Alþýðublaðið - 03.04.1959, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 03.04.1959, Blaðsíða 4
■ "1 ÚtBefandi: AlþýSuflokkurinn. Eitstjórar: Benedikt Gröndal, Gisli J. Ást- þórsson og Helgi Sæmundsson (áb). Fulltrúi rifetjórnar: Sigvaldi Hjataars- con. Fréttastjóri: Björgvin GuSmundsson. Auglysmgastjon Petur Pe.urs son. Eítstjórnarsimar: 14901 og 14902. Auglysrngasmu: 14908. A{gref=lu- sími: 14900. ASsetur: Alþýöuhúsið. Prentsnuðja Alþyoubl. Hverfisg. 8 10- HANNIBAL YALDIMARSSON lét svo um mælt við ýmsa jafnaðarmenn í síðustu kosmngum, t ®ð hann ætlaði að einangra kommúnistana í Sósía- listaflokknum og hyggðist stofna Alþýðubandaiag ið í því skyni. En iitið hefur borið á þessari baráttu hans við íslenzku Moskvukommúnistana í verki. Hins vegar er hann orðinn tíður gestur hjá herr- linum 1 Kreml og er nú istaddur þar austur frá. Ein- hverjum kann að detta í hug, að þetta sé skýringin ’ é því, að Hannibal kom áldrei í verk að mótmæla athæfi Rússa í Ungverjalandi í ræðu eða riti heima á íslandi. Kannski teiur hann fylgismönnum sínum trú um, að heimsóknirnar til Moskvu komi að mun meira gagni, þar geti hann leiðbeint Krústjov og feiögum hans og kennt þeim vestrænt lýðræði? Hins vegar er árangurinn af þessu kennarastarfi Hannibals Váldimarssonar ósköp lítill. Rússar •virðast farasínu fram án þess að spyrja hann ráða. Kínv.ersku kommún'istarnir leyfa sér sömuleið is að leg'gja til grimmilegrar atlögu í Tíbet án þess að 'Hannibal sé spurður eins eða neins. Og auðvit- að heyrist ekkert frá honum af því tilefni, enda siaumast við að búast. Maðurinn situr í fagnaði austur í Moskvu og vegsamar gestrisni og friðar- vilja Rússa á dönsku. Slík og þvílík er barátta hans gegn heimskommúnismanum. En afrekin á heimavígstöðvunum? Er Hannibal ekki á góðri leið með að einangra kommúnistana í Sósía'listaflokknum og tryggja vestrænu lýðræði fylgi og áhrif í Alþýðubandalaginu? Sömu dagana og hann etur og drekkur með Rússum eru Moskvu- kommúnistarnir að undirbúa pó’litíska útlegð hans é komandi sumri. Fyrir þeim vakir að svipta Hanni bál framboði og þingmennsku,' en Brynjólfur Bjarnason á að erfa ríki hans í Reykjavík, Þannig skal ósigurinn verða sem tilfinnanlegastur þeim „ manni, er sagðist ætla að einangra komrnúnistana í Sósíalistaflokknum með því að samfylkja þeim í ' AlþýðubEindalaginu. Getur ekki hugsazt, að Brynjó'lfur hafi samráð 4 við Rússa og að þannig standi á því, að haft er af : fyrir Hannibal í Moskvu, meðan verið er að ganga frá útiegðardómnum í aðalbækistöðvum . Sósíalistaflokksins í Reykjavík? Sennilega talár Hannibal ekki dönsku, þegar hann kemur heim t • að bíða ósigurinn fyrix Brynjólfi Bjarnasyni, Viljjð þér fá Alþýðublað- ið að staðaldri? Klippið þá þennan áskriftarseðil út og sendið okkur. Ég óska eftir að gerast áskrifandi að Alþýðublaðinu. Gjörið svo vel að byrja strax að senda mér það. Nafn .................... Heimilisfang .................. DE GAULLE rauf í síðustu viku þá þögn, sem ríkt hefur í Frakklandi af opinberri hálfu varðandi Þýzkalands- deiluna og' Berlínarvandamál- ið. Á