Morgunblaðið - 13.10.2000, Blaðsíða 2
2 C FÖSTUDAGUR13. OKTÓBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ.
BIOBLAÐIÐ
Melsteð
Hittir
Oskar
Björk?
Hér í Hollywood kemur það
stöku sinnum fyrir að kvikmynd
kemur upp á yfirborðið sem
skiptir fólki í tvo óiíka hópa.
Annar hópurinn heldurvart
vatni afhrifningu en hinn botn-
ar ekkert íþví hvaða írafár
þetta er á þeim fyrrnefnda.
Um þessar mundirgeisar
hér einmitt eitt slíkt íra-
fár og myndin sem um
ræðir er nýjasta mynd
Lars von Triers, Dancer in The
Dark, sem ætti aö vera hverjum
íslendingi kunnug þar sem
Björk hlaut verðlaun sem besta
leikkonan á Cannes kvikmynda-
hátíöinni í maí síðastliðnum og
myndin nú í sýningum á íslandi.
Klofningur áhorfenda er slíkur
að Entertain-
ment Weekly
birti tvær um-
fjallanir, eina
úrhvorum
hópi. Slíktger-
ist sárasjald-
an.
Umfjallanir
um myndina,
von Trier og
Björk hafa
birstíöllum
helstu fagtímaritum Hollywood.
Andlit Bjarkar hefur prýtt for-
síöur fjölda tímarita, auk þess
sem viðtöl hafa birst í sjónvarpi.
í októberhefti Premiere erfjög-
urra síðna grein þar sem fjallaö
er um Björk og frábæra frammi-
stöðu hennart myndinni og hún
spurð nokkurra spurninga.
Blaöamaður Premie're nefndi í
greininni að enginn leikstjóri
hefði lagt svona mikiö á herðar
aðalleikkonu síöan CarlDreyer
leikstýröi Ástríðu Jóhönnu af
Örk árið 1928 þar sem reynslan
var svo erfið að aðalleikkonan
Maria FalconettHék aldrei aftur
í kvikmynd.
Gagnrýnendur hér vestra
hafa keþpst við að lofa leik
Bjarkarí myndinni. Það þarf að
leitaansi langtafturtil aðfinna
sambærileg lýsingarorð í kvik-
myndaumfjöliunum eins og
hafa verið notuð um frammi-
stöðu Bjarkar. „Kraftaverki lík-
ust,“ segirgagnrýnandi New
YorkTimes, „Stórkostlegur leik-
ur,“ segir Kenneth Turan, gagn-
rýnandi Los Angeles Times,
„Undursamleg... hrein snilld..."
segirgagnrýnandinn frægi Rog-
erEbert.
Þó ekki séu allir jafnhrifnir af
myndinni I heild þá eru nánast
allir sem sjá hana sammála um
að leikur Bjarkarsé stórkost-
legur, sama hvorum hópnum
þeirtilheyra.
Gagnrýnandi CNN orðaði það
svona: „Björké svo skilió að fá
Óskarsverölaunin að þeir ættu
að senda þau til hennar strax
og sleppa tilnefningunum."
Forstjóri kvikmyndafyrirtækis-
ins Fine Line Pictures, Mark
Ordesky, sagði á blaöamanna-
fundi eftirfrumsýninguna:
„...við vonumsttil að myndin
verði tilnefnd sem besta myndín
og Björk sem besta leikkonan
þegarkemurað Óskarnum."
Þá vaknar auðvitað spurning-
in sem hefur verið á vörum allra
íslendinga frá þvf í vor: Fær
Björk Óskarsverðlaun? Svar:
Tilnefning er a.m.k. góður
möguleiki.
LTCJ
Björk sem
Selma: Óskar
strax...
Seigla í
Sheldon
Reyfarahöfundurinn Sidney Sheld-
on hefur átt bækur á toppi metsölu-
listanna lengur en elstu menn muna.
Þó hefur verið frekar hljótt un hann
síöustu árin. Þó ekki lengur. Nýjasta
skáldverkið hans, The Skyis Falling,
er að tylla sér f gamalkunnugt sæti á
listunum. Ekki nógmeð það, bókin
er sögð fyrirtaks kvikmyndaefni og
haröur slagur er hafinn um kvik-
myndaréttinn hjá stórveldum í Holly-
wood.
