Tíminn - 19.12.1965, Side 12

Tíminn - 19.12.1965, Side 12
290. tbl. — Sunnudagur 19. desember 1965 — 49. árg. Iceland Food Centre tekur á móti jólasveinapóstinum FB-Reykj avík, laugardag. Á fimmtudaginn opnaði ís- lenzki veitingastaðurinn í Lon don, Iceland Food Centre, og við það tækifæri var opnuð á staðnum póststofa sérstaklega ætluð bréfum, sem komast eiga til jólasveinsins, Sankti Kláus- ar, sem þekktur er víða um heim, þótt hann hafi til skamms tíma, ekki talizt til jólasveinanna okkar hér á ís- landi. En það vill nú einmitt svo til, að börn í mörgum lönd, um, ekki sízt í Englandi, telja að Sankti Kláus sé búsettur hér á íslandi. Póstsýra á Jólasveinapósthúsi Iceland Food Centre er Hildur Pálsdóttir, 21 árs gömul fram- reiðslustúlka á veitingastaðn- um, og er hún hér til hliðar að hjálpa til við að koma fyrstu bréfunum í póstinn, en gest- innir eru Lundúnabúar af yn-gri kynslóðinni. Fyrsti hópurinn sem kom til póststýrunnar fékk jólagjöf, eftir að hafa afhent bréfin. Pósthúsið verður opið fram að jólum, og öllum þeim, sem koma bréfum í póstinn, hefur verið heitið því, að þeim verði komið áleiðis til íslands. PAUL FALCK, FRETTARITARI NORSKU FRÉTTASTOFUNNAR NTB í STOKKHÓLMI: BLÖÐIN ORÐIN STJÓRNMÁLA Margir hörmuðu þann atburð, sem skýrt var frá fyrir nokkr- um dögum, að eitt af þrem morgunblöðum Stokkhólms, Stockholms Tidningen, sem sænska verkalýðshreyfingin á, yrði lagt niður 1 apríl n.k. vegna fjárhagslegra erfiðleika. Mörg tár féllu, og flest þeirra voru ekta — einnig tár hinna Stokkhólmsblaðanna og stjórn arandstöðunnar. Blaðadauði get ur hrætt hvern sem er ekki sízt, þegar fórnarlambið er gamalt höfuðborgarblað, prent að í 150.000 eintökum og því eitt af stærstu blöðum Svíþjóð- ar, og þar að auki málgagn allrar verkalýðshreyfingar landsins. Stockholms Tidningen var sett á fót árið 1889 og hefur gengið á ýmsu með blaðið, enda oft skipt um eigendur Blaðið gekk mjög vel til að byrja með og um aldamótin var upplagið orðið 100.000, sem telja má mikið afrek mið- að við blöð þess tíma. Sænski fjármálamaðurinn Torsten Kreuger tók við blaðinu árið 1930, og blaðið lék ekkert sér- legt hetjuverk á stríðsárunum, enda var ritstjórinn vihveittur Þjóðverjum. Árið 1956 keypti Verkalýðssambandið bæði Stockholms-Tigningen og Aft- onbladet af Kreuger fyrir um 30 milljónir sænskra króna. Sænska verkalýðshreyfingin LO, fékk því tvö málgögn í Stokkhólmi, morgunblað og síðdegisblað. Aftonbladet fékk brátt mikinn vind í seglin, en Stockholms-Tidningen varð „vandræðabarn.“ Frá fyrstu tíð var verulegt tap á blaðinu, og árið 1960 varð LO að greiða árlega með blaðinu 1J milljón ir sænskar krónur. Árin 1963 og 1964 var tapið orðið 14—15 milljónir og í ár er talið, að LO verði að greiða 20 milljón- ir með blaðinu. Áætlað var, að tapið á næsta ári yrði um 22 milljónir króna. Blaðið hefur því kostað LO um 115 milljón- ir sænskar krónur — tæpar 1000 milljónir íslenzkra króna — frá því verkalýðshreyfingin keypti það. Það var vegna þessa mikla taps, að LO varð að leggja blaðið niður. Við getum ekki staðið undir þessu lengur, sagði Arne Geijer, forseti