Alþýðublaðið - 01.04.1959, Blaðsíða 2
þriðjudagur
V e d r i ð :
S.-V. él, frostlaust.
UTVARPIÐ I DAG: — 12.50
—14.00 Við vinnuna. 18.30
Útvarpssaga barnanna. —
18.55 Framburðarkennsla í
ensku. 19.05 Þingfréttir. —
Tónleikar. 20.30 Lestur
íornrita: Dámusta saga,II.
20.55 íslenzkir einleikarar:
Jórunn Viðar leikur á píanó
— 21.25 Viðtal vikunnar.
21.45 íslenzkt mál, 22.10
Kvöldsaga í lekiformi: —
„Tíu litlir negrastrákar“ —
eftir Agöthu Christie og
Ayton Whitaker; I. þáttur.
Leikstjöri og þýðandi: Hild-
'tir Kalman. 22.35 í léttum
tón. 23.05 Dagskrárlok.
IFRiÍMERKI. — Blaðinu he£-
ur borizt bréf frá tveim
dönskurr. frímerkjasöfnur-
um, sem vilja íusir komast
£ 'samband við íslenzka safn
nra með skipti fyrir augum.
H>eir, sem hafa áhuga, ættu
að skrifa til: Hr. A. M. Ped-
isrsen, Ahornvej 32, Frede-
riksværk, Danmark.
DAGSKRÁ ALÞINGIS í dag:
iSameinað þing — 1. Far-
iskipaflotinn. 2. Uppsögn
varnarsamnings. 3. Lán
vegna hafnargerða. 4. Sögu
ntaðir. 5. Útvegun lánsfjár.
6. Handritamálið.
k
SAMSKOTIN. — Til AI-
þýðublaðsins hafa borizt kr.
3000.00 frá Bókbindarafé-
lagi íslands.
ÁFMÆLI. Áttatíu ára varð í
gær Magnús S. Magnússon,
prentari, Ingólfsstræti 7,
Reykjavík.
PRÁ skrifstofu borgarlæknis:
Farsóttir í Rvk vikuna 8.—
14. mai’z 1959 samkvæmt
Bkýrslum 52 (42) starfandi
Sækna. — Hálsbólga 91 (93)
Kvefsótt 174 (168). Iðra-
itvef 29 (23). Inflúenza 9
(12). Mislingar 3 (12). —
ÍHvotsótt 1 (1). Kveflungna-
i.aólga 13 (12). Rauðir hund-
ar 1 (3). Skarlasótt 3 (1).
Munnangur 1 (0). Hlaupa-
loóla 25 (24). Ristill 2 (0).
IÆSTAMANNAKLÚBBUR-
INN i baðstofu Naustsins
tsr opinn í kvöld. Umræðu-
efni: Utanlandssýningar
í.nec hliðsjón af Rússlands-
fíýningunni. Málshefjandí:
Magnús Á. Árnason, lista-
ffnaður. Sýningarnefndinni -
er sérstaklega boðið.
Ásgrímssýningin.
ITér er fegurð, myndríkt mál,
omldi, göfgi, festa.
JListamannsins líf og sál
l.eiðir fram það bezta.
Jóhannes Sigurðsson.
Rit um setningaíorm og stíl tek
við doktorspróí
Höfundur er HaraSdor Matthfasson
menntaskóSakennari á Laogarvatni.
Mikil aðsókn að Asgrímssýningu
MIKIL AÐSÓKN var áð Ásgrímssýningunni um páskana.
Á páskadag sóttu sýninguna 2600 manns. Hafa nú alls sótt
sýninguna 11—12 þús. manns. Sýningin verður opin þessa
viku kl. 13—22 daglega nema á sunnudag, þá íkl. 10—22.
MaraféEags
AÐALFUNDUR Bókbind-
arafélags íslands var haldinn í
Aðalstræti 12 mánudaginn 23.
marz sl.
Á fundinum var lýst stjórn-
arkjöri. Engar tillögur um
menn í stjórn félagsins höfðu
komið fram, aðrar en tillögu-
nefnd félagsins um stjórnar-
kjör hafði gert, og urðu tillög-
ur hennar því sjálfkjörnar.
í stjórninni eiga sæti þessir
menn: Formaður, Guðgeir
Jónsson. Varaformaður, Grétar
l^inninna rájjjöi
S.3.8.S.
Selfossi í gær.
Á PÁSKADAG messaði sr.
Sigurðiir Pálsson í Selfoss-
kirkju. Skírði hann 9 börn við
guðsþjónustuna,
BRÚÐKAUP.
S. L. laugardag gaf sr. Sig-
urður Pálsson saman í hjóna-
band' í Selfoskirkju: Þórhildi
M. Guðmundsdóttir, Smáratúni
4, Selifossi og Pál Sigurgeirs-
son, bifvélavirkja, Hlíð, Aust-
ur-Eyjafjöllum. Heimili ungu
hjónanna verðux að Smáratúni
4 Selfossi,
S. 1. lauigardag gaf sr. Bjarni
Jónsson, saman í hjónaband: —
Gyðu Huldu Björnsdúttur,
Heiðmönk 3, Selfossi og Jón
Ágústsson, mijólkurbílsstj óra,
Selfossi. Systrabrúðkaup: — Sr.
