Tíminn - 19.12.1965, Side 10
SUNNUDAGUR 19. desember 1965
22_________________________TÍMINN
TIL SÖLU
PEDEGREE
barnavagn
verð kr, 2000,00. Einnig
burðarrúm, ensk drakt á
8—9 ára, tækifæriskjóll úr
blúndu, kápa stærð 42 víð
ennfremur gardínur úr
þunnu ljósu ullarefni, 4
vængi.
UPPLÝSINGAR AÐ
HAGAMEL 30 (KJALL-
ARA).
MÚRINN
Framhald af bls. 13
ferðatöskur, bakpoka, skjala
töskur og poka fulla af gjöf-
um og vörum.
Við eina landamœrastöð
ina var mönnum bannað að
taka með sér transistor-út
varpstæki inn í A-Berlín, en
ástæðan hefur ekki verið gef
in upp.
GEMINI
Framliald af bls. 13
í þyngdarlausu rúmi. En brátt
tilkynnti Borman að allt væri
í fínasta iagi.
Hemlaeldflaugarnar voru sett
ar í gang er Gemini-VI var
yfir Kyrrahafi, og fór geimfar-
ið síðan yfir Kyrrahaf, Banda
ríkin þar á meðal yfir Houston
geimvísindamiðstöðina, og inn
yfir Atlantshafið. Þar var allt
reiðubúið til þess að taka á
móti þeim, og brátt sást geim-
farið á radar flugvélamóður-
skipsins Wasp.
Geimfararnir skutu fallhlíf-
inni út á réttum tíma, og sáu
þeir hana út um gluggann hjá
sér og Borman tilkynnti til
jarðar, að hún starfaði eðli-
lega.
Brátt sáu skipverjar á Wasp
með berum augum Gemini-VII
koma niður og lenda í sjón-
um. Lenti geimfarið um 490
mílur fyrir sunnan Bermúdaeyj
ar.
Geimfarið var um 15 míl-
ur frá Wasp, er það lenti, og
báðu geimfararnir um að vera
teknir upp með þyrlu, í stað
þess að þurfa að bíða komu
Wasp, og urðu menn við þeirri
ósk. Þyrlur voru þegar á leið
til geimfarsins. Er þangað kom
stukku nokkrir stundmenn út
úr þyrlunni að venju til þess
að setja flothylki umhverfis
Gemini-VII svo að það sykkí
ekki. Þeir opnuðu síðan geim-
farið og geimfararnir stigu út
úr geimfarinu og út á flothylk-
in. Síðan fóru þeir yfir í gúm-
bát, og voru hífði upp í þyrl-
una. Flugstjóri þyrlunnar ti’l-
kynnti síðan. að þeir stæðu í
þyrlunni, væru þroshýrir mjög
og yfir sig glaðir.
Á þilfari Wasp söfnuðust
-kipverjar saman í heiðursvörð
með fána og veifur, hljómsveit
lék og rauður dregill var lagð-
ur að þeim stað, sem þyrlan
skyldi lenda á. Læknar, yfir-
menn skipsins og fulltrúar
geimvísindastofnunarinnar,
NASA, tóku síðan á móti geim-
förunum, og fóru með þá strax
inn á læknisstofu til rannsókn-
ar.
Gemini-geimfariö var síðan
tekið um borð, og var Þar með
lokið þessari lengstu geimferð
sögunnar.
OLÍUSALA STÖÐVUÐ
Framhald af bls. 13
Lengi hefur verið orðrómur um
að olíuskömmtun verði komið á
í Salisbury, en enn sem komið er
hefur slíkt ekki verið framkvæmt.
Sumir telja, að þetta bendi til
þess, að Smith telji sig öruggan
um, að geta fengið nægilega olíu
á svartamarkaði.
Talsmaður bandaríska utanríkis
ráðuneytisins sagði, áð Bandarík-
in fögnuðu aðgerðum brezku
stjórnarinnar, og að bandaríska
stjórnin myndi fara þess á leit,
við bandarísk fyrirtæki, að hætta
öllum olíuflutningum til Rhod
esíu.
TÝNDA KONAN
Framhald af bls. 24.
ar svona stendur á. Þótt mynd-
birtingar geti auðvitað verið við
kvæmt mál, geta þær auðveldlega
orðið til þess að viðkomandi mann
eskja finnist, og fólk þarf þá síð-
ur að vera með tilgátur um það,
hvort viðkomandi manneskja hafi
sézt eða ekki.
