Morgunblaðið - 14.11.2000, Side 2
2 B ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
Amar stal senunni
á Filbert-stræti
ARNAR Gunnlaugsson stal senunni hjá Leicester City um helgina
er hann tryggði liðinu eitt stig í ensku úrvalsdeildinni með því að
skora eina mark liðsins gegn Newcastle United á Filbert Street.
Arnar kom inn á sem varamaður á 55. mínútu og sjö mínútum síðar
fékk Leicester aukaspyrnu rétt utan teigs.
HSI fékk
tvær
milljónir
Handknattleikssamband Is-
lands hefur hlotið 2 tnillj-
óna króna styrk úr Afreks-
mannasjóði Iþrótta- og
Óiympiusambands fslands,
ÍSI. Hefur þetta verið stað-
fest af framkvæmdastjórn
ÍSÍ, en styrkurinn er vegna
verkefna karlalandsliðsins í
vor og í haust á þessu ári.
Að sögn Einars Þorvarð-
arsonar, framkvæmda-
stjóra HSI, þá hefur sam-
bandið þegar sótt um styrk
vegna næsta árs en þá tek-
ur A-landslið karla þátt í
heimsmeistaramótinu í
Frakklandi sem fram fer í
lok janúar og í byijun febr-
úar.
„Styrkur Afreksmanna-
sjóðs nú var vegna þátttöku
okkar í undankeppni HM
síðasta vor og til þess að
standa að hluta til undir æf-
ingabúðum landsliðsins hér
heima í tíu daga í septem-
ber síðastliðinn. Æfínga-
búðirnar voru hluti af und-
irbúningi landsliðsins fyrir
HM,“ sagði Einar.
Atvinnu-
menn
meðá
íslands-
mótinu
Golfsamband íslands hélt árs-
þing sitt um helgina í
Reykjavík og ein af athyglisverð-
ustu breytingum þingsins á lögum
Golfsambands íslands var sú
breyting að íslenskum atvinnu-
mönnum í golfi verður framvegis
leyft að taka þátt í íslandsmóti og
að keppa um titilinn „Islands-
meistari í golfi“.
Á þinginu var rætt um rétt-
mæti þess að leyfa atvinnumönn-
um að taka þátt í Islandsmóti,
sem og öðrum mótum. Til máls
tóku Hörður Þorsteinsson, fram-
kvæmdastjóri GSÍ, og nafni hans
Arnarsson, golfkennari hjá Keili í
Hafnarfirði, og sögðust fylgjandi
tillögunni. Hörður Arnarsson
sagði í sinni tölu að breytingatil-
lagan hefði fengið góðan hljóm-
grunn meðal fremstu áhuga-
manna íslands. Hörður Arn-
arsson sagði að íslenskir kylf-
ingar óskuðu eftir samkeppni frá
atvinnumönnum á borð við Birgi
Leif Hafþórsson í keppninni um
íslandsmeistaratitilinn og að sú
samkeppni myndi hjálpa fremstu
áhugakylfingum landsins.
Hörður Þorsteinsson bætti því
við að hér eftir gætu íslenskir kylf-
ingar gerst atvinnumenn og þann-
ig aflað sér fjár til þátttöku í úr-
tökumótum að mótaröðum erlendis
án þess að eiga á hættu að brjóta
reglur um áhugamennskuréttindi.
A þinginu var einnig samþykkt
að breyta deildaskipan Sveita-
keppni GSI, þannig að fleiri sveitir
léku í hverri deild svo árið 2001
verða átta sveitir í efstu deild.
Þingið samþykkti einnig að
Golfþing færi framvegis fram ann-
að hvert ár, en formannafundur
yrði þess á milli. Breytingin tekur
ekki gildi fyrr en að loknu þingi
GSÍ á næsta ári en að því loknu
verður golfþing með tveggja ára
millibili.
Arnar tók aukaspyrnuna og
skaut föstu bogaskoti efst í
markhornið fjær. Markið kom
Leicester yfir í
IrisBjörk leiknum en Gary
Eysteinsdóttir Speed jafnaði fyrir
skrifarfrá Newcastle um
stundarfjórðungi
fyrir leikslok. Arnar vakti einnig
athygli fyrir skemmtileg tilþrif og
Loksins vann ég á móti,“ sagði
Halldór Jóhannsson þolfimi-
Okappi með bros á vör en hann varð
Norðurlandameistari karla í þolfími
á laugardaginn. Mótið fór fram í
Vesterás í Svíþjóð og hafði Halldór
nokkra yfirburði í karlaflokki. Jó-
hanna Rósa Ágústsdóttir hafnaði í
þriðja sæti í kvennaflokki og komu
því báðir íslensku keppendurnir með
verðlaun í farteskinu frá mótinu sem
jafnframt var opna sænska meist-
aramótið.
