Tíminn - 12.12.1965, Blaðsíða 3
SUNXUDAGUR 12. desember 1965
TB8V8SNN
3
í SPEGLITÍMANS
Jacqueline Kennedy lætur
lítið á sér bera eftir lát manns
síns. Þegar hún kemur í leik-
hús, sezt hún ekki í sæti sitt
fyrr en ljósin hafa veríð deyfð
og hún lætur ekki sjá sig nema
með velbekktum og mikilsvirt-
um mönnum. Hún er mjög var
kár og til baka en þó ekki um
of og yfirleitt er hún ekkí sér
lega glaðvær á svipin, þegar
ljósmyndarar taka af henni
myndir. Myndin, sem hér fylg
ir var tekin, þegar hún fór að
sjá söngleik á Broadway nú fyr
ir skemmstu og var hún hin
hýrasta, þegar hún kom í fylgd
með höfundi sjónleiksins.
☆
sælu trú, að hann hafi mísst af
síðustu Oscars verðlaununum
vegna allra auglýsinganna sem
voru í kringum myndina Beck
ett, sem hann lék í.
John Lennon einn af bitlun
um frá Liverpool fékk mikið
hrós fyrir bók sína. In his own
write, sem fram að þessu hefur
selzt í 200.000 eintökum og
hefur verið talin frábært meist
arastykki.
Nú hefur Sunday Mirror hins
vegar ljóstrað því upp, að
bókin sé nú ekki alveg hans
verk, því heill kafli í bókinni
er stolinn. Kaflinn heitir hjá
tannlækninum og er hinn sami
og í bók manns nokkurs, er
Clifton heitir, að öðru leyti
en því að á einstaka stað hef
ur John Lennon slegið vitlaust
á ritvélina þegar hann var að
skrifa upp franskar setningar,
sem þar voru. John viðurkennir
þetta alít fúslega og segir að
þetta hafi hann bara gert upp
á grín.
Þessar upplýsingar verða án
efa mjSg ánægjulegar fyrir
hina ungu frönsku skáldkonu
Christiane de Rochefort, sem
var falið það að þýða bókina
yfir á frönsku. Umræddur kafli
olli henni nefnilega svo mikl
um erfiðleikum, að hún varð að
fá ekki færri en sex málsérfræð
inga til þess að hjálpa sér og
þess vegna tók það hana eitt
ár að þýða bókina
☆
Miss World hín 21 árs gamla
Lesley Langley á við mikla
erfiðleika að etja Þessa dag-
ana, þar sem komið hefur í ljós
að hún hafði brotið reglur, sem
settar höfðu verið í sambandi
við þátttöku í keppninni um
titilinn Miss World og nú er
titill hennar í veði.
Forráðamenn keppninnar
höfðu nefnilega krafizt þess, að
þátttakendur skrifuðu undir
það að þær hefðu ekki neinn
umboðsmann, áður en þær
fengju leyfi til þess að taka
þátt í keppninni. Lesley skrif-
The Rolling Stones voru ný-
lega í New York og fengu
☆
aði einnig undir, en hafði samt
sem áður umboðsmann. — Eg
las ekki það sem ég skrifaði
undir, segir Lesley og áhyggju.
svipur færist yfir andlitið á
henni, og án efa endar þetta
allt saman á réttan hátt og
foráðamenn keppninnar svipta
hana ekki titlinum.
miklar og góðar undirtektir
eins og við var að búast. Að
venju voru þúsundir aðdáenda
þeírra mættir á tónleikana og
sjálfsagt hafa nokkrár stúlk
ur fallíð í yfirlið af hrifningu
af söng þeirra, hafi þær heyrt
nokkuð til þeirra fyrir öskri
og óhljóðum. Hér á myndinni
sjást nokkrir lögreglumenn
varna því, að óðir unglingar
komist i námunda við þessí
skurðgoð sin.
L
☆
ítalska leikkonan Sylvia Kosc
ína var nýlega að leika í kvik
mynd í Istanbul og kona nokk
ur, sem dáðist mjög af henni
gaf henni gullnælu sem Sylvia
var 'mjög hrifin af. En sú
hrifning stóð ekki mjög lengi,
því eínn vinur hennar, sem
skildi tyrknesku þýddi fyrir
hana smátexta, sem var á næl
unni og kom þá i ljós að þetta
var eins konar leyfi til þess að
stunda elztu atvinnugrein
kvenna í víssum bæjarhlutum
í Istanbul.
☆
Um þessar mundir skemmtir
persnesk magadansmær að
nafní Sonya á veit.ingastað ein-
um í London við góðan orð-
stír. Nú fyrir skemmstu fór
hún til Lloyds tryggingafélags
ins og tryggði á sér naflann
ásamt umhverfi hans í þriggja
sentimetra radia gegn alls kon
ar skaða.
☆
Richard Burton lék nýlega í
kvikmyndinni: Njósnarinn, sem
kom inn úr kuldanum. Þegar
hann hafði lokið við að leika í
myndínni fór hann þess á leit
við kvikmyndafélagið, a'ð Það
setti ekki nafn hans með stór-
um stöfum í auglýsingar fyrir
myndinni, því hann hefur þá
☆
☆
☆
Ursula Andress er sögð ein
fegursta kona heims um þessar
mundir. Hún hefur stór kristai
blá augu, og sítt gullið hár og
sérstaklega fagurt og velskapað
andlit. Auk þess er vöxturinn
sagður fullkominn. En hún er
ekki einungis fegursta kona
heims hún er einnig hættuleg
asta kona heims og sjálf hefur
hún sagt að hún gæti fengið
hvaða karlmenn hvenær
sem hún vildi. Og allir karl-
menn, sem leikið hafa á móti
henni, hafa orðið ástfangnír af
henni. Nú sem stendur er það
hinn vinsæli franski leikari
Jean Paul Belmondo. sem hún
hefur náð tangarhaldi á, og það
svo, að hann hefur nú yfir-
gefið heimili sitt eiginkonu og
Þar að auki Ursulu, í þrjá mán-
uði til þess að hugsa málíð og
taka ákvörðun um framtíðina.