Skátar munu halda leitinni
áfram í dag og ástæða er til að
hvetja fólk, sem telur sig verða
vart við hina týndu konu að flýta
sér að gera viðvart og reyna að
að fylgjast með ferðum hennar,
þar til lögreglan kemur á vett-
vang.
Síðustu fréttir:
Þegar blaðið fór í prentun hafði
leitin í dag ekki borið árangur, en
nú þykir öruggt, að sózt hafi til
ferða konunnar klukkan 4 aðfara
nótt miðvikudagsins. Þá var hún
á leið í bæinn uppi á Öskjuhlíð
og leigubifreiðastjórl hafði tal af
henni. Hún var þá fremur illa til
eika til fótanna og bílstjórinn bauð
að aka henni heim, en hún afþakk
aði. Bílstjóri þessi gaf síg fram
í gær og hefur séð mynd af kon
unni og fullyrðir, að hér hafi ver
ið um hana að ræða. Nú er lögð
höfuðáherzla á að leita í öllum
mannlausum liúsum í borginni og
næsta nágrenjii, því möguleiki er
talinn á að kónan leynlst einhvers
staðar, enda ekki einsdæmi í lík
um tilfellum.
BARNABÆKUR
Framhald af 16. síðu.
gamansamar sögur með alvöru og
siðbætandi sjónarmið að bak-
grunni.
Þá hefur Ingibjörg sent frá sér
athyglisverða barnabók um sam-
Skipti lítillar, brúnnar bjöllu og
vísindanna. Þetta er ævintýrabók
og haglega með efnið farið.
Á fermingar
aldrinum
Tveir kennarar á Akureyri,
Jenna og Hreiðar Stefánsson,
hafa síðustu tuttugu árin sent frá
sér barna- og unglingasögu um
söguhetjunar Öddv. í einum átta
eða tíu bókum. Síðustu árin hafa
þessar bækur verið að koma út
í annarri útgáfu eitthvað breyttar!
Bæktir þessar hafa náð allmiklum
vinsældum, eru lipurlega saman
settar og fjalla um skeið barns
og unglin.gs frá tíu ára aldri allt
til fullorðinsára og hjónabands.
Þær íjalla ttm skólalífið, samvist,-
ir vjð yngri systkin;, ýovaa áfjang*
á þroskaleið og jafnvel ástarmál.
Sú Öddu-saga, sem kom út í ann-
arri útgáfu fyrir jólin núna, nefn-
ist Adda í kaupavinnu, og segir
frá kynnurn af sveitalifinu. Sag-
an er liðleg og skemmtileg. en
ber ekki með sér nógu djúpa
skynjun höfunda á sveitalifi. í
slíkum sögum mega börnin gjarn-
an vera þar gestir sem lítil skil
kunna á hinu nýja umhverfi, en
höfundar mega helzt ekki vera
það líka. Orðfærið ber þessu tölu-
vert vitni.
AK.
SÆNSKU BLÖÐIN
Framhald af bls. 24.
hún var árið 1920. Blaðadauð-
inn hefur gerzt sífellt skæðari,
og frá árinu 1948 hefur dag-
blöðum fækkað um 35—40 .
Síðan 1953 hafa 55 dagblöð ver
ið lögð niður. Flest þessara
blaða hafa verið borgarleg
blöð, en samt sem áður hefur
fráfall tveggja stórblaða jafn-
aðarmanna, ST og Ny Tid, vak
ið mesta athygli og vakið
mestu deilurnar.
Það er ekki sízt Stokkhólm-
ur, sem hefur fengið að finna
fyrir blaðadauðanum. Frá því
1965 hefur sænska höfuðborg-
in séð að baki fórum morgun-
unblöðum, ST meðtalið og einu
síðdegisblaði. Og þegar Erland
er talar um einokunarþróun,
þá á hann fyrst og fremst við
Stokkhólm, þar sem blaðamark
aðurinn stjórnast að verulegu
leyti af hinni voldugu Bonnier-
samsteypu. Hún á, fyrir utan
helming allra vikublaða á Syí-
þjóð og eitt stærsta útgáfufyr-
irtækið, stærsta dagblað Norð-
urlanda, sem er síðdegisblaðið
Expressen með um 500.000 .í
upplag, og þar að auki stærsta
morgunblað Svíþjóðar, Dagens
Nyheter, sem hefur um 400.000
í upplag. Þá er einnig að finna
stórar blaðasamsteypur úti á
, landsbyggðinni.
