Morgunblaðið - 17.09.2000, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 17.09.2000, Blaðsíða 1
NÝRRINISSAN MAXIMA REYNSL UEKIÐ - FORD ESCAPE-JEPPLINGUR í PRÓFUN — VOLVO-JEPPI Á TEIKNIBORÐINU - NÝR G-JEPPIBENZ Ný 16 ventla vél í Golf VOLKSWAGEN er að skipta út 1,6 lítra, átta ventla vélum fyrir aflmeiri 16 ventla vélar í Golf og Bora. Núverandi 1,6 lítra vél er 101 hestafl en nýja vélin er 105 hestöfl þegar bíllinn er beinskiptur en 102 hestöfl í sjálfskiptum bfl. Togið eykst sömuieiðis um leið og eyðslan minnkar. Hröðun bfls- ins verður jafnframt meiri og á hann að ná 100 km hraða á um 10,4 sekúndum saman- borið við um 10,8 sekúndur í eldri vélinni. iltangntifclftfrife SUNNUDAGUR 17. SEPTEMBER 2000 BLAÐ Ford hættir við að kaupa Daewoo í FRÉTTUM frá Suður-Kóreu segir að Ford Motor Co. sé hætt við að kaupa sig inn í Daewoo og að sú ákvörðun hafí komið þarlendum fjármálamönnum á óvart. Sennileg skýring er talin vera yfirvofandi erfiðleikar hjá Ford heima fyrir vegna galla í dekkjum frá Firestone/Bridge- stone sem Ford hefur notað og talin eru hafa valdið slysum. Ford yfirbauð á sínum tíma GM, Daimler-Chrysler og Hyundai og hreppti hnossið. Nú er búist við að samningaumleitanir við þessa aðila hefjist að nýju. Ljóst er að mikill áhugi er fyrir þvi meðal risanna í bflaiðnaðinum að eign- ast ráðandi hlut í Daewoo enda getur hann þýtt að viðkomandi hljóti lykilaðstöðu á vaxandi markaði í suðaustur Asíu og Kína. Sjö manna Suzuki-jeppi SUZUKI er einn af minnstu japönsku bflaframleið- endunum og hefur sérhæft sig í framleiðslu lítilla bíla og jepplinga. Nú ætlar fyrirtækið að senda frá sér stóran jeppa á Bandaríkjamarkað í desember næst- komandi. Þetta er jeppi sem byggður er á hugmynda- bílnum XL6 sem sýndur var á bflasýningunni í Detr- oit í janúar sl. Bíllinn er byggður á Grand Vitara en allur mun stærri. Hugmyndabíllinn kallaðist XL6 og var gerður fyrir sex manns en framleiðslubfllinn heit- ir XL7 og er sjö manna bíll með þremur sætaröðum. Bfllinn er með háu og lágu drifí. Hann minnir á Grand Vitara í útliti en er með stærra grilli og framstuður- um. Þá er hjólhaf bílsíns rúmum 30 cm lengra en á Grand Vitara. Bíllinn verður einnig fáanlegur einung- is með afturdrifi í Bandaríkjunum. Ekki er ljóst hvort hann verði framleiddur fyrir Evrópumarkað. General Motors, sem er stærsti bílaframleiðandi heims, átti 10% hlut í Suzuki og hefur nú keypt stærri hlut í fyrirtækinu og á nú samtals 20% hlut. Kaupin eru liður í þeirri viðleitni GM að ná stærri markaðs- hlutdeild í Asíu en tilraunir fyrirtækisins til að kaupa Daewoo hafa ekki borið árangur. Jepplingur fró Nissan haustið 2001 riii wivyn ir Patrol í Monster FRAMLEIÐENDUR kvik- myndarinnar Monster, sem er samframleiðsla íslensku kvik- myndasamsteypunnar og Zoetrope, fyrirtækis Francis Ford Coppola, hafa gert samn- inga við Ingvar Helgason hf. um að fá þrjá breytta Nissan Patrol jeppa. Framleiðendurn- ir lögðu mikla áherslu á að fá bflunum breytt hérlendis og eru þeir á 35 og 38 tommu dekkjum, svartir að lit og krómaðir í bak og fyrir. Tii stendur að fílma þá í einu atriða myndarinnar í Hvalfirði eftir- helgi. Nissan stefnir þessum nýja jepplingi gegn nýjum Toyota RAV4. STÆRSTA tromp Nissan á bílasýningunni í París í næsta mánuði verður nýr jeppl- ingur sem á að keppa við söluháa bíla í Evrópu eins og Land Rover Freelander, Honda CR-V og Toyota RAV4. Bíllinn heitir Nissan X-Trail en hann kemur þó ekki á markað fyrr en haustið 2001 í Evrópu. Hver bílaframleiðandinn á fætur öðrum kynnir nú áform ari gerð en bílaframleiðendur sem þegar hafa kynnt slíka b að maka krókinn. X-trail er minni bfll en Terrano II og er grindarlaus eins og flestir bílar af þessari gerð. Hann verður fíngerðari i meiri fólksbflaeiginleika en Terrano II. Nissan segir ; bílnum verði tímamóta fjórhjóladrifskerfi með ör- yggisbúnaði eins og ESP (stöðugleikastýring) og gripstýrikerfí. Bfllinn er með nýrri 2ja lítra vél. Engar myndir hafa birst af innanrými bílsins en Nissan segir að þar verði í notkun slitsterk áklæði og mótað ál verður í mælaborði. Sterk- legur dúkur verður í farangursrými í stað teppa og verður hægt að skola af gólfínu eftir notkun sem hefur í för með sér óhreinindi sem berast inn : farangursrýmið. Ekkert hefur verið gefið upp um verð en búist er við að X-trail verði á svipuðu verði og keppinautarnir. Sjö manna jeppinn \ n'<.. i i —• ö \ ?rj c/ ! 1 I ■ * >. J iSt i 1 Umboðs- og þjónustuaðilar fyrir öryggis- og þjófavarnarbúnað frá Clifford og Avital. IMESRADIO SiSumúia 19 • Sími 581 1118 • Fax 581 1854

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.