LO, er hann tilkynnti dauða ST. Afleiðingin er sú að frá og með 1. apríl verða einungis tvö morgunblöð í Stokkhólmi, frjálslynda blaðið Dagens Ny- heter og íhaldsblaðið Svenska dagbladet. Blaðadauðinn hefur krafizt nýs fórnarlambs, og þróunin í átt til færri og stærri blaða heldur áfram. Einokun? Þeir mörgu, sem harmað hafa fráfall Stockholms-Tidn- ingen, gera það af ýmsum mis- munandi ástæðum. Flestir eru samt sem áður sammála um, að lifandi og fjölbreytileg dag- blöð séu undirstöðuatriði lýð- ræðisins og að það sé mjög þýðingarmikið fyrir þjóðfélag- ið í heild að hafa dagbiöð, sem geta speglað ólíka strauma og skoðanir án þess að rang- túlka þær. vísvitandi eða óvit- andi. Þess vegna er það mjög hörmulegt og varhugavert, þeg ar blóm í „pressuvendinum" deyr. hver sem litur þess er og hverja skoðun sem hver ein- stakur hefur á hinum ýmsu þjóðfélagsmálum. Þetta geta flestir samþykkt — stjórnmála menn, blaðamenn, vinnu veitendur og launþegar — og hinn almenni lesandi. En í sambandi við Stock- holms-Tidningen (ST) nær sam komulagið ekki lengra. Tilkynn ingin um fráfall blaðsins kom, þegar rikisþingið — ríkisdag- urinn — deildi af mikilli hörku um stuðning ríkisins við stjórn málaflokkana að upphæð 23 milljónir sænskra króna árlega. Var hér um að ræða frnmvarp frá ríkisstjórninni, og var það eins konar málamiðlun milli eldri tilíögu um ríkisstuðning við dagblöðin og nokkurra stjórnarandstæðinga. Það var var sjálfur forsætisráðherr- ann, Tage Erlander, sem gekk í ræðustólinn og skýrði frá þvi, að ST yrði lagt niður. Hann hélt smá minningarræðu um blaðið og minntist í þvi sam- bandi á blaðadauðann og þró- unina á vettvangi blaðanna, og sagði, að afleiðing þessa yrði takmörkun pólitískra umræðna. Þessi þróun er orsök þess, að ríkisstjórnin hefur lagt fram frumvarp um stuðning við stjómmálaflokkana, sagði Er- lander. Forsætisráðherrann hefur sfð ustu tvö árin gagnr.ýnl..það,. sem hann .kallar. ,einpkpnar- þróun í blaðaheiminum, og lagt áherzlu á nauðsyn þess, að þjóðfélagið grípi til ýmiss kon ar stuðnings við blöðin til þess að stöðva þróunina í átt til blaðaeinokunar. Þetta hófst, þegar jafnaðarmannablaðið i Gautaborg, Ny Tid, var lagt niður árið 1963 eftir að LO hafði hætt fjárframlögum sín- um til blaðsins. Þá skipaði for- sætisráðherrann nefnd til Þess að skila álitsgerð um stuðning við blöðin úr ríkissjóði Meiri- hluti nefndarinnar — fulltrú ar iafnaðarmanna og miðflokks' manna, lögðu til* a<5 *dkið veitti blöðunum stuðning í gegnum stjórnmálaflokkanna þ. e. a. s. að flokkarnir skyMu*skipta pen ingunum milli flokksblaða sinna, og að ríkisstuðningur- inn skyldi einungis notaður í þágu andstöðunnar og mörg blöð jafnaðarmanna gagn rýndu hana einnig. Einnig var hún gagnrýnd af flest öllum stofnunum og samtökum, sem beðin voru um að segja álit sitt á henni, og dómstóll einn varpaði fram þeirri spurningu. hvort tillagan væri ekki ósam rýmanleg ákvæðum stjórnar skrárinnar um prentfrelsi. Þessi mikla andstaða varð til þess, að málamiðlunartillaga var samin þannig, að ríkis- stuðningurinn fari til stjórn- málaflokkanna en ekki til blaðanna, og