Morgunblaðið - 14.11.2000, Qupperneq 8
8 B ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 2000
KNATTSPYRNA
MORGUNBLAÐIÐ
■ GUÐNI Bergsson og félagar í
Bolton komust í 3. sæti 1. deildar
ensku knattspyrnunnar með sigri á
Barnsley, 2:0. Guðni lék allan leik-
inn.
mHEIÐAR Helguson sat á vara-
mannabekk Watford allan tímann
þegar lið hans tapaði, 2:0, fyrir
Tranmere. Watford missti þar með
toppsætið í hendur Fulham, sem
vann Wimbledon, 3:0.
■ RÍKHARÐUR Daöason, Bjarni
Guðjónsson, Brynjar Björn Gunn-
arsson og Stefán Þ. Þórðarson voru
allir í byrjunarliði Stoke sem tapaði,
0:1, fyrir Oldham í 2. deild. Stefán
fór af velli korteri fyrir leikslok.
Birkir Kristinsson var varamark-
vörður liðsins. Hann náði sér fljótt
af meiðslum, sem hann hlaut í leik
með varaliði Stoke í sl. viku -
meiddist á ökkla og gekk með hækj-
ur á eftir._
■ GUÐJÓN Þórðarson, knatt-
spyrnustjóri Stoke, var harðorður í
garð sinna manna eftir leikinn og
- sagði að sér hefði aldrei liðið jafn
illa eftir leik frá því hann tók við
stjórn liðsins. Stoke datt niður í
níunda sætið og fjarlægist topplið
deildarinnar.
■ ÓLAFUR Gottskálksson og ívar
Ingimarsson léku með Brentford
sem tapaði heima, 0:3, fyrir Rother-
ham í 2. deild.
■ JÓHANN B. Guðmundsson fór
beint í byrjunarlið Cambridge, sem
tapaði, 2:1, fyrir Wigan í 2. deild.
Jóhann var lánaður til Cambridge
frá Watford í síðustu viku. Hann fór
- af velli 20 mínútum fyrir leikslok.
■ BJARNÓLFUR Lárusson missti
af sínum öðrum leik í röð með
Scunthorpe vegna meiðsla en lið
hans tapaði, 2:1, fyrir Exeter í 3.
deild.
UJOHN Lukic, sem verður fer-
tugur í desember, hljóp enn í skarð-
ið hjá Arsenal og varði mark liðsins
gegn Derby. David Seaman tognaði
á ökkla á æfingu á föstudag og Alex
Manninger hefur verið frá vegna
meiðsla.
■ ARSENE Wenger, knattspyrnu-
stjóri Arsenal, ætlar að bíða og sjá
hvernig Manninger reiðir af á
næstu dögum en hann hóf æfíngar á
ný í gær. Ef hann er ekki tilbúinn
fljótlega ætlar Wenger að svipast
um eftir nýjum markverði.
■ DAVE Beasant, sem verður 42
ára síðar í vetur, ver enn mark
Nottingham Forest. Hann lék sinn
700. deildarleik á sunnudaginn þeg-
ar Forest vann Gillingham, 3:1, á
útivelli í 1. deild.
■ DERBY fékk í gær til liðs við sig
skoska landsliðsmanninn Brian
O’Neil sem hefur leikið með Wolfs-
burg í Þýskalandi undanfarin fjög-
ur ár. I staðinn fór þýski varnar-
maðurinn Stefan Schnoor frá
Derby til Wolfsburg.
■ MICHAEL Owen, Paul Scholes,
Wes Brown og Alan Smith hafa all-
ir dregið sig út úr enska landsliðs-
- hópnum fyrir vináttuleikinn gegn
ítölum á morgun vegna meiðsla.
Líklegast er að Robbie Fowler
verði í fremstu víglínu ásamt félaga
sínum frá Liverpool, Emile Heskey.
■ DARREN Anderton kemur mjög
líklega inn í byrjunarlið Englands
en hann og Gareth Southgate eru
elstu leikmennirnir í hópnum, 28 og
30 ára.
■ DAVID Batty er bjartsýnn á að
geta byrjað að leika með Leeds í
febrúar en útlit var fyrir að hann
yrði ekkert með á tímabilinu eftir
_ að hafa gengist undir uppskurð á
,hásin.
