Alþýðublaðið - 11.10.1959, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 11.10.1959, Blaðsíða 4
L\ Tf ££eœCíOJ^£ItO) Útgefancli. Alþýðiiflokfcunnn. — Framkvæmdastjon. ui^uiiui Kristjánason. — Ritstjórar: Benedikt Gröndal, Gísli J. Ástþórsson og Helgi Sæmundsson <áb.). — Fulltrúi ritstjómar: Sigvaldi Hjálmarsson. — Fréttastjóri: Björg- ▼ln Guðmundsson. — Simar: 14 900 — 14 901 — 14 902 - 14 903. Auglý* togarfmi 14 906 Aðsetur: Alþýðuhúsið. — Prentsimftis Mþýðublaöfiina, Hverfisgata 8—10. Stefnan og verkin ÁHRIFAMAÐUR í Sjálfstæðisflokknum hef ur gerzt óvenjulega hugkvæmur i kosningabarátt- unni. Kenning hans er sú, að Alþýðuflokkurinn reyni að eigna sér s'tefnumál Sjálfstæðisflokksins —r og þykist meira að segja ætla að framkvæma þau. Hingað til hefur Alþýðuflokkurinn í þessu efni verið veitandi en ekki þiggjandi. Stefnumál hans hafa komizt í framkvæmd eitt af clðru og ger- breytt íslenzku þjóðfélagi á skömmum tíma. Hann átti frumkvæði að atvinnuþróuninni og félagsmála löggjöfinni. Afturhaldsöflin streittust gegn þess- um málum þangað til þeim stóð ótti af almennings hylli þeirra. Alþýðuflokknum hefur tekizt að fram kvæma stefnumál sín í samstarfi við alla hina stjórnmálaflokkana í landinu. Áhrif hans eru ólíkt meiri en ætla mætti af atkvæðamagni hans og þing fylgi. Þessa hefur þjóðfélagið notið í ríkum mæli. En þar fyrir hefur Alþýðuflokkurinn ekki getað framkvæmt í minnihluta stærstu baráttumál sín, því að auðvitað er samstarfi við aðra flokka tak- mörk sett. Þau bíða þess vegna enn framkvæmd- ar. Alþýðuflokkurinn bregzt ekki baráttumál- um sínum. Hann átti til dæmis frumkvæði að því um síðustu áramót að stöðva dýrtíðarflóðið. Sjálfstæðisflokkurinn studdi þá viðleitni drengi lega, og Framsóknarflokkurinn undi henni með hjásetu. Nú hefur Framsóknarflokkurinn glap- izt til að beita sér fyrir því, að oheillaþróun verð bólgunnar og dýrtíðarinnar komi aftur til sög- unnar. Sjálfstæðisflokkurinn gengur í slóð Her- manns og Eysteins og hyggst yfirbjóða þá í von um bændafylgi. Stefna Alþýðuflokksins er hins vegar óbreytt. Hann berst fyrir þeim úrræðum í efnahagsmálum, sem Sjálfstæðisflokkurinn fylgdi í vetur og Framsóknarflokkurinn sætti sig þá við. En sú fjöður er sannarlega ekki af Sjálfstæðisflokknum tekin. Hins vegar er Sjálf- stæðisflokkurinn illa reittur í kapphlaupinu við Framsóknarflokkinn um blekkingu dýrtíðarinn- ar og verðbólgunnar. Stefnumál stjórnmálaflokka skipta sannarlega miklu, en verkin ráða þó úrslitum. Aþýðuflokkur- inn sýnir í verki, að hann fylgir þeim málum, sem hann hefur mótað einn eða í samstarfi við aðra flokka. Þess vegna hefur hann mátt sín mikils í minnihluta, og þess vegna er þjóðinni óhætt að trúa honum fyrir auknum áhrifum í landinu. Og sé það að eigna sér stefnumál annarra flokka, þá eru þau bezt komin í varðveizlu Alþýðuflokksins. Hann ber gæfu til að samræma stefnuna og verk- ín — og það er aðalatriðið. SLYSAVARNáDEILDIN HRAUNPRÝÐI í HAFNARFIRDI heldur fund þriðjudaginn 13. okt. kl. 8,30 s.d. í Sjálfstæðishúsinu. — Venjuleg aðal- fundarstörf. — Kaffidrykkja og Félagsvist — Konur, fjölmennið. Stjórnin. Lárus Pálsson, leikstjóri Delerium Bubonis. L.R. hefur aftur sýning- ar á Delerium Bubonis LEIKÁRíÐ er í þann veginn að hefjast hjá Leikfélagi Reykjavíkur. Það byrjar á sama hátt og það endaði síð- ast með sýningum á Deleríum Bubonis þeirra bræðra Jóns Múla og Jónasar Árnasonar, en það reykvíska sjónarspil var sýnt fjörutíu sinnum fyrir fullu húsi á síðasta leikári. Delerium Bubonis verður sýnt í fyrsta sinn á hauetinu í kvöld klukkan 20.00 í Iðnó, en á því húsi hafa verið gerðar talsverðar umbætur til þæginda fyrir leikhúsgesti. Næsta viðfangsefni leikfé- lagsins á þessu ári verður svo „Sex. persónur leita höfundar11 eftir L. Pirandello í þýðingu Sverris Thoroddsen. Leikrit þetta sýndi Leikfélagið vetur- inn 1926—27, en það nefndist þá „Sex verur í leit að höfundi“ og þýðandi var annar. Leik- Aðalfundur stjóri verður Jón Sigurbjörns- son, en leikendur eru margir. Aðalhlutverkin eru í höndum Gísla Halldórssonar, Þóru Frið- riksdóttur, Guðmundar Páls- sonar, Steindórs