Morgunblaðið - 21.09.2000, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 21.09.2000, Blaðsíða 2
p ST rnc <T-?rcíiik/r-3'jx|^p ro'fpintfrmwrv 2 B FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2000 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ Ólafur Már fjór- um undir ÓLAFUR Már Sigurðsson, kylfíngur úr Keili, hefur leikið vel í forkeppni fyrir úrfökumótið á evrdpsku mótaröðina í golfi. Fyrsta hringinn lék hann á fjórum höggum undir pari og í gær var hann á pari og er í 11 14. sæti á 140 höggum. Birgir Leifur Hafþórsson úr Leyni er einnig meðal keppenda, hann lék á tveim- ur höggum yfir pari fyrsta daginn en í gær var hann á einu undir og er á 145 högg- um í 39.-45. sæti. Þetta er fyrsta stigið af þremur í átt að evrópsku mótaröðinni, þar sem um 500 kylfingar leika á fimm völlum víða í Evrópu. Tuttugu kylfingar komast áfram af hveijum velii og komast þeir á annað stig sem leikið verður á Spáni um mánaðamótin október/ nóvember. Síðasta úrtöku- mótið verður síðan haldið í lok nóvember og þeir sem standa sig best þar öðlast rétt til að leika á evrópsku mótaröðinni. Birgir Leifur og Ólafur Már leika á Five Lakes- vellinum í Bretlandi en hann er 6.143 metra langur, par 72. Þar eru 105 keppendur sem reyna með sér. _ Þetta er í fyrsta sinn sem Ólafur Már tekur þátt í slíku úrtökumóti og er því árang- ur hans, það sem af er móts, mjög góður, sérstaklega er gott að leika á fjórum högg- um undir pari. Ólafur Már var í 2.-4. sæti eftir fyrsta hring og Birgir Leifur í 50.- 61. sæti. Svfinn Johan Fors- man, Darren Proser frá Englandi og Oscar Sema frá Mexíkó eru í efsta sæti á 138 höggum, eða sex undir pari. Bæjar- stjórar bregða á leik Gísli Gíslason, bæjarstjóri á Akra- nesi, og kollegi hans í Vest- mannaeyjum, Guðjón Hjörleifsson, hafa skorað hvor á annan í tilefni bik- arúrslitaleiks ÍA og ÍBV í knatt- spyrnu sem fram fer á sunnudaginn. Bæjarstjóramir hafa ákveðið að sá sem verður í tapliðinu þarf að vera búinn að lósa sig við 7% af líkams- þyngd sinni fyrir næstu áramót. Mikill áhugi fyrir leiknum Mikill áhugi er fyrir bikarúrslita- leiknum, að sögn forráðamanna ÍA og ÍBV, og er þegar hafin forsala á leik- inn. A Akranesi er forsalan á báðum Oh's-stöðvunum og í Eyjum er forsala í Esso-stöðinni við Básaskersbryggju og í skýlinu við Friðarhöfn. Þá bjóða Heijólfur og Flugfélag íslands upp á pakkaferðir á leikinn. í Reykjavfk er forsala í Ohs-Klöpp við Skúlagötu og á Essó-stöðinni við Ártúnshöfða. Miðaverð á leikinn er 1.500 krónur fyrir fullorðna en miðinn kostar 1.300 krónur í forsölu. Böm 11-16 ára greiða 500 kr. og frítt er fyrir böm 10 áraogyngri. Opin æfing hjá báðum liðum Bæði lið ætla að vera með opna æfingu fyrir stuðningsmenn sína. Skagamenn verða með sína opnu æf- ingu á Akranesvelli á laugardag klukkan 13.30 og Eyjamenn verða með sína á Hásteinsvelli í Eyjum í dag klukkan 17.30. Renna blint í sjóinn jt Islenska landsliðið í kvenna- knattspyrnu leikur í dag gegn Rúmeníu ytra. Leikurinn er einn tveggja og þarf ísland að sigra til að halda sæti sínu í efsta styrk- leikaflokki Evrópu. íslenska liðið hélt utan á þriðjudag og æfði í gær við ágætis aðstæður í Camp- ina á vellinum sem leikurinn fer fram á en hann hefst kl. 13 að ís- lenskum tíma. Logi Ólafsson landsliðsþjálfari veit lítið um rúmenska liðið og rennir því blint í sjóinn í leiknum. „Ég veit bara að þær voru efstar í sínum riðli. Þær byrjuðu illa en enduðu vel,“ sagði Logi en Rúm- enar unnu sinn riðil í næstefsta styrkleikaflokki og áunnu sér þar með rétt til að leika gegn íslandi. „Ég horfði á þær á æfingu í gær og ég held að þær séu með svipað lið og Úkraína. Fyrst og fremst er markmiðið að ná góðum úrslit- um.Við munum fara varlega í sakirnar því við vitum lítið um þær en lágmarkið er að fara út af vellinum með jafntefli í fartesk- inu,“ sagði Logi sem jafnframt valdi byrjunarliðið í gær. I markinu