■ HENRIK Larsson skoraði tvíveg-
is fyrir Celtic sem vann St. Johnsto-
ne, 4:1, í skosku úrvalsdeildinni.
Larsson hefur nú gert 20 mörk á
tímabilinu og Celtic er komið með
fimm stiga forskot á Hibernian sem
gerði jafntefli við Kilmarnock, 1:1.
Michael Mols tryggði Rangers sig-
* ur á Aberdeen á útivelli, 2:1.
Teddy Sheringham
er í miklu stuði
AP
Gustavo Poyet hleypur f rá markinu með knöttinn í fanginu eftir að hann jafnaði fyrir Chelsea. Fyr-
irliðinn Dennis Wise fagnar honum.
MANCHESTER United situr nú
eitt á toppi ensku úrvalsdeildar-
innar eftir 2:1 sigurá Middles-
brough um helgina. Erkifjendur
þeirra í Arsenal töpuðu óvænt
stigum er liðið gerði 0:0 jafntefli
gegn Derby og því skilja tvö stig
liðin að á toppnum. Emile Hesk-
ey var enn einu sinni í eldlínunni
hjá Liverpool er hann skoraði
tvö mörk gegn Coventry í 4:1
sigri og tryggði þar með þeim
rauðklæddu þriðja sætið að
nýju. Chelsea náði mikilvægu
jafntefli gegn Leeds en bæði lið
eru við miðja deild. Aston Villa
heldur áfram að koma á óvart og
skoraði lan Taylor bæði mörk
liðsins í 2:0 sigri gegn Totten-
ham.
Middlesbrough byrjaði af mikl-
um krafti gegn Manchester
United á Old Trafford á laugardag.
mggmm Christian Karembu
IrisBjörk skoraði fyrsta mark
Eysteinsdóttir leiksins. Boro fékk
skrifarfrá gullið tækifæri til að
auka forystuna í
byrjun síðari hálfleiks er Andy
Campbell skaut framhjá úr úrvals-
færi. Þegar um hálftími var til leiks-
loka lifnaði yfir meisturum United.
Roy Keane gaf á Nicky Butt sem
skoraði auðveldlega og nokkrum
mínútum síðar skoraði Teddy Sher-
ingham úrslitamarkið.
Eftir leikinn tók Alex Ferguson
föðurlega utan um fyrrum leikmann
sinn, Bryan Robson, knattspyrnu-
stjóra Boro. „Við spjölluðum saman
eftir leikinn og hann hvatti mig
áfram og sagði mér að gefast ekki
upp,“ sagði Robson en farið er að
hitna nokkuð undir stöðu hans hjá
Boro þar sem liðið hefur nú tapað
sex leikjum í röð, aðeins unnið einn
af síðustu 12 og er enn án sigurs á
heimavelli. United virðist alltaf gera
nákvæmlega það sem þarf í leikjum
sem þessum og var það vel við hæfi
að Teddy Sheringham sem hefur
verið í feiknaformi að undanförnu
skoraði úrslitamarkið.
Nýttu ekki einföld færi
Leikmenn Arsenal koma til með
að naga sig lengi í handarbökin yfir
töpuðum stigum gegn Derby.
Stjörnuframherjar liðsins geta skor-
að mörg stórkostleg mörk en enginn
þeirra virðist geta klárað einföld
marktækifæri. „Framherjar mínir
eru hrifnir af glæsilegum mörkum.
Við söknum sárt leikmanns sem get-
ur bara komið sér inn í teiginn og
klárað einföldu færin,“ sagði Arsene
Wenger knattspyrnustjóri Arsenal.
„Eg hélt að sá leikmaður væri Wilt-
ord, en svo var ekki í dag. Reyndar
er ekki hægt að kenna einum manni
um, heldur var það öllu liðinu að
kenna að við næðum ekki að skora.
Við sköpuðum fá tækifæri og það
vantaði takt í leik okkar,“ bætti
Wenger við eftir leikinn. Jafnteflið
var afar mikilvægt fyrir Derby sem
lyfti sér af botni deildarinnar. Ailir
leikmenn liðsins börðust eins og ljón
og var vömin þeirra sterkasti hlekk-
ur með Danny Higginbotham og
Seth Johnson báða í banastuði.
