Morgunblaðið - 06.10.2000, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 6. OKTÓBER 2000 C 6 ;
BÍÓBLAÐiÐ
Al(;c Baldwin:
Arásin á Porluhófn,
4
metsölubókinni, en þar á bæ eru menn
óhressir út í Steven Spielberg, sem
hætti við leikstjórnina. Fengu Chris
Columbus, höfund Home Alone-
myndanna til að hlaupa í skarðið.
DRIVEN
Sylvester Stallone er ekki dauður
úr öllum æðum, fer með aðalhlutverk-
ið í næsta spennutrylli Rennys Harlin.
Myndin gerist við og á kappasksturs-
brautinni. Ungur og efnilegur ökuþór
(Kip Pardue), brotnar undir álagi á
miðju keppnistímabili, þá er náð í
gamla jaxlinn, hver skyldi það vera
annar en ítalski folinn? Burt Reynolds
og Robert Sean Leonard koma við
sögu í minni hlutverkum. Stallone er
einnig skrifaður fyrir handritinu, svo
við getum átt von á hasar með
Rockybragði.
CÓLLATERAL DAMAGE
Önnur hálfhöktandi átakamynda-
hetja gærdagsins, Amold
Schwarzenegger, fer með aðalhlut-
verkið í nýjustu mynd Andrew Davis
(The Fugitivé). Efnið er klisjukennt
en gæti virkað; Vöðvafjallið leikur
stríðshetju sem reynir að ná fram
hefndum á hópi hryðjuverkamanna
sem drápu konu hans og barn.
RATRACE
DreamWorks stendur á bak við nýj-
ustu mynd Jerrys Zucker, sem
skemmt hefur bíógestum með urmul
skopmynda í gegnum árin. Nú hendir
hann gaman að gróðabralli manna í
fjárhættuspilaborginni Las Vegas og
leikhópurinn skemmtileg blanda
bandarískra og breskra gamanleikara
á borð við John Cleese, Whoopi Gold-
berg, Jon Lovitz, Cuba Gooding Jr.,
og Rowan Atkinson
THE MEXICAN
Kunnur auglýsingamyndaleik-
stjóri, Gore Verbinski, stýrir Brad
Pitt og Juliu Roberts, leikurunum vin-
sælu, í stórkarlalegri gamanmynd um
bófa (Pitt) sem hyggst flytja með sér
illræmda byssu sem á hvílir bölvun,
norður yfir landamærin. Kærastan
(Roberts) vill að hann losi sig við hólk-
inn og taki upp venjur hins almenna
borgara. Kathy Bates kemur við sögu.
TOMB RAIDER
Paramount væntir mikils af tölvu-
leikjaævintýri sem leikstýrt er af
Simon West (Con Air), einum þeim
efnilegasta í spennuafþreyingargeir-
anum. Engin önnur an Engilfríð Jóns-
dóttir (Angelina Jolie), fer með
aðalhlutverk Löru Croft, sem er harla
óvenjulegt. Yfirieitt eru það menn
með eftirnafni einsog Pitt og Stallone,
sem sitja að aksjónkörlunum. Myndin
verður tekin að hluta til hérlendis,
eins og fram kom í BÍÓBLAÐINU.
THESCORE
Virkilega áhugavert leikaraval ein-
kennir þessa, hvað sem öðru líður. Það
verður vonandi ánægjulegt að sjá þrjá
af bestu leikurum sinnar kynslóðar;
Marlon Brando, Robert De Niro og
Edward Norton, hlið við hlið. Myndin
er glæpadrama um roskinn innbrots-
þjóf sem er sestur í helgan stein og
farin að njóta illa fenginna ávaxta iðju
sinnar þegar nýliði í greininni kúgar
hann til að leggja sér lið við síðasta
verkefnið. Frank Oz (Bowfinger),
leikstýrir.
CROCODILE DUNDEEIN LA
Hefur einhver áhuga á að sjá Mick
Dundee (Paul Hogan) í útistöðum við
trantaralýð í Los Angeles? Hæpið.
Karlinn hefur ekki komist lönd né
strönd síðan hann sló eftirminnilega í
gegn fyrir hálfum öðrum áratug í
dæmigerðri einnar myndar velgengni.
ALONG CAMEA SPIDER
Lee Tamahori gerði hina mögnuðu
Once Were Warriors og flutti til
Hollywood. Þar hefur lánið látið hann
í friði, þótt honum tækist vel upp í The
Edge. Hér gæti hann komist aftur á
beinu brautina, leikaravalið og sagan
lofa góðu. Morgan Freeman leikur
mann sem verður að hafa uppá tveim-
ur bömum sem lent hafa í höndum
óþekkts raðmorðingja. Monica Potter,
Michael Wincott og Penelope Ann
Miller fara með minni hlutverk.
WINDTALKERS Nýjasta mynd John
Woo lofar góðu. Nicolas Cage og
Noah Emmerich leika vopnabræður
úr síðari heimsstyrjöld sem eru
fengnir til að vernda Navajo-indíána
sem búa yfir afdrifaríku leyndarmáli.
WHAT’S THE WORST THING THAT
COULD HAPPEN?
Danny De Vito og hinn bráðefnilegi
og upptekni William Fichtner fara
með aðalhlutverkin í glæpagríni um
innbrotsþjóf sem er rændur
lukkugripnum sínum. Reynir að ræna
honum aftur. Martin Lawrence kem-
ur einnig við sögu.