blaðamannafundi dag- inn fyrir skírdag lýsti hann afstöðu frönsku stjórnarinn- ■ar til ýmissa alþjóðlegra deilumála. Hann sagði þá meðal annars, að ef þýzkir kommúnistar eða Rússar reyndu að hindra eðlilegar samgöngur Bandamanna til Vestur-Berlínar mundi skap- ast gífurlegt hættuástand. Varðandi sameiningu Þýzka- lands kvað hann hana vera „hina eðlilegu þróun mála“ og ekki kæmi til mála að Frakkar mundu nokkurn tíma viðurkenna ríkisstjórn Aust- ur-Þýzkalands. Aftur á móti sagð.i de Gaúlle að eðlilegt væri að báðir hlutar Þýzkalands tækju upp nánari samvinnu á ýmsum sviðum en hingað til, og nefndi í því sambandi samstarf á sviði samgangna, póstmála og kennslumála. Um stöðu Þýzkalands í Evr- ópu sagði forsetinn, að Frakk- ar hefðu að fullu grafsett ó- vilja sinn til Þjóðverja og Iitu svo á, að Þýzkaland væri æskilegur aðili að samstarfi V es t ur-E vrópuríkj a. De Gaulle setti þó eitt skil- yrði fyrir vináttu sinni við Þýzkaland, sem sagt að Þjóð- verjar yrðu að viðurkenna austurlandamæri sín eins og þau nú eru. Þetta þýðir að Fralckar fallast á Oder- Neisse landamærin að Pól- landi, sem Rússar ákváðu eft- ir stríðið. De Gaulle er fyrsti þjóðhöfðingi Vesturveldanna, sem viðurkennir þau form lega. Það er skoðun manna í París, að samkomulag hafi náðst með de Gaulle og Ade- nauer um það að Þjóðverjar viðurkenni Oder-Neisse lín- una gegn því að Frakkar við- urkenni ekki stjórn Austur- Þýzkalands. De Gaulle sagði, að franska stjórnin væri fylgjandi skipu lagðri afvopnun en hann kvaðst efast um að heppilegt væri að hafa vopnlaust svæði De Gaulle í Mið-Evrópu. I fyrsta lagi vildu Frakkar ekki fallast á að Þýzkaland yrði hlutlaust og í öðru lagi yrði afvopnun að leiða til meira öryggis fyr- ir Frakka en ekki aukinnar hættu. Skilyrðin fyrir því að Frakkar féllust á afvopnun í Evrópu væru þau, að Rússar drægu heri sína jafn langt í átt til Úralfjalla og Vestur- veldin færu með heri sína á Atlantshafi. Það er skoðun þeirra manna, sem á blaðamanna- fundirium voru, að de Gaulle áli+i Berlínardeiluna búna til af Rússum og hún væri ekki hættuleg nema meðan Rúss- ar vildu að svo væri. Aðal- hættuna og mesta vandarnál- ið, sem þjóðir heims ættu við að stríða kvað de Gaulle vera þá fátækt og bann skort, sem tveir briðju hluiar íhúa heims ins ættu við að stríða., í stað bess að reyna að vinna sigur hver yfir annarri og útbreiða hugmyndakerfi sín, ættu þjóð ir heims að vinna að því að auka framleiðslu sína og stvrkja þær þjóðir, sem skammt eru á veg komnar í flestum efnum. „S'tærsta vandamálið”, sagði de Gaulle, „er maður- inn sjálfur. Við verðum að bjarga mannkyninu“. Hann kvaðst í bessu sambandi rrmndu leggja fram á fundi æðstu manna áætlun um að- stoð við vanbrónð lönd. De Gaulle hafði ekkert nýtt að segia um Alsírvandamálið. Hann minnti á tilboð sitt til foringja unpreisnarmanna að koma til fundar við sig og ræða vonnahlé. End.a ' þótt forsetinn hafi ekki sagt neitt nýtt um Alsírmálið á fundi þessum hafa ummæli hans bó vakið mikla reiði meðal Frakka í Alsír. sem telia að hann hafi svikið