Alþýðublaðið - 03.07.1959, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 03.07.1959, Blaðsíða 5
(iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiitiiiiiiinuiuuHiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiuiiiiiiiiiiuiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiui; : ■. ■■■■ |||Ílilt§§f í bandaríska þinginu að taka fullan þátt í framkvæmdun- um. Skipaleiðin upp St. Lawr- ence fljótið var tekin í notkun í apríl sl. Síðan hefur umferð verið mjög mikil um hana og meiri en við var búizt. Eitt mesta vandamálið í þessu sam bandi hefur verið skorturinn á skipstjórum, sem vanir eru siglingum um skipaskurði og fljót. Gripið hefur verið til þess ráðs, að fá gamla skip- stjórnarmenn, sem komnir eru á eftirlaun, til að stýra skip- um fyrst um sinn meðan verið er að þjálfa nýja. Siglingaleiðin upp Lawr- ence fljót er eitt mesta verk- fræðiJegt afrek, sem um get- ur. Býggja þurfti fjölmarga skipastiga og í sambandi við þá eru ráforkuver og áveitu- framkvæmdir, sem koma mill- jónum manna til nota. s, IT. LAWRENCE skipa- leiðin var opinberlega vígð 26. júní s. 1. af Elísa- betu Englandsdrottningu. Eis- enhower forseti Bandaríkj- anna og fleira stórmenni var viðstatt athöfnina, sem fram fór í St. Lambert, einni af út- borgum Montreal, en þar opn- ast skipaskurðurinn mikli. — Með opnun þessarar siglinga- leiðar opnast nýir möguleikar fyrir borgirnar við vötnin miklu á landamærum Banda- ríkjanna og Kanada. Nú geta stærstu skip komizt alla leið upp St. Lawrencefljótið til stórborganna í Miðríkjunum. Leiðin sem opnast er 3000 kíló metrar. Verkið var unnið sam- eiginlega af Bandaríkjamönn- um og Kanadabúum. Segja má, að undirbúningur að þessu mikla verki hafi haf- izt fyrir tveimur öldum, þegar veiðimenn í Kanada lentu í ýmsum örðugleikum vegna hinna miklu og hættulegu fossa í St. Lawrenee-fljótinu. Fljótið er eitt hið vatnsmesta í heimi. Það hefur upptök sín í Ðntariovatni, sem er aust- ast vatnanna miklu. Neðstu fossar þess heita Lachine (Kína), og draga nafn sitt af því, að franski landkönnuður- inn Cartier hélt sig mundu komast til Kína, éf hann héldi upp St. Lawrencefljótið, en varð að gefast upp, þegar kom að þessum miklu fossum. Seint á 18. öld var grafinn Htill skipaskurður fram hjá La- chine-fossunum. Síðan hefur verkinu verið haldið áfram í smááföngum og loks var svo komið, að smáskipum var fært alla leið inn í meginland Ameríku. En með hinum nýja skurði er flestum skipum fært þessa leið. Þriðjungur af íbú- um Bandaríkjanna og Kanada býr í grennd við.St. Lawrence fljótið og vötnin miklu og mestu iðnaðarhéruð Banda- ríkjanna eru á þessu svæði. Þetta mikla mannvirki opn- ar nýja möguleika fyrir fram- leiðslu og verzlun á þessu svæði. 1895 var sett á lagg- irnar sameiginleg nefnd beggja ríkjanna til þess að annást undirbúning að skurð- greftrinum. Og upp úr alda- mótunum hófst vinna við ýms ar framkvæmdir í því skyni. Frá því um 1920 hafa Kanada menn haft forgöngu um fram- kvæmdir.og knúið Bandaríkja menn til samstarfs. Banda- ríkjáþing .felldi hvað eftir ann að tillögur um aukið samstarf og hraðari framkvæmdir, þeir sem hagsmuna áttu að gæta í járnbrautafélögum og flutn- ingafirmum stóðu gegn áætl- uninni um skipgengan skurð meðfram St. Lawrencefljóti. 1941 féllst Bandaríkjaforseti loks á að undirrita samning við Kanadamenn um skurð- gerðina. Ekkert var gert í mál inu meðan heimsstyrjöldin stóð yfir, en 1954 er samþykkt (REUTER.) Lögregla kommún- istastjórnarinnar í Kerala særði 19 manns í dag, er hún réðist meði kylfum sínum á mannfjölda, þar sem einn af íeiðtogum stjornarandstöðuim- ar sakaði stjórnina um „rudda- lega kúgun“. Praja-sósíalista- leiðtoginn Patton Thonu Pillai vitnaði í skýrslur hvaðanæva að úr ríkinu og kvað lögregluna ganga miklu lengra en áður. Pillai kvað margar árásir lögreglunnar í, dag og í gær hafa verið ónauðsynlegar. Óop- inberar heimildir segja, að 16 manns hafi særzt í lögregluá- rásum í gær. Stjórn kommún- ista segir