„Ég æfði vel fyrir mótið og er að
uppskera laun þess erfiðis núna,“
sagði Halldór sem keppir ásamt Jó-
hönnu á heimsbikarmóti í Rúmeníu
eftir hálfan mánuð.
Halldór hlaut 18,15 í einkunn fyrir
æfingar sínar en Svíinn sem hafnaði í
öðru sæti fékk 17,15. Sænskur kepp-
andi varð einnig í þriðja sæti.
„Mín skoðun er sú að Jóhanna hafi
átt að vera í fyrsta eða öðru sæti en
var valinn maður leiksins hjá enska
blaðinu News of the World þar
sem segir að hann hafi gert meira
á þeim 35 mínútum sem hann lék
en hinir leikmennirnir gerðu á 90
mínútum. Að auki valdi blaðið Arn-
ar í lið dagsins í úrvalsdeildinni.
„Þetta var frábært skot. Það má
alltaf treysta á að Arnar geri eitt-
hvað óvænt til að breyta leikjum,“
því miður varð það ekki raunin. Upp-
hafið á æfingum hennar tókst ekki
sem skyldi og það hefur væntanlega
komið henni til frádráttar," sagði
Halldór um frammistöðu Jóhönnu
Rósu. Hún fékk 15,90 í einkun, var
0,6 á eftir sigurvegaranum sem kom
frá Svíþjóð. „Jóhanna bætti sig þeg-
ar á leið og lauk keppni á mjög góðan
hátt.Það var því miður ekki nóg.“
Jóhanna og Halldór taka þátt í
heimsbikarmóti í Rúmeníu eftir hálf-
an mánuð og einnig stefna þau á
þátttöku á öðru heimsbikarmóti í
Búlgaríu í mars. Halldór hefur þegar
tekið þátt í einu heimsbikarmóti í
þessari mótaröð og varð í sjötta sæti.
Þegar mótaröðinni lýkm- með mót-
inu í Búlgaríu keppa átta þeir bestu í
úrslitakeppni næsta sumar. „Ég
verð að spýta í lofana til þess að vera
með í baráttunni," sagði Halldór og
var bjartsýnn og laus við meiðsli sem
plöguðu hann hluta ársins.
sagði Peter Taylor, knattspyrnu-
stjóri Leicester, eftir leikinn.
Markið sem Arnar skoraði á móti
Derby í lok október var valið mark
mánaðarins hjá Leicester. Fyrir
leikinn gegn Newcastle á laugar-
dag fékk hann afhent úr í verðlaun.
Arnar sagði í viðtali við heimasíðu
félagsins að slík mörk væru engin
heppni.
„Ég æfði aukalega á föstudag
með Tim Flowers markverði og þá
skaut ég þremur skotum efst í
markhornið. Síðan þegar við feng-
um aukaspyrnuna á laugardag bað
ég Neil Lennon um að fá að taka
spyrnuna og sem betur fer fór
boltinn í netið,“ sagði Arnar. „Við
þurftum á einhverju sérstöku að
halda og ég hafði trú á að ég gæti
þetta,“ sagði Arnar um markið
glæsilega gegn Newcastle. Ai'nar
vonast til að fá fleiri tækifæri með
liðinu á næstunni og landslið ís-
lands er honum einnig ofarlega í
huga.
„Ég held að mörkin sem ég hef
skorað að undanförnu hjálpi mér
að komast í íslenska landsliðið að
nýju þar sem enska úrvalsdeildin
er sú erfiðasta í heiminum," bætti
Arnar við.
HRAÐMÓT
Keppnistímabil íslenskra knatt-
spymumanna hefur hingað
til verið það stysta í Evrópu. Þeir
hefja æfingar í nóvember og undir-
búa sig í hálft ár Jyrir íslandsmót
sem síðan fer fram á fjórum mán-
uðum og er á köflum háli'gert hrað-
mót. Það hefst um miðjan
maí og lýkur um miðjan
september. Á þessum
fjórum mánuðum leika 10
lið 18 umferðir, auk þess
sem bikarkeppni og
Evrópuleikjum er púslað
inn á milli. Lið sem nær góðum ár-
angri leikur 24-25 leiki á þessu
stutta tímabili og spilar að meðal-
tali á 5 daga fresti.
T0 samanburðar er hefðbundið
keppnistímabil í Evrópu níu mán-
uðir, að loknum eins mánaðar und-
irbúningstíma. í Noregi og Sví-
þjóð, þeim löndum sem raunhæfast
er að bera sig saman við, er
keppnistímabilið sjö mánuðir eftir
þriggja mánaða undirbúning.
Finnar, sem að hluta búa við meira
vetrarríki en við, hafa lengt sitt
tímabil í áföngum og eru komnir í
33 umferðir, tólf lið og þrefalda
umferð. Þeh' hika ekki við að leika
innanhúss eins og með þarf. Fær-
eyingar hafa um árabil verið með
lengra tímabil en við Islendingar,
hátt í sex mánuði, og framfai*ir
þeirra undanfarin ár þekkja allir.