Særingamaður-
inn snýr aftur
Endursýningar á Særingamannin-
um (The Exorcist) hafa gengið vonum
framar, reyndar
beturen flestar
aðrarmyndirleik-
stjórans Willi-
ams Friedkins í
áratugi, en nú
eru tæp þrjátfu ár
liðin frá því að
þessi ágæti hroll-
ur var frumsýnd-
ur. Sá sem þess-
arlínurskrifar
geturfullyrtaf
eigin raun að
myndin hefur elst vel og má telja í
hópi sígildra hryllingsmynda.
Tim Burton: Leitar að stjörnum úr
dýraríkinu.
Enn af Apa-
plánetunni
(The Visitor)
Tim Burton, leikstjórinn sem
margir vilja telja meö snillingum
Presslink
William Friedkin:
Sígildur Særinga-
maður?
samtímans, er enn að punta leikhóp-
inn sinn í myndinni sem spáð er
hvað mestri aðsókn að ári. Að þessu
sinni erviðbótin ekki úrmannheim-
um heldur hefur leikstjórinn ungi ver-
ið á rjátli um dýragarða Vesturheims
til að smala saman óárennilegum
hópi villidýra; alvöru górilluapa,
órangúta, sjimpönsum og bavíönum,
sem leika eiga lausum hala á meóal
fólksins.
Köngurlóar-
maðurinn i
megrun
Þær fréttir berast að Sam Raimi,
leikstjóri Spider-Man, lítistekki á út-
litið á Tobey Magu-
ire, sem fara á
með titilhlutverkið.
Verið eraö trimma
af piltinum mörg
og ógæfuleg auka-
kíló. Það kæmi
ekki á óvart þótt
hann lenti fyrir rest
á varamanna-
bekknum - eins og
annarýstrubelgur;
Mark nokkur
Bosnich' Þá er
það helst aö frétta
af kvikmyndagerðinni að John Malk-
ovich mun vera hættur við að fara
með hlutverk aöal illmennisins í
myndinni.
Michael Bay í
innkaupum á
mannráni
Hasar-
myndaleikstjór-
inn snjalli,
Michael Bay
(Armageddon,
The Rock, Bad
Boys), festi á
dögunum kaup
á handriti um
mannrán, sem
Bay hyggst leik-
stýra sjálfur í
framtfðinni.
Fyrst lýkur hann
sjálfsagt við
eina dýrustu mynd ársins, Pearl
Harbor.
Associated Press
John Malkov-
ich: Villekki
vera illmenni.
Sjónarhorn
Eftir Sæbjöm Valdimarsson ÞA ER lokið Kvikmyndahátíð t Reykjavík,
þeirri 17., ef taldar eru með forverar henn-
ar, kenndarvið Listahátíö. Kvikmyndahátíð í Reykjavík hefurnú þegar
skapað sér nokkra sérstöðu því þaö er fátítt aö þeir sem gleðjast hvað
mestyfir tilveru hennar eru engir aðrir en kvikmyndahúsaeigendur. Því
með henni hefur fundist óvæntur farvegur mynda sem lent hafa uppí
hillu hjá bíóunum með hinn hrollkennda, „listræna" stimpil íbak og fyrir.
Sumt afþeim er tros, annað ágætt, einsoggerist oggengur á kvik-
myndahátíðum um allan heim. Það sem máli skiptir er að þetta sam-
starferað þróast í rétta átt, úrháifgerðum samtíningi í metnaðarfyitri
verk.
Val mynda í ár var nokkuð gott og meira bar á myndum frá fjarlægum
löndum en verið hefurað undanförnu. Sérstaklega ánægjulegt að fá
tækifæri að upplifa verk þríggja, mætra leikstjóra frá Kína. Suzhoufljótið
eftirLou Ye; Titræöi við keisarann, eftirChen Kaige og þá var Fullkomnir
saman, eftir Hong Kongmanninn Wong Kar-wai. óneitanlega frekar
óvenjuleg úr þeirri áttinni og sama gildir um fleiri myndir þessa sér-
stæða leikstjóra á hátíðinni. Takeshi Kitanoer sagður hvað merkastur
japanskra leikstjóra. E.K. = eftir Kurosawa. Ekki gneistaði Kihujiro af
snilli en varengu að síður óvenjulega uppbyggð og skemmtilegt innlegg
þar sem leikstjórinn sjálfur var býsna góður í aðalhlutverkinu.
