Morgunblaðið - 17.09.2000, Side 3
2 D SUNNUDAGUR 17. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
BÍLAR
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Þokuljós í framstuðara eru staðalbúnaður í báðum gerðum.
Mjög gott er að setjast inn og stíga út úr bílnum, sætin eru í
mjög mátulegri hæð og ágætt rými í aftursætum.
Farangursrými er ágætlega stórt og hægt er að draga
mottu yfir það.
Frísklegt yfirbragð er á öllu í mælaborði.
Nóg pláss er í framsætum en stuðningur við bakið mætti
vera betri.
FORD Escape er heldur minni gerð af Ford-jeppa sem umboð-
ið, Brimborg, kannar nú hvort settur verður á markað hérlend-
is. Bíllinn var sýndur hér nýverið í tengslum við ráðstefnu Ford
og var talsvert um fyrirspurnir um bílinn sem Brimborgarmenn
telja merki um að hann eigi erindi hingað.
Escape er um það bil að koma á markað í Bandaríkjunum og
er væntanlegur tii Evrópu um áramót. Verði hann tekinn hing-
að sem Ameríku-útgáfa er hugsanlegt að hann verði kominn í
sölu hér fyrir áramót en vart fyrr en í febrúar ef hann verður úr
Evrópuútgáfunni sem telja verður líklegra.
Kruftmiklar vélar
Escape er snotur og látlaus bíll í útliti og er dæmigerður jeppi
af minni gerðinni. Til samanburðar má nefna að Ford Explorer
er 4,57 m langur og stóri jeppinn Expedition er 5,19 m langur.
Escape, sem er með sítengdu aldrifi, var kynntur hér með
tveimur vélastærðum, tveggja lítra og 130 hestafla vél og sex
strokka, þriggja lítra vél sem er 200 hestöfl. Er sú minni með
handskiptingu en stærri vélin með sjálfskiptingu og var tekið
nokkuð í þá útgáfu.
Escape er vel útbúinn bíll á alla kanta. Hann er með vökva- og
veltistýri, læsivarða hemla, býr yfir miklum rafdrifnum búnaði
og tveimur líknarbelgjum svo að nokkuð sé nefnt. Þessi dýrari
útgáfa var einnig með rafdrifinni sóllúgu og stokki í lofti með
lesljósum og geymsluhólfi.
Óll meðhöndlun á Escape og akstur eru auðvelt viðfangsefni
og þægilegt. Mælaborð er vel úr garði gert og fljótlegt er að átta
sig á öllum hlutum. Helsti gallinn er sá að gírstöngin er í stýrinu
en hún er í sjálfri sér liðug í meðförum. En hér er kannski
spurningin fyrst og fremst hverju ökumenn eru vanir.
I þéttbýlinu er bfllinn ofursnöggur og léttur enda ekki vandi
fyrir sex strokka og 200 hestafla vél að þrýsta 1.500 kg þungum
(léttum) bflnum áfram. Stýrið er létt og gott og hemlar kröftug-
ir. _
Á þjóðvegi er það sama uppi á teningnum, Escape fer létt
með að halda ferðahraða og á nóg eftir fyrir snöggan fram-
úrakstur. Hann liggur feiknavel og fer vel í holuraðir þannig að
ökumaður finnur sig talsvert öruggan í sessi.
Ekkl fróhrindandi verð
Áætlað verð á Escape er um 2,6 milljónir króna fyrir þann
með minni vélinni en 3,2 milljónir fyrir bflinn með V6-vélinni og
sjálfskiptingu. Þetta er ekki fráhrindandi verð, að minnsta kosti
ekki á þeim ódýrari, þegar skoðað er hversu mikill bfll er hér í
boði þótt hann sé ekki stórjeppi. Dýrari bfllinn er fullstór biti en
þess ber þó að gæta að þar er komin V6-vél, sjálfskipting og til
viðbótar nokkur búnaður sem ekki er í ódýrari bílnum, svo sem
sóllúgan, dráttarkúla og litað gler.
VOLVO hyggst færa verulega út
kvíamar á næstu misserum með
þremur nýjum bflum. Þar er um að
ræða fyrsta jeppa fyrirtækisins, lít-
inn fjölnotabfl og tveggja dyra sport-
bfl.
