Tíminn - 18.12.1965, Blaðsíða 1
Gerizt áskrifendur að
Tímanum
Hringið í sima 12323
289. tbl. — Laugardagur 18. desember 1965 — 49. árg-
Auglýsinp ’ rímanum
kemur daglega fynr augu
80—100 þúsund lesenda.
NTB—Houston, föstudag. —
í dag voru sýndar myndir frá
stefnumóti Gemini-VI og Gem
ini-VII á miðvikudaginn, en
geimfararnir Walter Schirra og
Thomas Stafford tóku myndim
ar. Vakti það geysimikla
athygli þeirra 50 blaðamanna,
sem fyrstir fengu að sjá mynd
irnar, hversu skýrar þær voru.
Jafnframt var ákvcðið, að láta
Gemini-VII vcra 14 sóiarhringa
á lofti, og munu þeir því lenda
á morgun, laugardag, kl. 13.05
að íslenzkum tíma. Geimfararn
ir Borman og I.ovell munu
setia hemlaeldflaugarnar i
gang kl. 12.28 en Þá verða þeir
yfir Kyrrahafi. milli Canton-
eyja og Hawaii Þeii munu
lenda á svipuðum slóðum og
Gemini-VI.
40 TÆKNIMENN
LANDSSÍMANS
HAFA SAGTUPP
MB—Reykjavík, föstudag.
Eins og sagt hcfur verið frá i
Tímanum ríkir mjög mikil ó-
ánægia meðal starfsmanna Lands
símans eins og víðar vegna úrskurð
ar Kjaradóms á dögunum. Einkum
cr óánægjan megn rneðal tækni
starfsmanna stofnunarinnar og í
dag hafa um 40 tæknistarfsmenn
I.andssimans sagt upp störfum og
búizt er við að uppsögnum muni
fiölga á næstunni Horfir því til
hreinna vandræða hjá stofnuninni
og var Starfsmannaráð Lands
símans á löngum fundi í dag til að
ræða, hvað gera mætti til að
firra vandræðum.
Á mjög fjölmennum fundi .
Félagl íslenzkra símamanna. sem
haldinn var í fyrradag. voru sam
hljóða samþykkt mjög hrðorð mót
mæli gegn úrskurði kjaradóms, og
verða þau birt í niðurlagi fréttar
innar Tæknimenn símans ætla
,ekki að láta sitja við orðin tóm
rog hafa margir þeirra þegar sagt
upp störfum. { dag munu um fjöru
tíu t.æknimenn hafa sagt upp störf
um sínum. eru Það línumenn og
símvirkjar og búizt við að fleiri
uppsagnir fylgi í kjölfar þeirar.
Hverfi meirihluti tæknimanna
stofnunarinnar úr starfi blasa við
hrein vandræði. Hér er um að
ræða störf sem óvanir menn geta
alls ekki gengið inn í, heldur krefj
ast þau tæknimenntunar og þjálf
unar Verði hér ekki ráðin bráð
bót á má búast við að má] sím
ans komist í hreint óefni innan
skamms tíma og myndi það valda
ófyrirsjáanlegum afleiðingum bæði
í öryggis- og atvinnumálum
Það sem hér er að gerast er
fullkomlega eðlileg þróun úr því
sem komið er Starfsmenn Lands
símans vilja eðlilega eins og aðr
ir menn fá eins mikil laun fyrir
störf sín og unnt er, og því hverfa
þeir til betur launaðra starfa á
hinum frjálsa launamarkaði.
Ályktun hins fjölmenna fundar
Félags íslenzkra símamanna 15.
desember er svohljóðandi:
Fundur haldinn 15. desember
1965 í Félagi ísl. símamanna lýs-
Framhald á bls. 14.
Myndlrnar hér að ofan voru teknar af Gemlnl-VI geimförunum Walter Schlrra og Thomas Stafford, er þeir mættu Gemlnl-VM úti í gelmn-
um á mlðvikudaglnn. Á efrl myndinni sést Gemni-VII og I baksýn hluti (arðarinnar, en á neðrl myndinnl s|ást bæðl gemförin. Myndirnar
voru teknar á 70 mm lltfllmu á Hasselblad-myndavél með 80 mm llnsu.
Alþíngi
frestað
Ó. G. Reykjavík, föstudag.
Fundum AlÞingis yar í dag frest
að til 7. febrúar. í sameinuðu
þingi óskaði forseti þingsins. Birg
ir Finnsson, þingmönnum gleði-
legra jóla og góðrar heimkomu og
þakkaði þeim samtarfið. Eysteinn
Jónsson þakkaði forseta fyrir hönd
þingmanna góða fundarstjórn og
óskaði honum og fjölskyldu lians
deíldarmönnum gleðilegra jóla
gleðilegrar hátíðar. Síðan las for
sætisráðherra upp bréf forseta ís-
lands um frestun á fundum Al-
þingis Fyrr um daginn voru fund
ir í deildum þingsins. í neðri deild
óskaði forseti, Sigurður Bjarnason.
deildarmönnum gleðilegra jóla
og Lúðvík Jósefsson þakkaði fyrir
hönd þingmanna. í efri deild
beindi Óli Ólafsson jólaóskum til
deildarmanna, en Karl Kristjáns
son þakkaði. „
EINHUGA UM ENDURHEIMT SAMNINGSRETTAR
Reykjavík, föstudag.
Dagana 14. og 15. desember var
haldinn aukafundur i Stéttarsam-
bandi bænda í Bændahöllinni í
Rer’if’avík. Fundinn sóttu fjörutíu
fuU'—ar úr öllum sýslum lands-
ins af fjörutíu og sjö, sem rétt
áttu til fundarsetu. Tilefni fund-
arins voru þær breytingar, sem
urðu í haust, varðandi verðlagn-
ingu landbúnaðarframleiðslunnar,
þegar sexmannanefndin varð óvirk
vegna þess að Alþýðusamband ís-
lands dró fulltrúa sinn úr nefnd-
inni, en landbúnaðarvörurnar voru
verðlagðar eftir bráðabirgðalög-
um, sem ríkisstjómin sætti, og áttu
bændur engan hlut að þeirri verð-
lagningu.
í upphafi fundarins gerði for-
maður Stéttasambands bænda,
Gunnar Guðbjartsson. bóndi á
Hjarðarfelli. ítarlega grein fyrir
gangi verðlagsmálanna frá þvi sex
mannanefndin hætti störfum.
Hann skýrði frá því, að sjö manna
stjórnskipuð nefnd ynni nú að því
að leita eftir samkomulagsgrund-
velli milli framleiðenda og neyt-
enda, sem afurðasölulöggjöfin yrði
byggð á. en störfum þesarar
stjórnskipuðu nefndar væri ekki
lokið og engu væri hægt að spá
enn um, hver árangur yrði af því
nefndarstarfi
En segja mætti, að samkomulag
væri f nefndinni um viss atriði
varðandi breytingar á framleiðslu-
ráðslögunum.
Á fundinum urðu miklar um-
ræður um, hvemig koma skyldi
verðlagsmálum landbúnaðarins fyr
ir næstu árin.
Framhald á bls. 14.