fimm vikur sofið í sér-
útbúnu súrefnistjaldi, en tjöld
af þessu tagi hafa undanfarin
misseri verið afar vinsæl hjá
mörgum íþróttamönnum sem
keppa í úthaldsgreinum, s.s.
langhlaupurum, skíðagöngu-
mönnum og hjólreiðaköppum.
Að sofa í tjaldi sem þessu kemur í
stað þess að æfa langhlaup upp
í fjöllum í „þunnu lofti“ eins og
margir hlauparar
gera hluta ársins.
Þannig fjölga þeir
m.a. rauðum blóð-
komum í blóði sínu,
það eykur blóðflæðið í líkamanum
og út í vöðvana sem aftur gerir það
að verkum að vöðvarnir geta lengur
verið undir miklu álagi, þreytast síð-
ar eða minna.
Inni í tjaldið er dælt súrefni með
slöngum úr sérútbúinni dælu. Henni
er hægt að stjóma á þann hátt að
súrefnið „þynnist" allt frá um 14%
og niður 12% og þarf að aðlagast
breytingunni í nokkmm þrepum. Nú
um stundir fær Martha sömu áhrif
af því að sofa yfir nótt og væri hún
Ivar
Benediktsson
skrifar
frá Sydney
við æfingar í 4.100 metra hæð yfir
sjávarmáli. „Ég hef verið að þrepa
mig upp smátt og smátt og verð við
það allt fram að því að keppni hefst í
maraþonhlaupinu 24. september,“
sagði Martha er hún útskýrði kosti
tjaldsins fyrir blaðamanni Morgun-
blaðsins. „Tjöld sem þessi em tals-
vert notuð, einkum af okkur sem
viljum ekki neyta ólöglegra lyfja til
þess að bæta árangur okkar,“ sagði
Martha ennfremur, en notkun
tjaldsins er alveg lögleg. „Það er
ekkert sem bannar þetta enda kem-
ur þetta í sama stað niður og að æfa
uppi í fjöllum, hátt yfir sjávarmáli."
Martha vildi ekki gefa upp verð
tjaldsins en viðurkenndi að það væri
allnokkru dýrara en hefðbundin úti-
vistartjöld, enda þjónaði það öðmm
tilgangi. „Ég er með fjölskyldu og
hef ekki efni á því að vera í æfinga-
búðum eins mikið og því ákváð ég og
Jón Oddsson, eiginmaður minn, að
kaupa þetta tjald fyrir hluta þeirrar
upphæðar sem ég hefði annars þurft
að kosta til dýrra æfingaferða,“
sagði Martha sæl með tjaldið góða.
Morgunblaðið/Sverrir Vilhelmsson
Ólympíuskegg Jóns í höndum hönnuða
JÓN Arnar Magnússon tug-
þrautarkappi vakti mikla at-
hygli á síðustu Ólympíuleikum
þegar hann Iét sér vaxa skegg
mikið sem hann litaði í íslensku
fánalitunum dagana sem hann
keppti. Jón Arnar segist að
sjáifsögðu verða einnig með sér-
staka ólympiuútgáfu af skeggi
að þessu sinni.
Skeggvöxturinn gengur vel en
útlit skeggsins verður ekki í
hans höndum að þessu sinni og
segist hann ekki vita hvernig
það muni líta út að þessu sinni.
„Það hafa fjórir hönnuðir tekið
að sér það verkefni að þessu
sinni og ég verð því að bíða eft-
ir niðurstöðum þeirra eins og
aðrir,“ sagði Jón Araar í gær.
Hönnuðirnir fjórir eru stúlkurn-
ar í íslenska frjálsíþróttaliðinu,
þær Guðrún Amardóttir,
Martha Ernstsdóttir, Vala Flosa-
dóttir og Þórey Edda Elísdóttir.
Þær vildu ekkert gefa upp er
Morgunblaðið hitti þær að máli;
sögðu það vera algjört hernað-
arleyndarmál fram að keppni.
ALFREÐ GÍSLASON FRAMLENGIR SAMNING SINN VIÐ MAGDEBURG / C3