Hringekja fallsins.
Margir spyrja hvernig það
megi verða að dagblað, sem er
eins víðlesið og ST, en lesend-
ur þess eru taldir um hálf
milljón, geti orðið blaðadauð-
anum að bráð. Aðalástæðan er
sú, að þótt mikið sé af aug-
lýsingum í ST, þá hefur
hluti blaðsins í heildaraug-
lýsingamagni Stokkhólmsblað-
anna lækkað verulega síðan LO
tók við blaðinu. Jafnaðarmenn
hafa oft fullyrt, að atvinnurek-
eiidur hafi af ásettu ráði látið
vera að auglýsa í LO-blaðinu,
en erfitt er að fullyrða um,
hvort svo sé, og hvort stjórn-
málalegar eða viðskiptalegar
ástæður liggja að baki ug-
lýsingatapsins.
En staðreyndin er sú, að tekj
ur blaðsins af auglýsingum hafa
minnkað í hlutfalli við lækk-
un upplagsins. Uppjagið á virk
um dögum hefur lækkað úr
184.000 eintökum árið 1956 í
132.000 eintök. Og síðan 1959
hefur upplagið á sunnudögum
lækkað úr 243.000 í 221.000.
ST lenti í „hringekju fallsins"
— fyrst minnkar upplagið þá
auglýsingarnar, og þá lækkar
upplagið aftur með þeim afleið-
ingum að auglýsingamagnið
minnkar á ný o.s.frv.
Síðustu árin hafa verið gerð-
ar margar tæknilegar og rit-
stjórnarlegar breytingar á
Stockholms-Tidningen. Þær
hafa kostað nýjar milljónir án
þess að bera nokkurn árangur.
Sænska alþýðusambandið fær
að heyra mörg þung orð þessa
dagana fyrir hinn misbeppn-
aða biaðarekstur sinn. 02 blöð
jafnaðarmanna segja, að LO
hafi sýnt algjört skiiningsleysi
á vandamálum daghhaða. FJnk-
um iendir gagnrýnin á Hin.um
volduga forsets í -O, Arae <3*ij-í
er, sem hefur verið formaður
í stjórn fyrirtækis þess, sem
rekur Stockholms-Tidningen
og AftonbJadet. Hann getur aft
ur á móti huggað sig við. að
enn er Aftonbladet eftir, og
verkalýðshreyfingin hefur því
enn málgagn í höfuðborginni.
En þar hafa aftur á móti einn-
ig komið upp erfiðleikar. Hvað
upplag snertir, þá hefu blaðið
staðnað, hagnaðurinn hefur
minnkað þannig, að í ár er það
rétt svo að blaðið ber sig, og
ný útgjöld bætast við, þegar
ST, sem Aftonbladet hefur haft
nána tæknilega og efnahags-
lega samvinnu við, verður lagt
niður. Og að lokum þá hefur
aðalritstjórinn og öll pólitíska
ristjórn blaðsins ákveðið að
hætta hjá blaðinu um áramót-
in.
Fráfall ST hefur vakið upp
að nýju harðar umræður um
bjaðadauðann og skyldu þjóð-
félagsins, eða rétt, til þess að
grípa til gagnráðstafana. Sum-
ir segja, að dauði blaðsins sýni,
hversu nauðsynlegt sé að þjóð-
félagið grípi til ýmiss konar
stuðnings við blöðin, én aðrir
telja, að ST hafi sýnt hver
tilgangslaust það sé að reyna
að greiða „uppbætur“ á blöð.
Síðasta orðið hefur ekki verið
sagt enn sem komið er, en þeg-
ar virðist ljóst, að ráðamenn
munu nú athuga hvað stjóm-
arvöidin geti gert til stuðnings
blöðunum, þótt ekki sé um
beinan rikisstuðning að ræða,
eins og t.d. frekari lækkun á
útgjöldum blaðanna í sambandi
við póst og síma og aðrar rík-
isstofnanir, sem blöðin þurfa
mjög á að halda og sem sam-
tímis eru háir útgjaldaliðir á
réikningum blaðanna. Það
munu sem sagt verða gerðar
nýjar tilraunir til þess að sigr
ast á blaðadauðanum.
