Alþýðublaðið - 19.01.1921, Blaðsíða 2
2
ALÞYÐUBLAÐIÐ
Aígreidsia
blaðsins er ( Alþýðuhúsinu við
tngólfsstræti og Hverfisgötu.
Sími Ö88.
Auglýsingum sé skilað þangað
eða í Gutenberg ( siðasta íagijd,
10 árdegis, þann dag, sem þær
eiga að koma ( blaðið.
Askriftargjald ein lzr. á
mánuði.
Auglýsingaverð kr. 1,50 cm.
eindálkuð.
' Utsölumenn beðnir að gera skil
til afgreiðslunnar, að minsta kosti
ársfjórðungslega
gerð landssjóðs og Iandsverzlun-
inni, og hyggja að sé halli á rekstri
landsverzlunar vegna þess, að út-
jgerðin hafi tapað. Nú munu flest-
ir aðrir en þessir frambjóðendur
vita, að þetta er sitt hvað. Lands
sjóðsútgerðin er i höndum Eirr>-
skipafélagsins að öllu leyti, bæði
bókfærzla og stjórn hennar, og
Landsverzlunin kemur þar hvergi
nærri. Þó að eg ætli ekki hér að
tala langt mál um landssjóðsút-
gerðina, þá get eg ekki stilt mig
um að segja, að það kemur und-
arlega fyrir sjónir, að Ölafur Thors
furðar sig á því, að sú útgerð hafi
tapað, eins og ( pottinn var búið,
Fyrst og fremst voru skipin keypt
dýru verði, vegna hinnar knýjandi
nauðsynjar um fiutninga á stríðs-
árunum, sérstaklega var Borg dýr-
keypt af h. f. Kveldúlfi, sem treysti
sér þá ekki til að halda skipinu
úti, er landið réðst í það. í öðru
lagi hafa landssjóðsskipin verið
gerð að hornreku skipa Eimskipa-
félagsins; ætíð verið látin fara
arðminstu ferðirnar, sérstaklega
strandferðir með mörgum viðkomu-
stöðum. Slíkar strandferðir eru
farnar, ekki vegna landsverzlunar-
innar sérstaklega, heldur vegna
verzlunar landsmanna, og undrar
það marga, að frambjóðendur A-
listans vilja ekki láta taka tillit
til óska landsmanna um bættar
samgöngur, þó að utan Reykja-
víkur sé. Loks má geta þess, að
fyrir stríðið var varið árlega 60
til 70 þús. kr. strandferðastyrk úr
landssjóði, sem nú mundi senni-
Jega nema árlega 4—500 þús,, en
Iandssjóðsskipin hafa enn ekki
fengið neian slíkan styrk. En ef
slíkur styrkur væri meðtalinn
mundi útgerðin bera sig vel. 0
Th. vítir að bókfært kaupverð
skipanna hafi ekki verið fært nið-
ur á stríðsárunum. Það er rétt.
og þá sérstakiega hvað viðkemur
Borg, en það er sök íjármálaráð-
herrans, flokksmanns Mgbl. og
0. Th., en ekki landsverzlunar,
sem ekkert hefir um þau mál að
segja.
(Frh.)
€rlenð siuskeytl.
Khöfn, 18. jan,
Ráðherrastefna.
Sfmað cr frá London, að for-
sætisráðherrar bandamanna mæt-
ist 24. þ. m, í París.
Allsherjarverkfall í Svíþjóð, ef
kaupið verður lækkað.
Símað er frá Stokkhóimi, að
vinstri socialistar hafi, meðan rætt
var um fjárlagafrumvarpið, hótað
allsherjarverkfalli, ef laun manna
væru lækkuð.
Druknun.
Sigurður bóndi Þorvalasson í
Tungu í Grafningi fór á mánu-
daginn um hádegi niður að Sogi
á fuglaveiðar og druknaði i Sog-
inu. Var hans leitað og fanst lík
hans rekið við Álftavatn.
Sigurður var stakur dugnaðar-
maður og vinsæil mjög. Hann var
nýlega búinn að reisa myndarleg-
an bæ í Tungu. Hann lætur eftir
sig konu og ungt barn.
Bræður Sigurðar eru þeir Guð-
mundur á Bíldfelli og Pétur tré-
smiður hér í bæ.
Kosningaskrifstofa B-listans
(Alþýðuflokksins), er opin alla
virka daga í Alþýðuhúsinu við
Ingólfstræti, frá klukkan 10 ár-
degis. A sunnudögum er hún opin
eftir klukkan 1. Kjörskrá liggur
þar frammi. Sfmi 988.
Stjðrmnilastejna
anistxðinganna.
(Nl.)
Enn fuilyrðir ræðumaður, að sá
undirbúningur hafi enn ekki farið
(ram með okkar þjóð. En hr,
Einar Kvaran og háttvirtir and-
stæðingar vorir verða að athuga,
að það sem hér er að gerast t
þessu máti er einmitt undirbún-
ingur, og þeir sem eru að tefja
þennan undirbúning, eru að gera
sitt til að hindra það, að þetta
fyrirkomulag geti blessast þegar
það er orðið ríkjandi f þjóðfélag-
inu. Þvf rikjandi verður það. Það
er aðeins timaspursmál hvað langt
verður þangað til. Jafnaðarstefnan
er jafn óstöðvandi og fijót sent
fellur tii sjávar.
Menn geta sett stíflu sem stöðvr-
ar um stundarsakir, en árangurinn
verður ekki annar en sá, að ann-
aðhvort breytir fljótið um farveg
eða það brýtur stífluna og ryðst
fram með óstöðvandi krafti. Þetta
síðartalda heflr skeð í RúslandL
Sem betur fer mun aldrei verða
lagður annar eins þröskuldur í götu
eðlilegrar framþróunar hér eins og
Rússastjórn gerði þar — enda væri
óskandi að jafnaðarstefaan kæmist
hér á með meiri friði en þar. En
þeir sem leggja stifluna í farveginn
hér, gera sitt til — þó í smærri
stíi sé.
Eg tek ekki undir með hr. Ein-
ari Kvaran, um það að socialism-
inn komi ekki til kasta Alþingis
fyrstu árin.
Ef einhver stjórnmáiamaðurinn
okkar sem Iegið hefir í gröf sinni
háifa öld, gæti virt fyrir sér Al-
þingi og þjóðfélag íslands eins og
það er nú, þá mundi hann glögt
sjá að socialisminn er kominn hér
inn að meira eða minna leyti.
Þessari hreyfingu taka margir
ekki eftir, af því þeir hreyfast
sjálfir með.
Þá segir hr. E. Kv. að mát
þetta sé bersýnilega i bernsku enn
hér á landi, og bendir á því tit
sönnunar, að Alþýðublaðið hafi
enn ekki ráðið við sig hvort það
fylgi 2. Internationale eða bolsi-
víkum.
Það er nú ekki rétt að málið
sé í bernsku hér á landi svo mjög
fremur en annarsstaðar, þó að