samkvæmt frum- varpinu, sem var samþykkt með miklum meirihluta at- kvæða í þinginu, geta flokkarn ir notað peningana að eigin vild. Víst er, að nokkrir munu nota þá til venjulegs flokks- starfs, m. a. til þess að greiða laun flokksstarfsmanna, en eins er ljóst, að mikill hluti peninganna fer til flokksblað- anna. 15 blöð á 12 árum Mjög skiptar skoðanir eru um þær ráðstafanir. sem ríkis- stjórn jafnaðarmanna í Sví þjóð hefur gripið til í því skyni að berjast gegn blaðadauðan- um, og eins eru skiptar skoð- . anir um, hversu mikil hætta sé á að blöðin komust á fárra hendur. En þróunin á undan- förnum árum hefur verið þessi í Svíþjóð: Tala dagblaða er í dag ekki einu sinni helmingui þess. sem Framhald á bls 22 Ennerleitaðað týndu konunni MB-Reykjavik, laugardag. Enn hefur ekkert spurzt með vissu til konu þeirrar er leitað hefur verið að undanfama daga. Ákveðið hefur verið að halda leit- inni eitthvað áfram, en stöðugt berast forsvarsmönnum leitarinn- ar upphringingar frá fólki, sem telur sig hafa séð hina týndu konu á ferli, hingað og þangað um bæ- inn. f gærkvöldi leituðu vinir eigin manns hinnar týndu konur í mannlausum byggingum í ná- grenni borgarinnar, en sú leit bar engan árangur. Öðru hverju hring- ir fólk til lögreglunnar og ann- arra þeirra, sem standa að lert- inni, og telur sig hafa séð hina týndu konu, eftir lýsingunni á henni að dæma. Eðlilega þora menn ekki annað en kanna tilvik þessi, eftir því sem unnt er, en það hefur allt reynzt árangurs- laust. Hér er heldur ekki um að ræða fólk, sem þekkir hina týndu konu persónulega og getur því ekki tafið fyrir þeirri, sem því þykir grunsamleg. Það verður að teljast einkenni- legt, að ekki skuli birtar myndir af fólki, sem leitað er þannig dög- um saman í von um að finna það á lífi í þéttbýli, enda er það jafnan fyrsta verkið erlendis, þeg- Framhald á bls. 22. KVEIKT Á JÓLATRÉ í HAFNARFIRÐI GE-Reykjavík, laugardag. Á morgun, sunnudag, kl. 16 mun við hátíðlega athöfn verða kveikt á jólatré því, sem vinar- bær Hafnarfjarðarbæjar í Dan- mörku hefur gefið honum. Tréð stendur á Thorsplani. Ambassador Dana a íslandi afhendir tréð, dótt ir hans mun kveikja á því, en forseti bæjarstjórnar, Stefán JónS- son, veitir því viðtöku. Á eftir mun Lúðrasveit Hafnarfjarðar leika undir stjórn Hans Ploder, og Karlakórinn Þrestir syngja undir stjórn Herberts Hriberschek Ágústssonar. lóhtrésfaqiiaflur Hinn árlegj iólatrésfagnaður Framsóknarfélaganna > Reykjavik verðui haldinn Framsóknarhús inu við Fríkirkjuveg þriðjudag inn 28 desember n k og hefst kl. 15. stundvíslega. Mjög verður til fagnaðarins vandað eins jg ávallf áður Tekið er á móti miða pöntunum á skrifstofu Framsókn arflokksins, Tjarnargötu 26, s'ímar: 16066 og 15564 en sala þeirra hefst seinnipart vikunnar. Verð miðans er kr. 100.— og eru ágæt ar veitingar og sælgætí innifalið i verði hans- Stjórnandí skemmtun arinnar verður hinn kunni skemmtikraftur Jón B. Gunnlaugs son Miða á jólatrésfagnaðinn má fá á skrifstofu Framsóknarflokks- ins, Tjarnargötu 26, mánudag, þriðjudag og miðvikudag.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.