Morgunblaðið - 13.10.2000, Síða 5
MORGUJMBLAÐip
FÖ^TIIDAGUR 13, ORTÓBER 20Q0 C 5
Hringadróttins-
saga 1-3
A Nýja-Sjálandi standa nú yfir tökur á
þremur bíómyndum sem byggja á
sögu J.R.R. Tolkiens, Hringadróttins-
sögu eöa Lord ofthe Rings aö sögn Arn-
aldar Indriðasonar. Leikstjóri myndanna
er heimamaöur, Peter Jackson, en New
Line Cinema framleiðir og er óhætt aö
segja aö myndanna sé beöió meö tals-
veröri eftirvæntingu. Sú fyrsta mun
væntanleg í kvikmyndahús um jólaleytið
2001.
JACKSON ákvað að gera þrjár
bíómyndir í beit úr sögunni
enda er hún gríðarlega viða-
mikil og verður varla gerð al-
mennileg skil með öðrum
hætti. Reynt hefur verið að kvik-
mynda söguna áður og þá í teikni-
myndaformi en hún þótti endaslepp.
Teiknimyndahöfundurinn Ralph
Bakshi, sem annars var þekktur
fyrir að gera dónalegar teiknimynd-
ir, gerði Hringadróttinssögu árið
1978 sem sýnd var í Tónabíói á sín-
um tíma. Hún var meira en tveir
tímar að lengd og tæknilega vel
unnin og oft áhrifarík en Bakshi
treysti sér ekki til þess að filma alla
söguna og má segja að hann hafi
hætt í miðju kafi; myndin hans náði
ekki að segja frá endalokum sagna-
bálksins og má ímynda sér að það
hafi átt að gera í framhaldsmynd
sem aldrei varð neitt úr. Þar að auki
var lítill tími nema til þess að setja
fram helstu upplýsingar um sögu-
svið og persónur fyrir þá áhorfend-
ur sem ekki þekktu til og botnuðu
lítið í Hobbitum, Góllum og Lauf-
álfalandi.
Þrjár myndir í einu
Peter Jackson ætlar sér að leysa
það vandamál. Hann hefur nægan
tíma til þess að segja söguna alla í
þremur bíómyndum sem verða i það
minnsta sex tímar að lengd saman-
lagt (nokkur tíska er það nú um
stundir að kvikmynda fleiri en eina
mynd í einu, The Matrix 2 og 3
verða t.d. gerðar í einu). Hann hefur
líka gefið sér góðan tíma til þess að
kvikmynda verkið. Tökur hafa stað-
ið yfir mánuðum saman á Nýja-Sjá-
landi og enn er eitt og hálft ár þang-
að til tökum á síðustu myndinni
lýkur þegar þetta er skrifað. Jack-
son hefur fengið í lið með sér vei-u-
lega góðan leikarahóp auk þess sem
tölvutæknibrellur munu spila
nokkra rullu í ævintýrinu en Jack-
son hefur allar nýjustu græjur til
þess að framkvæma tölvubrellur á
Nýja-Sjálandi.
Hann er ásamt Lee Tamahori og
Jane Campion kunnasti kvikmynda-
leikstjóri Nýja-Sjálands. Hann
gerði í fyrstu blóðugar spennu-
myndir og lærði allt í faginu með því
en þegar hann eltist fór alvaran að
taka völdin og hann gerði þá frá-
bæru mynd Heavenly Creatures,
sem byggðist á óvenjulegu sakamáli
í Nýja-Sjálandi frá sjötta áratugn-
um þegar stúlka nokkur myrti móð-
ur sína.
Myndin vakti athygli á leikstjór-
anum í Hollywood og hann komst í
kynni við kvikmyndagerðarmanninn
Robert Zemeckis (Forrest Gump)
og gerði ágæta draugamynd í
kjölfarið sem hét The Frighteners
með Michael J. Fox í aðalhlutverki.