Heskey skorar og skorar
Sjálfstraust Emile Heskey fer
vaxandi með hverjum leik sem hann
spilar. Hann er farinn að klára hvert
marktækifærið á fætur öðru með
þvílíkri yfirvegun að hann hefur loks
náð að skapa sér nafn sem einn af
helstu markaskorurum deildarinnar.
Hann hefur nú skorað níu mörk í síð-
ustu sjö leikjum á meðan félagi hans,
Michael Owen, á í mesta basli með að
finna marknetið. Owen fékk átta
gullin marktækifæri gegn lélegu liði
Coventry og hefði 4:1 sigur liðsins
getað orðið helmingi stærri ef Owen
hefði klárað eitthvað af sínum fær-
um. Honum var að lokum skipt útaf
og á án efa eftir að finna fjölina að
nýju. Gary McAUister skoraði sitt
fyrsta mark fyrir Liverpool og fyrsta
mark leiksins gegn gömlu félögunum
í Coventry. David Thompson skoraði
einnig gegn gömlu félögunum - stór-
glæsilegt mark fyrir Coventry og
minnkaði muninn í 2:1. Markið kom á
tímabili þegar útlit var fyrir að Liv-
erpool missti áhuga og einbeitingu í
leiknum en vakti leikmenn af værum
blundi. Heskey gekk endanlega frá
Coventry með mörkunum tveimur í
lokin og útfrá þessum leik að dæma
verður erfitt fyrir Coventry að halda
sæti sínu í úrvalsdeildinni. „Þessi
sigur í dag var hrikalega mikilvægur
fyrir okkur,“ sagði Gerrard Houllier
eftir leikinn. „Ef við ætlum að berj-
ast um Evrópusæti þá verðum við
hreinlega að vinna heimaleikina,“
bætti hannvið.
Markahrókar mættust
Markahrókarnir Mark Viduka og
Jimmy Floyd Hasselbaink mættust
á Brúnni í leik Chelsea og Leeds sem
endaði með 1:1 jafntefli. Þrátt fyrir
að bæði lið hefðu framúrskarandi
markaskorara í sínum röðum leit
leikurinn heldur út fyrir að vera bar-
átta tveggja varna. Atta spjöld fóru á
loft og 45 aukaspyrnur voru dæmdar
í leiknum sem var margoft nálægt
því að fara úr böndunum. Viduka
hélt nafni sínu á lofti með því að
skora fyrsta mark leiksins og margir
töldu Chelsea heppið að ná að jafna
12 mínútum fyrir leikslok. Varnar-
menn Leeds voru staðráðnir í að
halda fyrrum félaga sínum, Hass-
elbaink, í skefjum og tókst það mest-
allan leikinn. Það var ekki fyrr en á
74. mínútu leiksins að Claudio Ran-
ieri skipti Eiði Smára Guðjohnsen og
Tore Andre FIo inn á að sóknarleik-
ur Chelsea lifnaði örlítið við. Stuttu
síðar jafnaði Gustavo Poyet leikinn
og rétt fyrir leikslok kom Eiður
Smári nálægt því að stela sigrinum
fyrir Chelsea en Paul Robinson varði
meistaralega.
Ginola náði fram hefndum
David Ginola náði fram hefndum á
George Graham knattspymustjóra
Tottenham þegar Aston Villa sigraði
2:0 á Villa Park. Ginola kennir
Graham um að hafa selt sig frá Tott-
enham og gat því ekki varist brosi er
hann kom inn á sem varamaður er 13
mínútur lifðu leiks - Villa var yfir 2:0
og Tottenham-áhangendur fögnuðu
honum ákafar en nokkru sinni fyrr.