Ingólfur Ástmarsson gaf nýlega
saman í Búrfellskirkju: Ing-
unni Pálsdóttur, Búrfelli og
, Guðmund Axeísson, Hlíðar-
gerði 20, Rvk. Og einnig Eddu
Laufey Pálsdóttir, Búrfelli og
Svan Kristjánsson frá Ferju-
bakka, Borgarfirði. Heimili
hjónanna verður að Austurvegi
25, Selfossi.
HJÓNAEFNI.
Um páskana opinberuðu trú-
lofun sína ungfrú Hjördís Þor-
steinsdóttir, Miðtúni 15, Sel-
fossi og Bjarni Tómasson, bíl-
stjóri. Og ennfremur ungfrú
Lára Johannesdóttir, síma-
stúlka, Kirkjulundi, Vestmanna
eyjum og Páll Sigurðsson (Páls
sonar prests), iðnnemi, Selfossi.
Sigurðsson. Ritari, Tryggvi
Sveinbjörnsson. Gjaldk., Helgi
Hrafn Helgason. Fimmti mað-
ur í stjórn er formaður kvenna-
deildar félagsins, Jónína Sig-
ui’bergsdóttir.
Varastjórn skipa þessir; Við-
ar Þorsteinsson, J. Guðmundur
Gíslason, Guðmundur Þorkels-
son og Stefán Jónsson.
Einar Helgason, sem verið
hefur varaformaður félagsins
sl. 9 ár, baðst nú undan endur-
kosningu.
í blaði félagsins, Bókbindar-
anum, sem kom út fyrir fund-
inn, birtust skýrsla stjórnar-
innar og reikningar félagsins.
Var hvorttveggja rætt á fund-
inum og reikningarnir sam-
bvkktir samhljóða. Eignir fé-
lagsins í árslok námu kr. 534.-
044.21 og höfðu aukizt á árinu
um kr. 79.609.15.
Á fundinum voru lagðar
fram tillögur nefndarinnar, er
stjórnin hafði skipað til að end-
urskoða lög og reglugerðir fé-
lagsins. Var þar nánast um að
ræða frumvarp til nýrra laga
fyrir félagið og var það sam-
þykkt samhljóða. Nefndinni
hafði ekki unnizt tími til að
endurskoða reglugerðir sjóða
og var henni falið að halda á-
fram störfum og samþykkt að
fresta fundinum og halda fram
haldsaðalfund, er álit hennar
lægi fyrir.
Ingi R. skákmeisl-
ari
SKAKÞINGI ISLANDS lauk
í fyrradag. Sigraði Ingi E. Jó-
hannsson í landsliðsflokki og
lilýtur hann nú í þriðja sinn
titilinn Skákmeistari íslands.
Hlaut Ingi 10 vinninga af 11
mögulegum, vann 9 skákir og
gerði 2 jafntefli. í 2.—3. sæti
urðu þeir Ingimar Jónsson og
Ingvar Ásmundsson með 8V2 v.
hvor. í 4.—5. sæti urðu Benóný
Benediktsson og Halldór Jóns-
son með 6lá vinning hvor, 6.
Ólafur Magnússon 6 vinninga,
7. Kári Sólmundarson 5 vinn-
inga, 8. Þórir Sæmundsson 4
vinninga, 9., Jón Kristjánsson
3V2 v. 10.—11. Haukur Sveins-
son og Jón Guðmundsson 3 v.
hvor, 12. Reimar Sigurðsson
með Há vinning.
í meistaraflokki sigraði Stef-
án Briem, hlaut IV2 vinning af
9 mögulegum. Annar varð Jón-
as Þorvaldsson með 6V2 vinn-
ing og þriðji Sigurður Gunn-
arsson með 6 vinninga.
HARALDUR Matthíasson
menntaskólakennari á Laugar-
vatni hefur samið rit, er nefn-
ist „Setningarform og stíll“.
Hefur heimspekideild Háskóla
íslands tekið ritið gilt til varn-
ar við doktorspróf, og mun
doktorsvörnin fara fram í vor.
Rit þetta, sem er 303 bls., er
gefið út af Bókaútgáfu Menn-
ingarsjóðs. Kom það í bóka-
verzlanir á föstudaginn.
Bókin „Setningarform og
stíll“ fjallar einkum um aðal-
setningar og aukasetningar í
rituðu máli og' talmáli. Þar eru
í fyrsta lagi ræddar helztu
kenningar um það, hvernig
aukasetningar hafi myndazt
endur fyrir löngu. Þá er skýrt,
hvernig líklegast sé, að tengi-
orð aukasetninga í íslenzku
máli hafi myndazt, miðað við
Landhelgin
Framhald af 12 dðu
svæði brezku togaranna við
Snæfellsnes lokað, því að „Mal-
colm“ herskip svæðisins hafði
tekið dauðveikan mann úr
hrezka togaranum „Coventry
Ci.ty“ og hélt suður á bóginn
til móts við þýzka eftirlitsskip-
ið „Poseidon", en þar átti að
skera manninn upp.
