Skírnir - 01.01.1898, Page 2
2
Ársfundir.
Á hinum síðari ársfundi Reykjavíkurdeildarinnar mintist for-
seti látiuna fjelagsbræðra, þar á meðal sjerstaklega eand. polyt.
Nikuláss Runólfssonar, bókavarðar Haíhardeildarinnar. Því næst
skýrði hann frá aðgjörðum og hag deildarinnar. Yegna fjárhags-
ins mundi deildin eigi í ár gefa út raeira enn hinar vanalegu árs-
bækur, Skírni og Tímaritið. Síðan á fyrra ársfundi höfðu forseta
enn borist nokkur atkvæði um framhald eða afnám útlendu frjett-
anna í Skírni, og var nú niðurstaðan sú, að 88 íjelagsmenn vildu
halda frjettunum, enn 84 afnema þær. Pundurinn veitti stjórninni
heimild til að semja við Hafnardeildina um verð-niðurfærslu á
sumum bókum fjelagsins, þeim er óútgengilegastar eru, þannig,
að þær verði settar niður í verði um tiltekinn tima og seldar fyr-
ir svo lágt verð, sem svarar umbúðaverði. í stjórn vóru kosnir
þeir, er segir hér á eftir, og endurskoðunarmenn þeir adjunktBjörn
Jensson og bankabókari Sighvatur Bjarnason. í Tímaritsnefnd
vóru kosnir: Yfirkennari Steingrimur Thorsteinsson, yfirdómari
Kristján Jónsson, ritstjóri Einar Hjörleifsson og ritstjóri Haunes
Þorsteinsson.
Á ársfundi Hafnardeildarinnar lagði forseti fram endurskoðað-
an ársreikning deildarinnar fyrir árið 1897, og skýrði frá athöfnum
og hag fjelagsins. Skuld deildarinnar til þjóðbankans er nú að
öllu borguð og fjárhagur í góðu lagi. Tvö ný rit voru samþykkt
til útgáfu, annað um íslensk mannanöfn eftir Jón prófast Jónsson,
sem líklega kemur í Safn til sögu Islands, hitt um landskjálfta á
Suðurlandi eptir dr. Þorvald Thóroddsen. Fundurinn veitti fyrir
sitt leyti stjórninni heimild til að semja við Reykjavíkurdeildiua
um, að báðar deildir heiti verðlaunum fyrir vel samið rit um sögu
íslands á 19. öld. Hafa síðan komist á samningar milli deildanna
um það mál, og er auglýsing þar að lútandi prentuð hjer aftan
við Skírni. Heiðursfjelagar vóru kosnir þeir prófessor dr. L. Wim-
mer og bókavörður dr. Kr. Kálund. I stjórn vóru kosnir þeir, er
segir hjer á eptir. I Safnsnefnd var kosinn varaprófastur Eiríkur
Jónsson í stað stud. mag. Þorláks Jónssonar. Endurskoðunar-
menu vóru kosnir: stud. polyt. Knud Zimsen og Gísli læknir
Brynjólfsson.