Morgunblaðið - 01.11.2000, Qupperneq 4
SKÍÐAKONAN unga og efnilega úr
Ármanni, Emma Furuvik, veröur
frá keppni í vetur. Emma, sem er í
Evrópuliði Islands í alpagreinum,
slasaðist á œfingu í Hinterux í Aust-
urríki og við læknisskoðun kom í
ljós að teygst hafði á krossbandi í
hné og þarf hdn að gangast undir
aðgerð.
Emma er 19 ára gömul og er ein
af efnilegustu skíðakonum lands-
ins. Þrátt fyrir ungan aldur er hún
sem stendur í 92. sæti á heimslist-
anum í bruni kvenna en hún hefur
sérhæft sig í hraðagreinum. Emma
stundar nám við skíðamenntaskól-
ann í Thorsby í Svíþjóð og út-
skrifast þaðan í vor.
Morgunblaðið/Jim Smart
Hart barist í viðureign Bjarnarins og Skautafélags Akureyrar.
ísland sleppur við
undankeppni EM
DREGIÐ hefur verið í riðla fyrir undankeppni Evrópumóts landsliða
í handknattleik karla sem fram fer í Svíþjóð í ársbyrjun 2002. ísland
situr hjá í undankeppninni og fer beint í úrslitaleiki, heima og heim-
an, um sæti í lokakeppninni sem fara fram næsta vor eða haust.
Sögulegur
sigur
Bjamarins
SÖGULEG úrslit urðu á íslands-
mótinu í í'shokkíi í Skautahöllinni í
Laugardal á laugardagskvöldið -
þegar Björninn vann Skautafélag
Akureyrar 13:8. Þetta var fyrsti
sigur Bjarnarins á SA í meistara-
flokki. Leikurinn var skemmtilegur
og byrjunin hjá gestunum var góð
því þeir komust f 1:0 eftir 11 sek-
úndur. Nokkur harka og hraði var í
leiknum og skemmtu um 200 áhorf-
endur sér vel. Brottvísanir voru tíð-
ar eða tíu hjá hvoru liði.
Heimamenn jöfnuðu sig fljótt á
áfallinu við að fá á sig mark eftir 11
sekúndur og fyrsta leikhluta lauk
með 3:3-jafntefli, næsta leikhluta
vann Björninn 5:3 og þann siðasta
5:2. Sigurður Einar Sveinbjarnar-
son gerði 5 mörk og átti 2 stoðsend-
ingar fyrir Björninn, Jónas Breki
Magnússon 3/1, Sergei Zak 3/3,
Snorri Gunnar Sigurðarson 1/5
og Glenn Hammer 1/1. Hjá SA var
Sigurður Sveinn Sigurðsson með 2
mörk og eina stoðsendingu, Rúnar
Rúnarsson 2/0, Leifur Finney 2/0,
Ingvar Þór Jónsson 1/2, Stefán
Hrafnsson 1/1 og Haraldur Vil-
hjálmsson 0/1.
Alls taka 37 þjóðir þátt í keppn-
inni. Fimm efstu liðin úr
Evrópukeppninni í Króatíu á þessu
ári fara beint til Svíþjóðar en auk
heimamanna eru það Rússar, Spán-
verjar, Frakkar og Slóvenar. Síðan
fara 12 þjóðir beint í úrslitaleikina
um EM-sæti en það eru ísland,
Króatía, Tékkland, Danmörk,
Þýskaland, Ungverjaland, Mak-
edónía, Noregur, Pólland, Portúgal,
Úkraína og Júgóslavía. Tvær þess-
ara'þjóða mætast innbyrðis en hinar
tíu mæta þeim tíu liðum sem komast
áfram úr undankeppninni. Þar eru
20 lið sem leika í fimm riðlum og
komast tvær þjóðir áfram úr hverj-
um þeirra. Undanriðlarnir eru leikn-
ir í janúar og eru þannig skipaðir:
1. riðill: Austurríki, Hvíta-Rússland,
Eistland og Ítalía.
2. riðill: Belgía, Búlgaría, Finnland
og Slóvakía.
3. riðill: Bosnía, Georgía, Grikkland
og Tyrkland.
4. riðill: Færeyjar, Litháen, Rúmen-
ía og Sviss.
5. riðill: Kýpur, ísrael, Lúxemborg
og Holland.
■ SOGNDAL tryggði sér sæti í
norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu
í fyrrakvöld með því að gera jafn-
tefli, 2:2, við Válerenga á útivelli í
síðari leik liðanna. Tommy Ören
skoraði jöfnunarmark Sogndal fjór-
um mínútum fyrir leikslok en lið
hans varð í þriðja sæti 1. deildar á
meðan Válerenga varð þriðja neðst í
úrvalsdeildinni.