„Það er ekkert illt milli okkar
Grahams persónulega séð og
kannski setjumst við saman yfir
drykk þegar við verðum eldri,“ sagði
Ginola sem var himinlifandi með sig-
urinn. „Ég er mjög ánægður með
frammistöðu okkar í kvöld og sigur-
inn. Það sýnir bara að ég er í rétta
liðinu. I fyrsta skiptið á 15 ára ferli
mínum heyrði ég áhorfendur beggja
liða synga nafnið mitt,“ sagði Ginola
ánægður. Ian Taylor skoraði bæði
mörk Villa sem situr nú nokkuð
óvænt í fimmta sæti deildarinnar.
Skorað í hverjum leik
Ipswich er eina liðið í úrvalsdeild-
inni sem hefur skorað í hverjum ein-
asta leik á tímabilinu. A því varð eng-
in breyting á laugardag er liðið vann
Charlton 2:0. Sjötta sætið er því
þeirra í bili og hefðu fáir trúað því
fyrir leiktímabilið að nýliðarnir ættu
eftir að skína svo skært. „Það er frá-
bært andrúmsloft í hópnum og
sjálfstraustið skín af hverjum leik-
manni. Það er gott fyrir félagið og
fyrir bæinn allan,“ sagði Richard
Wright sem var valinn í enska
landsliðið sem mætir Itölum á morg-
Olíkt höfðust þau að á sunnudag-
inn, stórveldin í spænsku
knattspyrnunni. Real Madrid fór
hamförum gegn eyjaskeggjunum í
Las Palmas og vann stórsigur, 5:1, á
meðan Barcelona mátti þola óvænt-
an og niðurlægjandi ósigur á heima-
velli gegn Villarreal, 1:2. Það eru
hinsvegar Valencia og Deportivo La
Coruna sem eru jöfn og efst á toppn-
um með 20 stig eftir 10 umferðir en
Real er í þriðja sætinu og Barcelona
í því sjöunda.
Femando Hierro skoraði tvö
marka Real Madrid og fékk gullið
tækifæri í lokin til að ná þrennunni
en skaut þá yfir mark Kanaríeyja-
liðsins úr vítaspyrnu. Þá voru leik-
un. Leikurinn var frábær skemmtun
þrátt fyrir að töluverðan tíma tæki
að skora fyrsta markið. Matt Hol-
land skoraði sitt fyrsta mark í úr-
valsdeildinni með ágætu langskoti
eftir góðan undirbúning Hermanns
Hreiðarssonar. Marcus Stew'art
skoraði svo annað mark liðsins undir
lokin og innsiglaði sigurinn. Her-
mann lék allan leikinn fyrir Ipswdch
ogstóð sigvel.
Fjögur mörk West Ham
Paolo DiCanio skoraði síðasta
mark West Ham á síðustu mínútunni
gegn Manchester City í 4:1 sigri með
kæruleysislegu skoti í mitt markið úr
víti. Það voru þó þrjú mörk West
Ham á 14 mínútum sem tryggðu
þeim sigurinn í upphafi síðari hálf-
leiks. Varnarmaðurinn Rio Ferdin-
and var í sviðsljósinu þar sem hann
vill ólmur sanna að hann sé nógu
góður til að leika með landsliði Eng-
lands.
„Þegar Rio kom inn í liðið aðeins
17 ára gamall sagði ég að hann væri
leikmaðurinn sem enska landsliðið
hefur beðið eftir í þrjátíu ár,“ sagði
Harry Redknapp knattspyrnustjóri
West Ham. Liðið hefur að undan-
förnu verið að vinna sig upp töfluna
eftir afar slæma byrjun á tímabilinu.
menn Las Palmas orðnir tveimur
færri eftir að markverðinum Nacho
Gonzalez og varnarmanninum Alv-
aro hafði verið vísað af velli. Þórður
Guðjónsson lék ekki með Las Palm-
as vegna meiðsla.
Victor var hetja Villarreal en hann
skoraði bæði mörk liðsins gegn
Barcelona, það fyrra strax á fyrstu
mínútunni. Philip Cocu skoraði mark
Bareelona.
Valencia lenti 0:2 undir á heima-
velli gegn Rayo Vallecano en jafnaði
metin með mörkum frá Gaizka
Mendieta og Diego Alonso.
Diego Tristan tryggði Deportivo
öruggan sigur á Zaragoza með
tveimur góðum mörkum í 2:0 sigri.
Stórsigur Real -
skellur Barcelona