Tíminn - 18.12.1965, Side 2
LAUGARDAGUR 18. desember 1965
TIMINN
Afturkaus hann kommúnista
I fyrradag var kosi'ð í nokkr-
ar nefndir og ráð á Alþingi.
Samkvæmt þingmannatölu
sinni á Alþýðubandalagið ekki
rétt á að fá fulltrúa kosna
í fimmmannanefndir. Áður á
þessu kjörtímabili hefur for-
sætisráðherra kosið kommana
vini sína, því að ekki mátti
hann ógrátandi horfa upp á
þá standandi utan dyra. í fyrra
dag kaus hann Einar Olgeirs-
son og Björn Jónsson í þær
tvær nefndir, sem búið var að
kjósa í í fyrra, áður en hann
gerði samninginn fræga. f jóla-
gjafapakka Bjarna til komm-
anna voru nú raforkuráð og
stjórn fiskimálasjóðs. En hvað
gáfu kommarnir honum í
staðinn? Það er einfaldasta
gáta ársins.
Bjarni Benedlktsson, forsætis-
ráðherra. — Aftur j gervi jóia
sveinsins.
SKIPISEMENTSVERKSMIDJI) RIK-
ISSINS HLEYPT AF STOKKUNUM
Skipi því, sem Sementsverk-
smiðja ríkisins er að láta smíða
hjá Aukra Bruk A.S., Aukra í
Noregi, var hleypt af stokkunum
föstudaginn 10. þ. m. og gaf frú
Marianna Vestdal, kona forstjóra
Sementsverksmiðju ríkisins, því
nafnið „Faxi.“
Skipið er byggt samkvæmt regl-
um Norsk Veritas, í flokknum
•— iai, styrkt fyrir ís og með
flokkunarviðbótinni EO vegna
sjálfvirkni aðalvélar og ljósavéla,
þannig að ekki er þörf fyrir jafn-
mikið eftirlit í vélarúmi og endra
nær. S'kipið verður 1275 tdw með
Frá Póststofunni
Reykjavík
Um helgina verða allar deildir
Póststofunnar opnar sem hér seg-
ir:
Laugard. frá kl. 9—12. Sunnud.
frá kl. 9—12.
Deildimar eru þessar:
Bréfapóststofan, pósthúsinu,
Pósthússtræti, Bögglapóststofan,
Hafnarhvoli, Tollpóststofan, Hafn
arhúsinu, Póstútibúið Langholts-
vegi 82 Póstútibúið, Laugavegi 176,
Blaðadeildin, Umferðamiðstöðinni.
1820 hestafla Deutz aðalvél og
tveimur ljósavélum, hvor 120 hö.
Lengd skipsins er 64 m, breidd
12 m, djúprista á þvi fullhlöðnu
4,5 m og rými þess 1873 rúm. Gert
er ráð fyrir því að skipið gangi
11 hnúta fullhlaðið. Á skipinu
verður 5 tonna krani, sem geng-
ur á sporum eftir því endilöngu
og verður með honum hægt að
Kveðja - Sigfús
Guðnason látinn
Sigfús Guðnason frá Skarði var
fæddur á Landinu og það var ekki
glundroðaleg tryggð, sem hann
bar til þessarar fögru sveitar. Ég
sem þessar línur skrifa þekkti
hann í mörg ár. Þeim árum gleymi
ég ekki. Hann var maður sem
reisti manndómi og mannkostum
óbrotgjarnan minnisvarða. Það
fær góðan hljómgrunn, sem Jóna
konan hans sagði, að hún var
ánægð með allt sem hann gerði,
og hún var ekki ein um það. Ég
votta Jónu og öllum vandamönn-
um þeirra samúð mína, en það
verður þeim harmabót, að hann
var maður i þessa orðs beztu merk
ingu.
Rangæingur.
losa um 60 tonn af sementi á
klst. með aðeins 1 eða 2 mönn-
um í lest. Skipið er ætlað til
flutninga á sementi frá Akranesi
til staða umhverfis landið, ann-
arra en Reykjavíkur.
Ráðgert er að Faxi verði full
smíðaður í marzlok n.k. og komi
til landsins í sementsflutning í
apríl.
Fundur í Póst-
mannafélaginu
Fundur haldinn í Póstmanna-
félagi íslands 14. des. 1965 mót-
mælir eindregið hinum nýfellda
kjaradómi að því er póstmanna-
stéttina áhrærir.
Fundurinn telur það algjörlega
óviðunandi að svo að segja eng-
inn maður úr allri stéttinni skuli
fá leiðréttingu mála sinna. Sér
staklega átelur fundurinn það, að
póstmenn skuli nú sitja kyrrir í
launaflokkum, þegar aðrir starfs
hópar, sem um langan aldur hafa
staðið þeim jafnfætis, eru hækk-
aðir í launum um tvo eða fleiri
launaflokka.