Alþjóðlegi, taívanski leikstjórinn AngLee, reyndi að mæta með nokk-
ur verka sinna. Þau bárust til landsins, Lee var hinsvegar upptekinn við
störfsín. Nýjasta myndhans, Krjúpandi tígur, dreki íleynum, ein sú
besta á þeirri sautjándu.
Evrópskar myndir voru að vonum mest áberandi. Því miðurengin frá
Rússlandi, sem oftaren ekki hefuráttgilda fulltrúa á Kvikmyndahátíð.
CosyDens, tékkneska leikstjórans Jans Hrebejks, var hinsvegar skín-
andi mynd um „ vorið" í Tékkóslóvakíu 68, sem var allt annað en „gott,
grænt og hlýtt". ítalinn Giuseppe Tornatore gladdi meö Þjóösögunni
1900, tvímælalaust bestu mynd sinni frá Cinema Paradiso. Wim Wend-
ers átti eina bestu mynd veislunnar, Buena Vista Social Club. Þó öllu
frekar hinir aldurhnignu unglingarsem skipuðu þetta latneska band
sem spilaði sig inní hjörtu gestanna. Leikstjórn Wenders varhinsvegar
ósköp dauðyflisleg í samanburði við fjörugan sambataktinn.
Frá Vesturheimi komu góðar sendingar. HæstberÁ beinu brautinni-
Straight Story, nýjasta mynd David Lynch, sem einng var, þvímiður, síð-
asta myndhins heillandi leikara, Richards Farnsworth. Hinn athygiis-
verði, kanadíski leikstjóri, Atom Egoyan, átti Ferðalag Feliciu, og okkar
eigin, altént íslenskættaði og bráðflinki Sturla Gunnarsson, kom með
Fyrirlitningu, sem sannarlega varmeð athygiisverðarí myndunum í ár.
Gestirnir voru fáir. í fararbroddi fórjúgóslavneski furðufuglinn Dusan
Makavejev, sem kom með allnokkrar af sínum gömlu (og umdeildu)
myndum í farangrinum. Stórefnilegur Þjóðverji, Weit Helmer, kommeð
sitt byrjendaverk; Tuvalu, sem féll ígóðan jarðveg. Síðast en ekki síst
kom svo Vestur-íslendingurinn Sturla Gunnarsson, sem á næstu miss-
erum mun styrkja böndin við „gamla landið", þarsem hann mun næst
leikstýra verki í samstarfi við íslensku kvikmyndasamsteypuna.
Góðirgestir, en það sem helst mætti finna að í ár er að íþeirra hópi
þyrfti að vera frægara nafn. Það gefur hátíðinni vissan gæðastimpil útá-
við ogglæðir aðsóknina og fréttaflutninginn. Til að svo geti orúið þurfa
ríki og borg að losa aðeins betur um dauðahaldið á pyngjunni.
Á vefsíðu breska útvarpsins, BBC Online, má finna umfjöllun um kvikmyndir á bönd-
um og diskum eftir íslenskan greinahöfund, Almar Hafliðason. Páll Kristinn Pálsson
komst að því að Almar skrifar ekki aðeins um kvikmyndir, heldur leikur í þeim líka.
„ Staying in
with Almar“
ALMAR er 25 ára gamall sonur Haf-
iiða Haiigrímssonar tónskálds og
Ragnheiðar Arnardóttur. Hann
fæddist í London, en flutti þriggja
ára til Edinborgar þar sem foreldr-
ar hans búa enn. Atján ára fór Alm-
ar í háskólanám í sögu og stjórn-
málafræði í Glasgow og hefur búið
þar síðan. En hvernig kom það til að
hann fór að skrifa um kvikmyndir?
„Eg hef alltaf haft mikinn áhuga á
kvikmyndum," segir Almar. „Á
unglingsárunum byrjaði ég að safna
myndböndum - ég á núna um 3.000
stykki - og meðan ég var í háskólan-
um sá ég um kvikmyndaþátt í skóla-
útvarpinu. Eftir útskriftina fór ég
að vinna við almannatengsl, gera
auglýsingar, skrifa kynningarbækl-
inga o.s.frv.. Ég spáði ekkert í að
reyna að fá mér vinnu sem tengdist
kvikmyndum, enda mjög erfitt að
komast í eitthvað slíkt hér í Skot-
landi. Svo var það fyrir tveimur ár-
um að sjónvarpsstöðin Channel
Four tók viðtal við mig um mynd-
bandasafnið, það þótti svo skrítið að
einhver ætti 3.000 myndbönd! Og í
framhaldi af því datt mér í hug að
kannski væri ekki svo galið að fara
að skrifa um þetta áhugamál mitt.
