Morgunblaðið - 03.10.2000, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 3. OKTÓBER 2000 C 5
KÖRFUKNATTLEIKUR
Nafn og númer Örlygs |
upp á vegg í Njarðvík |
TEKIN hefur verið upp sú nýbreytni hér á landi af hálfu
körfuknattleiksdeildar Njarðvíkur að heiðra leikmenn félags-
ins með því að hefja nöfn þeirra og númer upp á vegg í
íþróttahúsinu í bænum, heimavelli margfaldra íslands- og bik- •!
armeistara Njarðvíkur. Fyrir leik heimamanna og ÍR á sunnu- É
dagskvöld var Örlygur Aron Sturluson heiðraður með þessum i
hætti en hann lést af slysförum í janúar síðastliðnum. Órlygur j.
var lykilmaður í liði Njarðvíkur, leikmaður íslenska landsliðs- i
ins og einn alefnilegasti körfuknattleiksmaður þjóðarinnar
þegar hann lést.
Morgunblaðið/Kristinn
Jón Arnar Ingvarsson rennir sér framhjá Óla Barðdal (11) og Svavari Pálssyni, varnarmönnum
Hamars, og skorar. Haukar unnu Hvergerðingana örugglega með 99 stigum gegn 60 í fyrsta leik
sínum álslandsmótinu.
HAUKAR léku sinn fyrsta leik á íslandsmótinu í körfuknattleik gegn
liði Hamars frá Hveragerði á sunnudag og er skemmst frá því að
segja að yfirburðir Hafnarfjarðarliðsins voru miklir og lokatölur
leiksins urðu 99:60. Allir leikmenn Hauka skoruðu í leiknum og þar
fór Bragi Magnússon fremstur í flokki með 18 stig á 19 mínútum, en
lærisveinar Péturs Ingvarssonar hittu illa úr skotum sínum og áttu
vægast sagt slakan dag. Hamar vann KFÍ með 33 stiga mun í fyrstu
umferð og miðað við það sem Hamarsliðið sýndi gegn Haukum er
Ijóst að verulegur munur er á getu liðanna í úrvalsdeildinni.
Haukarnir gáfu tóninn strax í
upphafi og skoruðu sjö íyrstu
stigin og eftir átta mínútna leik
hafði liðið náð 11
stiga forystu, 20:9. Á
Sigurður Elvar þeim tíma fengu þeir
skrilarSS°n Marel Guðlaugsson
og Bragi Magnússon
sína þriðju villu og komu ekki við
sögu fyrr en í seinni hálfleik. Hver-
gerðingar hitttu aðeins úr fjórum
skotum í sautján tilraunum í fyrsta
leikhluta og stóru leikmennirnir í
liðinu náðu ekki að finna leið
framhjá Eyjólfi Jónssyni, sem varði
alls 5 skot í leiknum. Jón Arnar
Ingvarsson var duglegur að keyra
upp að körfu Hamarsmanna í fyrri
hálfleik og skoraði Jón öll stigin sín
12 í fyrri hálfleik.
I byrjun seinni hálfleiks minnk-
aði forskot Hauka í 9 stig og Chris
Dade virtist líklegur til að hrökkva
í gang en Bragi Magnússon slökkti
í þeim vonum með tveimur þriggja
stiga körfum í röð auk þess að
skora og fá vítaskot að auki og
munurinn var 22 stig í lok þriðja
leikhluta eftir að Davíð Ásgrímsson
skoraði þriggja stiga körfu í þann
mund sem flautan gall. Bandaríkja-
maðurinn í liði Hauka, Riek
Mickens, átti ágætan leik og hann
gladdi augu áhorfenda þegar hann
tróð boltanum af miklu afli í lok
leiksins eftir sendingu Lýðs Vignis-
sonar. Haukum er spáð 5. sæti
deildarkeppninnar og Hvergerðing-
um því tíunda og munurinn á liðun-
um á sunnudaginn var mikill. Ham-
arsliðið náði ekki að nýta sér
hæðina gegn frekar lágvöxnu liði
Hauka og aðeins þeir Pétur
Ingvarsson og Chris Dade létu að
sér kveða í sókninni. Ivar Ásgríms-
son gat leyft sér að hvíla lykilmenn
stóran hluta leiksins og við fyrstu
sýn eru margir í liðinu sem geta
skorað mikið af stigum; Mickens,
Bragi, Lýður og við bætist síðan
Guðmundur Bragason er fram líða
stundir.
„Það kom mér þægilega á óvart
hve mikil breidd er í Haukaliðinu,"
sagði Ivar Ásgrímsson, þjálfari
Hauka. „Erlendi leikmaðurinn okk-
ar lék vel fyrir liðið og þannig verð-
ur það líka að vera ef árangur á að
nást. Fyrsti leikur íslandsmótsins
er alltaf erfiður þar sem spennustig
leikmanna er oft hærra en vana-
lega. Bragi kláraði þetta í seinni
um sérstaklega. Ótímabær skot (1;
óðagot einkenndu sóknarleik þeirra. !
Njarðvíkurliðið náði að rétta úi'
kútnum með gámalkunnum hættji;
svæðisvörn af gerðinni l-2-l-l. jí
kjölfar hennar fengu þeir hraðaupp
hlaup sem þeir nýttu eins og þeiéi
einum er lagið. Þar vai- Logi Gunn-
arsson fremstur í flokki. Þar er eld-
fljótur drengur á ferð sem gleðqr
augað með stökkkrafti sínum og
loftfimleikum. Hann var þó oft helf-
ur bráður og var helst til skotglaður.