uppreisnina frá 13. maí. Minningarorð ÓLAHffi GUÐMUNDSSON fyrrv. bæiarfniltrúi á Siglufirði ÓLAFUR H. Guðmundsson fyrrv. bæjarfulltr. á Siglufirði lézt á sjúkrahúsi Siglufjarð- ar 21. f. m. og verður jarð- settur í dag. Ólafur Helgi, eins og hann hét fullu nafni, var fæddur að Neðra-Haga- nesi í Fljótum 28. sept. 1906. Foreldrar hans voru Guð- mundur Jónsson skipstjóri og Guðrún Magnúsdóttir koria hans. Síðar fluttist hann með foreldrum sínum að S'yðsta-Mói í Fljótum og dvaldist þar til 17 ára aldurs. Fór hann þá til Hríseyjar og var vélstjóri á mótorskipi er Jón heitinn Sigurðsson, út- gerðarmaður og vélstjóri, átti. ■ Til Siglufjarðar fluttist ÓI- afui' heitinn árið 1924. Stund aði hann fyrst einkum bif- reiðaakstur, en árið 1929 gerð ist hann starfsmaður hjá Olíu verzlun íslands, útibúinu Siglufirði og starfaði hjá því fyrirtæki til dauðadags. Ólafur gerðist snemma á- hugasamur uni stjórnmál og var frá upphafi ötull og heill fylgjandi Alþýðuflokksins og gegndi hann mörgum trúnað- arstörfum á Siglufirði enda einn af áhrifamestu og starf- sömustu flokksmönnum. Hann átti sæti í bæjarstjórn í átta ár sem aðalfulltrúi og mætti oft utan þessa tímabils sem varabæjarfulltrúi. Hann átti sæti í fjölmörgum nefnd- um taæjarstjórnar. í stjórn Sparisjóðs Siglufjarðar var hann til fleirj ára. Formaður byggingarfélags verkamanna var hann frá 1937 til dauða- dags. Á þessu tímabili voru byggðir hinir myndarlegu verkamannabústaðir við Hvanneyrarbraut, sem í eru 30 íbúðir. Hann var varamað- ur í stjórn Síldarverksmiðja ríkisins. Þá var hann í rit- nefnd blaðs Alþýðuflokksins á Siglufirði, Neista, og var á- byrgðarmaður bess blaðs í fullan aldarfjórðung. Hinn 21. des. 1930 kvænt- ist hann eftirlifandi konu sinni Jóhönnu Þórðardóttur, sem bjó manni sínum aðlað- andi og glæsilegt heimili. Þeim hjónum varð ekki barna auðið en ólu upp Sigurlínu Gísladóttur, og auk þess áttu fleiri börn hjá þeim athvarf um lengri eða skemmri tíma. ■íAf upptalningu þeirri, sem að framan getur um störf Ólafs sést, að hann hefur ær- inn starfa af hendi leyst, en það eitt segir ekki nema lít- inn hluta um sjálfan mann- inn. Ég. sem þessar línur rita, átti þy{ iáni að fagna að kynn- ast Ólafi og öðlast vináttu hans í margra ára ánægju- legu samstarfi. Ólafur var vel greindur, tillögugóður og Ólafur Guðmundsson starfsmaður mikill. Hann var gleðimaður hinn mesti og aldrei með örvilnan þó á móti blési, heldur sífellt bjartsýnn og ótrauður að telja kjark í aðra. Þá hafði hann í ríkum mæli bá skemmtilegu gáfu að sjá hið spaugilega í hlutun- um, og kunni manna bezt að segja frá ef svo bar undir. í aðalstarfi sínu vann hann sér einróma hylli fyrir trú- mennsku og lipurð, enda var maðurinn bannig gerður, að hann vildi hvers manns vand- ræði leysa. Og oftast eða jafn vel alltaf. fann hann einhver úrræði til lausnar vandan- úm. Þessir aílir eiginleikar Ólafs gerðu það að verkum, að með honum var ánægju- legt að starfa, skemmtilegt Framhald á 10. síðu. 3. apríl 1959 Alþj'ðublaðið

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.