Alþýðublaðið - 07.11.1959, Síða 5
Hvað er að
gerast
Suðurskautið
WASHINGTON, (NTB-
AFP). — Samningaviðræð-
urnar hér um S'uðurskauts-
landið eru nú komnar á nýtt
stig og er hugsanlegt, að
komizt verði að samkomu-
lagi um meginatriði í næstu
viku, segir í skýrslu, er gef-
in var út af fundinum í
kvöld. — Ráðstefnuna sitja
fulltrúar 12 landa og á hún
að ná samningum um, að
Suðurskautslandið verði
ekki notað í hernaðarlegum
tilgangi.
Fékk traust
RRUSSEL, (NTB-Reuter). -
Belgíska stjórnin fékk í dag
traustsyfirlýsingu í fulltrúa-
deildinni vegna stefnu sinn-
ar í Kongó. Fór atkvæða-
greiðslan fram eftir umræð-
ur um ástandið í nýlend-
unni og þær stjórnarumbæt
ur, er stjórnin hyggst gera
þar á næsta ári.
170 sjálfboðaliðar úr
belgíska hérnum, flughern-
SVONA gengur hin vel
klædda kona til hvílu —
segja þeir í París. Mynd
in er tekin á náttfatasýn-
ingu, sem þar var haldin í
síðastliðinni viku. Takið
eftir grímunni, sem mið-
síúlkan ber. Það virðist
vera meiningin, að hún
sofi með hana.
um, flotanum, lögreglunni
og flugvallavarðsveitunum
munu fara til Kongó fyrir
mánaðarlokin til að styrkja
varðhöldin um hinar þrjár
hernaðarbækistöðvar, sem
Belgar hafa í nýlendunni.
Eru þetta fyrstu meðlimir
300 manna hóps sjálfboða-
liða, sem taka á ábyrgð á
stöðvum þessum. 150 stú-
dentar fóru mótmælagöngu
í dag gegn því, að hersveitir
yrðu sendar til Kongó.
Úr einu í annað
BERLÍN, (Reuter). — Dr.
Maxijnilian Merten, 45 ára
gamall lögfræðingur, sem
látinn var laus úr grísku
fangelsi í gær eftir að hafa
setið þar í 2V2 ár, kom hing-
að í dag í fylgd með lög-
reglu. Var hann handtekinn
í Múnchen í gærkvöldi, er
hann kom þangað frá Aþenu.
Er hann grunaður um morð
á .Gyðingum í Saloniki á
stríðsárunum og nauðungar-
flutninga Gyðinga þaðan, en
hann var ráðgjafi þýzka her-
foringjans þar í stríðinu.
funda
PARÍS, (Reuter). — Frakk-
ar létu í dag í ljós fúsleik
til að líta á væntanlegan
fund æðstu manna austurs
og vesturs sem hinn fyrsta
í röð margra slíkra í stað
einnar allsherjartilraunar
■til að leysa öll vandamál.
Neitaði de Murville, utan-
ríkisráðherra, því í dag, að
de Gaulle væri andvígur
mörgum fundum, sem Mac-
millan, forsætisráðherra
Breta, mælir með.
Viðræður í Varsiá
'VARSJÁ, (NTB-AFP). —-
Sendiherrar Bandaríkjanna
og Kína átt'u í dag með sér
þriggja tíma fund. Næsti
fundur þeirra verður 8. des-
ember. Tilgangur fundanna
er að koma samskiptum ríkj
anna í eðlilegra horf.
Fjalkgarpur farasf
_
KATMANDU, (Reuter). —
Tilkynnt var í dag, að 32
meðlimir fjallgönguleiðang-
urs nokkurs muni hafa far-
izt í stórhríð á Gaurishank-
artindi (nál. 8000 metra) ná-
lægt Mount Everest. Hlaup-
ari, sem náði hingað í dag
sagði, að leiðangurinn — 3
Japanir og 29 Sherpar —
hefði verið týndur síðan
hann fór frá aðalstöðvum
sínum í tæplega 7000 metra
hæð fyrir þrem vikum. —
Leitarflokkar hafa verið
sendir út og verður einnig
leitað úr lofti.
Ef allir meðlimir leiðang-
ursins reynast dauðir, er það
í fyrsta sinn, sem heill leið-
angur ferst í Himalayafjöll-
um, og jafnframt versta slys
í sögu fjallamennsku í
Himalavafjölium. — Sviss-
neski fjallamaðurinn Lam-
bert, sem reyndi við tind
þennan fv.rir 5 árum, kvað
hann „óklífandi Nepalsmeg-
in“.
Mannslát hafa verið nokk-
uð tíð á þessum slóðum í
ár: Tvær evrópskar konur
og tveir Sherpar fórust í s.l.
mánuði, fimm menn úr ensk
-þýzkum leiðangri hafa ver-
ið týndir síðan í júní og
tveir aðrir Bretar hurfu í
maí, en í sama mánuði fórst
vara-foringi ástralsks leið-
angurs ásamt einum Sherpa.
Vantrúnaður
CANBERRA, (Reuter). — Á
fundi þingmannasambands
hrezka samveldisins hélt
Attlee jarl, fyrrverandi for-
sætisráðherra, ræðu í dag
þar seni hann sagði m. a., að
fundur æðstu manna mundi
ekki Ieysa öll heimsins
vandamál. Hann sagði enn-
fremur, að tími væri til
kominn, að smáþjóðirnar
fenpju að taka til máls í al-
þjóðamálum „því að þær
munu þjást, ef til styrjaldar
kemur“. Hann bætti bví við,
að Sameinuðu þjóðirnar
hefðu brugðizt í sínu aðal-
verkefni ,,að losa heiminn
við óttann“.