JÓLAMATURINN
Framhald af bls. 19
Þá þóttist maður góður að fá
einhverja atvinnu, ekki sízt hjá
traustu fyrirtæki, jafnvel þótt
kaupið væri ekki nema 70 krón
ur á mánuði.
Ég tók eftir því, að þér
vinna allmargar rosknar kon-
ur. Hafa margar þeirra verið
hér lengi?
Já, allmargar hafa unnið hér
20 til 30 ár qg ekki verður því
neitað, að þær eru með allra
beztu starfsmönnum okkar, seg
ir Vigfús. Þær eru kærusamar
og vandvirkar og vanar að
þrauka, jafnvel þótt eitthvað
ami að þeim. Vi£ matargerð
þarf mikla nákvæmni’ og að
gæzlu og það hrín fljótt á okK
ur sjálfum, ef kastað er hönd
um til einhvers verkf
Sláturfélag Suðurlands er
eitt af samvinnufélögunum,
sem bæhdur hafa komið á fót
sér tii hagsbóta, til áð greiða
fyrir því, að framleiðsluvörur
þeirra komist á markað með
sæmilegu verði og að gæði
þeirra séu trygg. Allir munra
sammála um, að við borgarbú-
ar njótum líka hlunninda i
þeim samskiptum og fer þá
svo, sem bezt verður á kosið,
að báðir aðilar uni vel sínusn
hlut.
Húsfreyjur nútímans komast
ekki af án þjónustu fyrirtækja
eins og kjötiðjuversins vió
Skúlagötu of bændur komaei
ekki af án þess, að vinaa vöi"
um sínum öruggan markað.
Noíalegur revkjareimur fylj?
ir mér út á götuna og ég si
í huganum allan bann blessaðs
og góða mat. sem land oMm
getur veitt mör.num á jola
borðið.
Viðmælendum mfnun
kann ég bf'riu þakkir fvrir gól
og tff«;ð svör
Sitfriður Thorlacim
ÞAKKARÁVÖRP
Mínar innilegustu þakkir sendi ég öllum, er hafa
mér gjafir og veit mtér aðstoð á margvíslegan hátt nú
í vetur. \
Guð gefi ykkur öllum gleðileg jól og farsælt nýtt ár.
Guðmundur Magnússon,
/ Arnþórsholti, Lundareykjardal.
Hjartanlega þakka ég öllum þeim mörgu, sem glöddu
mig á áttatíu ára afmæli mínu 5. desember s-1. með
heimsóknum, gjöfum og heillaóskum.
Sérstaklega þakka ég Kvenfélaginu Sigurvon fyrir
þann heiður, serfi það sýndi mér.
Guð blessi ykkur öll.
Vilborg Kjartansdóttir, Glaumbæ,
Staðarsveit, Snæf.
Hjartans þakkir til allra, sem glöddu meg með heim-
sóknum, gjöfum og skeytum á áttræðisafmæli mínu
11. þ.m. og á annan hátt gerðu mér daginn ógleyman-
legan. Óska ég þeim árs og friðar, gæfu og guðsbless
unar-
Þorbjörg R. Pálsdóttir. /
Útför rnóður okkar
Þórlaugar Bjarnadóttur
fyrrum húsfreyju
að Gaulverjabæ, er andaðist 14. desember s. I., fer fram þriðjudag
inn 21. desember og hefst með kveðjuathöfn í Selfosskirkju kl.
11 f. h. Jarðsett verður að Gaulverjabæ kl. 1 e. h.
Saetaferð frá Umf(;rðamiðstöðinni í Reykjavík kl 9. f. h.
Bömin
Möðir okkar tengdamóðir og amma,
Kristín Gísladóttir
frá Egilsstöðum,
jmrSsi/ngin miðvikudaginn 22. þ. m. Athöfnin hefst með bæn
hinnar iátmj Skniavöilum 14, Selfossi.
y4ríS»*r frá VUUngAholtskirkju kl. 2, e. h. Bílferð verður frá
R«vk)j»Y«k kl. 11 f. h.
Börn, tengdabörn og barnabörn.