Jeppinn á að koma á markað á
fyrrihluta árs 2002 og er ráðgert að
ársframleiðslan verði um 50 þúsund
bílar. Bfllinn verður smíðaður á
grunni V70 XC og verður lúxusjeppi
sem á að velgja BMW X5 og
Mercedes-Benz M undir uggum.
Jeppinn er hannaður af Peter Horb-
ury. Hann er fimm dyra og með sömu
botnplötu og XC en með öflugra
fjöðrunarkerfi og sterkari gírkassa.
Þá mun C70 bfllinn ganga í endur-
nýjun lífdaga og þykir lfldegt að hann
verði tæknilega náskyldur næstu
kynslóð Ford Cougar, en eins og
kunnugt er á Ford nú meirihluta í
Volvo. Volvo mun einnig nýta sér
tækni úr Ford Focus til að smíða rót-
tækan fjölnotabfl í takt við Renault
Scenic 4x4 bflinn.
Volvo-jeppinn eins og teiknari sér hann íyrir sér.
MORGUNBLAÐIÐ
BILAR
SUNNUDAGUR 17. SEPTEMBER 2000 D 3
---------------------------*
TILBOÐ ÓSKAST
í Dodge Ram SLT 2500 4x4 árgerð ‘98 1/2
(24 ventla Cummins turbo diesel 5 gíra)
langur pallur (ekinn 12.500 mílur)
fæst skráð VSK bifreið,
Ford Explorer Eddie Bauer árgerð ‘93
og aðrar bifreiðar,
er verða sýndar að Grensásvegi 9 >
þriðjudaginn 19. september kl. 12-15.
Tilboðin verða opnuð á sama stað kl. 16
UMSÝSLUSTOFNUN VARNARMÁLA
SALA VARNARLIÐSEIGNA
Arctic
Trucks
kynnir nýjn
gerð nf l|ós-
um á jeppa
ARCTIC Trucks hefur hafið sölu á ljós-
um frá Ástralíu sem hafa verið prófuð við
íslenskar aðstæður og þykja lofa góðu.
Þessi nýju ljós eru til í stærðunum 240
mm og 170 mm. Það sem gerir þau frá-
brugðin öðrum ljósum er hversu öflugar
perur eru í þeim en notast er við perur
sem eru kallaðar Xenophot og einna helst
má líkja við perur sem notaðar eru í
slide-sýningarvélar og myndavélaljós.
Perurnar í nýju ljósunum eru 100W og
skila 108W eða 20% fleiri vöttum en
venjulegar 100W halogenperur sem
venjulega skila ekki meira en 86W.
Ein nýjung við þessi ljós er einnig að
þau má stilla úr punktgeisla yfir í dreifð-
an geisla á sama hátt og Mag-Light vasa-
ljósin frægu.
Glærar ljósahlífar eru á öllum ljósun-
um og eru þau vel varin fyrir steinkasti.
Öllum ljósunum fylgja einnig svartar hlíf-
ar. Á minni Ijósin má fá gular ljósahlífar
með skornum geisla sem henta mjög vel í
skafrenningi og þoku.
Nýju ljósin eru létt enda öll úr plasti
og geta því ekki ryðgað eða tærst.
Festing ljósanna er aftur af miðju per-
ustæðinu sem tryggir lágmarks hreyf-
ingu perunnar. í Ástralíu hafa þessi ljós
verið mikið notuð á stóra flutningabíla
með góðum árangri.
Hægt er að fá minni gerðina af ljósun-
um sem handljós sem stungið er í vind-
lingakveikjara
VÍSINDAMENN við Hai-vard-háskóla
hafa komist að þeirri niðurstöðu að út-
blástur frá bílum sem knúnir eru með
jarðgasi sé hættulegri en áður var talið.
í útblæstrinum kunni að leynast meira af
krabbameinsvaldandi örfínum sótögnum
en t.a.m. í dísilreyk.
Fullkominn lúxus í innréttingu.
Nýi G-jeppinn verður með afimestu dísilvél í fólksbil í heimi.
