Morgunblaðið - 01.11.2000, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ
KNATTSPYRNA
MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 2000 C 3
Reuters
r á skotskónum fyrir sína menn
ren Ward varnarmann Watford.
nog
leik
skjær skoraði tvö af mörkum Unit-
ed og Dwight Yorke eitt.
West Ham vann góðan sigur á
Blackburn, 2:0. Davor Suker skor-
aði fyrra markið & 67. mínútu og
Paolo di Canio bætti við öðru úr
vítaspyrnu sex mínútum fyrir
leikslok.
John Hartson jók enn á vand-
ræði Bryan Robsons, knattspyi'nu-
stjóra Middlesbrough, þegar hann
tryggði Wimbledon sigurinn með
marki úr vítaspyi'nu fimm mínút-
um fyrir leikslok. Allt hefur gengið
á afturfótunum hjá Boro og sterk-
ar líkur eru á að Robson verði lát-
inn taka poka sinn á næstu dögum.
Guðni skoraði
Guðni Bergsson, fyrirliði Bolton,
skoraði eitt af mörkum Bolton
þegar liðið sigraði QPR, 3:1, í 1.
deildinni. Guðni jafnaði metin fyrir
sína menn á lokamínútu fyrri hálf-
leik með skallamarki og Robbie
Elliott og Michael Ricketts bættu
svo við tveimur mörkum í seinni
hálfleik. Bolton er þar með komið
upp í fjórða sæti deildarinnar.
Birgir Leifur
og Ólafur
Máryfirpari
BIRGIR Leifur Hafþórsson og Ólafur Már
Sigurðsson léku báðir yfir pari Perelada-
vallarins á Spáni í gær á fyrsta keppnisdegi
af fjóruni á öðru stigi forkeppninnar að
sæti í evrópsku mótaröðinni. Birgir Leifur
lék ó 73 höggum, einu yfir pari, og er í 45.-
59. sæti af þeim 79 kylfingum sem Ieika á
Peralada. Ólafur Már er eini áhugamaður-
inn sem keppir á umrædduin velli og í gær
lék Ólafur á 74 höggum og er í 60.-65. sæti.
Birgir Leifur og Olafur Már komust báð-
ir áfram af fyrsta stigi og á öðru stigi leika
235 kylfingar á þreniur völlum, 72 holur,
og verður keppendum fækkað eftir 54
þannig að þeim sem eru átta höggum á eft-
ir 30. manni verður heimilt að halda áfram.
Sem stendur er keppandinn í þrítugasta
sæti keppninnar á Perelada-vellinum á
pari, 72 höggum, en Englendingarnir Lee
James og Paul Streeter eru í forystu, á 67
höggum eða fnnm undir pari.
Þrjátíu efstu af hverjum velli komast í
lokamótið, sem verður á San Roque- og
Sotogrande-völlunum á Spáni 17.-22. nóv-
ember.
Þar munu þeir 90 sem tryggja sig áfram
bætast í hóp 78 kylfinga sem féllu út af
evrópsku mótaröðinni í ár vegna slælegs
árangurs. Birgir Leifur hefur komist í
lokamótið í þau þrjú ár sem hami hefur
reynt en ekki komist inn í mótaröðina þótt
tvívegis hafi munað sáraiitlu. Ólafur Már
er hins vegar að reyna fyrir sér í fyrsta
sinn.
Eriksson
þjálfarí
Englands
SÆNSKI þjálfarinn Sven Göran Eriksson hefur verið ráðinn lands-
liðsþjálfari Englands - mun taka við stjórn enska landsliðsins 1. júlí
2001 og stjórna liðinu fram yfir heimsmeistarakeppnina 2006.
Eriksson, sem er þjálfari Lazio á Ítalíu, er geysilega hæfur þjálfari -
það hefur hann sýnt sem þjálfari IFK Gautaborgar, Benfica, Roma,
Fiorentina, Sampdoria og Lazio. Hann er fyrsti þjálfarinn utan Eng-
lands sem mun stjórna enska landsliðinu.
Sænskir fjölmiðlar sögðu frá því
að hann tæki við erfiðasta
þjálfarastarfi í heimi í landi þar
sem þjálfarar fá það óþvegið í
fjölmiðlum ef ekki gengur vel.
„Bobby Robson var ofsóttur vegna
gráa hársins, Glen Hoddle vegna
trúar sinnar, Terry Venables vegna
viðskipta sinna og Graham Taylor
vegna alls annars. Velkominn í erf-
iðasta starf í heimi,“ sagði í Aft-
onbladet.
Félagar Eriksson í Svíþjóð hafa
þó ekki áhyggjur af honum, segja
hann frábæran þjálfara og sterkan
persónuleika sem muni örugglega
ráða við þann þrýsting sem fylgir
því að þjálfa enska landsliðið.
„Þetta eru tímamót í sænskri
sögu,“ skrifar Mats Olsson í
Expressen. „Það eru sjálfsagt til
stærri verkefni í knattspyrnunni í
heiminum en það er ekkert eins
mikils metið, spennandi, mikilvægt
og líklega jafndásamlegt og að taka
að sér þjálfun knattspyrnulandsliðs
Englands," sagði í Expressen.
Bresk blöð voru hins vegar upp-
full af enskri íhaldssemi og Jack
Charlton, fyrrum varnarjaxl í
enska landsliðinu og þjálfari Ira,
var ekkert að liggja á skoðun sinni:
„Stórslys," sagði hann og benti á
að franskur þjálfari væri við
stjórnvölin hjá franska landsliðinu,
þýskur hjá því þýska og ítalskur á
Italíu. Bróðir hans, Bobby, var
sama sinnis og sagði það móðgun
við þjóðarstolt Englendinga að fá
erlendan mann sem landsliðsþjálf-
ara.