lögregluna hafa hand tekið eða „flutt brott“ 24 961 manns og fangelsað 5820 síðan óhlýðnisherferðin gegn stjórn kommúnista í ríkinu hófst fyr- ir 20 dögum. ÞEIR ELDA VIÐ KÚAMYKJU í PAKISTAN LAHORE, Pakistan. „Sjáum til“, sagði matreiðslumaður- inn, „vatnið sýður“. „Já, eins og mig grunaði. Vatnið sýður og við fáum heitan te- bolla, sem hitaður hefur ver- ið með gasi af kúamykju". Þetta er daglegt brauð á litl- um búgarði í Vestur-Pakist- an. Tveir gasofnar eru þar á eldhúsgólfinu og matreiðslu- maðurinn fylgist með gangi málsins. Notkun kúamykju sem eldsneyti er ekki nýtt fyrir- bæri. Hún er í rauninni eins gömul og eldurinn í þágu mannkynsins. Nútímafram- leiðsluaðferðin er hins vegar ný af nálinni. Gastæki þessi taka rrtjög lítið rúm eða á- líka og venjulegur brunnur og byggð eftir svipaðri reglu. Á hverjum degi er mykju úr fjórum kúm — um 100 pund — hellt í nokkurra rúmmetra stóran brunn. Á- líka miklu vatni er dælt .inn og lyktarlaust, leitar síðan mun kosta um 130 dollara, | í botn brunnsins. Bakteríur upp og gegnum leiðslurnar í en það getur séð stórri fjöl- § virka á sellulósa-efni í mykj gasofnana í eldhúsinu. Verð- skyldu fyrir nægu eldsneyti | unni og „melta“ hana, en ur kúamykjan þar með að til eldunar, svo lengi sem | gefa um leið frá sér methan miklu gagni sem eldsneyti. kýrnar eru vel fóðraðar og | gas. Gasið, sem er bæði lit- Hvert gasframleiðslutæki þrífast vel. 1 FYRSTA skipti í sög- unni hafa Gyðingar hafizi handa um skipulagða út- • breiðslu trúar sinnar meðal „heiðingjanna“. Sett hefur verið á laggirnar stofnun, er nefnist upplýsingaþjónusta' Gyðinga og hefur það hlut- verk, að veita fræðslu um og breiða út Gyðingatrú. Stofnun þessi hefur aðat- bækistöðvar í Chicago og' standa allir helztu trúflokk- ar Gyðinga í Bandaríkjun- um að henni. Er hér um aö ræða nokkurt frávik frá hefð bundnum venjum Gyðinga, sem ekki líta svo á, að trúna beri að boða öðrum þjóðum. Einstöku sinnum hafa frammámenn Gyðinga halct- ið fram þeirri skoðun, dð nauðsyn bæri til að boða trúna meðal allra þjóða, en nú hefur í fyrsta skipti ver- ið hafizt handa um það á skipulagðan hátt. Hinn nýi félagsskapur hyggst binöa sig við Chicago og umhverfi hennar fyrst um sinn, en tal- ið er, að hreyfingin breiðist út um öll Bapdaríkin á næst- unni. Einn af forustumönn- um Gyðinga í Bandaríkjun- um og aðalhvatamaður að stofnun .hins nýja félags, lét nýlega svo ummælt, að bú- ast máetti við, að innan til- tölulega skamms tíma yrði Gyðingatrú þriðja útbreidd- usta trúarbrögðin í Banda- ríkjunum, á eftir kaþóslkxi trú og trú mótmælenda. D~ hemju fjármagn hefur þeg- ar safnazt í Chicago til úi~ breiðslustarfsemi Gyðinga. Skrípaleíkur í Louisiana SkRÍPALEIKNUM í Loui- siana í Bandaríkjunum er lok- ið. Snemma í júní var fvlkis- stjóranum þar, Earl Long, vik- ið úr embætti og hann settur á geðveíkrahæli, enda maður- inn ærið óstöðugur og aðgerð- ir hans furðulegar. Nú hefur það gerzt nýjast, að Long er Jaus og liðugur samkvæmt dómi og mál gegn honum látið niöar falla. Fyrsta verk Long eftir að hann varð frjáls mað- ur var að hreinsa til í fylk- inu og hefur f jölda manns ver- ið sagt upp starfi, meðal þeirra lögreglustjóra fylkisins, ýms- um læknum og öðrum opinber um síarfsmönnum. Margir læknar, sem rann- sakað hafa fýlkisstjórann, eru furðu slegnir yfir því, að hann skuli hafa verið látinn laus, þar eð hann sé hættulega geð'- veikur. I|n aðrirsegja, að hann sé aðeins þreyttur og miðun sín af ýmsum ástæðum. Rétt- arhöldin yfir Long minntu frékar á sirkus en virðulegan rétt. Fylgismenn hópuðust í salinn og hrópuðu og kölluðu, svo að dómarinn gat aldrei stillt til friðar. Þegar Long var úrskurðaður frjáls maður hófust mikil fagnaðarlæti. Nú hefur Long krafizt skiln aðar frá konu sinni, þar eð hún hafi valdið því, að hann var fluttur á sjúkrahús. Frúin er flúin til Mexíkó undan reís> andi vendi manns síns. AlþýðublaSið — 3. júlí 1959 l|

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.