DE GAULLE: „ÉG ER
EKKIFULLKOMINN”
NTB-París, föstudag.
Charies de Gaulle, forseti Frakk
lands skoraði í dag ákaft á frönsku
þjóðina að endurkjósa sig sem
forseta í kosningunum á sunnu-
daginn, er hann hélt útvarps- og
sjónvarpsræðu í kvöld.
De Gaulle sagði m. a.: — „Nýja
Iýðveldið hefur sinn forseta. Það
er ég. Ég segi ekki að ég sé full-
kominn oa neita ekki, að ég er
orðinn gamall. Ég fullyrði engan
veginn að ég viti allt, né heldur
að ég geti gert allt”. Hanm sagði
að það væri verkefni sitt að
tryggja framfarir frönsku þjóðar-
innar, sjálfstæði hennar og frið.
De Gaulle minntist lítið á Mitt
erand, sem er frambjóðandi
vinstri manna í Frakklandi, en
sagði, að hann væri fulltrúi sam-
særa og deilna stjórmálaflokk-
anna. Hann sagði, að ef Mitter-
and yrði kjörinn, þá myndi hann
færa landið til baka til ringul-
reiðar þeirrar, sem ríkt hafi í
Frakklandi áður en de Gaulle tók
við völdum. — „Mitterand er ekki
aðeins frambjóðandi flokkanna,
heldur einnig fangi þeirra" —
sagði de Gaulle, og spurði, hvað
forseti gæti gert, ef hann hefði
ekki traust þjóðarinnar, heldur
hefði hann aðeins komizt til valda
vegna samspils atvinnusvikara.
De Gaulle minntist á þær fram-
farir, sem hefðu orðið á svið fé-
lagsmála og efnahagsmála i stjórn
artíð hans, en játaði að mikið
væri eftir ógert, og það væri verk-
efni framtíðarinnar að leysa þau
vandamál, sem enn væru óleyst.
Skoðanakannanir hafa sýnt, að
de Gaulle hefur heldur meira
fylgi en Mitterand, og er því bú-
izt við að kosningarnar á sunnu-
daginn verði mjög jafnar. Sá fram
bjóðandinn, sem fleiri atkvæði
fær, sigrar í þeim kosningum.
GYLFI SKIPTIR UM
SKOÐUN
Þegar frumvarp stjórnarinnar
um gjaldeyrisskattinn var til um-
ræðu í neðri deild, flútti Lúðvík
Jósepsson breytingartillögu þess
efnis, að námsmenn og sjúkling-
ar yrðu undanþegnir gjaldinu. Rík
isstjórnin lét fella tillöguna og
var Gylfi Þ. Gíslason manna ákaf-
astur að greiða atkvæði á móti
henni. Síðan líður dagur. Málið
er rætt í efri deild. Þar mætir
Gylfi og tilkynnir, að gjaldið muni
ekki taka til námsmanna. Náttúr-
lega forðaðist hann að minna á
fellda tillögu Lúðvíks. Eignaði
sjálfum sér heiðurinn. Væri ósk-
andi að Gylfi og fleiri samráð-
herrar hans væru oftar jafn snögg
ir að skipta um skoðun vegna til-
lagna frá stjórnarandstöðunni.
^tatrésfa^ftur
Hinn árlegi jólatrésfagnaður
Framsóknarfélaganna í Reykjavík
verður haldinn í Framsóknarhús
inu við Fríkirkjuveg þriðjudag-
inn 28 desember n. k og hefst
kl. 15. stundvíslega Mjög verður
til fagnaðarins vandað eins og
ávallt áður. Tekið er á móti miða
pöntunum á skrifstofu Framsókn
arflokksins, Tjarnargötu 26, símar:
16066 og 15564 en sala þeirra
hefst seinnipart vikunnar. Verð
miðans er kr. 100,— og eru ágæt
ar veitingar og sælgæti innifalið
í verði hans. Stjórnandi skemmtun
arinnar verður hinn kunni
skemmtikrafturjón B. Gunnlaugs
RH0DESIA10LIUBANN
Aflinn dágóður
BS-Ólafsfirði þriðjudag.
Undanfarið hafa tveir mótorbát-
ar héðan, Anna og Guðbjörg róið
á línu og hefur aflinn verið dá-
góður eða 4—7 smálestir í róðri.