Ég hafði samband við blaðið Go
Magazine sem tók mér vel og ég
skrifaði fyrir það í nokkra mánuði,
eða þangað til ég frétti að BBC
Scotland væri að leita að fólki til að
fjalla um myndbönd og DVD-geisla-
diska. Ég sendi þeim línu og sýnis-
horn af því sem ég hafði gert og það
féll í svo góðan jarðveg að ég fékk
sérstakan dálk á vefsíðu þeirra sem
kallaðist Staying in with Almar.
Snemma á þessu ári voru svo
vefsíðumál BBC endurskoðuð, sem
varð til þess að sett var upp síðan
BBC Films en henni er stýrt frá
London. Ég bjóst þá ekki við að fá
að halda áfram, ég vissi það væru
svo margir um hituna í aðalstöðvun-
um, en ákvað að gefa mig ekki og
eftir tveggja mánaða stapp fékk ég
starfið. Núna er ég aðalskríbent
þeirra um myndbönd og DVD, en
skrifa einnig um gamlar myndir og
greinar sem tengjast nýjum mynd-
um í bíóunum, en gagnrýni þær ekki
sjálfur. Og þetta gengur mjög vel,
við fáum um 60.000 heimsóknir á
síðuna á viku, en allt í allt heim-
sækja nokkrar milljónir BBC On-
Almar: Kannski er
það íslendingurinn...
line á viku, enda er þetta stærsta
vefsíða í Evrópu. Allur hinn ensku-
mælandi heimur notfærir sér hana
þannig að maður er að fá tölvupóst
mjög víða að.“
Meðfram þessum skrifum starfar
Almar enn dálítið við almannatengsl
og svo hefur hann leikið í sinni
fyrstu bíómynd. „Það er nú ekki
stórt hlutverk," segir hann. „Ég leik
mann sem vinnur við áfyllingar í
stórmarkaði. En myndin, sem kem-
ur á markað í byrjun næsta árs,
heitir Late Night Shopping, leik-
stjóri er Saul Metzstein og hand-
ritið skrifaði Jack Lothian sem er
einn af mínum bestu vinum. Fram-
leiðslufyrirtækið er Film Four, sem
gerði t.d. myndirnar Four Wedd-
ings and a Funeral, Shaliow Grave
og Trainspotting og er í rauninni
eina almennilega kvikmyndafyrir-
tækið hér í Skotlandi. Ég hef alltaf
haft mikinn áhuga á leikhúsi, leikið
mikið í skólaleikritum og meðan ég
var í háskólanum tók ég tveggja ára
kúrs í leiklist. Og ég fór með lítið
hlutverk í sjónvarpsþáttaröð sem
hét YoungPersons Guide to Becom-
ing a Rock Star. En eins og í kvik-
myndabransanum er hér mikil sam-
keppni í leikhúsinu og bara örfá
prósent þeirra sem læra leiklist sem
fá eitthvað að gera. Ég á þó von á að
gera eitthvað meira með Jack vini
mínum og hann hefur líka orðað við
mig að ég framleiddi myndir með
honum vegna reynslu minnar í
markaðsmálum. Mig langar mikið
að komast áfram í leiklistinni. Ætli
það sé ekki íslendingurinn í mér,“
segir Almar og hlær. „Eru íslend-
ingar ekki frægir fyrir að vera dug-
legir við að koma sér á framfæri?“
Almar hefur oft komið til íslands
en aðeins í skamman tíma í senn og
hann hefur ekki séð margar íslensk-
ar bíómyndir. „Ég sá Sódómu
Reykjavík eftir Óskar Jónasson
þegar ég var á Islandi fyrir mörgum
árum og minnir að hún hafi verið
fín. Svo hefur Cold Fever eftir Frið-
rik Þór verið sýnd hérna í sjónvarp-
inu, mér þótti hún góð og hún fékk
afar lofsamlega dóma í blöðunum."
Þeir sem áhuga hafa á að kynna
sér skrif Almars Hafliðasonar á vef
BBC geta slegið inn slóðina
www.bbc.co.uk/films.