Morgunblaðið - 01.11.2000, Page 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
c
2000
MIÐVIKUDAGUR1. NOVEMBER
BLAÐ
Fylkismenn
til Spánar
KNATTSPYRNULIÐ Fylkis fer í tvær æfinga-
ferðir í vetur, báðar til spænska bæjarins Can-
ela, sem er á Iandamærum Spánar og Portú-
gals, um klukkutima akstur frá hinum vinsæla
dvalarstað Algarve í Portúgal. Fylkismenn fara
þangað í kringum 10. febrúar og aftur í apríl.
„Við viljum búa okkur sem best undir
íslandsmótið og þátttöku okkar í UEFA-
bikamum næsta sumar. Þetta er liður í enn
betri undirbúningi en áður, við fáum leiki gegn
sterkum liðum í þessum ferðum og þetta verður
því ákveðin reynsla fyrir Evrópuleikina, auk
þess sem tvær svona ferðir bijóta betur en áður
upp erfiðan og leiðinlegan tíma í undirbúning-
num hér heima á vetuma,“ sagði Bjami Jó-
hannsson, þjálfari Fylkis, við Morgunblaðið.
Blikar
tilLa
Manga?
KVENNALIÐ Breiðabliks í
hefur fengið boð um að taka
þátt í Norðurlandamóti meist-
araliða kvenna í knattspyrnu
sem haldið verður á La Manga
á Spáni síðar í vetur, eða í lok
mars.
Mót þetta hefur verið end-
urvakið en Breiðablik tók
þrisvar þátt í því á árunum
1995-1997, síðast hér á landi.
Félagslið á Norðurlöndum
eru meðal þeirra bestu í
Evrópu þannig að Islands- og
bikarmeistararnir frá því í
sumar eiga þarna kost á góðu
verkefni í undirbúningi sínum
fyrir Islandsmótið.
HÉR má sjá íshokkímenn Skautafé-
lags Akureyrar í fullum herklæð-
um. Þeir urðu að sætta sig við ósig-
ur í viðureign við leikmenn
Bjarnarins, sem fögnuðu sínum
fyrsta sigri á SA á Islandsmóti um
sl. helgi, 13:8. Nánar á C4.
Morgunblaðið/Jim Smart
Pétur er
hættur með
Val/Fjölni
ÍR-mótið eflir
HM í Portúgal
Ríkharður
ábekkn-
um í kvöld
RÍKHARÐUR Daðason,
landsliðsmaður í knattspyrnu,
verður á varamannabekk
Stoke City í kvöld þegar liðið
mætir Barnsley í 2. umferð
ensku deildarbikarkeppninnar.
Ríkharður kom til Stoke í gær
frá Noregi en sem kunnugt er
lék hann sinn síðasta leik með
Viking Stavanger þegar liðið
tapaði fyrir Odd Grenland í úr-
slitaleik norsku bikarkeppn-
innar á sunnudaginn.
Guðjón Þórðarson, knatt-
spyrnustjóri Stoke, hyggst
tefla fram sama liði og sigraði
Bournemouth á laugardaginn,
sem þýðir að Bjarni Guðjóns-
son, Brynjar B. Gunnarsson og
Stefán Þórðarson byrja allir
inná. Barnsley, sem Stoke
mætir í kvöld er í 12. sæti 1.
deildarinnar.
STJÓRN körfuknattleiksdeildar
Vals/Fjölnis hefur leyst Pétur
Guðmundsson. Torfi Magnús-
son, fyrrverandi landsliðsþjálf-
ari og leikmaður með Val, tekur
við úrvalsdeildarliðinu.
W
Itilkynningu frá stjórninni segir
að þetta hafi verið ákveðið í
kjölfar þess að liðið hafi ekki staðið
undir þeim væntingum sem til þess
voru gerðar fyrir tímabilið.
Torfi tekur við þjálfun liðsins og
stýrir því annað kvöld þegar það
mætir Haukum í íþróttamiðstöðinni
í Grafarvogi.
Valur/Fjölnir hefur leikið fimm
leiki í deildinni, tapað fjórum, fyrir
Grindavík, Tindastóli og ÍR á úti-
velli og Skallagrími á heimavelli og
þar lagði liðið KFÍ og er það eini
sigur þess.
Þegar Pétur var ráðinn var gerð-
ur við hann þriggja ára samningur
og talað um að hann ætti að byggja
upp liðið á þeim tíma. Eftir fimm
leiki er honum stíðan sagt upp, kom
það honum ekki á óvart?
„Jú, ég er vonsvikinn að þetta
skuli hafa gerst á svo stuttum tíma
og svo hratt en að öðru leyti vil ég
ekki tjá mig um þetta,“ sagði Pétur.
ÁRLEGT stórmót ÍR í frjálsíþrótt-
um innanhúss fer fram sunnudag-
inn 4. mars á næsta ári. Mótið var
einnig haldið í mars á þessu ári, en
tvö fyrstu árin sem það var haldið
fór það fram í lok janúar. Að sögn
Þráins Hafsteinssonar, hjá frjáls-
íþróttadeild IR, þá var ákvcðið í
samráði við nokkra af fremstu
frjáisíþróttamönnum landsins að
halda mótið annað árið í röð í
mars. „Eina dagurinn sem kom til
álita i janúar var hinn tuttugasti
og fyrsti en að vandlega athuguðu
máli þá þótti fyrsti sunnudagur í
mars vera betri,“ sagði Þráinn.
Þráinn sagði ennfremur að það
fylgdu þvi bæði kostir og gallar að
halda mótið helgina fyrir heims-
meistaramótið innanhúss sem
fram fer í Lissabon í Portúgal 9.-
11. mars og er endapunktur á inn-
anhússtímabili frjálsiþróttamanna.
„Kosturinn við halda mótið á þess-
um tíma er óncitanlega sá að við
ættum að fá íþróttamennina í
toppæfingu og þarna verða þeir að
taka þátt í sínu siðasta móti fyrir
HM. Það á að auka enn líkurnar á
góðum árangri," sagði Þráinn
ennfremur.
Strax í byrjun þessa mánaðar
verður farið á fulla ferð við að
skipuleggja mótið og fá keppend-
ur til þess. Mótið verður að öllum
likindum hið fyrsta sem Vala
Flosadóttir stangarstökkvari tek-
ur þátt í hér á landi eftir að hún
vann til bronsverðlauna á Ólymp-
iuleikunum í Sydney í haust.
SVÍINN SVEN GÖRAN ERIKSSON LANDSLIÐSÞJÁLFARI ENGLANDS / C3