HAMBORG, (NTB-AFP). —
Eigendur þýzka flutninga-
skipsins Bilbao, sem frönsk
herskip neyddu s. I. miðviku
dag til að sigla inn til Cher-
bourg, mótmæltu í dag töku
skipsins og héldu því fram,
að taka flutningaskips á al-
þjóðlegri siglingaleið bryti í
bág við álþjóðalö’g. Heldur
félagið því fram, að Frakk-
ar hafj gengið um borð í
skipið er það var 17 sjómíl-
ur frá næsta stað á Frakk-
landsströnd.
73 kassar af stormljósker-
um og 100 kassar af hagl-
patrónum voru gerðir upp-
tækir. Segir talsmaður skipa
félagsins, að skipið hafi átt
að fara til Casablanca, en
ekki koma neins staðar ann-
ars staðar við. — Reuter
segir, að vestur-þýzka utan-
ríkisráðuneytið hafi þær
fréttir frá sendiráði' sínu í
París, að rannsókn málsins
sé háldið áfram.
Laosskýrsla
NEW YORK, (NTB). — La-
osnefnd SÞ hefur lagt fram
skýrslu sína og kemst að
jjeirri niðurstöðu, að Norður
Viet-Nam muni ekki liafa
gert innrás í Laos, hins veg-
ar hafi stjórn Norður Viet-
Nam sent kommúnistunum
í Laos voun og skotfæri.
Skýrslart hefur verið send
aðildarrikjunum.
TÚNIS, (NTB-Reuter). —
Kínverskir kommúnistar
hafa veitt algiersku uppreisn
arstjórninni alls 10 milljón
dollara lán til kaupa á vopn-
um og til greiðslu á kostnaði
við áróður og stjórn, segja
góðar heimildir í Túnis.
Munu kommúnistar hafa
boðizt til að láta uppreisn-
armönnum í té amerísk her
gögn, er tekin voru í Kóreu-
styrjöldinni.
VEITINGAHÚSIÐ Lido hef-
ur enn fengið nýjan skemmti-
kraft. Er það söng- og danskon-
an Vera Mackey. Hún byrjaði
LÍTIÐ er um rjúpur núna.
Alþýðublaðið spurðist fyrir
um það í matarverzlun Tómas-
ar Jónssonar í gær, hvort rjúp-
ur væru fáanlegar, en fékk þau
svör, að engar væru til þessa
dagana.
Leyft er að skjóta rjúpur á
tímabilinu 15. október—15.
desember ár hvert. í haust hef-
ur rjúpan einkum fengizt í
Kelduhverfi én einnig lítils
háttar á nokkrum öðrum stöð-
um. Verðið á rjúpum í smá-
sölu er 29 kr. stykkið en nokk-
uð er misjafnt hvað verzlanir
greiða fyrir þær. Þegar mikill
hörgull hefur verið á þeim hef-
ur jafnvel verið greitt yfir 30
kr. fyrir stykkið.
BONN - Roltkarinn mikli,
EIvis Prestley, gengur nú
aftur laus. Ilann er í her-
þjónustu í Vestur-Þýzka-
landi, var stungið inn á
spítala og rifnir úr hon-
um háls- og nefkirtlar.
Og nú gengur hann sem
sagt laus aftur.
að skemmta gestum í Lido um
síðustu helgi og er ráðin til
eins mánaðar.
Alþýðublaðið hefur átt stutt
viðtal við ungfrú Mackey. Hún
hefur skemmt í fjölmörgum
löndum um allan heim, þar á
meðal flestum löndum Vestur-
Evrópu, Japan, Indlandi, Tyrk-
landi, Sýrlandi, Brasilíu og
írak.
Ungfrúin kvaðst hafa skemmt
síðast í Moulin Rouge í París
og svo í Stokkhólmi. Hún hef-
ur einnig skemmt á Valencia í
Kaupmannahöfn, en það er
lengra síðan.
„Samkeppnin er mjög mikil
meðal skemmtikrafta og starf-
ið oft erfitt, t. d. hef ég ekki
komist til heimaborgar minn-
ar, London, í þrjú ár til að
hitAa móður mína“, sagði ung-
frúin.
„Það er margt sem kemur
fyrir á þessu flakki um heim-
inn og ég lenti einu sinni í upp-
reisn, það var í Bagdad. Miklir
götubardagar geysuðu þar og
ég komst ekki út fyrir dyr £ 15
daga“.
Vera Mackey sagði að hún
kynni vel við sig á íslandi, en
heldur þótti henni kalt. Hún
kann vel við fólkið og sagði, að
lífskjörin væru áberandi góð.
Ekki sagðist ungfrúin vera
búin að ákveða hvert hún færi
næst, en sagði, að hún hefði
nokkur tilboð.
Forsíðumyndin sýnir Veru
Mackey, þar sem hún er að
skemmta í Lido. Hún er að
dansa við einn gestinn, sem hún
hefur klófest, Kristján Krist-
jánsson, hljómsveitarstjóra.
Alþýðublaðlð — 7. nóv. 1959 «§.