Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.08.1910, Side 2

Skírnir - 01.08.1910, Side 2
II Skýrslur og reikningar. Þá var samþykt í einu hljóði tillaga stjórnarinnar þess efnis að taka tilboði Þorleifs aðjunkts Bjarnasonar og Jóns yfirdómara Jenssonar um að búa til prentunar bróf og skilríki til æfisögu Jóns Sigurðssonar, er fólagsdeildirnar gæ<Si síðan út í samlögum fyrir aldarafmæli hans 1911. Frá heimflutningsnefndinni bar forseti fram svohljóðandi til- lögu, er samþykt var með öllum þorra atkvasða: Fundurinn lýsir yfir því, að hann haldi fast við þá skoðun, sem oft hefir áður komið fram í deildinni, að Bókmentafó- lagið eigi að vera eitt og óskift og hafa aðsetur sitt í Reykjavík og treystir því að Hafnardeildin taki nú sjálf frumkvæði í því máli. Þá voru kjörnir 3 heiðursfólagar og 46 almennir fólagar. Síðari ársfundur Reykjavíkurdeildar var hald- nn 8. júlí 1910. Forseti skýrði frá athöfnum og bókaútgáfum deildarinnar á árinu, svo og hverjar bækur Hafnaideildin gæfi út. Um Skírni fólst fundurinn á þá tillögu forseta, að heftin skyldu framvegis koma út í byrjun hvers ársfjórðungs.Yiö tillögu síðasta fundar um Þjóðlagasafnið var samþykt svofeld breytingar- og viðaukatillaga : A eftir orðunum »fái ekki bókina« komi: »en allir aðrir fólagsmenn, þeir sem nú eru í fólaginu, fái hana ókeypis, meðan hrekkur eintakatala sú, sem fólags deildin á nú; en fari svo, að stjórnin geti fengið með góðum kjörum viðbótaeintök hjá forlaginu, þá njóti þeir menn þeirra góðkjara, er of seinir verða til að ná í eintök af hin um upphaflega forða«. Því næst fóru fram embættismannakosningar og fóllu þannig: forseti prófessor Björn M. Ólsen, fóhirðir Halldór bankagjaldkeri Jónsson, ritari dr. Björn Bjarnason, bókavörður Sigurður bóksali Kristjánsson; varaforseti Steingr. rektor Thorsteinsson, varafóhirðir Sighvatur bankastjóri Bjarnason, vararitari Jón sagnfræðingur Jóns son, varabókavörður'Mattías fornmenjavörður Þórðarson; endurskoð- unarmenn Klemens Jónsson landritari og Hannes Þorsteinsson alþm. Loks voru kjörnir 36 nýir fólagar. Arsfundur Hafnardeildar var haldinn þ. 20. ágúst- mánaðar 1910 á Borchs-kollegíi. — 25 voru á fundi.

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.