Bretinn var svo skorinn upp
um kvöldið með aðstoð læknis-
ins af ,,Malcolm“.
Herskipið „Duncan“ kom að
Snæfellsnesi kl. 21.30 sama
dag og opnaði svæðið aftur.
ÞR.TÚ VERNDARSVÆÐX.
Brézku herskipin halda enn
uppi 3 verndarsvæðum til ólög-
legra veiða fyrir brezka tosara,
nefnilega út af miðjum Vest-
fiörðum, við Snæfellsnes og á
Selvogsgrunni,
Laugardaginn fyrir páska
voru engir togarar og engir
heldur sjáanlegir utan tak-
markanna fyrir öllum Vest-
fiörðum, en hins vegar voru á
sama tíma alls 28 brezkir tog-
arar að ólöglegum veiðúm við
Snæfellsnes, á beim slóðum,
sem nú er m.a. bannað íslenzk-
um togurum. Á Selvogsgrunni
voru 2 brezkir togarar að ó-
löglegum veiðum og auk bess
43 brezkir, íslenzkir og belgísk-
ir togarar að veiðum utan tak-
markanna. Við Eldey voru 5
toearar utan takmarkanna og í
.Jökuldjúpi 2.
Fyrir Suðvesturlandj voru
bví þann dag alls 81 togari að
veiðum, þar af 30 brezkir tog-
arar innan takmarkanna.
Um páskadagana tvo var á-
standið svipað, nema hvað
nokkuð færri togarar voru að
ólöglegum veiðum við Snæ-
fellsnes.
(Frá Landhelgisgæzlunni).
I GÆRMORGUN ók leigu-
bílstjóri út af veginum í Kiepps
holti með þeim afleiðingum að
bifreiðin valt og skemmdist
niikið. Var bifreiðastjórinn
mikið ölvaður. Hann var einn
í bílnum. í gær varð einnig það
slys, að mjólkurbíl var ekið á
Ijósastaur í Fossvogi. Bíllinn
skemmdist ekki mikið en ljósa-
staurinn brotnaði.
elztu heimildir, rúnaristur og
forn norræn rit. Því næst er
sýnt, hver áhrif setningaform-
ið hefur á stíl og inntak máls.
Margt er það, sem hefur áhrif
á, hvort betur fer í máli að
nota aðal- eða aukasetningu,
sve sem efni, tilgangur og enn-
fremur það, hvort mál er ritað
eða er í formi ræðu eða sam-
tals. Höfundur ritsins „Setn-
ingaform og stíll“ bendir á á-
kveðnar reglur, er geta ráðið
því, hvort menn nota aðal- eða
aukasetningu hverju sinni. I
bókarlok eru teknir allmargir
kaflar úr íslenzku máli og form
setninga skýrt samkvæmt þess-
um reglum, allt frá íslendinga-
bók Ai'a fróða til blaðamáls
vorra daga. — Ritinu fylgir
efnisútdráttur á þýzku.
Auk málfræðinga má ætla,
að íslenzkukennarar, rithöfund
ar, ræðumenn og blaðamenn
hafi hug á að kynna sér efni
þéssa rits. Upnlag bókarinnar
er lítið, 500 eintök. Þar af er
nær 200 eintökum þegar ráð-
stafað.
Ritið fæst í helztu bóka-
verzlunum. Áðalútsala er hjá
Bókaútgáfu Menningarsjóðs,
Hverfisgötu 21 í Reykjavík.
ern
. Framhald af 9. síðu.
Blankenhorn eiga fangelsis-
dóm yfir höfði sér ef þeir
verða sekir fundnir um meið-
yrði og róg. Þetta er merki-
legt mál og með því er fylgzt
af áhuga bæði í Bonn og víðar
um álfuna.
I KVOLD kl. 8,30 verð-$
ur fundur í málfundahópiS
Alþýðuflokksmanna og)
verður hann að venju í)
Grófin 1, húsi Slysavarna-j
félagsins. Umræðuefnið að)
þessu sinni er húsnæðis-^
mál og mun kunnugur^
maður reifa málið. Allir^
Alþýðuflokksmenn eru vel^
komnir og eru þeir ein-^
dregið hvattir til að fjöl- ^
menna. S
ATHYGLI Alþýðuflokks )
manna skál vakin á því, að)
allir geta tekið þátt í 20-?
króna veltunni án þess að^
á þá sé skorað. Geta menn|
komið á skrifstofu Alþýðu- ^
flokksins eða Alþýðublaðs-^
ins, greitt 20 krónur ogC
skorað á vini sína og kunn)
ingja um leið. Einkum erf
þessu beint til þeirra sem^
sitja í Fulltrúaráði flokks-ij
ins og miðstjórn hans, enn- {
fremur til hverfisstjóra^
hans og ann^rra fulltrúa^
og trúnaðarmanna. $
Látið ekki dragast aðS
líta inn og taka þátt í velt-^
í
unm.
‘J> 1. apríl 1959
Alþýðuhlaðið