Morgunblaðið - 14.11.2000, Qupperneq 1
FILA dúnúlpa. St. S-L.
Nike Oxford fóöruð úlpa St. S-XL.
Bíldshöföa • 110 Reykjiivík
510 8020 • www.intersport.ls
Það uetrarí
Helly Hansen dúnúlpa. St. S-XL.
2000
m ÞRIÐJUDAGUR14. NOVEMBER
BLAÐ
ADIDAS 3-Stripe dúnúlpa. St. 6-9.
Northbrook Flora dúnúlpa. St. S-L.
VINTERSPORT
VINTERSPORT
VINTERSPORT
-iiA
90,
Keilis-
menn
gáfu eftir
SVEIT Golfklúbbsins Keil-
is hafnaði í 5.-6. sæti á
Evrópumóti félagsliða f
golfi á Parco di Medici-
vellinum f Róm, sem lauk
á laugardag. Allir þrír
Keilismennirnir léku síð-
asta hringinn á 73 högg-
um, tveimur yfir pari, og
luku leik fjórum höggum á
eftir Shandon Park-
golfkiúbbnum frá íriandi,
sem sigraði.
írarnir luku leik á 579
höggum, Frakkar og Hol-
lendingar urðu í öðru til
þriðja sæti á 581, tveimur
höggum á undan Keilis-
mönnum og þýskri sveit.
Sveit Keilis skipuðu
Björgvin Sigurbergsson,
Ólafur Már Sigurðsson og
Ólafur Þór Ágústsson.
Liðsstjóri var Jóhann Sig-
urbergsson.
Morgunblaðið/Kristinn
Landsliðsmarkverðirnir Birkir Kristinsson og Árni Gautur Arason teygja hér hendurnar í átt til
himins ásamt Guðmundi Hreiðarssyni markvarðaþjálfara á æfingu landsliðsins í knattspyrnu á
Legia-leikvanginum í Varsjá í gærkvöldi.
Fýrsti leikurínn gegn
Pólveijum í 21 ár
ÍSLENSKA landsliðið í knattspyrnu hefur ekki mætt Pólverjum í 21
ár, eða síðan árið 1979. Eggerti Magnússyni, formanni KSÍ, fannst
tími til kominn að þjóðirnar léku landsleik eftir þetta langan tíma og
þar sem hann og Michal Listkiewicz, formaður pólska sambands-
ins, eru í sömu nefnd innan knattspyrnusambands Evrópu og góðir
kunningjar þess utan ræddu þeir þessa hugmynd og því er íslenska
landsliðið komið til Póllands.
Við ræddum þetta fyrst í vor og
þá kom strax upp þessi dags-
etning enda hvorugt landsliðið upp-
tekið. Síðan nokkr-
um mánuðum síðar
var ákveðið að liðin
mættust að nýju í
ágúst á næsta ári,
en þá eru bæði liðin líka á lausu,“
sagði Eggert á fjölmennum blaða-
mannafundi í Varsjá í gær. Pólskir
blaðamenn spurðu mikið um hvern-
ig þessir leikir hefðu komið upp og
einnig um íslenska liðið. Atli Eð-
valdsson, landsliðsþjálfari, sagði
Skúli Unnar
Sveinsson
skrífarfrá
Póllandi
leikinn kærkominn fyrir Islendinga
enda væri ekki hægt að leika knatt-
spyrnu á íslandi nema fjóra til
fimm mánuði á ári og því væri
svona leikur tilvalið tækifæri til að
hittast og reyna að bæta sig.
Einn frægasti knattspyrnumað-
ur Pólverja á síðari árum, Zbign-
iew Boniek, var á blaðamannafund-
inum og vísaði Atli til hans þegar
hann sagði að pólsk knattspyrna
væri í mikilli framför og að landslið
Póllands hefði undanfarin ár staðið
sig vel. Boniek er annar tveggja
varaforseta pólska knattspyrnu-
sambandsins. Hann býr á Ítalíu en
er alltaf nokkra daga í mánuði í
Póllandi og er knattspyrnuforystan
í landinu mjög ánægð með störf
hans þrátt fyrir að hann búi víðs-
fjarri.
Islenska liðið æfði í gærkvöld á
Legia-leikvellinum þar sem lands-
leikurinn verður á miðvikudaginn,
en hann er í eigu hersins. Völlurinn
sjálfur er ágætur en öll aðstaða í
kringum hann, svo sem búnings-
herbergi og annað, er komin til ára
sinna. Til stendur að gera endur-
bætur á vellinum en vandamálið er
að enginn veit hver á landið og því
má ekki hrófla við neinu. Fjárfest-
ar vilja kaupa landið og byggja þar
en íþróttaforystan vill aftur á móti
halda áfram að byggja upp íþrótta-
aðstöðu á svæðinu, sem er þónokk-
ur fyrir, því að þar er einnig meðal
annars íshokkíhöll.
ARNAR GUNNLAUGSSON STAL SENUNNI / B2