stendur Þóra B. Helgadóttir. í vörninni eru G_uð- laug Jónsdóttir, Helga Ósk Hannesdóttir, Guðrún S. Gunn- arsdóttir, Iris Sæmundsdóttir og Rósa Júlía Steinþórsdóttir. Miðj- una skipa Katrín Jónsdóttir, Margrét Ólafsdóttir og Ásthildur Helgadóttir. í framlínunni verða Olga Færseth og Rakel Ög- mundsdóttir. Varamenn eru Mar- ía B. Ágústsdóttir, Erna B. Sig- urðardóttir, Ásgerður Ingibergs- dóttir og Rakel Logadóttir. Liðið mun leika með fimm varnarmenn er Rúmenar hafa knöttinn en breyta yfir í leikkerfið 3-5-2 er það sækir að Rúmenum. Morgunblaðið/Kristinn ■ Framarar lögðu Hauka FRAM varð í gærkvöldi meistari meistaranna í handknattleik eftir að liðið lagði Hauka að velli, 24:20, í hinu nýja íþróttahúsi Hauka. Liðin léku til úrslita í fyrra og þar höfðu Haukar betur en Fram varð bikarmeistari og í gærkvöldi voru það bikarmeistararnir sem höfðu betur. Haukar voru einu marki yfir í leik- hléi en eftir hlé bættu Framarar við, Iéku góða vörn og að baki henni var Sebastían Alexandersson í ham. Jón Karl Bjömsson gerði fyrsta opin- bera markið í nýja húsinu og sést hér fagna því. Stoke lagði Charlton STOKE sigraði óvænt úi-vals- dcildarliðið Charlton, 2:1, í fyrri viðureign liðanna í 2. umferð ensku deildarbikar- keppninnar í knattspymu í gærkvöld. Eftir að Finninn Jonatan Johansson hafði náð for- ystunni fyrir Charlton á 41. mínútu jafnaði Stefán Þórð- arson metin fyrir Stoke með marki úr vítaspyrnu á loka- mínútu fyrri hálfleiks en Stefán var óheppinn að skora ekki tvö mörk til viðbótar í leiknum. Sigurmark Stoke kom á 86. mínútu og var þar að verki varamaðurinn Marc Goodfellow. Brynjar Björn Gunnars- son, Bjarni Guðjónsson og Stefán Þórðarson voru allir í byijunarliði Stoke en Bjarna og Stefáni var skipt út af á 76. mínútu. Brynjar Bjöm fékk 8 í einkunn fyrir frammistöðu sína, Stefán 7 og Bjami 6. Blikar vilja halda Jörundi MiKIÐ er um að vera hjá liðum í kvennaknattspyrnu þrátt fyrir að leiktímabilinu sé lokið. Flest lið eru strax farin að spá í næsta tímabil _ Valur og Stjarnan eru einu liðin sem hafa fastsett sér þjálfara, en eins og fram hefur komið í Morgunblaðinu var Ásgeir Heiðar Pálsson ráðinn þjálfari Valsstúlkna í stað Ólafs Þórs Guð- björnssonar. Hjá Stjörnunní var Auður Skúladóttir endurráðin. jr Islands- og bikarmeistarar Breiðabliks bíða svars frá Jör- undi Áka Sveinssyni, um hvort hann muni taka að Iris Björk sér að Wálfa liðið Eysteinsdóttir áfram. Jörundur skrifar hélt utan til Rúm- eníu með kvenna- landsliði íslands á þriðjudag og er hann þar í starfi aðstoðarþjálfara þar sem Guðmundur Hreiðarsson aðstoðarþjálfari er í fríi. „Jörund- ur er besti kosturinn og við erum að reyna að ráða hann. Hann er með tilboð undir höndum frá okk- ur og verður að svara þegar hann kemur heim,“ sagði Halldór Örn Þorsteinsson, formaður knatt- spyrnudeildar Breiðabliks. IBV hefur enn ekki ráðið þjálf- ara en vonast til að Heimir Hall- grímsson sjái sér fært um að vera áfram með liðið. Margrét Ákadótt- ir þjálfaði Skagastúlkur og endur- skoða á samning hennar á næstu dögum. Jónas Leifur ekki áfram með Þór/KA Hjá Þór/KA verður Jónas Leifur Sigursteinsson ekki áfram við stjórnvölinn hjá liðinu en hann mun þó starfa áfram fyrir félagið. Nýliðar Grindavíkur eru enn sem komið er þjálfaralausar en Pálmi Ingólfsson sem kom liðinu upp í í sumar er hættur störfum. Magnús Pálsson, þjálfari KR, verður að öllum líkindum áfram þjálfari liðsins. í fyrra gerði Magnús tveggja ára samning sem átti að endurskoða í lok þessa tímabils. „Það stefnir allt í að ég verði áfram með liðið _ það er allt í skoðun,“ sagði Magnús í gær. KR- stúlkur, sem voru næstbestar bæði í bikar- og Islandsmóti, vilja reyna að stjrkja hópinn fyrir næstkom- andi tímabil. „Við erum að reyna að bæta við okkur mannskap,“ sagði Magnús jafnframt. Ekki hafa neinir samningar náðst að svo stöddu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.