Hjörleifsson- ar og Áróru Halldórsdóttur. Síðan er í ráði að sýna „Beð- ið eftir Godtot“ eftir Samuel Beckett, leikstjóri Baldvin Halldórsson, þýðandi Indriði G. Þorsteinsson. Hlutverkin í þeim leik eru aðeins fjögur, en þau eru leikin af Brynjólfi Jó- hannessyni, Árna Tryggvasyni, Gísla Halldórssyni og Guð- mundi Pálssyni. Loks hefur orðið nokkur breyting á stjórn Leikfélags Reykjavíkur. Stjórnin er þann- ig skipuð nú: Steindór Hjör- leifssQn formaður, Guðmundur Pálsson gjaldkeri og Magnús Pálsson ritari. Áður var Jón Sigurbjörnsson formaður, en hann hyggur á Ítalíuför 1 vetur og gerir því ekki ráð fyrir að starfa með allt leikárið. Samsýning opnuð f gær SAMSÝNINÍG Félags ísl. myndlistarmanna var opnuð í Listamannaskálanum í dag kl. 4. Sýna þar 22 málarar 59 myndir, og fjórir myndhöggv- arar sýna samtals 10 myndir. Flestir þeirra listamanna sem þarna sýna eru löngu þj óðkunn ir, en þó eru þar nokkrir sem ekki hafa sýnt opinberlega fyrr Tveir þeirra málara sem þarna sýna hafa látist síðan síð asta samsýning félagsins var haldin fyrir rúmu ári, eru það Kristín Jónsdóttir og Snorri Arinbjarnar. Flestar myndanna eru tif sölu. Sýningin verður opin tii 25. þ. iii. Guðm. Ámason endurkjörinn form. FUJ á Siglufirði AÐALFUNDUR FUJ á Siglu firði vætr haídinn sl. miðvikud.- kvöld. Form. var endurkjörinn Guðmundur Árnason starfsmað utr á pósthúsinu Siglufirði. — Aðrir í stjórn voru kjörnir: — Hörður Arnþórsson, gjaldkéri, Skarphéðinn Guðnason, ritari, Ingibjctrg Möller og Olgi Geir Þorgeirsson. Jón Þorsteinsson, efsti mað- ur á lista Alþýðuflokksins í Norðurlandskjördæmi vestra var mættur á fundinum og flutti ávarp. Mikil ánægja rikti á fundinum með hið nýja fé- lagsheimili siglfirzkra jafnaðar- manna. Ákveðið var, að FUJ efndi til fjölteflis og mun veröa | teflt við Jón Þorsteinsson. Kennarasambands Ausfurlands AÐALFUNDUR Kennara- sambands Austurlands var hald inn í barnaskólanum að Egils- stöðum dagana 26. og 27. sept. s. 1. Formaður sambandsins, Kristján Ingólfsson, setti fund- inn og skipaði Valgeir Sigurðs- son og Þórð Sigurðsson forseta þingsins, en Guðmund Magn- ússon og Guðmund Þórðarson ritara þess. Gestir þingsins voru: Þor- steinn Sigurðsson, kennari í Reykjavík, sem kynnti ný kennslutæki í átthagafræði og lesíri og leiðbeindi um notkun þeirra, Kristinn Björnsson, sál- fræðingur í Reykjavík, sem hóf umræður um geðvernd og sál- fræðiþjónustu í skólum, og Jó- hannes Óli Sæmundsson, náms- stjóri á Akureyri, sem flutti framsöguerindi um reiknings- kennslu. Aðalsteinn Hallsson, skólastjóri á Fáskrúðsfirði, flutti erindi um leikvelli, leik- vallagerð og sýndi kvikmynd. í stjórn Kennarasambands Austurlands næsta ár voru kosnir: Sigfús Jóelsson, Helgi Seljan og Kristinn Einarsson. Fundurinn gerði ýmsar álykt anir um málefni fræðslustarf- seminnar og kennarastéttar- innar. Merkjasala skáta er í dai STJÓRN Bandalags íslenzkra skáta og fulltrúar frá skátafé- lögunum í Reykjavík ræddu við fréttamenn i gær og skýrðu í stórum dráttum frá starfsemi skátahreyfingarinnar á íslandi. 28 félög eru í bandalaginu með rúmum 5000 starfandi skátum. Jónas B. Jónsson skátahöfð- ingi hafði orð fyrir skátunum og skýrði frá því, að í dag — sunnudag — væri merkja- söludagur skáta til ágóða fyrir starfsemina. Kvað hann eitt aðal verkefni BÍS að auka menntun foringja, en til þess skorti jafnan fé. Drap hann á kröfur þær, sem gerðar eru til skátanna, t. d. við leit að týndu fólki, en til þess þyrfti þjálfun, svo sem útilegur og ferðalög. Enda væri það eitt helzta boð- orð skáta, að gera ávallt skyldu sína og hjálpa öðrum. Hét hann! á almenning að taka vel á móti skátunum á morgun og kaupa merkin, sem kosta 10 kr. Skátahreyfingin starfar í 78 löndum heims með 13 millj. manna innan vébanda sinna og fer sú tala síhækkafidi. Er svo einnig hérlendis. Hér er ekki rúm til að rekja nánar starf ís- lenzkra skáta að sinni, en þess aðeins getið, að hún er fjöl- breytileg og sívaxandi. Með- fylgjandi mynd er tekin á skátamóti í Vaglaskógi 1956. 11. okt. 1959 — Alþýðublaðið

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.