Bresku blöðin bentu á að Eng-
lendingar hefðu fært heiminum
knattspyrnuleikinn og fannst
hræðilegt til þess að hugsa að stíga
þyrfti þetta skref sem þeim fannst
ekki happadrjúgt.
Gordon Taylor, formaður félags
atvinnumanna í Englandi, gagn-
rýndi einnig ráðningu Svíans og
sagði aðra menn betri kost án þess
þó að nefna nein nöfn. Eitt af því
sem honum fannst að Eriksson var
að hann hefði aldrei þjálfað lands-
iið áður.
Þeir Englendingar eru þó til sem
eru ánægðir og telja að ráðningin
sé af hinu góða. „Eg er ánægður.
Hann er mjög fær þjálfari," sagði
Terry Butcher, fyrrverandi lands-
liðsfyrirliði Englands. Annar fyrir-
liði, Alan Mullery, er einnig ánægð-
ur. „Ef það á að meta árangur og
hæfni manna eitthvað þá er Eriks-
son rétti maðurinn," sagði hann og
benti á að það hefði verið Englend-
ingurinn George Raynor sem hefði
komið Svíum í úrslitaleik HM 1958.
Sænski þjálfarinn Sven Göran Eriksson hefur þjálfað með góð
um árangri í Svíþjóð, á Ítalíu og Portúgal.
FOLK
■ PEGGUY Arphexad leikur í kvöld
sinn fyrsta leik í marki Liverpool
sem mætir Chelsea í enska deildar-
bikarnum. Arphexad kom til Liver-
pool frá Leicester í sumar og þá var
um það samið að hann léki alla leiki í
deildarbikarkeppninni. Sander
Westerveld hefur ekki verið sann-
færandi í marki Liverpool að undan-
förnu en Gerard Houllier, knatt-
spyrnustjóri félagsins, segir að hann
sé áfram markvörður númer eitt.
■ ÁRNI Gautur Arason, markvörð-
ur norsku meistaranna í Rosenborg,
gæti fengið harða samkeppni um
markvarðarstöðuna á næstu leiktíð
því forráðamenn Rosenborgar hafa
sýnt áhuga á að kaupa Espen John-
sen, markvörð Start.
■ PAUL Sturrock var í gær ráðinn
knattspyrnustjóri hjá enska 3. deild-
arliðinu Plymouth. Sturrock sagði
starfi sínu lausu sem knattspyrnu-
stjóri hjá skoska úrvalsdeildarliðinu
Dundee United fyrr á leiktíðinni og
hefur verið atvinnulaus síðan.
■ DAVID Stern, framkvæmdastjóri
NBA-deildarinnar í körfuknattleik,
segir að færri stjömur verði valdar í
lið Bandaríkjanna á næstu Ólymp-
íuleikum í Aþenu árið 2004.
■ STERN segir að væntanlega verði
fleiri leikmenn valdir í liðið sem ekki
eru aðalstjörnur liða sinna_ í NBA-
deildinni. A nýafstöðnum Ólympíu-
leikum þótti leikur Draumaliðsins
einkennast af einstaklingsframtaki
og flestir leikmenn liðsins voru
ósáttir með sín hlutverk.
■ BANDARÍKJAMAÐ URINN Bri-
an Frasure féll á lyfjaprófi á Ólymp-
fumóti fatlaðra í Sydney vegna of
mikils magns af nandrónól-hormón-
inu. Frasure tók þátt í 100 og 200
metra spretthlaupum einfættra og
vann hann silfur í báðum greinum.
■ ÞAÐ sem hefur vakið athygli er að
frjálsíþróttakonan Marion Jones og
eiginmaður hennar C.J. Hunter eru
vinir Frasures og hefur hinn fatlaði
íþróttamaður æft mikið með Jones á
undanfömum ámm.
■ HUNTER féll sem kunnugt er á
fjórum lyfjaprófum sem tekin voru
af honum fyrir Ólympíuleikana í
Sydney og vakti mál hans heimsat-
hygli. Frasure er fyrsti frjálsíþrótta-
maðurinn sem feliur á lyfjaprófi á
Ólympíumóti fatlaðra í Sydney.
Brasilíu-
menn reiðir
Brasilíumenn era reiðir og sárir
yfir hótun Sepp Platters, for-
seta Aiþjóða knattspyrnusambands-
ins, þess efnis að Brasilíumönnum
verði meinuð þátttaka í heimsmeist-
arakeppninni í knattspyrnu árið
2002, hætti utanaðkomandi aðilar
ekki að hafa afskipti af stjórn
knattspymumála í landinu.
„Ég er sannfærður um að Brasilía
verður með á HM svo framariega
sem liðið er ekki að tapa inni á vellin-
um. Fyrir mitt leyti yrði heimsmeist-
arakeppnin lítt spennandi án þátt-
töku Brasilíu. Við munum halda
áfram rannsókn á málum knatt-
spyrnuhreyfingarinnar utan vallar
og ef eitthvað er ekki í lagi verður
fundin leið til að laga hlutina,“ sagði
þingmaður á brasih'ska þinginu í
samtali við Reuters fréttastofuna í
gær.
Margir hafa gagnrýnt brasilíska
knattspyrnusambandið fyrir slælega
stjómum og vinna þingnefndir með-
al annars að rannsókn á því hversu
mikil tengsl era á milH íþróttavöru-
fyrirtæksins Nike og knattspyrnu-
sambandsins. Þá er verið að kanna
tengl á milli félaga og umboðsmanna
og tekjustofna félaganna.
„Blatter ætti að vera varkárari og
ekki að vera tala um hluti sem hann
veit ekki um,“ segir í einu brasilísku
dagblaðanna sem fjölluðu mikið um
hótun Blatters í gær.