Morgunblaðið - 03.10.2000, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 03.10.2000, Blaðsíða 1
+ . B L A Ð ALLf 3 A L A N D 5 5 M A N N A 1— - : -•--- : • — —1 mmm* K o n u r Fitness ÖU helstu vörumerkin á einum staö. 2000 U ÞRIÐJUDAGUR 3. OKTOBER BLAÐ INTER ■ ■ i *- ■ INTER Strömsgodset vill fá Guðmund Steinarsson GUÐMUNDUR Stein- arsson, framherji Kefl- vikinga í knattspyrnu, var mjög' ánægður með dvöl sína hjá norska liðinu Strömsgodset en hann kom heim fyrir helgina eftir vikudvöl hjá liðinu. „Þeir tilkynntu mér að þeir ætluðu að reyna að ná í mig og mundu setja sig í sam- band við Keflavík. Mér leist mjög vel á klúbb- inn. Æfingaaðstaðan er mjög fín, þjálfararnir góðir og mér fannst vera mikill hugur í félag- inu,“ sagði Guðmundur í sam- tali við Morgunblaðið. Guðmundur, sem er 21 árs gamall, sló í gegn með Keflvík- ingum í sumar og skoraði 14 mörk, jafnmörg og Andri Sigþórsson en Andri fékk gullskó- inn þar sem hann lék færri leiki. Að sögn Rúnars Amarsonar for- manns knattspyrnu- deildar Keflavíkur þá óskuðu forráðamenn Strömsgodset eftir því að fá ýmsar upp- lýsingar um Guð- mund og hann reikn- aði með því að heyra frá félaginu fljótlega varðandi hugsanleg kaup á Guðmundi en hann á tvö ár eftir af samningi sínum við Suðurnesjaliðið. Stefán Gíslason og Unnar Sigurðsson leika með Ströms- godset, sem tryggði sér sæti 1 úrvalsdeildinni um helgina. ALLSPORT Eiður Smári opnaði marka- reikning sinn á „Brúnni“ EIÐUR Smári Guðjohnsen kom heldur betur, sá og sigraði er Chelsea lagði Liverpool að velli á Stamford Bridge á sunnudag, 3:0. Hann lagði upp eitt mark og skoraði síðan sjálfur þriðja markið. Eiður Smári fékk mikið hrós fyrir leik sinn og í nokkrum blöðum í Englandi var hann valinn maður leiksins. „Þetta var frábær dagur fyrir Eið. Hann barðist í hveiju einasta einvígi, lék mjög vel og skoraði sitt fyrsta mark fyrir liðið,“ sagði Ranieri. Hér á myndinni fyrir ofan er Eiður Smári búinn að leika á Sander West- erveld, markvörð Liverpool - og sendir knöttinn í netið. KR með Veigar Pál í sigtinu VEIGAR Páll Gunnarsson knatt- spyrnumaður úr Stjörnunni er einn þeirra leikmanna sem íslandsmeistarar KR-inga hafa áhuga á að fá í sínar raðir fyrir næsta tímabil samkvæmt heimild- um Morgunblaðsins. KR-ingar vilja fá Veigar Pál til að fylla skarð Andra Sigþórssonar en Andri er á leið til austurríska félagsins Salz- burg eins og fram hefur komið. Veigar Páll kom heim í síðustu viku eftir 10 daga dvöl hjá Stoke. Hann stóð sig vel hjá íslendinga- liðinu og fékk góða dóma fyrir frammistöðu sína með varaliðinu. Stoke hefur boðið Veigari að koma aftur og þá er hann með boð frá norska liðinu Strömsgodset að koma út og æfa með liðinu en það tryggði sér um helgina sæti í úr- valsdeildinni að ári. INTER SPORT INTER SIDNEY-BRÉF: LEIKARNIR HENNAR VÖLU / B8 Pín frístund - Okkar fag Bíldshöfða • 110 Reykjavík • 510 8020 • www.intersport.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.