Morgunblaðið - 13.10.2000, Page 1
/ /
í minningu bandarískrar hryllingsbúðar
Karloff, Price
ComMM
ITILEFNI af uppgangi hryllingsmynda að undanförnu fjallaði Sæ-
björn Valdimarsson nýverið um einn sögufrægasta framleiðanda slíkra
mynda gegnum tíðina, breska Hammer-félagið. Handan Atlantshafsins
á svipuðum tíma starfaði önnur gömul hryllingsbúð. Það var American
International Pictures, sem státaði einkum af myndum B-mynda-
kóngsins Rogers Corman, gjarnan eftir verkum Edgars Allan Poes, og
fóru einatt Vincent Price og Boris Karloff með aðal-
hlutverkin. Sæbjörn minnist gamalla drauga frá AIP.
13. OKTÓBER 2000
ÁFÖSTUDÖGUM
Síðasti kúrekinn féll fyrir eigin hendi
Sélsotttr RicHanls
Fwftiswofths
EIN af bestu myndum Kvikmyndahátíðar í Reykjavík er The Straight
Story eftir David Lynch, einkar falleg saga af hinstu för aldraðs manns
sem deyja vill sáttur við guð og menn. Aðalhlutverkið, leikur Richard
Farnsworth, fyrrverandi áhættuleikari sem undanfarin ár hefur komist í
fremstu röð bandarískra leikara af eldri kynslóð, maður sem virtist leika
með hjartanu frekar en tækninni. Um síðustu helgi hætti þetta hjarta að
slá. Arnaidur Indriðason minnist þessa sérstæða leikara
og verka hans, sem um ókomna tíð geta hrifíð okkur.
Nýtt í bíó
Væntanlegt
Kvikmyndasjóður tekur við verkefnum Menningarsjóðs
Fantasía
2000
• Sambíóin Álfabakka og Há-
skólabíó frumsýna Disney-
teiknimyndina Fantasíu 2000 í
leikstjórn Pixote Hunt, Hendel
Butoy, Eric Goldbergs ofl. Fantas-
ía 2000 er endurgerð Fantasíu frá
1940 með sjö nýjum atriöum og
hefur gerð þeirra tekið níu ár en
hvert nýju atriöanna er kynnt af
leikurum, m.a. Steve Martin,
Bette Midler og James Earl Jones.
Ford og
Pfeiffer
Oi dag frumsýna Sambíóin Álfa-
bakka, Stjörnubíó, Regnboginn og
Borgarbíó Akureyri spennutryllinn
What Lies Beneath með Harrison
Ford og Michelle Pfeiffer. Leik-
stjóri er Robert Zemeckis en
myndin segir frá dularfullum at-
buröum í húsi hjónanna sem þau
leika.
Glataðar
sálir
OLAUGARÁSBÍÓ og Háskólabíó
frumsýna í dag spennumyndina
Glataöar sálir eða Lost Souls með
Winona Ryder og Ben Chaplin í
aöalhlutverkum. Leikstjóri er Jan-
usz Kamlnski. Myndin segir frá
ungri konu sem kemst að því að
samsæri er í gangi um að gera
djöflinum kleift að ganga um á
meöal manna.
Ástarsaga
Wongs
O ístuöi fyriráster nýjasta mynd
Hong Kong-leikstjórans WongKar-
wai, gerð árið 2000, og hreppti hún
verðlaun á kvikmyndahátíðinni í
Cannes í vorfyrir leik ogtöku.
Hún er sýnd í Bíóborginni oggerist í
Hong Kong árið 1962 og segir frá rit-
stjóra nokkrum sem flytur með eigin-
konu sinni í nýtt húsnæði. í sama
hús flytur einnig ung kona ásamt sín-
um eiginmanni.
Shaft geng-
ur aftur
• Laugarásbíó og Borgarbíó, Akur-
eyri frumsýna þann 27. október
bandarísku spennumyndina Shaft
með Samuel L. Jackson í aöal-
hlutverki. Leikstjóri er JohnSingle-
ton. Myndin er endurgerð sam-
nefndrar hasarmyndarfrá áttunda
áratugnum með RichardRoundtree í
titilhlutverkinu. Segir hér af hinum
svala Shaft og útistöðum hans við
glæpamenn en Christian Baleier
með hlutverk óþokkans.
Strákurinn
frá Disney
O Disneyteiknimyndin The Kid með
Bruce Willis verður frumsýnd í Sam-
bíóunum Álfabakka, Nýjabíói Akur-
eyrl og Stjörnubíói þann 3. nóvem-
ber. Leikstjóri erJon Turtletaub og
segir myndin frá miöaldra manni
sem hittir fyrir sjálfan sig þegar hann
var átta ára og fær að vita að líf hans
hefur ekki þróast eins og drengurinn
ætlaði sér.
Leirkjúllar
á leiðinni
O Þann 20. októberfrumsýna Sam-
bíóin Álfabakka, Háskólabíó, Nýja
bíó Keflavík og Nýja bíó Akureyri
bresk/bandarísku leirbrúðumyndina
Chicken Run. Hún veröur sýnd með
íslensku ogensku tali en hún segir
frá flóttatilraunum nokkurra kjúk-
linga af kjúklingabúgaröi og mun að
einhverju leyti vera byggð á stríðs-
fangadramanu The Great Escape.
Mel Gibson fer með aöalhlutverkið í
ensku talsetningunni.