Stór hluti myndarinnar byggðist á
tölvubrellum og Jackson byggði sitt
eigið tölvubrelluver á Nýja-Sjálandi
vegna myndarinnar og mun nota
það við gerð Hringadróttinssögu
1-3.
Barátta góðs og ills
Aðstandendur Tolkiens voru
tregir í fyrstu að leyfa- kvikmyndun
verksins. Sjálfur hafði höfundurinn
ekki mikla trú á að hægt væri að
setja töfraheim hans á hvíta tjaldið
svo vel færi. Nýlega gáfu rétthafar
þó eftir, New Line Cinema hreppti •<
kvikmyndai’éttinn og ákvað að setja
100 milljónir dollara í kvikmyndirn-
ar. Peter Jackson sóttist mjög eftir
því að fá að gera myndirnar sem
mikill aðdáandi Tolkiens og fallist
var á að Nýja-Sjáland væri kjörinn
staður fyrir tökur. Landslagið bauð
upp á ævintýraheima og það er
nógu fjarlægt til þess að kvik-
myndahópurinn gat unnið sitt starf
að mestu óáreittur af fjölmiðlum.
Eins og kunnugt er fjallar
Hringadróttinssaga um baráttu
góðs og ills og segir af ævintýrafor
hobbitans Fróða og félaga hans með
töfrahring sem var í eigu óbermis-
ins Saurons. Fara á með hringinn til
Dómsdyngju þar sem honum skal
eytt en ýmsar og ógurlegar hættur
leynast á leiðinni.
Við sögu kemur fjöldi persóna úr
heimum manna, trölla og álfa og
hefur Peter Jackson safnað í mynd-
ina fínum leikarahópi eins og áður
sagði. Elijah Wood fer með hlutverk
Fróða, Sean Astin er Sámur, Somin-
ic Monaghan er Kátur og Billy Boyd
er Pípin, allt vinir Fróða. Aðrir leik-
arar eru Ian Holm, Ian McKellen og
Christopher Lee miklir dánumenn
úr breska kvikmyndaheiminum,
Cate Blanchett og Liv Tyler fara V'
með helstu kvenhlutverkin en aðrir
leikarar eru Sean Bean, Brad Dour-
if, Viggo Mortensen, Orando Bloom,
John Rhys - Davies, Bernard Hill
og ástralski leikarinn Hugo Weav-
ing, sem lék óþokkann í The Matrix.
Frumsýnd jólin 2001
Reiknað er með að fyrsta myndin
í flokknum verði frumsýnd í Bret-
landi um miðjan desember árið 2001
en nokkrum dögum síðar í Banda-
ríkjunum. Frásagnir af tökustað eru
fátæklegar. Breska kvikmynda-
tímaritið Empire segir þær fréttir
að Cate Blanchett, sem leikur álfa-
drottninguna Galadríel, hafi ráðið til
sín fólk til þess að kenna sér „álf-
ísku“, hvað svo sem það nú er. „Að
til skuli vera fólk sem talar álfamál,"
segh- leikkonan, „er algerlega stór-
furðulegt. Það er eins og fólkið sem
talar klingonísku."
Einnig berast þær fréttir að
Jackson hafi í hyggju að leggja sér-
staka áherslu á ástarsamband á
milli Arwenar, sem Liv Tyler leikur,
og Aragoms, sem Mortensen leikur,
og gera það að lykilatriði í plottinu.
Aðrir segja að leikstjórinn sé verk-
inu mjög trúr og fylgi sögu Tolkiens
eftir í stóru og smáu.
Allir hinir fjölmörgu aðdáendur
Tolkiens hljóta að bíða myndanna
með mikilli efth’væntingu og má
ugglaust líkja henni við þá spennu
sem fylgdi fjórðu Stjörnustríðs-
mynd George Lucas. Sú mynd olli
nokkrum vonbrigðum þegar hún
loks var sýnd. Vonandi að ekki verði
sama uppi á teningnum í tilfelli
Hringadróttinssögu.
Maestro þitt fé HVAR SEM ÞÚ ERT
w