Til þessa hefur lítið verið við
þessu að gera. íslensk veðrátta
hefur einfaldlega ekki leyft meira,
þó eflaust megi lengja þann tíma
sem leikið er á grasvöllunum með
betri og markvissari umhirðu.
Fyrst hægt er að leika á grasi í
Tromsö í Norður-Noregi í apríl og í
Þrándheimi í nóvember og desem-
ber hlýtur að mega lengja notkun-
artíma íslensku grasvallanna um
einhverjar vikur.
Síðasta vetur opnuðust nýjar
víddir og áður óþekkt sóknarfæri
gáfust þegar Reykjaneshöllin var
tekin í notkun suður með sjó. Þar
er hægt að leika allt árið í logni og
16 stiga hita, hvemig sem viðrar
utandyra, og þar fór til dæmis
stærstur hluti deildabikarkeppn-
innar fram seinni part síðasta vetr-
ar. Ljóst er að á næstu misserum
munu fleiri knattspymuhallir rísa í
landinu, og þar með er kominn
grundvöllur fyrir endurskipulagn-
ingu - já hreinni uppstokkun á Is-
landsmótinu í knattspyrnu.
Það sjónannið hefur lengi verið
í-íkjandi að íslandsmótið skuli ein-
vörðungu leika á grasi. Að sjálf-
sögðu er rétt að stefna að því að
sem stærstur hluti þess fari fram
við þau skilyrði. En vilji menn sjá
frekari framþróun og framfarii' í
knattspymunni hér á landi þýðir
ekki að einblína á grasið. Með til-
komu íleiri knattspymuhúsa þai-f
að huga að mun lengra íslandsmóti
og fjölgun leikja og liða. Það þarf
að setja upp alvöru keppnistímabil
á íslandi og stytta þetta einstaka
átta mánaða vetrarfrí um helming
eða svo.
Þessi mál eru til umræðu hjá
Knattspymusambandi íslands um
þessar mundir og verða vonandi
rædd af alvöru á ársþingi sam-
bandsins í febrúar. Timi ákvarðana
og stefnumótunar er mnninn upp.
Það á skilyrðislaust að færa fyrstu
umferðir Islandsmótsins inn í
knattspymuhúsin um leið og
næstu hús em risin af grunni, og
einnig þær síðustu þegar veðrátta
leyfir ekki annað. Islandsmótið á
að hefjast í mars og ljúka i október.
Liðum í efstu deild karla á að fjölga
úi' 10 í 14 þannig að leiknai' séu 26
umferðir, eins og í Noregi og Sví-
þjóð, og um leið er rétt að fjölga í
12 lið bæði í 1. og 2. deild og hefja
keppni þar í síðasta lagi í aprílbyij-
un. I efstu deild kvenna væri rök-
réttast að bæta við úrslitakeppni
efstu og neðstu liða með tvöfaldri
umferð að loknum hefðbundnum
14 umferðum.
íslensk félagslið verða aldrei að
fullu samkeppnishæf á erlendum
vettvangi ef þau era án alvöra
keppni meirihluta áreins, og sama
er að segja um leikmennina sjálfa.
Þó hin svokölluðu vormót, deilda-
bikarinn og Reykjavíkurmótið, séu
góðra gjalda verð og nauðsynleg á
undii'búningstímabilinu koma þau
engan veginn í staðþess að leikið sé
af alvöra um stig á Islandsmóti. Þau
eiga að breytast alfarið í vetrarmót
og fara fram í janúar og febrúar.
Fyiir þrjátíu áram hófst fram-
faraskeið í íslenskri knattspymu
þegar Albert Guðmundsson, þá-
verandi foi-maður KSÍ, kom á vetr-
aræfingum landsliðsins og mótum
á snævi þöktum völlum í janúar og
febrúar. Þá opnuðust augu manna
fyrir því að hægt væri að leika
knattspymu á Islandi á öðram tím-
um en yílr hásumarið. Á þessum
áram og þeim næstu á eftir stigu
Islendingai' stór skref í rétt átt og
náðu betri árangri í alþjóðlegri
keppni en áður. Næsti stóri áfangi
var bygging fyrstu gervigrasvall-
anna á níunda áratugnum og nú er
tími knattspymuhúsanna ranninn
upp. Nú þurfa þeir sem stjórna
málefnum íþróttarinnar í landinu
að bera gæfu til að nýta þau rétt.
Víðir Sigurðsson
Það þarf að setja upp
alvöru keppnistímabil
á íslandi
Jóhanna Rósa Ágústsdóttir og Halldór Jóhannsson með af-
raksturinn af Norðurlandamótinu í Svíþjóð um helgina.
Halldór Norður-
landameistari