Morgunblaðið/Jim Smart
UM áramótin verður sett á lagg-
irnar ný deild í Kvikmyndasjóði Is-
lands, svokölluð almenn deiíd, sem
tekur við þeim verkefnum Menn-
ingarsjóðs útvarpsstöðva að út-
hluta styrkjum til annarra kvik-
mynda en leikinna bíómynda í
fullri lengd, þ.e. heimildamynda,
stuttmynda, teiknimynda og sjón-
varpsmynda. Hin nýja deild fær á
fjárlögum næsta árs 25 milljónir til
ráðstöfunar en sú upphæð mun
vaxa um 25 milljónir á hverju ári til
ársins 2004 þegar hún nær 100
milljónum króna. Gert er ráð fyrir
að sérstakur deildarstjóri verði
ráðinn að sjóðnum til að annast út-
hlutun til verkefna, sem verður þá í
reynd ekki í höndum úthlutunar-
nefndar eins og verið hefur um
leiknar bíómyndir.
Að sögn Þorfinns Ómarssonar,
framkvæmdastjóra Kvikmynda-
sjóðs Islands, er þetta fyrirkomu-
lag í samræmi við tímamótasam-
komulag menntamálaráðherra og
fjármálaráðherra við aðila ís-
lenskrar kvikmyndagerðar frá því í
desember 1998. Þar er gert ráð
fyrir aukningu fjárveitinga til kvik-
myndagerðar sem nemur alls 200
milljónum til leikinna bíómynda ár-
ið 2002 og nú 100 milljónum til
annarra mynda árið 2004. Hefur
Kvikmyndasjóður nú á fjárlögum
160-170 milljónir til ráðstöfunar
fyrir leiknar bíómyndir við úthlut-
un í janúar næstkomandi og 25
milljónir til annarra mynda á
næsta ári.
Menningarsjóður útvarpsstöðva
hefur verið lagður niður, en síðasta
úthlutun hans var í vor. „Menning-
arsjóður hafði þá um 60 milljónir
til kvikmynda- og sjónvarpsverk-
efna,“ segir Þorfinnur, „en munur-
inn á þeirri upphæð og ráðstöfun-
arfé nýju deildarinnar, þ.e. 25
milljónir, er þó minni en tölurnar
einar segja til um. Þar kemur
tvennt til. Annars vegar hefur sjóð-
urinn svigrúm til að veita styrkvil-
yrði af ráðstöfunarfé næsta árs á
eftir, þ.e. alls af 50 milljónum
króna, og hins vegar eiga
sjónvarpsstöðvarnar sjálfar nú að
hafa aukið fjármagn til innlendrar
dagskrái’gerðar, sem nemur 10% af
auglýsingatekjum þeirra en sú
upphæð rann áður í Menningar-
sjóð.“
Starfsemi almennrar deildar
Kvikmyndasjóðs hefst 1. janúar.
Hinn hefðbundni umsóknarfrestur
um úthlutanir úr sjóðnum, sem er
um miðjan nóvember, mun því að
þessu sinni og hér eftir einungis
gilda fyrir leiknar bíómyndir í
fullri lengd, framleiðslu þeirra,
handritsgerð og þróun. Úthlutanir
almennu deildarinnar verða, að
sögn Þorfinns, hins vegar ekki
bundnar við ákveðinn umsóknar-
frest einu sinni á ári, heldur geta
kvikmyndagerðarmenn lagt inn
umsóknir allt árið um kring.
Stjórn Kvikmyndasjóðs mun á
næstu dögum ákveða nánar um
starfsemi deildarinnar. „Sú hug-
mynd er uppi,“ segir Þorfinnur, „og
hefur fengið jákvæðar undirtektir,
að ákvarðanir um úthlutanir al-
mennu deildarinnar verði í höndum
sérstaks starfsmanns, deildar-
stjóra, sem þurfi hins vegar að
leggja þær ákvarðanir fyrir úthlut-
unarnefnd til formlegrar af-
greiðslu. Þetta yrði eins konar til-
raun, íslensk útgáfa af því kerfi,
sem kvikmyndastofnanir víða um
lönd hafa notað. Starf þessa deild-
arstjóra myndi nýtast sjóðnum
með ýmsum hætti þar fyrir utan,
því ætlunin er til dæmis að hann
verði ráðgefandi sérfræðingur um
markaðs- og sölumál þeirra verk-
efna sem hann velur.“
Gert er ráð fyrir að staða deild-
arstjórans verði auglýst til um-
sóknar fljótlega. Að sögn Þorfmns
Ómarssonar er þessi efling Kvik-
myndasjóðs íslands gleðiefni á
þeim gróskutímum sem nú ríkja í
kvikmyndagerð hérlendis.
Björk í Óskarinn?
MARK Ordesky, forstjóri Fine Line Pietures, sem
dreifir kvikmynd Lars von Trlers Myrkradansarinn -
Dancer In the Dark í Bandaríkjunum, segist vonast til
að hún verði tilnefnd til Óskarsverðlaunanna sem
besta myndin og að BJörk Guðmundsdóttir fái tilnefn-
ingu sem besta leikkonan. Það er mál manna, sem til
þekkja í Hollywood, að þessi ummæli þýði í raun að
fyrirtækið muni leggja út í töluverðan kostnað við
kynningar-og áróðursherferð, eins og gjarnan tíðkast
þar um slóðir, til að reyna að hafa áhrif á bandarísku
kvikmyndaakademíuna. í fréttabréfi sínu frá Holly-
wood fjallar Þór Melsteð um viðtökur Myrkradansar-
ans í Bandaríkjunum og vitnar m.a. í gagnrýnanda
sjónvarpsstöðvarinnar CNN sem segir: „Björk á svo
skilið að fá Óskarsverðlaunin að þeir ættu að senda
þau til hennar strax og sleppa tilnefningunum.“ /2