■ VÁLERENGA er eitt stærsta og
vinsælasta félag Noregs en hefur
gengið illa á undanförnum ánim.
Liðin í 1. deild hugsa sér gott til
glóðarinnar, um 3-4.000 manns
fylgja Válerenga í útileiki og því
mikill tekjuauki fyrir þau að fá
Óslóarliðið í deildina.
■ STRÖMSGODSET, sem vann sig
upp í úrvalsdeildina, er frá Dramm-
en en ekki frá Osló eins og sagt var í
frétt í gær Um skipti Veigars Páls
Gunnarssonar þangað. A næsta
tímabili á höfuðborgin sjálf, Osló, að-
eins eitt lið í úrvalsdeildinni en það
er Lyn sem vann 1. deildina með yf-
irburðum.
■ EDILON Hreinsson, knattspyrnu-
maður úr KR, er genginn til liðs við
Fram. Edilon, sem er 22 ára og hef-
ur leikið 43 leiki með yngri landslið-
um íslands, hefur lítið fengið að
spreyta sig í Vesturbænum, spilaði
aðeins 12 leiki í efstu deild með fé-
laginu, en hann lék með IR-ingum í
1. deildinni í sumar sem lánsmaður
frá KR.
■ IVAiV Helguera, miðjumaður
Real Madrid og spænska landslið-
sins, sagði við fjölmiðla í heimalandi
sínu í gær að ensku meistararnir
Manchester United hefðu áhuga á
að fá sig í sínar raðir og viðræður um
það hefðu farið fram milli félaganna.
Helguera sagði að sér liði vel í Madr-
íd en það væri spennandi að vera
orðaður við stórlið á borð við United.
■ JESPER Grönkjær, leikmaður
Ajax og danska landsliðsins, er á leið
til Chelsea og kemur til enska fé-
lagsins um áramótin. Grönkjær, sem
er 24 ára vinstri kantmaður, kostar
um milljarð króna en hann samdi við
Chelsea um að fá frí til áramóta til að
jafna sig af meiðslum og hvíla sig eft-
ir mikið leikjaálag á þessu ári.
■ BREIÐABLIK og KA hafa samið
um að leikur liðanna í 32-liða úrslit-
um bikarkeppni kai’la í handknatt-
leik fari fram á Akureyri, ekki í
Kópavogi eins og drátturinn sagði
til um. Reiknað er með mun betri að-
sókn norðan heiða á þriðjudaginn.
■ HREINN Hringsson knattspyrnu-
maður hefur skrifað undir tveggja
ára samning við 1. deildarlið KA.
Hreinn gekk til liðs við KA-menn frá
Þrótti í Reykjavík síðasta vor.
Hreinn hefur áður leikið með Þór
Ak., Magna og liðum í Skotlandi:
Dumberton, Patrik og East Stirling.
Portland meist-
ari meistaranna
PORTLAND San Antonio sigr-
aði Barcelona, 28:24, í úr-
slitaleik spænsku félaganna um
meistaratitil meistaranna í
evrópskum handknattleik á
sunnudaginn.
Fjögur lið léku um titilinn á
heimavelli Portland í Pamplona á
Spáni um helgina og það vakti at-
hygli að heimamenn skyldu
hnekkja veldi Barcelona. Frakk-
inn Jackson Richardson og Hvit-
rússinn Mikhail Lakimovich voru
í aðalhlutverkum hjá Portland
ásamt markverðinum Alexandru
Buligan. Markakóngur mótsins
var Rafael Guijosa sem gerði 15
mörk fyrir Barcelona.
í undanúrslitum vann Barcel-
ona sigur á Dunaferr frá Ung-
verjalandi, 28:20, og Portland
vann Metkovic frá Króatíu, 27:18.
í leik um þriðja sæti vann síðan
Dunaferr sigur á Metkovic, 27:22.
Barcelona sigraði í meistara-
deild Evrópu á síðasta tímabili,
Portland í Evrópukeppni bikar-
hafa og Metkovic í EHF-bikarn-
um.
Dunaferr kom síðan inn sem
silfurverðlaunahafi í Evrópu-
keppni bikarhafa.
Ivar maður leiksins
IVAR Ingimarsson var valinn maður Ieiksins af enska blaðinu The
Sun og fékk hann 8 í einkunn fyrir frammistöðu sína með liði
sínu Brentford gegn Walsall á laugardag. Brentford vann nokkuð
óvæntan sigur, 2:1, á Walsall, sem fyrir leikinn var á toppi 2.
deildar. Ólafur Gottskálksson stóð sig einnig vel í leiknum og
hlaut 7 í einkunn.
Emma Furuvik frá keppni