ROLLERBALL
Endurgerðir geta verið góður kost-
ur og þeir sem muna hasarinn Roller-
ball, vita að sagan er góð og myndin
frá 75 var það líka. James Caan lék
íþróttamann í dauðasporti framtíðar,
þar sem sá sem lifði af var sigurvega-
rinn. Kata Dobó, Chris Kiein og LL
Cool Jay ásamt franska lukkutröllinu
Jean Reno, fara með aðalhlutverkin í
árgerð 2001, undir leikstjóm Johns
McTiernan.
HANNIBAL
Hér er vitaskuld átt við mannætuna
sem Anthony Hopkins gerði ódauð-
lega í margfaldri Óskarsverðlauna-
mynd fyrir allnokkrum árum. Hopk-
ins endurtekur hlutverkið í fram-
haldsmyndinni en Julianne Moore er
komin í stað Jodie Foster. Myndina
gera MGM og Universal í sameiningu
og em vongóðir um metaðsókn. Gary
Oldman, og gamli, góði Linu Wert-
miiller leikarinn Giancarlo Gianini,
fara með aukahlutverk undir leiðsögn
Ridleys Scott.
HART’S WAR
Universal stendur eitt að virkilega
lofandi mynd um laganema (Edward
Norton), sem kvaddur er í herinn á
tímum síðari heimsstyrjaldarinnar.
Tekinn til fanga af nasistum og
neyddur til að veija samlanda og
-fanga, sem er saklaus gmnaður um
morð. Gregory Hoblit (Prímal Fear)
leikstýrir. Öskarsverðlaunalykt í loft-
inu.
OUTLAWS
Nútímavestraunnendur geta átt
von á góðu því hér býr að baki einvala-
lið. Barry Levinson leistýrir mynd um
tvo bankaræningja sem verða báðir
ástfangnir af stúlku sem þeir taka í
gíslingu. Engir aðrir en Billy Bob
Thomton og Bmce Willis leika raufai--
ana og Cate Blanchett stúlkukindina.
Blanchett víðsfjarri Elizabeth I., en
gerii- hlutverkinu örugglega óaðfinn-
anleg skil, líkt og meðleikararnir.
BEHIND ENEMY LINES
Stríðsmyndir verða dálítið áberandi
að ári, þ.á m. þessi Fox-mynd sem seg- -
ir sögu tveggja atvinnuhermanna sem
era að reyna að flýja af fjandsamlegu
yfirráðasvæði óvinarins. Annar hai'ð-
soðinn, gamalreyndur nagli í land-
gönguliði flotans (Gene Hackman),
hinn ungur og lítt reyndur flugmaður
(Owen Wilson). Lofar góðu, ekki satt?
FROMHELL
Hughes-bræðurnir, Albert og Allen,
em taldir í hópi efnilegustu kvik-
myndagerðarmanna samtímans.
Verður fróðlegt að sjá hvernig þessum
fyrrum íbúum South Central fátækt-
arhverfisins og smiðum blökkumanna-
mynda, vegnar í átökum við jafnhá-
breskt fyrirbrigði og Jack the Ripper,
Scotland Yard og sorahverfi Lundúna
á 19. öld. Þeir era með ákjósanlegasta
mannval í öllum aðalhlutverkum:K
Johnny Depp, Katrinu Cartlidge,
Robbie Coltrane, Heather Graham og
Ian Holm. Óskarar, einn eða fleiri,
ekki ólíklegur afrakstur.
THE VISITOR
Margir hafa beðið endurgerðar
Planet of the Apes, einnar bestu vís-
indaskáldsögukvikmyndar sögunnar
með óþreyju því nokkur ár era liðin
síðan Fox tilkynnti að von væri á
henni. James Cameron og Schwarzen-
egger era aðeins tvö nöfn af mörgum
sem komið hafa við sögu. Nú eru tökur
hinsvegar hafnar undir nýju nafni,
með Tim Burton yndir stýri; Mark
Wahlberg, Helenu Bonham Carter og
Michael Clarke Duncan í aðalhlut-
verkum. Ég spái því að hún verði ein *
af toppmyndum ársins 2001.
A.l.
Það er við hæfi að ljúka þessari
framtíðarsýn á myndinni sem átti að
verða næsta verkefni meistara Kubr-
icks. A.I. stendur fyrir gervigreind og
gerist í náinni framtíð. Steven Spiel-
berg og fyrirtæki hans, DreamWorks,
tóku verkefnið yfir þegar Kubrick féll
frá. Spielberg var lengi að slípa til
handritið eftir sínu höfði áður en tökur
hófust og búið er að velja þann ágæta
leikara Jude Law í aðalhlutverkið.
Aðrir era minna þekktir. Myndin erJ
ein sú metnaðaríyllsta sem nú er í
framleiðslu og næsta víst að Spielberg
verða ekki á mörg mistök, hann hefur
átt erfitt með að sanna sig fyrir elít-
unni og nú má ekkert út af bregða.
Hann getur þetta.
Af þessaii upptalningu má Ijóst vera
að kvikmyndahúsagestum þarf ekki að
leiðast á því herrans ári 2001, sem löng- '•
um var svo óralangt úti í buskanum.