En pressuvörn Njarðvíkurliðsir|s
og aukinn frískleiki slógu ekki gesj,- ;
ina út af laginu. Þeir aðlöguðuét
fljótt og voru nær ávallt ski-efi 'á
undan. Þetta gerðu þeii- með lykil-
menn á varamannabekknum.
Þegar skammt var eftir af þriðja
leikhluta fékk Holmes fjórðu villu
sína. Jón Örn Guðmundsson, þjálfari
ÍR, brá á það ráð að hafa hann |
áfram innan vallar en skipti yfir í j
svæðisvörn til að minnka hættuna á j
að hann fengi eina villu enn.
Þá kom til kasta Ragnars Ragn-
arssonar, bróðurs Friðriks, annars ;
þjálfara liðsins. Hann gerði þá þrjár !
þriggja stiga körfur með skömmu i
millibili og kom heimamönnum yfir, ;
77:74. Fram að þessu hafði þriggja |
stiga skotnýting Njarðvíkur verið 1
fjarri því sem menn eiga að venjast j
á þessum slóðum.
Á hinum enda vallarins hélt Eirík-
ur liði sínu á floti en hann fékk
fimmtu villu sína þegar tvær og hálf
mínúta lifði leiks og staðan 91:á8
fyrir Njarðvík. Nær komust Breið- ,
hyltingar ekki en lokatölumar, i
102:95, bera vott um stærri sigijr
Njarðvíkur en raun varð á.
En það er aðalsmerki meistara- !
liða að sigra, ýmist með góðum leik,
sæmilegum eða jafnvel slæmum.
Njarðvíkingar sýndu á sér allar hlið-
ar á sunnudagskvöld og segir mér
hugur að slæmu köflunum eigi eftir
að fækka hægt og bítandi í vetur.
áblað
NJARÐVÍKINGAR unnu fyrsta sigur sinn á nýhöfnu íslandsmóti á
sunnudagskvöld er þeir lögðu nýliða ÍR á heimavelli sínum suður
með sjó, 102:95, í bráðskemmtilegum og fjörugum leik. Þetta var j
jafnframt fyrsti sigur smiðanna tveggja, Friðriks Ragnarssonar og j
Teits Örlygssonar í hlutverki þjálfara í deildarkeppninni. Þeir mega
vel við una því lið þeirra átti lengi vel á brattann að sækja gegn
Breiðhyltingum sem tefla fram gerbreyttu liði frá því í fyrra er þeir j
unnu sér þátttökurétt í efstu deild. j
Lið ÍR lætur ekki að sér hæða. í
fararbroddi eru fjórir menn
sem léku ekki með liðinu í fyrra.
Þeir eru Cedrick
Holmes, Eiríkur Ön-
Rögnvaldsson undarson, Halldór
skrifar Ki'istmannsson og
Hreggviður Magn-
ússon. Þrír síðasttöldu leikmennirn-
ir hafa þó allir leikið undir merkjum
ÍR áður.
Hin margvíslegu vopn. sem þessir
menn færa ÍR-liðinu, voru áberandi
í „ljónagryfjunni“ á sunnudags-
kvöld. Eftir jafnan fyrsta leikhluta
sigu gestirnir fram úr. Holmes var
sterkur undir körfunni, Eiríkur út-
sjónarsamur sem leikstjórnandi,
Halldór ógnandi íyrir utan og
Hreggviður lipur og snar í snúning-
um. Þeim til aðstoðar voru ungh- og
dugmiklir piltar sem virtust
óhræddir við að láta til sín taka.
En Njarðvíkingar eru með betra
lið. Það er vitað. Slæmu kaflarnir
þeirra eru betri en slæmir kaflar IR-
liðsins. Aftur á móti virtust huglægir
erfiðleikar plaga heimamenn, á köfl-
hálfleik, Eyjólfur var frábær í vörn-
inni og ungu strákarnir bættust síð-
an við í fjórða leikhluta,“ sagði ívar.
„Haukarnir voru góðir og við
vorum lélegir, einföld skýring,“
sagði Pétur Ingvarsson, þjálfari
Hamars. „Við höfðum góða tilfinn-
ingu fyrir leikinn að okkur tækist
að sigra Haukana en það sem við
lögðum upp með gekk ekki eftir þar
sem við hittum afleitlega í leiknum.
Við þurfum að eiga toppleiki ef við
ætlum okkur einhverja hluti í þess-
ari deild,“ sagði Pétur.
Steve Ryan lét sig
hverfa frá ísafirði
ÁSTRALSKI leikmaðurinn Steve
Ryan sem ísfirðingar höfðu feng-
ið til liðsins lét sig hverfa með
flugvél frá fsafirði eftir aðeins
þriggja daga dvöl á íslandi án
þess að láta nokkum mann vita.
„Við vomm mjög ánægðir með
Ryan og hann átti að leika sinn
fyrsta leik með félaginu 13. októ-
ber, “ sagði Karl Jónsson í sam-
tali við Morgunblaðið í gær. „Fé-
lagið situr aðeins eftir með
útgjöld sem fylgja því að fá leik-
manninn til landsins og þessu
máli verður fylgt eftir af okkar
hálfu. Okkur vantar leikmann
sem er svipaður og Ryan eða yfir
tveir metrar á hæð og við emm
að lita í kringum okkur en það
getur tekið 6-8 vikur að fá nýjan
leikmann," sagði Karl.
Liðsheild Hauka sterk