Gæftir hafa verið það góðar, að
varla hefur fallið úr dagur hjá
þeim. Einnig hafa trillurnar hér
aflað sæmilega, og mest af aflan-
um er vænn þorskur. Mjög erfitt
hefur verið um samgöngur hér síð
an síðast í nóvember vegna snjó-
þyngsla. Snjóýtan hefur verið í
ólagi í nokkurn tíma, en verður
væntanlega komin í lag fyrir helgi
og þá stendur allt til bóta, en nú
sem stendur er algjörlega óa'kfært
út um sveitir og flytja verður
mjólkina á dráttarvélum.
NTB-London, föstudag.
-Ar Bretland hefur ákveðið að
setja Rhodesíu í olíubann, að því
er tilkynnt var opinberlega í
London í kvöld. Jafnframt er
sagt, að vonir standi til að öll
önnur ríki muni styðja Bretland
í því að gcra olíubannið árang-
ursríkt.
★ Samtímis var tilkynnt, að eftir
viðræður við ríkisstjórnir Zambiu
og Tanzaníu hafi Bretland ákveð-
ið að setja strax í gagn loftbrú
til þess að flytja olíu og olíuvör-
ur til Zambiu.
Olíubann gengur í gildi þegar
í stað. Brezka stjórnin hefur þeg-
ar snúið sér til Shell-fyrirtækisins
og beðið það um að stöðva norska
olíuflutningaskipið Staberg, sem
er á leið til Beira í Mozambique
með olíu, sem fara á til Rhodesíu.
Fyrirskipun brezku stjórnarinn-
ar um olíubann er í tveim lið-
um. 1. Hún bannar innflutning
á olíu og olíuvörum til Rhodesiu
í samsvari með heimild, sem
brezka stjórnin hefur fengið sam-
þykkta i neðri deild brezka þings-
ins, og 2. Brezkum ríkisborgurum
er bannað að flytja eða útvega
Rhodesíu á annan hátt olíu og
olíuvörur, til nota í nýlendunni.
Brot á þessu banni varðar 6 mán-
aða fangelsi eða 60 þúsund kr.
sekt.
Rhodesía flytur venjulega inn
um 280.000 tonn af olíu árlega og
talsmenn brezku stjórnarinnar
telja, að nú séu í landinu olíu-
birgðir, sem duga muni í hálft ár.
Mörg ríki, þar á meðal Banda-
rikin, munu að því er talið er til-
kynna svipað olíubann innan
skamms.
Almennt er talið, að Bretland
muni fá stuðning þeirra ríkja,
sem framleiða olíu. og þeirra, sem
á annar hátt eru fengri oliufram
leiðslu og flutningi, í máli þessu,
enda hefur Harold Wilson, for-
sætisráðherra Breta, lýst því yfir,
að hann myndi ekki setja Rhodesíu
í olíubann, nema hann hefði vissu
fyrir því, að það yrði áhrifaríkt
og fullkomin samstaða næðist um
það á alþjóðavettvangi.
Frá Kairó berast þær fréttir, að
Egyptaland hafi bætzt í hóp þeirra
ríkja. sem slitið hafa stjórnmála-
samband við Bretland vegna Rho-
desíumálsins. Hafa því alls sjö
ríki gert það, þ. e., fyrir utan
Egyptaland. Guinea, Mali Mauri-
tania Kongólýðveldið og samveld
isríkin Ghana og Tanzanía.
Athugasemd frá
viðskiptamálaráðu-
neytinu
f tilefni af viðtali Tímans í
dag við hr. Hjört Hjartar, fram-
kvæmdastjóra skipadeildar Sam-
bands ísl. samvinnufélaga, um ný-
gerðan olíusamning við Sovétrík-
in fyrir árið 1966, þykir við-
skiptaráðuneytinu rétt að taka
þetta fram:
Áður en viðræður hófust um
framangreindan samning og með-
an á þeim stóð var haft samráð
við íslenzku oliufélögin þrjú, sem
þessi viðskipti annast, og þau
gagngert að því spurð, hvort til-
tækilegt væri að fela m.s. Hamra-
felli að flytja hluta af því oHu-
magni, sem kaupa á frá Sovétríkj-
unum á árínu 1966. Það var ein-
róma álii forsvarsmanna olíu-
félaganna þriggja, að slíkt kæmi
ekki til greina, ef sama flutn-
ingsgjald fengist og gilt hefur á
yfirstandandi ári. en fyrir lá, að
mikið skorti á, að m. s. Hamra-
fell gæti boðið slík kjör. Olíu-
félagið h.f., sem að hálfu er eig-
andi m. s. Hamrafells, hafði hér
um enga sérstöðu.
Ríkisstjórnin hefur því í sam-
bandi við samningsgerð þessa, að-
eins gert það, sem þeir íslenzkir
aðilar, sem hlut áttu að máli,
voru sammála um.
Reykjavík, 17. desember 1965.
Viðskiptaráðuneytið.