Stærsta dísil-
vél I farþegabíl
MERCEDES-BENZ segir að end-
urnýjaður G-jeppi fyrirtækisins
verði með aflmestu dísilvél sem
nokkru sinni hafi verið sett i fólks-
bíl. Dísilvélin er V8 með tveimur
forþjöppum og skilar 250 hestöfl-
um. Hún er byggð á dísilvélinni úr
S-bflnum og verður fáanleg í G-
jeppanum frá og með kynningu á
bflasýningunni í París í næsta
mánuði. Bíllinn er hins vegar með
öllu óbreyttur að utan og verður
jafnframt fáanlegur áfram með 3,2
lítra V6 og 5,0 lítra V8 bensínvél-
um. Allar breytingar á bílnum eru
í innanrýminu.
Nýtt mælaborð og áklæði, stýri
með fjölmörgum stjórnrofum fyrir
t.d. útvarp og geislaspilar*.
leiðsögukerfi og síma, verður í bom
en sjálfvirkur skynjari stjórnar
rúðuþurrkum, kveikir ljós á bíln-
um og stýrir stöðu baksýnisspeg-
ils. G-jeppinn verður boðinn með
fimm þrepa sjálfskiptingu með
kúplingslausri snertiskiptingu.
Fyrstu fólksbflarnir með tví-
brennivélum, þ.e. vélum sem
ganga jafnt fyrir metangasi og
bensíni, komu til landsins í sum-
ar og hafa verið teknir í notk-
un. Nú virðist sem notkun jarð-
gass sé hættulegri en áður var
talið.
Flest börn slas-
ast í aftursætum
ALLS urðu 468 slys á bömum 0-14
ára í fram- og aftursætum í bflum á
árunum 1995-1999. Flest urðu slysin
1995, alls 128, en fæst árið eftir, 81.
Mun fleiri börn slasast í aftursætum
bfla en framsætum. Alls slösuðust
339 börn í aftursætum bíla á þessu
tímabili en 129 í framsætum. Fyrstu
sjö mánuði ársins slösuðust samtals
55 börn í bflum hér á landi sam-
kvæmt bráðabirgðatölum frá Um-
ferðarráði, þar af 15 í framsætum og
40 í aftursætum. í langflestum til-
vikum er um h'tils háttar meiðsl að
ræða og samkvæmt upplýsingum frá
Umferðarráði virðist sem aðstand-
endur barna hugi almennt vel að ör-
yggi þeirra í bílum, jafnvel í mörgum
tilfellum betur en sínu eigin. Frá 1.
september 1998 skulu nýir barnabíl-
stólar vera viðurkenndir og E-
merktir. Barn þarf að hafa náð 140
sm hæð og vera a.m.k. 40 kg til þess
að mega sitja í sæti ef uppblásanleg-
ur öryggispúði er framan við það.
Fabia langbakur
SKODA ætlar að bjóða langbaks-
gerð af smábflnum Fabia frá og
með næsta vori. Ráðgert er að bíll-
inn verði frumsýndur á bílasýning-
unni í París í næsta mánuði.
Freelander
með 175 hestaf la vél I október
LAND Rover Freelander er væntanlegur hingað til
lands í október með 2,5 lítra V6 vél og fimm þrepa
sjálfskiptingu með handskiptimöguleika, steptronic.
Einnig stendur til að bjóða bílinn með nýrri 2ja
lítra forþjöppudísilvél frá BMW sem er afl- og tog-
meiri en núverandi dísilvél.
Land Rover Freelander kom á markað 1997 og
er mest seldi jepplingurinn í Evrópu. Þetta er
fyrsta breytingin sem gerð er á bílnum. V6 vélin
skilar 175 hestöflum við 6.500 snúninga á mínútu,
eða nærri 50% meira afli og togi en núverandi 1,8
lítra, fjögurra strokka vél. Steptronic-skiptingin
verður staðalbúnaður með V6-vélinni. Dísilvélin er
af nýjustu gerð, svonefnd common-rail, sem skilar
110 hestöflum við 4.000 snúninga á mínútu, eða 15%
fleiri hestöflum og 24%
meira togi.
Karl Óskarsson, sölustjóri hjá B&L, umboðsaðila
Land Rover, segir að bfllinn muni kosta 3.190.000
krónur.
.>■
PR789
Land Rover Freelander kemur með mun öfiugri vél í næsta mánuði.